Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 9
LEIÐANDI tískuhús í París, m.a.
John Galliano, Christian Dior,
Prada og La Perla, nota um þessar
mundir roð frá fyrirtækinu Sjáv-
arleðri á Sauðárkróki í tískufatnað.
Sendiráð Íslands í París hefur stutt
aðgerðir íslenskra tískuhönnuða í
Frakklandi.
Fram kemur í Stiklum, vefriti ut-
anríkisráðuneytisins, að hönnuðum
hafi fjölgað gífurlega á Íslandi og
er haft eftir Unni Orradóttur Ra-
mette, viðskiptafulltrúa sendiráðs
Íslands í París, að íslenskir hönn-
uðir verði að öllum líkindum orðnir
um 1.800 talsins að þremur árum
liðnum, að arkitektum meðtöldum.
Hafa sannað sig fyrir
kaupendum
Íslenskir tískuhönnuðir hafa
reynt, með samstilltu átaki á vegum
Útflutningsráðs, að koma hönnun
sinni á framfæri á tískuvikum í Par-
ís undanfarin misseri. Samkeppnin
er gífurleg, að sögn Unnar, en með
reglulegri þátttöku hafi hönn-
uðirnir sýnt og sannað fyrir kaup-
endum að þeir hafi tryggt sér var-
anlega stöðu á þessum markaði sem
verði að teljast mjög góður árang-
ur. Nýstárleg meðferð hráefna, sér-
staklega ullar og roðs, eða jafnvel
endurvinnsla gamalla flíka veki at-
hygli og sé farin að skila sér í sölu.
Tískuhönnun og tískuverslun er
önnur stærsta atvinnugrein Par-
ísarborgar.
Veltu rúmum tveimur
milljörðum
Í nýlegri skýrslu kemur fram að
velta íslenskra fatahönnunarfyr-
irtækja árið 2001 var rúmir tveir
milljarðar króna og störfuðu alls
182 í greininni. Af veltu fóru 640
milljónir til útflutnings en 81% velt-
unnar kemur frá stöðluðum hönn-
unarfyrirtækjum og það sem eftir
stendur frá „skapandi hönnuðum“.
Er talið að tískufataverslun á Ís-
landi hafi velt tæplega 8,7 millj-
örðum króna árið 2001 og að ís-
lensk fatahönnun sé komin með
16% markaðshlutdeild hér innan-
lands.
Frönsk tískuhús
nota íslenskt roð
ÍSLAND tekur á næsta ári við
sæti aðalfulltrúa fyrir kjördæmi
Norðurlanda og Eystrasaltsríkj-
anna í stjórn Alþjóðabankans til
þriggja ára.
Er þetta í fyrsta skipti sem Ís-
land tekur ábyrgð á að leiða und-
irbúnings- og samræmingarvinnu
fyrir Norðurlöndin og Eystrasalts-
ríkin á þessum vettvangi.
Í fjárlagatillögum meirihluta
fjárlaganefndar Alþingis er lagt til
að veitt verði 25 milljóna kr. tíma-
bundið framlag á fjárlögum næsta
árs vegna þessa verkefnis.
Gert er ráð fyrir að heildar-
kostnaður vegna verkefnisins til
ársins 2006 verði 120 milljónir
króna. Felst kostnaðurinn m.a. í
ráðningu sérfræðinga og ferða-
kostnaði.
Ísland í stjórn
Alþjóða-
bankans
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Bankastræti 14, sími 552 1555
Stutterma silkibolir
Rosner gallabuxur
Gott verð
Ný sending af
samkvæmiskjólum
Allar stærðir - Aðeins
einn kjóll í númeri
Efnalaug og fataleiga
Garðabæjar sími 565 6680
O
pi
ð
al
la
d
ag
a
frá
k
l.
10
-1
8
la
ug
ar
da
ga
fr
á
kl
. 1
0-
14
Samkvæmiskjólar
Nýir jólakjólar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—15.
Flauelsjakkar og pils
Glæsilegar ullarkápur,
stuttar og síðar
Refaskinnskragar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Ertu á síðasta snúning?
Komdu og skoðaðu jólaúrvalið hjá okkur.
Litla JÓLABÚÐIN
Grundarstíg 7, 101 R., s. 551 5992
Opið alla daga 12-18
Ítölsk hönnun
Gjöfin hans - Gjöfin hennar
Sérverslun með ítalskar
vörur fyrir dömur og herra
sósuskál einnig fyrir osta og
súkkulaði-fondue og margt fleira.
ostakúba notast einnig fyrir
salat, ávexti, pottrétti eða poppkorn.
Tréplattinn fyrir ostana,
tertuna eða kjötið.
verð: 5.950.-
HÁGÆÐA STÁLVARA
prýðir öll eldhús
meiriháttar
verð: 5.950.-: . .
www.tk.is
Gjafir við öll tækifæri
Full búð af nýjum,
glæsilegum vörum.
Lagersala Antik-hússins
er opin alla daga frá kl. 14.00-18.00
í Suðurhrauni 12, Garðabæ.
Borðstofuhúsgögn, bókaskápar, skrifborð og skrautmunir.