Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.11.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 13 „LANGBESTA SPILIГ MÁTTURINN & D Ý R Ð IN 1 1 /0 2 Sími 554 7700 Catan - „Landnemarnir“ er eitthvert vinsælasta spil í heimi og hefur m.a. verið valið „Spil ársins“ í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Spilið kemur nú loksins út á íslensku. Það er sérstakt fagnaðarefni fyrir Fríðu Ólafsdóttur og fjölskyldu hennar, sem spilað hafa Catan um árabil og hafa þetta að segja: – „Við féllum strax fyrir Catan, en spilið verður skemmtilegra og skemmtilegra eftir því sem maður spilar það oftar.“ – „Ef maður byrjar þá hættir maður ekki og ekkert spil er eins.“ – „Fjölbreytnin í Catan er endalaus, þú semur og gerir leikáætlun en síðan getur allt spilið snúist á svipstundu.“ – „Þetta er langbesta spilið sem við höfum farið í. Allir eiga jafna möguleika en þetta er frábært fjölskylduspil.“ – „Samningar og kænska er það skemmtilega við þetta. Spennan verður sérstök og grípandi.“ Fríða Ólafsdóttir og börn hennar Heiðrún, Helgi, Davíð og Ingvar: „Kynntumst Catan í Þýskalandi 1996 og höfum ekki lagt það frá okkur síðan!“ Frábært fjölskylduspil! VERSLUN Umsýslustofnunar varnarmála, áður Sölu varnarliðs- eigna, við Grensásveg 9 í Reykjavík er opin milli kl. 13 og 16 í dag í síð- asta sinn en frá áramótum tekur embætti Sýslumannsins á Keflavík- urflugvelli við starfseminni. Þar með lýkur um 50 ára sögu stofn- unarinnar. Að sögn starfsmanns í verslun- inni hefur þó nokkuð verið að gera að undanförnu, ekki síst eftir að það spurðist út að verslunin væri að hætta. Engin sérstök rýmingarsala er í gangi en vöruúrvalið er mikið, eins og myndin ber með sér, og hægt að gera kjarakaup á ótrúleg- ustu hlutum. Umsýslustofnun varnarmála Morgunblaðið/Sverrir Síðasti dagurinn í versluninni „ÞETTA er algjör bylting fyrir okk- ur,“ segir Hafsteinn Heiðarsson, flugstjóri á TF-LÍF þyrlu Landhelg- isgæslunnar eftir sjúkraflug þyrl- unnar á miðvikudagskvöld þar sem nætursjónaukar þyrlunnar voru not- aðir í fyrsta skipti í raunverulegu út- kalli. Flutt var kona í barnsnauð frá Vestmannaeyjum á sjúkrahús í Reykjavík. Sjúkraflugvél var ekki tiltæk í Eyjum og ófært fyrir flugvél að lenda þar vegna veðurs. Var þyrlan því kölluð út kl. 17.33 og nætursjón- aukarnir notaðir. Þakklátir fyrir stuðning „Þetta er allt annað líf og hjálpar okkur mikið í fluginu,“ segir Haf- steinn. „Við erum mjög þakklátir fyrir stuðning fólks úti í þjóðfélaginu sem gerði okkur kleift að kaupa þessi tæki. Þetta hefði ekki tekist nema með góðra manna hjálp.“ – Trufla ljós á jörðu niðri flug með nætursjónauka? „Já, það er að hluta til vandamál. Við þurfum að láta minnka ljós á jörðu niðri eins mikið og mögulegt er, svo það blindi okkur ekki þegar við komum inn til lendingar. – Hvernig gengur að fá fólk á jörðu niðri til að minnka ljósin? „Það gengur ágætlega eins og t.d. í gær (miðvikudag). Við vorum í tal- stöðvarsambandi við flugturninn og þá sem starfa í kringum flugvöllinn. En það er mjög slæmt ef bílljósum er miðað á okkur. Venjuleg ljós geta hjálpað okkur ef við höfum þau í bakið, en ljós sem snýr á móti okkur, verður að einni stórri klessa, líkt og maður væri að horfa beint í sólina,“ segir Hafsteinn. Hann segir hvít og rauð ljós trufla þyrluáhöfnina mest, en blá og græn miklu síður. Hjálparsveitarfólk meðvitað – Veldur þetta ekki áhyggjum ef farið er í útkall á hálendinu og al- menningur á jörðu niðri veit ekki af þessu en vill hjálpa til og leiðbeina þyrlunni inn til lendingar með ljós- um, s.s. jeppaljósum? Hvernig má fyrirbyggja slíkt? „Við erum ekki alveg búnir að setja það niður fyrir okkur hvað við gerum. Hjálparsveitarfólk er nokk- uð meðvitað um þetta og fær fræðslu, en að vísu hefur ekki verið talað nógu mikið um þennan þátt. Við þurfum þó að gera það og reyna koma leiðbeiningum niður með því að komast á sameiginlegar talstöðv- artíðnir.“ Nætursjónaukar Landhelgisgæslunnar reyndust vel í fyrsta sjúkrafluginu „Algjör bylting fyrir okkur“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.