Morgunblaðið - 29.11.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Það er eins gott fyrir vondu karlana að gefast upp strax.
Heilbrigðistæknivettvangur á þriðja ári
Aukin þróun og
útflutningur
Heilbrigðistækni-vettvangur, HTV,samstarfsvett-
vangur á vegum heilbrigð-
is- og tryggingaráðuneyt-
is, Heilbrigðistæknifélags
Íslands, iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytis, Nýsköp-
unarsjóðs atvinnulífsins,
Samtaka iðnaðarins og
Rannsóknarráðs Íslands
er kominn á sitt þriðja ár
af þremur sem lagt var
upp með. Halldór Pétur
Þorsteinsson er verkefnis-
stjóri HTV.
– Hvert var tilefnið?
„HTV var formlega
stofnaður í mars árið 2000
og tók til starfa í júní sama
ár. Aðdragandinn að stofn-
un HTV er úttektar- og
stefnumótunarverkefni
sem unnið var á árinu 1998 í sam-
starfi heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytis, Rannsóknarráðs Ís-
lands, Samtaka iðnaðarins og
Heilbrigðistæknifélags Íslands.
Fjölmargir komu að þessum und-
irbúningi, en grunnurinn var lagð-
ur á stefnumótunarfundi sem
haldinn var í byrjun árs 1998 með
þátttöku breiðs hóps þekkingar-
fólks á sviðinu frá fyrirtækjum,
sjúkrahúsum, rannsókna- og há-
skólastofnunum heilbrigðiskerfis-
ins, auk ráðuneytis heilbrigðis- og
tryggingarmála.“
– Hvaða áherslur voru í upphafi
og hvernig þróaðist starfið?
„Í upphafi var að sjálfsögðu tek-
ið mið af hlutverkum og markmið-
um sem HTV voru sett. Megin-
hlutverk HTV er að skapa
grundvöll fyrir fyrirtæki, stofnan-
ir og einstaklinga til aukins inn-
lends og erlends samstarfs um
þróunar- og markaðsmál á sviði
heilbrigðistækni. HTV hefur svo-
lítið fé úr að spila árlega til fjár-
mögnunar samstarfsverkefna þar
sem leitast er við að styrkja veikar
hliðar verkefna og nýta tækifæri
sem felast í styrkleikum þeirra.
Yfirmarkmið HTV, sem rétt er
að hafa orðrétt úr stofnsamningi,
hefur verkefnisstjórinn sem eins-
konar bæn sem reglulega er kyrj-
uð, „Markmið vettvangsins er að
stuðla að aukinni þróun og út-
flutningi heilbrigðistæknilausna
frá Íslandi og um leið koma til
móts við þarfir heilbrigðiskerfis-
ins fyrir hagkvæmari og betri
lausnir til að bæta lífsgæði og lífs-
líkur sjúklinga.“
Það má e.t.v. segja að starfið
hafi þróast frekar úr því að
styrkja einstök verkefni fyrir-
tækja og stofnana í aðgerðir sem
nýst geti greininni í heild sinni.“
– Hverju hefur HTV áorkað?
„Við erum með mörg járn í eld-
inum og mörg af þeim verkefnum
sem við höfum unnið að eru þess
eðlis að þau taka nokkurn tíma áð-
ur en við sjáum mjög áþreifanleg-
an árangur af þeim. Eitt af stóru
málunum er t.d. að byggja upp
norrænt netverk á sviði þróunar-
og markaðsmála sem lítil og með-
alstór fyrirtæki á svið-
inu geta hagnýtt í
markaðslegum til-
gangi. Þetta er mjög
mikilvægt verkefni
vegna þess að mark-
aðssetning í þessari grein er mjög
erfið og sérstök bæði hvað varðar
öryggiskröfur og svo eru þetta
oftast opinberir innkaupaaðilar
sem fylgja mjög föstum innkaupa-
reglum. Það er því ekki hlaupið að
því fyrir lítil fyrirtæki að komast
að og ekki síst þegar menn þurfa
að sækja á erlenda markaði. Með
því að byggja upp norrænt net-
verk á þessu sviði vonumst við til
þess að geta lækkað nokkuð þann
þröskuld sem útflutningurinn á
þessu sviði þarf að fara yfir. Í
þessu sambandi hefur vettvangur-
inn með tilstyrk frá Norrænu ráð-
herranefndinni og Norræna iðn-
aðarsjóðnum og í samstarfi við
svipaða aðila á öllum hinum Norð-
urlöndunum unnið forúttekt á því
hvernig standa beri að þessu. Lið-
ur í þessari úttekt var norrænn
vinnufundur sem við héldum hér á
landi sl. sumar í tengslum við al-
þjóðlega sýningu og ráðstefnu
sem við stóðum að í samstarfi við
Heilbrigðistæknifélagið og Sam-
tök iðnaðarins. Niðurstaða vinnu-
fundarins var að skilgreint var
stórt norrænt verkefni að umfangi
70 til 80 milljónir kr. til að fylgja
þessu eftir og við bíðum þess nú að
Norræni iðnaðarsjóðurinn taki
ákvörðun um stuðning við þetta
verkefni. Svona stór verkefni
þurfa hins vegar að fara til um-
sagnar sérfræðinga í öllum lönd-
unum áður en þeim er hleypt
áfram. Það er því mikið verk að
koma svona verkefni á koppinn og
krefst mikillar eftirfylgni. Ef af
verður yrði þetta verkefni undir
forystu okkar hér á Íslandi þannig
að þá væri stórum áfanga náð og
sköpuð mikilvæg forsenda fyrir
árangri. Mun fleira á mörgum
sviðum, sem of langt mál væri að
telja, mætti einnig nefna, en út-
tekt sem HTV lét vinna á síðasta
ári sýnir að vöxturinn í þessari
grein hefur verið ótrúlega hraður
og hún er vissulega komin á kortið
í íslensku atvinnulífi með 30 millj-
arða króna veltu á sl. ári. Mér sýn-
ist að vöxturinn á þessu ári verði á
svipuðu róli.“
– Starfið er þá ekki á
enda?
„Það er af og frá að
hlutverki HTV sé lokið,
enda miklu frekar um
langtímaverkefni að ræða en eitt-
hvert skammtímaátak. Það tekur
t.d. að jafnaði um 10 ár að byggja
upp gott fyrirtæki í þekkingariðn-
aði. Það má jafnvel færa fyrir því
rök að þetta geti tekið enn lengri
tíma þar sem markaðsforsendur
eru svona strangar eins og í heil-
brigðistækninni. Það væri því nær
að segja að verkefni vettvangsins
sé rétt að hefjast.“
Halldór Pétur Þorsteinsson
Halldór P. Þorsteinsson hefur
meistararéttindi í vélvirkjun frá
Iðnskólanum í Reykjavík 1983.
Stúdent frá Tækniskóla Íslands
1986 og B.Sc. próf í vélaverk-
fræði frá Álaborgarháskóla
1990. Hefur víða starfað, en frá
2000 verkefnisstjóri hjá Heil-
brigðistæknivettvangi. Sambýlis-
kona er Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari og Halldór á auk þess
soninn Örvar.
…að skapa
grundvöll fyrir
fyrirtæki