Morgunblaðið - 20.11.2002, Qupperneq 54
Pierce Brosnan og Halle Berry voru
geislandi á heimsfrumsýningu nýj-
ustu Bond-myndarinnar í London.
ELÍSABET Bretadrottning var á
meðal heiðursgesta á heimsfrumsýn-
ingu nýjustu myndarinnar um
breska spæjarann James Bond, í
Royal Albert Hall í London á mánu-
dagskvöld. Drottningin kom í fylgd
eiginmanns síns, Filippusar prins, en
helstu leikarar Die Another Day
voru að sjálfsögðu á staðnum.
Má nefna Bond sjálfan, Pierce
Brosnan, Óskarsverðlaunahafann og
Bond-stúlkuna Halle Berry, og Ma-
donnu, sem syngur titillag myndar-
innar og leikur lítið hlutverk skylm-
ingakennarans Verity.
Nærvera kóngafólksins er til kom-
in vegna þess að myndin var valin
konungleg styrktarsýning fyrir sjón-
varp og kvikmyndir.
„Þú ert þá þessi nýtísku James
Bond? Ég hitti hina þrjá niðri,“ sagði
drottningin þegar hún var kynnt fyr-
ir Brosnan. Hún var að vísa til
George Lazenby, Timothy Dalton og
Sir Roger Moore. Sir Sean Connery,
hinn upprunalegi James Bond, var
sá eini, sem gat ekki verið viðstaddur
frumsýninguna.
Fjöldi Bond-aðdáenda tók á móti
fræga fólkinu er það kom til fram-
sýningarinnar en á meðal gesta voru
Shirley Bassey, Britt Ekland, Fiona
Fullerton og Jodie Kidd.
Brosnan, sem á eitt ár í fimmtugt,
er að leika Bond í fjórða sinn og hef-
ur alltaf jafn gaman af. Hann segir
þetta bestu Bond-myndina, sem
hann hefur leikið í.
Kvikmyndagagnrýnandi BBC er
þessu sammála og segir raunar að
Die Another Day gneisti af meiri
orku en Bond-myndir síðustu fimm-
tán ára. Þá segir hann að atriðið þar
sem Bond og norður-kóreskur
skúrkur aka um íslenskan jökul á
sportbílum sé bæði frábært og
fáránlegt.
Gagnrýnandi The Guardian er
þessu ekki sammála og segir mynd-
ina heldur dæmigerða þótt Brosnan
standi sig með prýði. Hann minnist
þó sérstaklega á lokaatriði myndar-
innar, sem á sér stað á Íslandi.
Bond-stúlkan Berry var íklædd
svörtum og hvítum kjól frá Oscar de
la Renta og sagðist á frumsýning-
unni vera ánægð með að leika gell-
una Jinx. Hún bætti við að ólíkt fyr-
irrennurum hennar sé Jinx sjálf
spæjari og geti vel staðið uppi í
hárinu á 007. „Jinx er jafningi
Bond,“ sagði hún.
Myndin verður frumsýnd hér á
landi 29. nóvember en hluti mynd-
arinnar er tekinn hér á landi, í Jök-
ulsárlóni og á Skálafellsjökli.
Reuters
Madonna heilsaði Elísabetu Bretadrottningu hæversklega á frumsýningunni.
Kóngafólk og stjörnur
Nýjasta James Bond-myndin frumsýnd í London
54 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 5.50.
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Mögnuð mynd
sem hefur fengið
einróma lof
gagnrýnenda.
Robin Williams
aldrei betri"
- USA Today
Missið ekki
af þessar Kvikmyndir.com
DV
HJ. MBL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
i
i l
i illi
l i i
-
i i i
Hann er með 1000
andlit...en veit
ekkert í sinn haus!
Dana Carvey fer á
kostum í geggjaðri
gamanmynd sem
er framleidd af
Adam Sandler.
Sýnd kl. 4. með ísl. tali
Sýnd kl. 8 og 10.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Allra s
íðustu
sýnin
gar!
DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.B. i. 16.
5, 7.30 og 10.
1/2Kvikmyndir.com
USA Today
SV Mbl
RadíóX
ÓHT Rás 2
Munið
M-12 tilboð
- 2 fyrir 1 -
UPPSELT er á tónleika breska tón-
listarmannsins Nicks Caves sem
verða á Broadway 9. desember.
Miðasala hófst klukkan 13.00 í gær
og 700 miðar sem voru til sölu hjá
Japis á Laugavegi seldust upp á 50
mínútum og 300 miðar seldust upp
á 25 mínútum í Japis í Brautarholti.
Þegar sölu var hætt var enn löng
röð framan við Japis á Laugavegi
og þegar mest var náði röðin upp á
Klapparstíg.
Snorri Thors, aðalskipuleggjandi, segist ekki hafa
átt von á að þetta gengi svona hratt fyrir sig.
Verið er að kanna möguleika á að Cave haldi aðra
tónleika hér á landi 10. desember.
Morgunblaðið/Kristinn
Beðið eftir miðum á tónleika Nick Cave.
Þúsund
miðar
á klst.
Uppselt á tónleika Nick Cave
Nick Cave.
BANDARÍSKI leikarinn James
Coburn lést á heimili sínu í Beverly
Hills í Kaliforníu á mánudagskvöld.
Coburn var að hlusta á tónlist með
konu sinni er hann leið útaf. Bana-
meinið var hjartaslag. Coburn hafði
þjáðst af liðagigt lengi en var að
öðru leyti við góða heilsu.
Coburn var lengi vel þekktur fyrir
að leika hetjur og skúrka í vestrum
og spennumyndum. Alls urðu mynd-
ir hans fleiri en 100 á sex áratuga
ferli.
Coburn fæddist 31. ágúst 1928 og
stundaði háskólanám í Los Angeles
og leiklistarnám í New York. Á
sjötta áratugnum lék hann í sjón-
varpsþáttum á borð við Bonanza en
varð síðar þekktur fyrirleik sinn í
myndum eins og The Magnificent
Seven og The Great Escape, Pat
Garrett and Billy the Kid og Cross
of Iron. Við lok áttunda áratugarins
fór Coburn að kenna gigtarinnar og
hvarf af hvíta tjaldinu í kjölfarið.
Hann átti hins vegar góða end-
urkomu í lok tíunda áratugarins og
fékk m.a. Óskarsverðlaun fyrir best-
an leik í aukahlutverki í myndinni
Affliction (1997).
„Coburn leit út fyrir að vera ósköp
venjulegur náungi en hann skoðaði
hlutverk sín ofan í kjölinn,“ segir
framleiðandinn Hillard Elkins, sem
þekkti til Coburns. „Hann skildi vel
hvað persónusköpun gengur út á.
Coburn var frábær leikari auk þess
að vera bráðfyndinn maður.“
Reuters
Leiðir Coburn og Óskars frænda
lágu saman á endanum.
Og hörku-
tólin líka…
James Coburn: 1928 – 2002
NÝ forvarnamynd, Þú átt val, var frumsýnd í Menntaskólanum í
Kópavogi í gær. Meginefni myndarinnar er viðtöl við ungt fólk. Rætt
við ungmenni er snemma urðu háð áfengi og eiturlyfjum og þurftu
að heyja harða glímu til að losna við fíknina. Ennfremur vekur at-
hygli að talað er við ungt fólk, sem hefur tekist að halda sig alger-
lega frá öllum vímugjöfum.
Í myndinni koma fram ýmsar tölulegar staðreyndir um eitur-
lyfjaneyslu unglinga og hversu alvarlegar afleiðingar hún getur
haft. Í lokin er bent á að ekki séu allir eins heppnir og viðmælend-
urnir, að losna úr viðjum vanans. Þekkja krakkarnir flestir einhverja
er hafa látist úr of stórum skammti eiturlyfja eða framið sjálfsmorð.
Að sögn Margrétar Friðriksdóttur, skólameistara MK, er stefnt á
að koma myndinni í dreifingu sem víðast. Einnig hefur verið ákveðið
að setja á hana texta og koma henni á framfæri erlendis.
Myndin var unnin með styrk frá Forvarnasjóði og Kópavogsbæ. Á
meðal þeirra er komu að gerð myndarinnar var enskukennarinn Neil
McMahon, leiðbeinandi og leikstjóri. Heimildavinnu og tökuhandrit
sömdu nemendurnir Gunnar Örn Ingólfsson, Jón Skúli Traustason,
Gunnar Örn Benediktsson og Bjarni Hauksson.
Morgunblaðið/Kristinn.
Nokkrir aðstandenda og viðmælenda myndarinnar, Jón Skúli
Traustason, Einar Karl Birgisson, Eva Ruza Miljevic, Gunnar Örn
Ingólfsson og Anna Sólveig Áskelsdóttir.
Að velja og hafna
Fo
rv
ar
na
m
yn
d
fr
u
m
sý
nd
í
M
e
nn
ta
sk
ó
la
nu
m
í
K
ó
pa
vo
gi