Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HRYÐJUVERK Í KENÝA
Tólf manns biðu bana, þar af þrír
Ísraelar, þegar þrír hryðjuverka-
menn óku bifreið sinni inn í hótel í
Mombasa í Kenýa og sprengdu hana
og sjálfa sig í loft upp. Þá var tveimur
flugskeytum skotið á farþegaþotu er
var að leggja af stað frá Mombasa til
Tel Aviv í Ísrael. Minnstu munaði að
flugskeytin grönduðu vélinni en 261
farþegi var um borð í henni.
Áfengi og tóbak hækkar
Alþingi samþykkti í gærkvöld sem
lög hækkun tóbaksgjalds og áfeng-
isgjalds á sterkt áfengi. Lögin taka
gildi þegar í stað og hækkar útsölu-
verð á sterku áfengi og tóbaki þegar í
dag en verð breytist ekki á léttu víni
og bjór.
Kristján ekki á listanum
Talið er líklegt að í tillögu kjör-
nefndar Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi verði lagt til að Árni Ragn-
ar Árnason skipi fyrsta sæti á
framboðslista flokksins í kjördæminu
fyrir alþingiskosningar í vor en Krist-
jáni Pálssyni verði ekki boðið sæti.
Verknámsskólar í vanda
Menntaskólinn í Kópavogi og
Verkmenntaskólinn á Akureyri und-
irbúa tillögur um niðurskurð í starf-
semi skólanna. Báðir skólarnir sjá
fram á taprekstur á næsta ári. Sam-
tök iðnaðarins telja hættu á að verk-
og iðnnámi verði ýtt út úr framhalds-
skólum landsins.
Nýtt skólahús vígt á Bifröst
Nýtt skólahús var vígt á Bifröst í
gær en talið er líklegt að húsið ger-
breyti aðstöðu nemenda Viðskiptahá-
skólans. Ekki eru nema ellefu mán-
uðir liðnir síðan tekin var fyrsta
skóflustungan að húsinu.
Sharon sigraði Netanyahu
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, vann sigur á keppinauti sín-
um, Benjamin Netanyahu, í leiðtoga-
kjöri Likud-bandalagsins. Líklegt er
að hann verði áfram forsætisráð-
herra eftir kosningar í janúar.
2002 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
TRYGGVI GUÐMUNDSSON Í HÓPI EFSTU MANNA Í EVRÓPU / C4
PATRICK Vieira, fyrirliði Arsenal,
segir samherja sinn og landa,
Thierry Henry, vera besta fram-
herja heims um þessar mundir. Um
leið segir Vieira að í sínum huga sé
Henry sá leikmaður sem eigi skilið
að vera valinn Knattspyrnumaður
Evrópu fyrir þetta ár. „Henry er
besti framherjinn um þessar mundir
einfaldlega vegna þess að hann skor-
ar mörk þegar mestu máli skiptir,“
segir Vieira og bætir við: „Auk þess
er hann einstakur persónuleiki.“
Þetta segir Vieira eftir að Henry
fór hamförum á Ólympíuleikvangin-
um í Róm fyrrakvöld þegar hann
skoraði þrennu í 3:1 sigri Arsenal á
AS Roma í Meistaradeild Evrópu.
Þar með hefur Henry skorað alls 26
mörk með Arsenal og franska lands-
liðinu á þessu ári. Þar af hefur hann
skorað sex mörk í Meistaradeildinni
á árinu.
Vieira telur að hið eina sem geti
komið í veg fyrir að Henry verði val-
inn Knattspyrnumaður Evrópu 2002
sé sú staðreynd að franska landsliðið
var langt frá því að ná sér á strik á
heimsmeistaramótinu í sumar.
„Frammistaða Henry með Arsenal
verðskuldar það svo sannarlega að
hann verði valinn fremsti knatt-
spyrnumaður Evrópu á þessu ári,“
segir Vieira.
Michael Owen, leikmaður Liver-
pool, var valinn Knattspyrnumaður
ársins í fyrra.
Henry er
sá allra
besti
BARCELONA nálgast nú óðum met AC Milan
sem vann á sínum tíma tíu leiki í röð í Evr-
ópukeppni meistaraliða sem nú heitir Meist-
aradeild Evrópu. Barcelona vann í fyrrakvöld
níunda leikinn í röð í Meistaradeildinni þegar
það lagði Bayer Leverkusen í Þýskalandi, 2:1
þar sem Hollendingurinn Marc Overmars skor-
aði sigurmarkið á elleftu stundu. Næst mætir
Barcelona liðsmönnum Newcastle í keppninni á
heimavelli, Camp Nou, 10. desember þegar
næsta umferð Meistaradeildarinnar fer fram.
Þá getur Barcelona fagnað tíunda sigrinum í
röð og leikið þar með eftir afrek AC Milan, frá
því á leiktíðinni 1992 til 1993, sem vann tíu leiki
í röð. Gangi það eftir getur Barcelona bætt
metið með því að leggja helsta andstæðing AC
Milan, liðsmenn Inter Milan, á Camp Nou 18.
febrúar.
Barcelona nálg-
ast met AC Milan
Hollandi með forskot fyrir síðari
leikinn á Anfield,“ sagði Owen enn-
fremur.
Annar markaskorari, Henrik
Larsson, var á skotskónum þegar
hann tryggði Celtic sigur á Celta frá
Vigo, 1:0, með marki á 52. mínútu í
Celtic Park að viðstöddum tæplega
54.000 áhorfendum. Martin O’Neill,
knattspyrnustjóri Celtic, var rekinn
af hliðarlínunni undir lok leiksins
vegna óánægju með störf dómara og
á hann yfir höfði sér leikbann.
Jóhannes Karl Guðjónsson var
ekki í leikmannahópi Real Betis sem
vann sigur, 1:0, á Auxerre í Sevilla.
Owen átti tvö önnur upplögðmarktækifæri til þess tyggja
Liverpool enn betra veganesti fyrir
síðari viðureignina en allt kom fyrir
ekki því Dragoslav Jevric, mark-
vörður Vitesse, vann svo sannarlega
fyrir kaupinu sínu. Hann kom einnig
í veg fyrir að Valdimir Smicer bætti
við forskot Liverpool er Tékkinn
fékk kjörið marktækifæri í síðari
hálfleik. „Markvörður Vitesse
reyndist okkur svo sannarlega
óþægur ljár í þúfu, en hann náði þó
ekki að koma í veg fyrir kærkominn
sigur okkar,“ sagði Owen í leikslok.
„Að sjálfsögðu hefðum við viljað
vinna stærri sigur, en það verður
ekki á allt kosið. Sigur var aðalmálið
í okkar huga fyrir leikinn og við er-
um afar ánægðir með að fara frá
Reuters
Michael Owen fagnar marki sínu ásamt Milan Baros og Dannyl Murphy. Baros lagði upp markið.
Liverpool fékk gott
veganesti í Hollandi
ENN og aftur var það Michael Owen sem tryggði Liverpool mik-
ilvægan sigur, að þessu sinni reið mark hans baggamuninn þegar
Liverpool vann mikilvægan sigur á Vitesse Arnheim í fyrri viðureign
liðanna í þriðju umferð UEFA-keppninnar í knattspyrnu en leikurinn
fór fram í Hollandi. Owen skoraði mark sitt á 26. mínútu.
KEVIN Kuranyi, tvítugur piltur
sem hefur vakið mikla athygli í
þýsku knattspyrnunni í vetur, átti
úr mörgum möguleikum að velja
þegar hann velti fyrir sér landsliðs-
frama sínum. Kuranyi, sem leikur
með Stuttgart og hefur skorað 8
mörk í 1. deildinni til þessa á tíma-
bilinu, er heldur betur með fjölþjóð-
legan bakgrunn. Faðir hans er
Þjóðverji, fæddur í Frakklandi, en
móðir hans er Panamabúi. Afi hans
og amma eru frá Ungverjalandi og
Noregi en Kuranyi er fæddur í
Brasilíu. Síðan ólst hann upp hjá
ítalskri fjölskyldu í Þýskalandi.
Kuranyi segist vera Brasilíu-
maður í hjarta sínu. „Það er ekkert
fallegra en sólin og ströndin á Copa
Cabana,“ segir pilturinn.
Hann hefur hinsvegar ákveðið að
freista þess að komast í þýska
landsliðið. „Það eru svo margir
góðir leikmenn í Brasilíu að það
hefði verið mjög erfitt að komast að
þar. Mitt takmark er að leika fyrir
hönd Þýskalands, en ég er ekki
kominn svo langt ennþá. Ég á
margt eftir ólært,“ segir strákurinn
sem fæstir knattspyrnuáhugamenn
höfðu heyrt nefndan áður en tíma-
bilið hófst.
Kevin Kuranyi
valdi Þýskaland
F Ö S T U D A G U R 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 0 2 B L A Ð B
LÍÐANIN BAK VIÐ BROSIÐ/2 ATHYGLISBRESTUR MEÐ
OFVIRKNI/3 BÓKASÖFN FÓLKSINS/4 UNDIR NÝJU NAFNI/6
KVEIKT Á GÁFNALJÓSUM/6 AUÐLESIÐ EFNI/8
S
ILKIBLÓM eru ekki framleidd nema að eiga sér
fyrirmynd í raunverulegu blómi, að sögn Örnu
S. Sæmundsdóttur, blómaskreytingakonu hjá
silkiblómaversluninni Soldis. Hún segir að mikil
breidd sé í úrvali af silkiblómum eins og ekta
blómum og mikill gæðamunur. „Það er að verða hugarfars-
breyting og fólk þarf ekki að vera svona fordómafullt.
Silkiblómin eru komin til að vera og það er líka allt í lagi að
blanda þessu saman,“ segir Arna.
Hún hefur starfað við blómaskreytingar á annan áratug.
Eftir að hafa rekið sína eigin blómabúð í mörg ár ákvað
hún að nóg væri komið. Hún vildi hætta kvöld-
og helgarvinnu en samt ekki slíta sig frá blóm-
unum. Eigendur Soldis eru þær Sóley Jó-
hannsdóttir og Bryndís M. Tómasdóttir. Þær
stofnuðu fyrirtækið fyrir fimm árum.
Ilmandi silkiblóm?
Spurð hvort ekki hafi verið erfitt að hverfa
frá því að setja saman skreytingar úr lifandi
blómum yfir í að setja saman silkiblóm, svarar
Arna því játandi. „En ég er nú reyndar farin
að gleyma því að ég er að vinna með silki og
beygi mig meira að segja stundum niður til að
finna ilminn af blómunum!“ Arna segir að
mun erfiðara sé að vinna með silkiblómin, það
sé meiri kúnst þar sem efnin eru harðari og
mikið um víra. „En þetta er algjör lúxus. Ég er
alltaf með fallegustu blómin og engin fölna.
Og losna við allt umstangið í kringum lifandi
blóm eins og að byrja hvern dag á að verka blómin, úða og
þar fram eftir götunum.“
Allt frá silkilaufum upp í pálmatré
Sóley og Bryndís segja mikinn feng í Örnu en hún sér
um allar skreytingar fyrir verslunina og útstillingar í
glugga. „Aðra vikuna í nóvember rýmum við verslunina
fyrir alls konar jólavöru en verðum svo aftur silkiblóma-
búð í janúar. Soldis er fyrst og fremst silkiblómabúð,“
segja eigendurnir einum rómi.
Soldis flytur inn allt frá silkilaufblöðum upp í átta metra
fíkustré og að mati Sóleyjar og Bryndísar höfða silkiblóm
til Íslendinga. „Við viljum öll hafa fallegt í kringum okkur
en erum í mikilli vinnu þannig að oft gefst ekki tími til að
vökva blómin. Eins hafa margir leitað í silkiblómin vegna
ofnæmis,“ segir Bryndís.
Þær sækja sýningar erlendis oft á ári og Sóley segir að
silkiblómamarkaðurinn í Hollandi sé orðinn næstum eins
stór og hinn þekkti blómamarkaður þar í landi. „Það er
mikill gæðamunur á mismunandi silkiblómum. Efnisnotk-
unin þróast mjög hratt og við fylgjumst vel með straumum
og stefnum á þessum markaði,“ segir Sóley.
Fyrir jólin segja þær að silkifurugreinar séu mikið not-
aðar í skreytingum og sífellt færist í vöxt að fólk komi með
blómavasana og biðji um jólavönd sem stendur þá óhagg-
aður alla hátíðina.
Efnislega önnur
Morgunblaðið/Jim Smart
Silkiblóm - Arna setur saman jólavönd sem stend-
ur yfir allar hátíðirnar en ólívutréð virkar allt árið.
blóm
Yf ir l i t
Kynningar – Blaðinu í dag fylgja aug-
lýsingablöð frá Tali og Lancome, „Jól-
in 2002“. Blöðunum verður dreift um
allt land.
Í dag
Sigmund 8 Minningar 47/51
Viðskipti 14/16 Kirkjustarf 52
Erlent 18/24 Staksteinar 54
Akureyri 24/25 Bréf 56/57
Höfuðborgin 26 Dagbók 58/59
Suðurnes 28 Brids 59
Landið 28/29 Leikhús 60
Listir 30/38 Fólk 61/65
Forystugrein 34 Bíó 62/65
Viðhorf 38 Ljósvakamiðlar 66
Umræðan 39/43 Veður 67
* * *
GUÐMUNDUR Jóns-
son, fyrrverandi skóla-
stjóri Bændaskólans á
Hvanneyri, lést á
Hrafnistu í Hafnarfirði
í gær, 100 ára að aldri.
Guðmundur fæddist
2. mars 1902 á Torfa-
læk í Austur-Húna-
vatnssýslu. Foreldrar
hans voru Jón Guð-
mundsson bóndi og
Ingibjörg Björnsdóttir.
Hann kvæntist 21.
maí árið 1926 Maríu
Ragnhildi Ólafsdóttur
frá Brimnesgerði í Fá-
skrúðsfirði. Hún lést árið 1980. Þau
eignuðust þrjá syni og eina kjör-
dóttur.
Guðmundur varð búfræðingur frá
Hólum í Hjaltadal árið 1921 og
búfræðikandídat frá Búnaðarhá-
skólanum í Kaupmannahöfn 1925.
Hann var settur skólastjóri á Hól-
um í Hjaltadal 1925–1926, var kenn-
ari við Bændaskólann á Hvanneyri
1928–1947 og gegndi stöðu skóla-
stjóra þar árin 1944–1945 og 1947–
1972. Guðmundur hafði forgöngu
um stofnun framhaldsdeildar við
Bændaskólann 1947, sem var fyrsti
vísir að háskólanámi í búfræði hér á
landi.
Guðmundur gegndi ýmsum
nefndarstörfum í gegnum árin, var
t.d. forstöðumaður Búreikninga-
skrifstofu ríkisins frá stofnun 1936
til 1947, sat í verðlags-
nefnd landbúnaðaraf-
urða og í tilraunaráði
búfjárræktar.
Auk starfa sinna var
Guðmundur virkur í
félagsmálum. Hann
var formaður Búnað-
ar- og garðyrkjukenn-
arafélags Íslands árið
1972, var meðal stofn-
enda Rotary og Odd-
fellowa í Borgarfirði
og einn af stofnendum
Félags sjálfstæðis-
manna á Vesturlandi
1960 og formaður til
1964. Þá var hann gerður að heið-
ursfélaga Búnaðarfélags Íslands ár-
ið 1972, Búnaðar- og garðyrkju-
kennarafélags Íslands 1974 og
Félags íslenskra búfræðikandidata
1981. Guðmundur var sæmdur ridd-
arakrossi fálkaorðunnar 1964.
Guðmundur gegndi einnig ýmsum
ritstörfum í gegnum tíðina, var t.d.
stofnandi og ritstjóri Búfræðingsins
árin 1934–1954 og tók árið 1939
saman sögu Bændaskólans á
Hvanneyri 50 ára og aftur er skól-
inn varð 90 ára árið 1979. Eftir að
embættisstörfum lauk skrifaði hann
og ritstýrði ýmsum bókum og bóka-
flokkum.
Guðmundur og Ragnhildur fluttu
til Reykjavíkur er hann lét af störf-
um á Hvanneyri. Síðustu árin bjó
hann á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Andlát
GUÐMUNDUR
JÓNSSON
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA er
hvorki rétt né skylt að afhenda verj-
anda Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
forstjóra Baugs, endurrit af öllum
skjölum, sem hann hafði aflað eða
honum höfðu borist með öðrum
hætti, í tengslum við rannsókn á
meintum fjársvikum og umboðssvik-
um Jóns Ásgeirs, þar sem gögnin
höfðu ekki enn verið rannsökuð,
samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær.
Héraðsdómur hafði áður úrskurð-
að að ríkislögreglustjóra bæri að af-
henda gögnin.
Hæstiréttur taldi hins vegar að
ríkislögreglustjóra væri skylt að af-
henda verjandanum endurrit af
skýrslu, sem var tekin af nafn-
greindri konu og verjandinn hafði
sérstaklega tilgreint meðal gagna,
sem hann óskaði eftir að fá afhent. Í
dómi Hæstaréttar kemur fram að
ríkislögreglustjóri hafi ekkert að-
hafst til að sýna fram á að efni
skýrslunnar varði ekki sakarefnið
sem beint sé að Jóni Ásgeiri.
Í dómnum segir að í gögnum máls-
ins og kæru ríkislögreglustjóra til
Hæstaréttar komi fram að rannsókn
málsins beinist að fleiri mönnum en
Jóni Ásgeiri og sé ekki bundin við
það sakarefni sem hafi verið beint að
honum. Hafi lögreglan í tengslum við
rannsóknina farið fram á að Baugur
léti í té nánar tilgreind gögn, þar á
meðal úr bókhaldi félagsins. Hélt
ríkislögreglustjóri því fram, að þau
gögn sem verjandinn vildi fá afhent
annaðhvort tengdust ekki sakar-
efninu sem er beint að Jóni Ásgeiri
eða að ekki lægi fyrir hvort svo væri
þar sem þau hefðu ekki enn verið
könnuð, enda væri um að ræða mikið
af gögnum sem tæki tíma að rann-
saka. Verjandinn taldi á hinn bóginn
að umrædd gögn vörðuðu málið og
að rétti verjanda sakaðs manns væri
stefnt í tvísýnu yrði fallist á sjónar-
mið lögreglunnar.
Ríkislög-
reglustjóra
ekki skylt
að afhenda
gögn
SKIPULAGSSTOFNUN hefur fall-
ist á tvöföldun Reykjanesbrautar
frá Fífuhvammsvegi í Kópavogi að
Álftanesvegi í Garðabæ. Fram kem-
ur í niðurstöðum Skipulagsstofn-
unar að gera megi ráð fyrir aukn-
um hávaða í íbúðarhverfum sem
liggja að Reykjanesbraut og muni
sá hávaði að óbreyttu fara vaxandi
á næstu árum með aukinni umferð
en draga megi úr óþægindum
vegna aukins hávaða með hljóð-
vörnum og breytingum á húsum.
Gert er ráð fyrir að breikka
Reykjanesbraut frá Fífuhvamms-
vegi í Kópavogi að Álftanesvegi í
Garðabæ úr tveimur akreinum í
fjórar en framkvæmdaraðilar eru
Vegagerðin, Garðabær og Kópa-
vogsbær.
Verða byggð þrenn mislæg vega-
mót á umræddum vegarkafla, þ.e.
við Arnarnesveg, Vífilsstaðaveg og
Urriðaholtsbraut. Kostnaður við
framkvæmdina er áætlaður um 1,9
milljarðar króna miðað við núver-
andi verðlag og samkvæmt vega-
áætlun er áætlað að hefja fram-
kvæmdir á næsta ári.
Ekki er talið að loft spillist til
muna í nágrenni Reykjanesbrautar
vegna breikkunarinnar þrátt fyrir
að reikna megi með aukinni umferð
á næstu árum; breikkun vegarins
og gerð mislægra gatnamóta sé lík-
leg til þess að greiða fyrir sam-
göngum og auka öryggi í umferð-
inni frá því sem nú er.
Kæra má úrskurð Skipulags-
stofnunar til umhverfisráðherra og
er kærufrestur til 3. janúar.
! "#
$ % & '
(
)* ) +)
*
",
- .
.+
(/0
/1!'
!
!"#
$
.,2+
+
'* )+.3 4
. .,2+
+
.,2+
+
5
26
.3 /2/- . 2*2 )2.,2+
+227 Fallist á breikkun á hluta
Reykjanesbrautarinnar
Hávaði í íbúðar-
hverfum eykst
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm yfir Guðmundi Inga Þórodds-
syni, en hann var fundinn sekur um
að hafa flutt inn eitt þúsund e-töflur
og gert tilraun til innflutnings á
4.000–5.000 e-töflum. Bæði brotin
framdi hann meðan hann sat í gæslu-
varðhaldi og beið dóms Hæstaréttar
fyrir innflutning á 3.850 e-töflum.
Fyrir þann verknað hlaut hann sjö
ára fangelsi en fyrir ofangreind brot
fékk hann fimm ára fangelsi til við-
bótar. „Brot ákærða eru stór í snið-
um og sérlega harðsvíruð,“ segir í
dómi Hæstaréttar.
Guðmundur Ingi áfrýjaði sam-
hljóða dómi Héraðsdóms Reykjavík-
ur og krafðist þess aðallega að ákær-
unni um innflutningstilraunina yrði
vísað frá dómi þar sem hún hefði
aldrei getað leitt til þess að töflurnar
bærust í raun og veru til landsins. Til
vara krafðist hann sýknu. Tveir aðrir
sakborningar í málinu kröfðust stað-
festingar á sýknudómi héraðsdóms
og varð Hæstiréttur við því.
Sérlega harðsvíraður