Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SAMTÖK iðnaðarins teljahættu á að verk- og iðn-námi verði ýtt út úr fram-haldsskólunum þar sem stór hluti þeirra, einkum verk- námsskólar, er rekinn með halla. Samtökin og skólameistarar gagn- rýna reiknilíkan sem ræður fjár- veitingum til skólanna. Breytingar hafa verið gerðar á líkaninu, en skólameistari Menntaskólans í Kópavogi segir endurskoðað líkan engu breyta fyrir fjárhag skólans, en hann hefur verið rekinn með 30– 40 milljóna tapi sl. fimm ár. Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI), sagði að SI hefðu lengi haft áhyggjur af iðn- og tæknimenntun hér á landi. Iðn- og tæknimenntun væri kjölfestan í iðnvæðingu lands- ins. „Uppbygging á okkar bestu fyrirtækjum, eins og Marel og Öss- uri, hefur mikið byggst á verk- og tæknimenntuðu fólki. En það er okkar skoðun að þessi menntun sé hornreka í íslensku skólakerfi og hafi verið það lengi.“ Augljósir gallar á reiknilíkaninu Sveinn sagði að eitt af því sem hefði valdið verkmenntaskólunum erfiðleikum væri svokallað reikni- líkan menntamálaráðuneytisins, en fjárveitingar til framhaldskólanna byggjast á niðurstöðu þess. Sveinn sagði að hugsunin á bak við reikni- líkanið væri skynsamleg, þ.e. að fjárveitingar réðust af gegnsæjum og óhlutdrægum reglum, en ekki órökstuddum pólitískum ákvörð- unum eins og áður var. Reynslan af reiknilíkaninu væri hins vegar ekki góð og það sem verra væri, ekki væri tekið tillit til augljósra galla á reiknilíkaninu. Líkanið væri ekki í samræmi við raunverulegan kostn- að við menntunina eins og hún væri skilgreind í námsskrá. Sveinn sagði að á undanförnum árum hefðu verk- og iðnskólar ver- ið byggðir upp af myndarskap. Iðn- námið væri hins vegar dýrara en hefðbundið verknám og það vant- aði fjármagn til að reka skólana og þeir hefðu safnað skuldum. Sveinn gagnrýndi aðkomu stjórnvalda að málinu og sagði að lausnin fælist ekki í því að gera úttektir aftur og aftur á vandanum. Vandinn væri öllum ljós. „Afleiðingin er sú að skólarnir ýta þessu námi [iðn- og verknámi] frá sér,“ sagði Sveinn. Menntaskólinn í Kópavogi hefur verið rekinn með tapi frá árinu 1997 og stefnir í að uppsafnað tap skólans um næstu áramót verði 163 millj- ónir. Skólinn er í nýju húsnæði, en þar er rekinn sérhæfður matvæla- skóli. Margrét Friðriksdóttir, skóla- meistari MK, rakti á blaðamanna- fundi í gær hvernig reiknilíkanið kæmi út fyrir MK og hversu lítið tillit það tæki til kennslu á verk- námsbrautum. „Ég rek matvælaskóla þangað sem kokkar, bakarar, þjónar og kjötiðnaðarmenn landsins sækja menntun sína. Það er ekki hægt að kenna þessar greinar nema að kaupa matvæli. Það held ég að allir skilji. Ég fæ hins vegar enga fjár- veitingu á fjárlögum til matvæla- kaupa. Ég fæ sömu fjárveitingu til matvælakaupa og Menntaskólinn í Reykjavík eða 1.900 kr. á nemanda vegna þess að reiknilíkanið reiknar öllum skólum jafnt. Þetta þýðir að líkanið reiknar mér 2,2 milljónir í efniskaup. Þetta gengi ágætlega ef allir nemendur væri í bóknámi, en þar sem þeir eru í verknámi þarf ég að kaupa hráefni fyrir 20 milljónir á ári. Skólinn hefur lagt mikla vinnu í það á undanförnum árum að þrýsta fast á birgja um að gefa af- slátt og hann er kominn upp í allt að 60% hjá sumum matvælafyrir- tækjum. Meðaltalsafslátturinn er tæplega 20%. Skólinn safnar á þessum eina rekstrarlið 18 milljón- um í skuldir á ári og hefur gert það frá því hann hóf starfsemi. Það gefur auga leið að svona skóli þarf heilmikið rafmagn. Við erum með stóra ofna og eldavélar. Reiknilíkanið reiknar rafmagns- notkun út frá fermetrafjölda og það skiptir engu máli hvort í fer- metranum er borð og stóll eða reykofn af dýrustu gerð sem þarf rafmagn eins og nokkur einbýlis- hús. Samkvæmt reiknilíkaninu fæ ég 5 milljónir á ári í rafmagn, en ég kaupi hins vegar rafmagn fyrir 10 milljónir þrátt fyrir að ég sé búin að gera eins konar stóriðjusamn- ing við rafmagnsveit- una og borgi bara 3,95 kr. á kwst. á meðan að reiknilíkanið segir að ég megi borga 7 kr. á kwst. Ég þarf líka að ræsta skólann. Reiknilíkanið er þannig að verk- námsfermetrar eru margfaldaðir með 100, en bóknámsfermetrar með 700. Ég fæ því sjö sinnum meiri fjárveitingu til að ræsta bók- námsfermetra en verknámsfer- metra.“ Margrét sagði að rök þeirra sem smíðuðu reiknil fyrir þessari skiptingu hefð þau að húsnæði verknámssk væri mest stórar skemmu þyrfti ekki að ræsta eins mi húsnæði bóknámsskólanna. „ hins vegar að reka matvælah sem eru kjötiðnaðar- deild, eldhús og bakarí og þau starfa eftir mjög ströngum alþjóðlegum stöðlum, GÁMES, og lögum. Heilbrigðis- fulltrúi kemur í heimsókn hvern mánuð og hann myn faldlega loka skólanum ef þa slegið slöku við þrifnað. Í s um erum við ekki að kenna um sóðaskap,“ sagði Margré Búið er að endurskoða rei anið sem ræður fjárveiting framhaldskólanna. Samk gamla reiknilíkaninu hefði M að fá 71,2 milljónir í rekstur utan laun, en 73,8 milljónir kvæmt endurskoðuðu líkani. lagafrumvarpinu fyrir árið 2 hins vegar gert ráð fyrir 71,3 ón í almennan rekstur MK grét sagði að reksturinn, mið núverandi starfsemi, mynd vegar kosta 105,4 milljónir. „Það er búið að gera hve tektina á fætur annarri á þ vanda. Vandinn er öllum lj kannski þess vegna hefur m málaráðuneytið látið þetta gangast í öll þessi ár. Það e að halda okkur á tánum í vegna þess að það var verið a urskoða líkanið. Þar átti að verulega til móts við þessar eins og komist var að orði,“ Margrét. Niðurstaðan vær vegar óbreyttar fjárveitingar Námsbrautum í VMA fæ Hjalti Jón Sveinsson, meistari Verkmenntaskólans ureyri, sagði að VMA hefði upp á mjög fjölbreytt ver Verknámið væri hins vegar dýrara en bóknámið. D verknámið væri 5-6 sinnum d en ódýrasta bóknámið. Hjal sagði að endurskoðun á rei aninu hefði verið til bóta, t.d hópaviðmiðun verið breytt. Morgunblaðið/Kr Í undirbúningi eru tillögur um fækkun námsbrauta við Verkmen skólann á Akureyri. Á myndinni er Guðmundur T. Hermannsson taka próf í verklegri rafeindavirkjun. Óttast að verknámi verði ýtt út úr skólunum Samtök iðnaðarins hafa áhyggjur af því að ve námi verði ýtt út úr framhaldsskólunum veg fjárskorts skólanna. Verkmenntaskólinn á Ak eyri ætlar að fækka námsbrautum á næsta ár Menntaskólinn í Kópavogi er með tillögur til s unar sem gera ráð fyrir niðurskurði í rekstr Sumir skólar reknir með tapi ár eftir ár e SKÓLAMEISTARAR koma saman til fundar í dag til að ræða slæma fjárhagsstöðu framhaldsskólanna. Átján skólar eru reknir með halla og stefnir í að halli þeirra nemi 527 milljónum um næstu áramót. Margir skólamenn hafa verið óánægðir með reikni- líkanið sem stjórnvöld nota til að ákveða fjárveitingar til skólanna. Búið er að end- urskoða líkanið, en sumir skólastjórnendur telja þessa breytingu ófullnægjandi. Lárus H. Bjarnason, skólameistari Mennta- skólans við Hamrahlíð, seg- ir að á fundinum ætli skóla- meistarar að fara yfir stöðuna og stilla saman strengi sína. Rætt verði um hvort skólarnir geti komið við einhverjum vörnum í þeirri erfiðu stöðu sem skól- arnir væru í. Skóla- meistarar á fundi HEILBRIGÐISKERFI Í KREPPU Í fyrradag var frá því skýrt hér íMorgunblaðinu að útgjöld ávegum heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytis yrðu á næsta ári yf- ir 100 milljarðar króna. Þetta eru miklir peningar og skiptir miklu að þeim sé vel varið. Í tryggingamálum eru nokkuð skýrar línur. Sú grundvallarstefna var mörkuð fyrir áratug eða svo, að dregið skyldi úr greiðslum trygg- ingakerfisins til þeirra sem ekki þyrftu á slíkum greiðslum að halda. Þeirri stefnu að tekjutengja trygg- ingabætur hefur verið haldið að mestu síðan með ákveðnum undan- tekningum þó. Dómur í Hæstarétti varð t.d. til þess, að nú getur maki fengið greiddar tryggingabætur, þótt eiginmaður eða eiginkona afli umtalsverðra tekna. Sjónarmið jafnréttis ráða að því leyti meiru en rökin fyrir því að beita trygginga- bótum til að auka jöfnuð í sam- félaginu. Í heilbrigðiskerfinu eru línur ekki jafnskýrar. Raunar má segja að umræður um heilbrigðismál und- anfarin ár bendi ótvírætt til þess að ákveðið stefnuleysi ríki í þessum málaflokki eða öllu heldur að ekki hafi náðst samstaða um nýja stefnumótun í heilbrigðismálum, sem taki mið af breyttum ástæðum. Þrátt fyrir gífurlegar fjárveiting- ar til heilbrigðiskerfisins hefur ekki tekizt að útrýma biðlistum á sjúkrastofnunum. Það hefur heldur ekki tekizt að ná tökum á rekstri sjúkrastofnana. Heilsugæzlukerfið hefur verið í uppnámi undanfarna mánuði þótt nú bendi flest til að samningar séu að nást við heimilislækna. Lyafjaútgjöld hins opinbera hækka árlega um verulegar fjár- hæðir á sama tíma og lyfjaútgjöld einstaklinga og heimila eru tví- mælalaust orðin mun meiri en þau voru fyrir einum til tveimur áratug- um. Í hvert sinn, sem settar eru fram hugmyndir um einkarekna valkosti í heilbrigðiskerfinu er þeim mætt með vandlætingu og því haldið fram, að talsmenn slíkra hugmynda vilji mismuna fólki eftir efnum, þegar kemur að því að veita lækn- isþjónustu. Umræðurnar um heilbrigðiskerf- ið hjakka í sama farinu, þótt ým- islegt bendi til þess að atburðarásin sé að taka völdin af stjórnmála- mönnum og embættismönnum og til sé að verða einkarekinn valkostur á sumum sviðum heilbrigðisþjónustu þrátt fyrir harða andstöðu við slíka þróun úr mörgum áttum. Heilbrigðisþjónustan er svo ríkur þáttur í því samfélagi, sem við höf- um byggt upp að það er til vand- ræða að ekki hefur tekizt að móta skynsamlega stefnu í heilbrigðis- málum, sem taki á öllum megin- þáttum þeirra og samstaða geti tekizt um. Ekki er ólíklegt að framtíðarupp- bygging heilbrigðisþjónustunnar verði eitt af helztu umræðuefnum kosningabaráttunnar í vetur og vor. Morgunblaðið hefur í allmörg undanfarin ár hvatt til þess að tek- in verði upp einkarekinn valkostur í heilbrigðiskerfinu. Sá valkostur sýnist smátt og smátt vera að verða til. Nú getur fólk í sumum tilvikum ákveðið að kaupa meðferð hjá lækni og borga hana fullu verði, ef það sættir sig ekki við að bíða eftir því að opinbera kerfið sinni þeirri sjálf- sögðu skyldu að veita fólki lækn- isþjónustu. Það er ekki hægt að líta á þetta á annan veg en þann, að opinbera heilbrigðiskerfið sé að brotna niður að hluta til. Það getur ekki uppfyllt kröfur og þarfir fólks til læknis- þjónustu og þá finnur sú eftirspurn sér annan farveg. Um leið og þetta gerist er aug- ljóst að biðtími þeirra, sem eru til- búnir til að bíða eftir því að fá þjón- ustu hjá opinbera kerfinu, styttist. Það þjónar því hagsmunum allra aðila að þessi þjónusta sé fyrir hendi hjá einkaaðilum. Það er erfitt að sjá, hvernig hin opinbera heilbrigðisþjónusta getur náð utan um þau verkefni, sem við henni blasa án þessa einkarekna valkosts. Í sumum nágrannalöndum okkur hefur verið tekin upp sú stefna, að geti fólk ekki fengið læknisþjónustu innan ákveðins tíma hjá opinbera kerfinu hafi það heim- ild til að leita hennar annars staðar á kostnað hins opinbera. Það er löngu tímabært að um þetta fari fram alvarlegar umræður hér á Íslandi. Ekki umræður, sem einkennist af pólitísku skítkasti á milli vinstrimanna og hægrimanna, heldur málefnalegar og fordóma- lausar umræður, þar sem leitazt sé við að finna efnislega lausn á afar erfiðu máli. Nú er búið að sameina tvö stærstu sjúkrahús landsins. Margir trúðu því, að með því yrði hægt að ná fram umtalsverðum sparnaði og vafalaust hefur það tekizt að ein- hverju leyti. Það er líka barnaskap- ur að halda að sameining af þessu tagi skili sér í sparnaði eftir eitt til tvö ár. Engu að síður er veruleikinn sá, að það gengur ekkert alltof vel að ná utan um rekstur hins samein- aða spítala. Fjárlaganefnd Alþingis verður að koma til sögunnar ár eft- ir ár með tillögur um aukafjárveit- ingar til þess að brúa bilið. Brotalamirnar í heilbrigðis- kerfinu má sjá út um allt. Biðlistar á spítölum. Rekstrarvandamál sjúkrahúsanna. Stór þéttbýlis- svæði, sem búa nánast ekki við nokkra læknisþjónustu vikum sam- an. Það bryddar jafnvel á sam- keppni á milli lækna um sjúklinga, sem gefur ekki geðfellda mynd af þessu kerfi og þeim, sem þar starfa. Stöðug átök og deilur. Það er tímabært að Alþingi og ríkisstjórn hafi forystu um róttæk- ar aðgerðir til þess að ná tökum á vanda heilbrigðisþjónustunnar. Til þess að það megi takast þarf djúpa skoðun á því kerfi, sem við búum við og vilja til þess að marka nýja og heildstæða stefnu á grundvelli slíkrar vinnu. Stjórnmálaflokkarnir þurfa með einhverjum hætti að ná saman um þetta verkefni. Fólkið í landinu kann því illa, að læknisþjónusta og fyrirkomulag hennar verði að meiriháttar deiluefni á vettvangi stjórnmálanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.