Morgunblaðið - 20.11.2002, Síða 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 45
KJARTAN Jóhannsson
sendiherra afhenti 13. nóvem-
ber sl, Hans-Adam II prins af
Liechtenstein, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra Íslands í
Liechtenstein með aðsetur í
Brussel.
Afhenti
trúnaðarbréf
JÓLAMERKI Thorvaldsensfélagsins er komið út. Félagið hefur gefið út
jólamerki um áratugaskeið. Að þessu sinni teiknaði Þröstur Magnússon
merkið og grafískur hönnuður er Robert Gulliermette. Allur ágóði af
sölu merkjanna fer til Barnadeildar Landspítalans í Fossvogi og annarra
sjúkra barna. Jólamerkin eru til sölu á öllum pósthúsum landsins, í Thor-
valdsensbazarnum, Austurstræti 4 og hjá félagskonum.
Á heimasíðu félagsins www.thorvaldsens.is er hægt að skoða jólamerk-
in. Einnig er hægt að panta jólamerki á netfangi, thorvaldsens@isl.is.
Jólamerki Thorvaldsens-
félagsins komin út
Lýst eftir vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að um-
ferðaróhappi við Nönnugötu, þriðjudaginn 19. nóv-
ember. Þar var ekið á bifreiðina YF-675, sem er rauð
Mitsubishi Lancer-fólksbifreið sem stóð fyrir utan
hús nr. 14.
Skemmd er á vinstra frambretti. Tjónvaldur fór af
vettvangi án þess að tilkynna. Atvikið gerðist á milli
klukkan 14 og 15.25. Sá eða þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík í síma 569 9020.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILKYNNINGAR
Auglýsing
Deiliskipulag að 1. áfanga frístunda-
byggðar í landi Einifells, Borgarbyggð.
Samkvæmt ákvæðum 26. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreint deiliskipulag.
Tillagan mun liggja frammi á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 27. nóvember 2002 til
27. desember 2002.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 14. janúar 2003 og skulu þær vera skrifleg-
ar. Hver sá sem gerir ekki athugasemdir við
skipulagið innan tilskilins tímafrests telst
samþykkur deiliskipulagstillögunni.
Borgarnesi, 19. nóvember 2002,
bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar.
Breyting á deiliskipulagi
frístundabyggðar í landi
Brekku, Borgarbyggð
Samkvæmt ákvæðum 26. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreint deiliskipulag.
Tillagan mun liggja frammi á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 20. nóvember 2002 til
18. desember 2002.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 2. janúar 2003 og skulu þær vera skrifleg-
ar. Hver sá, sem gerir ekki athugasemdir við
skipulagið innan tilskilins tímafrests, telst
samþykkur deiliskipulagstillögunni.
Borgarnesi, 12. nóvember 2002,
bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar.
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyting-
um, eru hér með auglýstar til kynningar
tillögur að deiliskipulagsáætlunum og breyt-
ingum á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftir-
talin svæði í Reykjavík:
Reitur 1.181.0
Tillagan tekur til reits sem afmarkast af
Óðinsgötu, Týsgötu, Spítalastíg og Skóla-
vörðustíg. Um er að ræða deiliskipulag sem
samþykkt var til auglýsingar í borgarráði 29.
október 2002.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að reisa megi
einnar hæðar hús (bílgeymslu) sunnan nú-
verandi húss að Óðinsgötu og að stein-
steypt viðbygging á lóðinni Óðinsgata 5
megi víkja. Þess í stað verði heimilt að
byggja einnar hæðar viðbyggingu við
timburhúsið. Þá gerir tillagan ráð fyrir að
heimilt verði að byggja þriggja hæða hús
með kjallara á lóðunum Týsgata 4 og 6,
kvöð er um aðkomu að Týsgötu 4b og 4c
um lóðina Týsgata 4 og á lóðinni Týsgata 8a
er heimilt að byggja þriggja hæða hús með
risi og valma til vesturs ásamt kjallara.
Grófin.
Tillagan tekur til reits sem afmarkast af
Tryggvagötu, Grófinni, Vesturgötu, Hafnar-
stræti og Naustinni. Um er að ræða deili-
skipulag sem samþykkt var til auglýsingar í
borgarráði 5. nóvember 2002.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að reisa megi
nýbyggingu, þrjár hæðir og kjallara, á lóð-
inni Vesturgötu 2a, og þrjár hæðir og
kjallara á lóðinni Vesturgötu 2, meðfram
Tryggvagötu, og Tryggvagötu 22. Ekki er
gert ráð fyrir neinum breytingum frá nú-
verandi ástandi varðandi Hafnarstræti 1-3.
Grjótháls 8, vetnisstöð.
Tillagan tekur til lóðarinnar Grjótháls 8
(bensínstöð Skeljungs). Um er að ræða
deiliskipulag sem samþykkt var til auglýs-
ingar í borgarráði 5. nóvember 2002.
Deiliskipulagsbreytingin varðar stækkun á
byggingarreit til austurs um 34 m. til að
koma fyrir mannvirki til framleiðslu og af-
greiðslu á vetni.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka
daga kl. 10.00 – 16.00 frá 20.11. 2002 - til
03.01. 2003. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við þær skal skila skriflega til skipulags-
fulltrúa eigi síðar en 03.01 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 20.11. 2002.
Skipulagsfulltrúi
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 18311208 Bk.
I.O.O.F. 9 18311208½
HELGAFELL 6002112019 VI
I.O.O.F. 7 18311207½ Fl.
GLITNIR 6002112019 I
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Í kvöld kl. 20.00 hjálparflokk-
ur. Allar konur hjartanlega vel-
komnar.
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í Kristniboðssaln-
um í kvöld kl. 20.30.
„Góður hirðir“. Guðlaugur Gísla-
son og Birna Gerður Jónsdóttir
tala. Heitt á könnunni eftir sam-
komuna. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Miðvikudagskvöldið 20. nóvem-
ber 2002
Kvöldganga á fullu tungli
Kaldársel — Valaból
Kvöldganga á fullu tungli.
Gengið frá Kaldárseli ofan við
Hafnarfjörð í Valaból.
Þátttakendum er bent á að
hafa með sér góð ljós.
Brottför frá BSÍ kl. 19:30. Komið
við í Mörkinni 6. Heimkoma um
klukkan 22. Þátttökugjald kr.
1.700 félagsmenn og kr. 1.900
aðrir.
Fararstjóri: Sigurður Kristjáns-
son.
24. nóv.
Melhóll — Sundhnúksgíga-
röðin Reykjanesi
30. nóv.—1. des. Aðventu-
ferð í Þórsmörk.
29. des.—1. jan. Áramótaferð
í Landmannalaugar
Upplýsingar: www.fi.is _ Síða
619 í textavarpinu.
Almennur
félagsfundur
Styrktarfélag vangefinna býður til almenns fé-
lagsfundar í kvöld, miðvikudaginn 20. nóvem-
ber kl. 20.00. Fundurinn verður í Kiwanis-húsinu
v. Engjateig. Fjölmennum og mætum stundvís-
lega. Kaffi og meðlæti í boði eftir fundinn.
Stjórn Styrktarfélags vangefinna.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Hnýttu og bíttu -
Kosningakvöld
Fyrsta hnýttu og bíttu kvöld vetrarins verður
í kvöld, miðvikudaginn 20. nóvember, kl. 20.00
í sal SVFR.
Meðal annars munu stjórnarframbjóðendur
hnýta eða láta hnýta uppáhaldsflugur sínar.
Við skorum á félagsmenn og aðra veiðimenn
að koma með hnýtingagræjurnar með sér.
Fræðslunefnd SVFR.