Morgunblaðið - 20.11.2002, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002 57
Ó.H.T. Rás2
1/2
SV. MBL
Frábær grínhasar með hinum eina sanna Jackie Chan.
Frá framleiðendum Men in Black og Gladiator
Sjáið
Jackie Chan
í banastuði
Þegar tveir ólíkir menn
deila getur allt gerst.
8 Eddu verðlaun.
Yfir 49.000 áhorfendur
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8. Vit 461
ÁLFABAKKI
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P kl. 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 480.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 479 Sýnd kl. 8 og 10. Vit 479
ÁLFABAKKI AKUREYRI AKUREYRI
Kvikmyndir.isStundum er það
sem að þú leitar
að.. þar sem þú
skildir það eftir.
Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur
fengið frábærar viðtökur og er nú þegar orðin vinsælasta
mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs.
ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 474 Sýnd kl. 6 og 10. Vit 474
SV Mbl
RadíóX
Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 10.10. B.i. 12. Vit 444 Sýnd kl. 8. Vit 455 Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12. Vit 433
ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.Sýnd kl. 4 og 6. Vit 441.
ÁLFABAKKI
Taktu lottó í áskrift á lotto.is eða næsta sölustað
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
| Y
D
D
A
/
si
a.
is
N
M
0
7
6
4
7 • Þínar tölur eru alltaf í pottinum
• Frír útdráttur fjórum sinnum á ári
– gildir um Lottó, Víkingalottó og Jóker
• Þú styrkir gott málefni
JÓEL Pálsson saxófón-
leikari sendir um þessar
mundir frá sér sína þriðju
breiðskífu sem hann kall-
ar einfaldlega Septett.
Edda / Ómi gefur diskinn
út, en á honum fær Jóel
til liðs við sig fimm af
fremstu djasstónlistar-
mönnum landsins og einn
bandarískan til viðbótar.
Jóel Pálsson segir að
platan hafi verið tekin
upp í síðasta mánuði en
eigi sér langan aðdrag-
anda. Hún sé nokkuð ólík
fyrri plötum hans, enda
hafi hann langað að nota
plötuna til að prófa ým-
islegt sem hann hafi verið
velta fyrir sér undanfarið,
bæði hvað varðar rytma
og hljóm, og einnig hafi
hann langað að skrifa tón-
list fyrir fleiri blásara.
Út um allt
Septettinn hans Jóels
skipa auk hans Greg
Hopkins trompetleikari,
sem var tónlistarstjóri hjá
Buddy Rich, Sigurður
Flosason á barítónsaxófón
og ýmis önnur blásturs-
hljóðfæri, Eyþór Gunn-
arsson á Hammond, Wurlitzer og
harmonikku, Einar Scheving á
trommur, Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson á kontrabassa og Helgi
Svavar Helgason sem sá um slag-
verk og hljóðsmölun.
„Þegar ég byrjaði að skrifa þetta
fór ég að sjá fyrir mér ákveðna
menn á hvert hljóðfæri og það
hjálpaði mikið við skrifin að geta
séð fyrir sér hljómsveitina, ég
þekki þá alla svo vel að ég veit
nokkurn veginn hvaða hljóð og
óhljóð þeir eru færir um að fram-
kalla,“ segir Jóel og bætir við að
tónlistin sé þétt skrifuð og ekki í
hefðbundnu djassformi. „Þetta er
ekki hefðbundið form með endur-
tekningum, það er lengra og kafla-
skipt verk með mjög ólíkum köfl-
um sem renna saman og mynda
eina heild. Svo er þetta út um allt.
Þarna eru fönkskotnir kaflar, frjáls
spuni, elektróník, bíbop, popp og
tangókeimur og sólistarnir fá sitt
sérstaka rými innan hvers lags, oft
ólíkt umhverfi frá næsta manni.“
Mikið samið og miklu hent
Jóel segir það hafa verið mest
spennandi að glíma við að fá alla
þessa ólíku kafla til að renna sam-
an án þess að hlustandinn verði
beinlínis var við öll samskeytin ef
svo má kalla, „en það er líka mesti
vandinn; að búa svo um hnútana að
maður geti búið til innri rök í lög-
unum sem ganga upp sem ein
heild“.
Mikil vinna liggur að baki skíf-
unni og Jóel segir að hann hafi
ekki eytt annarri eins vinnu í nokk-
urt verk, segist hafa setið við að
skrifa í marga mánuði, samið mikið
og hent miklu. „Það fór mikið í föt-
una á þeim tíma sem fór í að
semja, sumt prófaði ég og henti og
annað var ekki einu sinni prófað,“
segir hann.
Plöturnar sem Jóel hefur sent
frá sér, en Septett er sú þriðja, eru
allar ólíkar, mjög ólíkar reyndar,
enda segist Jóel hafa gaman af því
að gera tilraunir, hann sé mjög
nýjungagjarn. „Það er sjálfsagt
angi af því að vinna á Íslandi í
gríðarlega fjölbreyttu tón-
listarumhverfi í hverri viku.
Úti er hver á sínum bás, en
hér heima rennur allt meira
saman. Það hefur komið
fyrir að ég spili á sama deg-
inum framúrstefnudjass á
tónleikum um daginn, síðan
með sinfóníunni um kvöldið
og loks fyrir dansi á árshá-
tíð seint sama kvöld. Það er
því oft ansi súrrealískt sem
ómar í hausnum á manni
eftir þannig dag.“
Verkið á plötunni var
fyrst flutt á tónleikum á
Jazzhátíð Reykjavíkur í
haust og síðan tekið upp á
tveimur dögum í hljóðveri,
„live“ eins og Jóel kallar
það, enda spiluðu allir sam-
an í einu. „Þetta kallaði vit-
anlega á mikinn undirbún-
ing og ég var til að mynda
búinn að gera prufur af
töluverðu af þessu og senda
mönnum á Netinu þannig
að þeir gátu heyrt hvað ég
var að pæla.“
Þótt hópurinn sem leikur
á skífunni sé tvístraður
víða um lönd segist Jóel
gera sér vonir um að hægt
verði að smala mönnum
saman þegar þeir koma
hingað í jólafrí og eru útgáfutón-
leikar fyrirhugaðir um miðjan des-
ember.
Jóel og septettinn
Jóel Pálsson: „Það hefur komið fyrir að ég spili á sama
deginum framúrstefnudjass á tónleikum um daginn,
síðan með sinfóníunni um kvöldið og loks fyrir dansi á
árshátíð seint sama kvöld.“
Geislaplatan Septett er komin út og
Jóel mun halda útgáfutónleika í
Tjarnarbíói 17. desember næst-
komandi.
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
NÆSTA Evróvisjónkepnni verður
haldin í Riga í Lettlandi á
komandi vori og eru Íslendingar
með þátttökurétt að nýju. Síðast
tóku Íslendingar þátt í kepninni
árið 2001 þegar Two Tricky-
liðar sungu lagið „Angel“ eftir
Einar Bárðarson úti í kóngsins
Kaupmannahöfn.
Frestur til að skila inn lagi fyr-
ir keppnina á næsta ári rann út á
mánudaginn.
„Viðtökurnar hafa verið rosa-
lega fínar,“ segir Jóhanna Jó-
hannsdóttir aðstoðardeildarstjóri
hjá Ríkisútvarpinu. „Hingað hafa
borist um 190 lög, flest á diskum
en nokkur á snældum. Og eitt á
nótum!“
Að sögn Jóhönnu má ráða af
fyrirspurnum og innsendum lög-
um að lagavalið verði fjölbreytt
bæði frá þekktum og óþekktum
höfundum.
Dómnefnd hefur verið skipuð
og er hún fimm manna. Hún mun
svo velja 15 lög úr bunkanum
sem verða flutt í Sjónvarpssal á
næsta ári.
„Lögin verða þá fullunnin í
samráði við höfunda,“ segir Jó-
hanna að lokum. „Þetta er allt á
vinnslustigi en stefnt er að því að
hafa fimm þætti þar sem þrjú lög
í senn verða kynnt. Lokakeppnin
yrði svo væntanlega í beinni á
einhverjum samkomustað í febr-
úar.“
Evróvisjón í Lettlandi 2003
190 lög voru send inn
Two Tricky á sviðinu í Kaupmannahöfn