Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 49
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 49
Lára Margrét áfram í 5. sæti
Efnisskráin verður fjölbreytt og skemmtileg.
Þeir sem koma fram eru m.a.
• Ólöf Kolbrún Harðardóttir
• Kristín Sædal Sigtryggsdóttir
• Garðar Cortes
• Bergþór Pálsson
• Valgeir Guðjónsson
• Clive Pollard
• Kór óperusöngvara undir stjórn Garðars Cortes
Verið hjartanlega velkomin og njótið kvöldsins með okkur
á þessum einstæðu tónleikum.
VINIR LÁRU
BJÓÐA Á TÓNLEIKA
í íslensku óperunnI á morgun,
fimmtudag kl. 20.00
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag
kl. 13.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Létt-
ur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyr-
irbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl.
14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10–12. Samverustund fyrir
6–8 ára börn kl. 15 í kórkjallara. 910 klúbb-
urinn kl. 16. 112 klúbburinn kl. 17.30.
Fræðslukvöld kl. 20. Sr. Ingþór Indriðason
Ísfeld flytur fyrirlestur um samtíð Jesú.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11.
Kvöldbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð með
orelleik og sálmasöng. Allir velkomnir. Kl.
12.30 súpa og brauð í safnaðarheimilinu
(kr. 300) Kl. 13–16 opið hús fyrir eldri borg-
ara. Söngur, spjall, föndur og tekið í spil.
Kaffiveitingar. Kl. 17–18.10 Krúttakórinn,
4–7 ára. Kl. 18–18.15 kvöldbænir í kirkj-
unni. Kl. 18.15–19 Trú og líf. Prestar kirkj-
unnar leiða umræður og fræðslu um trú-
aratriði. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Kirkjuprakkarar (1.–4.
bekkur) kl. 14.10. Leikir, söngvar, biblíu-
saga, bænir, djús og kex. TTT-fundur (10–
12 ára) kl. 16.15. Menntaskólanemarnir
Andri og Þorkell leiða starfið ásamt hópi
sjálfboðaliða. Fermingartími kl. 19.15. Ung-
lingakvöld Laugarneskirkju og Þróttheima
kl. 20 (8. bekkur). (Sjá síðu 650 í Texta-
varpi).
Neskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Eit-
urefni í umhverfinu. Elín Guðmundsdóttir
efnafræðingur kemur í heimsókn. Umsjón
Elínborg Lárusdóttir. Kirkjustarf fyrir 7 ára
börn kl. 14.30. Sögur, leikir, föndur og
fleira. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall. Upp-
lestur og fræðsla kl. 17. Umsjón sr. Örn
Bárður Jónsson. Fyrirbænamessa kl. 18.
Sr. Örn Bárður Jónsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur hádegisverður eftir stundina.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há-
degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrirbænir
og íhugun. Kl. 13–15 opið hús.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára
kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp
á léttan hádegisverð á vægu verði að lok-
inni stundinni. Allir velkomnir. Kirkjukrakkar
fyrir börn 7–9 ára í Rimaskóla kl. 17.30–
18.30 KFUM fyrir drengi 9–12 ára í Graf-
arvogskirkju kl. 17.30–18.30. TTT fyrir börn
10–12 ára í Rimaskóla kl. 18.30–19.30.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8. bekk í
Engjaskóla kl. 20–22.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12.
TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. 12-spora
námskeið kl. 20.
Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börn-
um í dag kl. 16.45–17.45 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börnum
TTT á sama stað kl. 17.45–18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkj-
unni í síma 567 0110. Æskulýðsfundur fyr-
ir unglinga 14–15 ára kl. 20.
Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar.
Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra
barna kl. 10–12. Heitt á könnunni. Fjöl-
mennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl.
13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á
Álftanesi. Notalegar samverustundir með
fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður eða Er-
lendur sjá um akstur á undan og eftir.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hittumst og
spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir
börnin. Allir foreldrar velkomnir með eða án
barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbæn-
ir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti
Strandbergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbænastund
í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu og brauð í
safnaðarheimilinu á eftir. Hægt er að koma
fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkju-
varðar. Bókakynning. Í tilefni af áttræðisaf-
mæli sr. Jörg Zink verður bókakynning í
safnaðarheimilinu í kvöld kl. 20.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í
dag kl. 10–12.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11
helgistund á Hraunbúðum. Sr. Kristján
Björnsson. Kl. 16.20 TTT-yngri hópur, 9–10
ára. Leiklistardagur. Kl. 17.30 TTT-eldri
hópur, 11–12 ára. Leiklistardagur. Kl. 20
opið hús í KFUM&K fyrir unglinga í 8.–10.
bekk. Nýir félagar velkomnir. Æskulýðs-
félag Landakirkju og KFUM&K.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl.
12.10. Samverustund í Kirkjulundi kl.
12.25, súpa, salat og brauð á vægu verði,
allir aldurshópar. Umsjón Sigfús Baldvin
Ingvason. Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá kl.
19–22.30. Stjórnandi Hákon Leifsson.
Njarðvíkurkirkja. Foreldramorgunn í Safn-
aðarheimilinu í dag, miðvikudag, kl. 10.30 í
umsjá Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu Sigurð-
ardóttur.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, hugleiðingar, fróðleiksmol-
ar og vitnisburðir. Allt ungt fólk velkomið.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10 í
safnaðarheimili. Eygló Aradóttir, barna-
læknir, talar um „hósta og hor í nös“. Allir
foreldrar velkomnir með börn sín. Fundur í
Æskulýðsfélagi Akureyrarkirkju, yngri deild,
kl. 20 í Safnaðarheimili. Biblíulestur kl.
20.30. Íhugun í kristinni trú. Lúkas 1–2. Sr.
Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur.
Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58.
Samkoma kl. 20.30. Guðlaugur Gíslason
talar: Kaffi á könnunni eftir samkomu. Allir
hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf
NÚ Í nánd jóla verða þrennir
kyrrðardagar í Skálholtsskóla þar
sem fólki gefst kostur á að draga
sig í hlé og undirbúa sig fyrir
jólahátíðina í kyrrð og íhugun.
Allir eru að sjálfsögðu velkomnir
Fyrstu kyrrðardagarnir verða
núna um helgina 22.–24. nóv-
ember og annast þau Málfríður
Jóhannsdóttir og Ragnar Snær
Karlsson leiðsögn og fjalla m.a.
um ýmsar hliðar bænalífsins og
sérstaklega um aðventutímann,
undirbúningstímann fyrir jólahá-
tíðina. Kyrrðardagarnir eru sem
fyrr segir öllum opnir en þátttak-
endur í Alfanámskeiðum kirkj-
unnar munu tengjast fræðsluefn-
unum sérstaklega.
Þessir kyrrðardagar eru með
öðru formi en endranær, þar sem
þögninni er aflétt á fræðslustund-
unum og boðið er upp á umræður
í tengslum við þær.
Næstu kyrrðardagar verða í
byrjun aðventunnar. Þeir eru degi
lengri en oftast er, hefjast á
fimmtudagskvöldið 28. nóvember
og lýkur síðdegis á fyrsta sunnu-
dag í aðventu sem er 1. desember.
Sigurbjörn biskup Einarsson ann-
ast leiðsögn þessara kyrrðardaga
og leiðir þátttakendur inn jóla-
föstuna til undirbúnings jólunum.
Fullbókað er á þessa kyrrðardaga
en biðlistinn er opinn.
Um aðra aðventuhelgina, 6.–8.
desember verða hefðbundnir
kyrrðardagar þar sem þau sr.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir og
dr. Einar Sigurbjörnsson annast
leiðsögn en þau hafa mikla
reynslu af kyrrðardögum hér
heima og erlendis. Dagarnir hefj-
ast á föstudagskvöld og lýkur um
hádegisbil á sunnudegi.
Skrifstofa Skálholtsskóla veitir
nánari upplýsingar og annast
skráningu á kyrrðardagana í síma
486 8870 en netfangið er skol-
i@skalholt.is
Líftækni og
vísindapólitík
NÝSI og nasl í Neskirkju 21. nóv-
ember kl. 12.15–13.15
Dr. Sigríður Þorgeirsdóttir,
dósent við HÍ, og Steindór J. Erl-
ingsson vísindasagnfræðingur
ræða þema fundarins. Létt máltíð
í boði á kr. 500. Almennar umræð-
ur sem séra Örn Bárður Jónsson
stýrir.
Málstofan er öllum opin sem
hafa áhuga á að ræða þjóðfélags-
mál í ljósi kristinnar trúar.
Kyrrðardagar
í Skálholti
Morgunblaðið/Jim Smart
Skálholtskirkja
FRÉTTIR
LIONSKLÚBBURINN Kaldá í
Hafnarfirði er að hefja sína árlegu
jólakortasölu eins og undanfarin
ár og mun allur
ágóði renna til
líknarmála.
Sólveig Stef-
ánsson, mynd-
listarkona hefur
teiknað kortið.
Hægt er að fá
kortin brotin eða
óbrotin, með eða
án texta.
Jólakortasalan hefur jafnan
fengið góðar viðtökur og vonast
klúbbfélagar til að svo verði einnig
í ár.
Allar nánari upplýsingar um
kortasöluna veita þær, Steinunn
Bjarnadóttir, Mávahrauni 13, El-
ísabet Karlsdóttir, Smárahvammi
13, og Ásta Úlfarsdóttir, Hraun-
tungu 8
Jólakort Kald-
ár komin út
RAGNHEIÐUR Ríkharðsdóttir,
bæjarstjórí í Mosfellsbæ, hefur
beðið blaðið að birta eftifarandi at-
hugasemd:
„Föstudaginn 15. nóvember síð-
astliðinn kom ég ásamt fleirum
fram í Kastljósi. Þar var m.a. rætt
um prófkjörið í Norðvesturkjör-
dæmi og lét ég orð falla um utan-
kjörstaðaatkvæði á Skagaströnd,
þeim orðum mínum hefur verið
mótmælt sem röngum og vil ég
gjarnan biðjast velvirðingar á
þeim. Það var ekki ætlun mín að
varpa rýrð á þá einstaklinga sem
sáu um framkvæmd prófkjörsins á
Skagaströnd.“
Yfirlýsing
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing frá
verkfræðingum hjá Landsvirkj-
un, Ragnheiði Ólafsdóttur, Agn-
ari Olsen, Birni Stefánssyni og
Eysteini Hafberg:
„Dr. Ragnhildur Sigurðar-
dóttir hefur nýlega í viðtali sem
sýnt var í þættinum „Ísland í
bítið“ lýst því hvernig fram-
kvæmdaraðili, þ.e.a.s. Lands-
virkjun eða ónafngreindur verk-
fræðingur hjá fyrirtækinu, hafi
beitt hana óeðlilegum þrýstingi
á fyrsta verkfundi sem hún sótti
um mat á umhverfisáhrifum
Norðlingaölduveitu. Þessi um-
mæli og önnur er hníga í sömu
átt og höfð eru eftir þeim Þóru
Ellen Þórhallsdóttur og Gísla
Má Gíslasyni, prófessorum við
Háskóla Íslands, eru til þess
fallin að kasta rýrð á störf okk-
ar sem undir þessa yfirlýsingu
ritum. Dr. Ragnhildur segir að
hún sé að verja sinn vísindalega
heiður, en mikilvægt er að hún
og aðrir geri sér grein fyrir að
allir hafa starfsheiður, einnig
verkfræðingar sem starfa
reyndar skv. sérstökum siða-
reglum Verkfræðingafélags Ís-
lands.
Við undirrituð komum öll að
einhverju leyti að yfirlestri og
yfirferð skýrslu um mat á um-
hverfisáhrifum Norðlingaöldu-
veitu. Jafnframt höfum við ára-
tuga starfsreynslu bæði á
Íslandi og erlendis, m.a. við
undirbúning og byggingu virkj-
ana, og höfum í starfi okkar
fylgt í hvívetna þeim lögum og
reglum, skráðum jafnt sem
óskráðum, sem um starf okkar
gilda. Við höfum átt ágætt sam-
starf við tugi vísindamanna og
aðra sérfræðinga og aldrei
reynt að hafa óeðlileg áhrif á
niðurstöður þeirra. Hins vegar
teljum við það faglega skyldu
okkar að leita eftir skýringum
og rökstuðningi fyrir niðurstöð-
um sérfræðinga, ekki síst þegar
þær eru notaðar til að leggja
mat á framkvæmdir á vegum
Landsvirkjunar. Vissulega eru
sumar framkvæmdir Lands-
virkjunar umdeildar og ekki all-
ir á eitt sáttir. Það veitir hins
vegar dr. Ragnhildi ekki leyfi til
að koma fram með órökstuddar
ásakanir á hendur starfsmönn-
um fyrirtækisins.
Dr. Ragnhildur hefur hingað
til ekki viljað nafngreina verk-
fræðinginn sem hún vísar til í
viðtalinu og segir í nýlegu
blaðaviðtali að það sé raunar
aukaatriði í málinu. Að okkar
áliti er það ekkert aukaatriði að
vera sakaður um óeðlileg vinnu-
brögð, en ekki getur verið átt
við aðra en okkur fjögur. Við
teljum okkar faglega heiður síst
léttvægari en vísindalegan heið-
ur hennar og vísum þessum
ásökunum á bug.“
Yfirlýsing frá
verkfræðingum
hjá Landsvirkjun