Morgunblaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 39 ✝ Hulda Guðna-dóttir fæddist á Krossi í Ljósavatns- hreppi í S.-Þing. 10. apríl 1913. Hún lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 11. nóv- ember síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Guðna Vil- hjálms Þorsteinsson- ar, f. í Jarlsstaðaseli í Bárðardal 2.7. 1883, d. 18.6. 1971, og Jakobínu Kristínar Ólafsdóttur, f. á Ytra- Fjalli í Aðaldal, 2.3. 1890, d. 8.1. 1967, en þau hjón bjuggu lengst á ýmsum bæjum í Fnjóskadal. Önnur börn þeirra, systkini Huldu, voru Jón, f. 1.3. 1915, d. 15.11. 2000, Sigrún, f. 23.4. 1917, d. 3.7. 1943, Mekkín, f. 4.5. 1920, Sigurbjörg, f. 26.7. 1925, Kristín, f. 22.10. 1927, og Guðrún Björg, f. 11.1. 1934, d. 26.11. 1991. Hulda giftist 31.8. 1940 Páli Ólafssyni frá Sörlastöðum, f. 27.11. 1908, d. 15.1. 1982, en þau skildu 1942. Sambýlismaður hennar frá því seint á sjöunda áratugnum var Einar Stefán Sigurðsson, sjómaður, f. á Skálum á Langanesi 23.12. 1916, d. 15.1. 1995, en sonur hans er Sigurður, f. 5.7. 1946. Synir Páls og Huldu eru: 1) Hjörtur, fv. dagskrár- 1971. 2) Hreinn, hæstaréttarlög- maður, f. 1.6. 1942, kvæntur Mar- gréti Ólafsdóttur, hjúkrunarfræð- ingi, f. 23.2. 1940. Börn þeirra: A) Lára, BA í íslensku, kennari, f. 9.7. 1964, gift dr. Erlingi Jóhannssyni, dósent við KHÍ, f. 14. 2. 1961, og eiga þau börnin a) Agnesi, f. 17.6. 1990, b) Jóhann, f. 18.11. 1994, og c) Þóru, f. 25.1. 2002. B) Ólafur, hönn- uður, starfsmaður Vegagerðar rík- isins, f. 15.4. 1967, kvæntur Sigur- björgu Maríu Ísleifsdóttur, tannsmið, f. 26.2. 1970, og eiga þau börnin a) Símon Hrein, f. 23.1 1989, b) Margréti Ídu, f. 18.1. 1999, og c) Ásdísi Jönu, f. 28.10. 2001. C) Guðni, framkvæmdastjóri Íslensku vefstofunnar, f. 6.12. 1971, sam- býliskona Þórey Vilhjálmsdóttir, flugfreyja, f. 6.12. 1971, og eiga þau tvíburadæturnar Ölmu Guðrúnu og Evu Margréti, f. 10.11. 1994. D) Hans, nemi, f. 18.2. 1980. Hulda Guðnadóttir var nemandi í Húsmæðraskólanum á Laugum 1931-32 og vann á yngri árum ýmis almenn störf heima og heiman. Eft- ir að hún fluttist til Akureyrar 1948 vann hún mest við sauma jafnframt húsmóðurstörfum, bæði heima og á klæðskeraverkstæðum og sauma- stofum. Um tíma rak Hulda þar einnig litla fatahreinsun og var nokkur ár gæslukona í húsi sr. Matthíasar, Sigurhæðum. Síðustu sex árin, eftir að heilsa hennar bil- aði, var dvalarheimilið Hlíð sama- staður hennar. Útför Huldu verður gerð frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. stjóri, rithöfundur, f. 5.6. 1941, kvæntur Steinunni Bjarman, fv. deildarstjóra, f. 7.10. 1928. Dætur þeirra: A) Hulda, læknir, f. 30.7. 1962, gift Eggert Pét- urssyni, myndlistar- manni, f. 24.11. 1956, og eiga þau börnin a) Eyvind, f. 6.11. 1981, b) Pétur f. 19.8. 1985, c) Guðrúnu Ingu, f. 11.6. 1995, og d) Hjört Pál, f. 24.2. 1998. B) Guð- björg myndlistarkona, f. 18.10. 1963, gift Michael R. Leaman, bókaútgefanda í London, og eiga þau börnin a) Thor Michael Berg, f. 26.9. 1991, og b) Svölu Louise Veru, f. 15.2. 1994. C) Þórunn, myndlistar- og blaða- kona, f. 28.2. 1965, gift Herði Bragasyni, tónlistarmanni, f. 15.2. 1959, og eiga þau dæturnar a) Steinunni, f. 14.6. 1987, og b) Katr- ínu, f. 7.6. 1991. Stjúpdóttir Hjartar er Kristín Pálsdóttir, skrifstofu- stjóri, f. 11.11. 1950, gift Ragnari Lár, myndlistarmanni, f. 13.12. 1935. Dóttir þeirra er Freyja, nemi, f. 7.2. 1975, og á hún synina Eið Benedikt Eiríksson, f. 1.11. 1991, og Daða Frey, f. 3.10. 1998. Faðir hans og sambýlismaður Freyju er Örvar Daði Marinósson, f. 23.8. Tengdamóðir mín, Hulda Guðna- dóttir, verður jarðsett í dag og við það tækifæri langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Hulda var að mörgu leyti óvenju sjálfstæð kona sem barðist fyrir tilveru sinni og sinna og því var það þyngra en tárum tæki að hún skyldi ekki fá að njóta lífsins með sonum sínum og fjölskyld- um þeirra síðustu árin, en þá hafði minnissjúkdómur náð tangarhaldi á henni og hún fjarlægðist okkur meir og meir. Það eru liðin rösk 40 ár síðan ég kynntist Huldu. Við fyrstu kynni virt- ist hún dul og fálát, en það var aðeins á ytra borði. Að vísu var hún aldrei að trana sér fram né taka fram fyrir hendurnar á fólki og laus við alla af- skiptasemi. En hún var eins og klett- urinn á sínum stað þegar á þurfti að halda. Allir gátu leitað til hennar, skyldir og vandalausir, og hún leysti vanda fólks án þess að hafa orð um það. Hulda var elst sjö systkina, fædd og alin upp í sveit. Foreldrar hennar voru alla tíð leiguliðar og bjuggu yf- irleitt á litlum jörðum utan þann tíma sem faðir hennar var kirkjubóndi á Hálsi í Fnjóskadal. Móðuramma hennar hafði ung orðið ekkja og átti þá tvær barnungar dætur. Hún braust áfram með dætur sínar og var svo lánsöm að geta alltaf haft þær hjá sér. Hún fylgdi móður Huldu og vann því heimili meðan hún lifði. Guðni, faðir Huldu, missti móður sína barn- ungur og var alinn upp hjá vanda- lausu en góðu fólki á Fljótsheiðinni. Fólkið sem að Huldu stóð vissi því að ekkert fékkst án fyrirhafnar og það varð að treysta á sig sjálft. Hulda var aðeins 5 eða 6 ára þegar hún fór að hjálpa til og amma hennar, Hildur, var hennar stoð og stytta. Skólaganga var af skornum skammti í sveitinni. Hún og Jón bróðir hennar, sem var næstur henni í aldri, gengu tvo vetur í skóla á Draflastöðum tvo mánuði hvort árið. Veturinn eftir fermingu var hún þar einnig mánað- artíma við nám ásamt fleiri ungling- um. Hulda var einn vetur á Hús- mæðraskólanum á Laugum í Reykja- dal þegar hún var 18 ára og var þá yngsti nemandinn. Seinna sagði Hulda okkur að auð- vitað hefði sig langað til að læra meira en þess var enginn kostur. Hún sagðist alla tíð hafa haft mjög gaman af tónlist og söng og átt draum um að eignast og læra á orgel og syngja í kór. Hún var í skólakór á Laugum og síðar á ævinni söng hún með kór aldr- aðra á Akureyri. Orgel gat hún keypt þegar hún var á áttræðisaldri en þá var orðið nokkuð seint að læra á það. Annað langaði hana afar mikið til að læra og fást við en það var garðyrkja. Hana dreymdi um góðan garð við hús sitt sem rættist aðeins að litlu í síð- asta húsinu sem hún bjó í. Hún hafði það sem kallað er „græna fingur“ og var alltaf að koma til blómum sem aðrir höfðu gefist upp á. Hjá henni fengu dætur mínar áhuga á blómum og þegar þær komu frá henni á haust- in voru þær alltaf með nokkra af- leggjara í fórum sínum. Hulda vann á ýmsum stöðum í sveitinni eða heima hjá foreldrum sínum næstu árin. En sumarið 1940 giftist hún Páli Ólafssyni á Sörlastöð- um í Fnjóskadal og fluttist þangað. Páll bjó þar ásamt foreldrum sínum og systur. Þar fæddist eldri sonur þeirra, Hjörtur, vorið 1941, en Hreinn fæddist á Hálsi ári seinna og voru Hulda og Páll þá skilin að skipt- um. Með hjálp foreldra sinna barðist Hulda áfram með syni sína og settist að á Akureyri 1948 og átti þar heima upp frá því. Fyrstu árin leigði hún í fremur ófullkomnu húsnæði, hafði t.d. sjaldan baðherbergi og iðulega aðeins eldunarpláss. Húsnæðið var alltaf þröngt og þegar gömlu hjónin, foreldrar hennar, fluttu til Akureyrar settust þau að hjá henni og bjuggu í skjóli hennar til æviloka. Smátt og smátt rættist úr fyrir Huldu og hún eignaðist hlutdeild í húsnæði, fyrst á móti föður sínum en seinna á móti Einari sambýlismanni sínum. Hún bjó á 9 eða 10 stöðum á Akureyri en alltaf á svipuðum slóð- um, í eða rétt við miðbæinn. Lengst í suður var hún í Höepfner og lengst í norður í Hólabraut og var þar síðasta heimili hennar. Hulda vann mest við sauma þessi árin, og tók þá oft verkefni heim. Einnig vann hún ýmiss konar tilfall- andi verkakvennastörf. Ævi hennar um þessar mundir eins og svo oft síð- ar hefur áreiðanlega verið endalaust strit. Hún sagði seinna að hún hefði reynt að hafa sem frjálslegast upp- eldi á sonum sínum, það hefði komið af sjálfu sér því þeir hefðu orðið að bjarga sér sjálfir með svo margt. Eins hefði það verið með námið, um það hefðu þeir verið alveg sjálfráðir og hún aldrei þurft að hvetja þá til framhaldsnáms því að þeir hefðu ver- ið staðráðnir í því að halda áfram námi. Ég hafði oft séð Huldu á Akureyri áður en ég kynntist henni. Hulda var fremur há kona, samsvaraði sér vel og mjög sterklega vaxin. Hún var dökkhærð og dökkeyg, kinnbeinahá og alvörugefin á svip. Hún var alltaf smekklega klædd án alls íburðar. Vorið 1962 varð hún tengdamóðir mín og þá hófust okkar kynni. Það vor varð yngri sonur hennar, Hreinn, stúdent og í tilefni dagsins hélt hún veislu heima hjá sér. Mér er þessi dagur mjög minnisstæður. Veislan var notaleg, gestir voru nánir ætt- ingjar og vinir, svo og faðir sona hennar og föðursystir. Allt fór þetta vel fram og Hulda kvaddi sér hljóðs og hélt ræðu fyrir son sinn. Hún þakkaði honum hvað hann hefði verið traustur og góður sonur og staðið sig vel í skóla og óskaði honum velfarn- aðar í lífinu. Þetta gerði hún á svo virðulegan en látlausan hátt að ég hefi aldrei gleymt því. Hún var alveg fumlaus og eins og hún væri þessu þaulvön. Eiginlega var þetta í fyrsta skipti sem ég hafði heyrt konu halda borðræðu blaðalaust. Eftir að ég kynntist sonum hennar betur og nánar fann ég að þeir höfðu hlotið annað veganesti en ég og þeir sem ég hafði alist upp með. Móðir þeirra hafði með sjálfstæði sínu gert þá sjálfstæða og óháða sér. Flest ungt fólk sem ég þekkti fékk í veganesti frá foreldrum og kennur- um margvíslegar fyrirbænir um að vera foreldrum, ættmennum og skól- um til sóma, gæta sín á freistingum og gleyma ekki því sem foreldrar og aðrir hefðu fyrir það gert. Á þennan hátt fannst mér ungu fólki iðulega vera íþyngt með óþarfa samviskubiti. Afstaða Huldu hefur verið mér töluvert umhugsunarefni og ég hefi dáðst að því hvað hún sýndi sonum sínum mikið traust. En þetta var hennar háttur, hún barmaði sér aldr- ei og það hvarflaði ekki að manni að sýna henni vorkunnsemi. Drengirnir hennar tveir kvæntust báðir rétt eftir að þeir hófu háskóla- nám og hún eignaðist fljótlega barna- börn. Hún var afar stolt af þeim og barnabarnabörnunum og mjög nota- leg við þau. Dætur okkar Hjartar voru iðulega hjá henni á Akureyri á sumrin. Þær hlökkuðu alltaf til að fara þangað og sögðu gjarnan við okkur að hjá ömmu sinni fengju þær að gera allt. Ég held að hún hafi aldr- ei skammað börn og sjálfsagt leyft þeim að gera það sem þau langaði til þegar þau báðu um það. Eftir að Einar Sigurðsson og Hulda hófu sambúð breyttist líf hennar töluvert. Einar átti bíl og þau ferðuðust talsvert um landið. Stund- um fóru þau með barnabörnin með sér eða voru í samfloti við vini og ætt- ingja. Þau fóru einnig nokkrar ferðir til útlanda. Fyrstu utanlandsferðina fóru þau til Árósa að heimsækja okk- ur Hjört þegar við bjuggum þar. Þegar Hulda varð sjötug buðu syn- ir hennar þeim í ferðalag, fyrst til Danmerkur og þaðan til Grikklands. Við fórum í þessa ferð níu saman og var hún sérlega vel heppnuð. Hulda undi sér mjög vel í hitanum á grísku eyjunni Kos og sjórinn og maturinn þar átti mjög vel við hana. Seinna fór Hulda ein að heimsækja sonardætur sínar í Noregi og á Englandi. Á heimili Huldu var alltaf mjög gestkvæmt. Þegar hún flutti til Ak- ureyrar voru allar systur hennar bú- settar í sveit og ef þær voru á ferð í bænum var heimili hennar fastur við- komustaður. Eftir að gömlu hjónin fluttu til hennar varð hennar heimili því eins og heimili systkina hennar og þeirra fólks. Á Akureyri eignaðist hún marga vini. Það var fólk sem hafði leigt eða unnið með henni eða hún hafði hjálpað á einn eða annan hátt. Það gilti sama regla á heimili Huldu og Einars eins og í sveitinni í gamla daga. Allir voru velkomnir og sjálfsagt að ganga úr rúmi og sofa á undirsæng í eldhúsinu til að koma öll- um fyrir. Börn voru alltaf í kringum Huldu og Einar og það voru fleiri en þeirra barnabörn sem kölluðu þau ömmu og afa. Allt fjas og raus var Huldu víðsfjarri og því fannst fólki gott að leita til hennar. Hulda dvaldi oft á heimili okkar Hjartar og kom alltaf ef einhver tímamót voru í fjölskyldunni. Hún var einnig iðulega hjá okkur um jólin. Hún var afar þægileg á heimili og hjálpaði til við heimilisstörfin án þess að tala um það. Hún tók með mér slátur. Gerði og skar út laufabrauð. Sendi okkur bláber á hverju sumri og margt fleira. En hún blandaði sér aldrei í samskipti okkar hjóna. Hún var mjög notaleg við móður mína sem var hjá okkur í heimili og systkini mín og þeirra fólk laðaðist að henni. Sambýlismaður Huldu, Einar Sig- urðsson, lést 1995. Hann var mjög heilsulítill síðustu árin og kom það af sjálfu sér að Hulda annaðist hann meðan hann var heima, en síðustu mánuðina dvaldi hann á sjúkrahúsi og þangað heimsótti hún hann hvern einasta dag. Hún stóð á virðulegan og látlausan hátt fyrir útför hans og erfi. En eins og áður segir kom skömmu seinna í ljós minnissjúkdómur sá sem tók hana seinast alveg frá okkur. Síð- ustu árin dvaldi hún á Dvalarheim- ilinu Hlíð og sýndi starfsfólkið þar henni dæmalausa hlýju og alúð. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég einstaka sæmdarkonu og votta öllum aðstandendum hennar innilega samúð mína. Steinunn Bjarman. Það sem kemur upp í hugann þeg- ar ég minnist ömmu minnar eru æskuminningar: Akureyri, amma og Einar, sambýlismaður hennar, Guðni langafi minn og Doppa, en amma átti kött með þessu nafni. Í íbúðinni heima hjá ömmu í Hafnarstræti 88 voru, undir súðinni yst, í tveimur her- bergjum kompur. Önnur var Einars kompa, hin ömmu kompa. Í þessum kompum fengum við útrás fyrir sköp- unargleðina. Í ömmu kompu var sauma- og prjónadót yfirgnæfandi, en í Einars kompu var smíða-, veiði- og málningardót og það var alltaf til nógur efniviður til að föndra úr. Hjá ömmu kynntist ég, fyrir utan prjón og hekl, útsaumi, að rýja, að flosa og auðvitað saumavélum. Í Hafnarstrætinu var uppi rokkur og prjónavél, á tímabili átti hún líka vef- stól og í nokkur ár fatahreinsun. Amma kenndi mér líka að baka, steikja kleinur og hræra skyr. Amma var róleg og góð kona með sterka réttlætiskennd. Sumarið sem ég var átta ára og var hjá henni fékk eldri systir mín að fara til systur ömmu í sveit. Mig langaði líka í sveit og amma gafst ekki upp fyrr en hún kom mér í sveit líka. Amma skildi allt – það þurfti oft engin orð. Eftir að Einar lést var eins og hennar fasti tilverugrundvöllur riðl- aðist. Hún fjarlægðist okkur meir og meir og hvarf á endanum yfir í eigin veröld. Þó fannst mér, þegar ég heimsótti hana fyrir um ári, að hún áttaði sig alveg á því að hún þekkti mig, þó að hún vissi líklega ekki hver ég var, og það þótti mér vænt um. Mér finnst það segja sína sögu um ömmu mína að þegar við, sonardætur hennar fjórar, vorum um tvítugt, eða farnar að heiman gaf hún okkur öll- um saumavélar. Amma var kona sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna og ég þakka fyrir að hafa fengið að eiga hana svona lengi að. Þórunn Hjartardóttir. Þegar ég var 6 ára flutti ég til Ak- ureyrar og mikið hlakkaði ég til því ég var að flytja til ömmu og nú gat ég átt hana alla daga. Víst er að þá óraði mig ekki fyrir því hvað hún átti eftir að skipa stóran sess í lífi mínu. Amma var alltaf saumandi og einn- ig var hún dugleg að prjóna og því þótti mér sjálfsagt að leita til hennar þegar ég vildi læra að prjóna. Að venju var hún boðin og búin að hjálpa mér og frumraunin var að prjóna ut- an um herðatré. Í fyrstu þótti mér þetta mjög spennandi en heldur fór nú glansinn af þessum prjónaskap þegar illa gekk og seint miðaði. Ákvað ég því að hætta þessu en amma var á öðru máli. Það var góð og gild regla að ljúka því sem maður var byrjaður á og víst er að ég var ósköp stolt er verkinu var lokið. Árið sem hún varð áttræð heim- sótti hún mig til Noregs. Noregur hafði alltaf verið draumalandið henn- ar og mér var mikið í mun að sýna henni sem mest. Þegar við keyrðum um sveitir Noregs söng hún og trall- aði og lék á alsoddi. Við fórum meðal annars til Lillehammer og skoðuðum þar Maihaugen sem er n.k. Árbæj- arsafn þeirra Norðmanna. Þar var amma í essinu sínu og hljóp um túnin og inn í hvert húsið á fætur öðru, þef- aði af nýslegnu grasinu og fræddi okkur um hina ótrúlegustu hluti. Ef eitthvað varð á vegi okkar sem henni hún þekkti ekki varð ég að staldra við og útskýra og áhugasamari nemanda hef ég aldrei haft. Minningin um hana, áttræða, hlaupandi um eins og smástelpa í bláum íþróttagalla merktum Norges Idrettshögskole, er yndisleg. Megi minningin lifa um konu sem gaf svo mikið af sér en krafðist einsk- is í staðinn. Lára Hreinsdóttir. Hulda amma og Akureyri voru mér óaðskiljanleg hugtök þegar ég var lítil. Við systurnar fengum þá oft að fara til Huldu ömmu til sumar- dvalar. Það var mikil gleði að fá að fara til Huldu ömmu. Með fiðring í maganum flugum við norður og áður en við vissum af vorum við komnar í Hafnarstræti 88. Í faðm ömmu og hjarta bæjarins. Allt var við höndina sem litlar stelpur gat dreymt um. Sjórinn og fjöllin sáust út um gluggann. Allt var á næsta leiti. Stutt í frostpinna í sjoppunni og franskar á Bautanum og nóg var af leikfélögum í næstu húsum. Huldu ömmu fylgdi mikil ró og ör- yggi, það var gott að vera hjá henni og mæta hlýja og langa brosinu. Við fengum stundum að fara með henni í hreinsunina og einu sinni man ég að amma átti smjörköku, enginn var hnífurinn, en amma dró upp voldug klæðskeraskæri og sagði: Þá klippum við hana bara. Munur að eiga svona ráðagóða ömmu. Amma var líka ein- staklega flink í höndunum og hafði gaman af að búa til fallega hluti. Hún útbjó hettuúlpu á bangsann minn, með loðkraga og öllu, svona gersemi átti nú enginn annar krakki. Með Einari og ömmu ferðuðumst við um landið. Eitt skiptið keyrðum við fyrir Ólafsfjarðarmúlann, amma var loft- hrædd og skipti um sæti svo hún sæi ekki þverhnípið beint út um gluggann. Þetta vakti með okkur stelpunum mikla kátínu því þarna var eini veikleikinn sem við gátum fundið á óbrigðulli ömmu. Sumarkvöldin hjá Huldu ömmu eru ógleymanleg, alltaf var kvöldinu lokið með því að setjast saman í eld- húsinu, fá sér tesopa og kex og spjalla við Einar og ömmu. Á þeim stundum var allt á réttum stað í heiminum. Huldu ömmu minnist ég með þakklæti fyrir allar góðu stundirnar. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Guðbjörg Hjartardóttir Leaman. HULDA GUÐNADÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.