Morgunblaðið - 29.11.2002, Side 10

Morgunblaðið - 29.11.2002, Side 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI samþykkti í gærkvöld frumvarp til laga sem kveður á um hækkun áfengisgjalds af sterku víni um 15% og hækkun tóbaksgjalds um 27,7%. Má með því gera ráð fyrir að smásölu- verð á sterku víni hækki um ná- lega 10% og verð á tóbaki hækki að jafnaði um 12%. Gert er ráð fyrir að tekjuauki ríkissjóðs vegna þessara hækkana nemi allt að 1,1 milljarði kr. á ársgrund- velli og eru áætluð áhrif á vísi- tölu neysluverðs talin verða inn- an við 0,3%. Geir H. Haarde fjármálaráðherra sagði að breyt- ingin myndi því ekki hagga þeim verðbólgumarkmiðum sem ríkis- stjórnin hefði sett sér. Lögin öðl- ast þegar gildi. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi síðdegis í gær og þurfti því að leita afbrigða frá þing- sköpum til þess að það fengist afgreitt sama kvöld. Stjórnar- þingmenn auk þingmanna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs veittu frumvarpinu brautargengi en þingmenn Sam- fylkingarinnar vildu að málið fengi eðlilega þingmeðferð, þ.e. að það yrði ekki afgreitt sama kvöld og það væri lagt fram. Þeir vildu lengri tíma til að fara yfir það. Geir Haarde fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu, eftir að samþykkt hafði verið að taka það á dagskrá, og sagði að eðli máls- ins samkvæmt þyrfti að veita frumvarpinu „hraða afgreiðslu,“ eins og hann orðaði það, þar sem um hækkanir væri að ræða. Ráð- herra skýrði síðan frá hækkun- um áfengisgjaldsins; gjald af sterku víni hækkaði um 15%, skv. frumvarpinu eins og áður sagði, og gjald af tóbaki hækkaði um 27,7%. Á móti lækkaði álagn- ing Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins úr 17% í liðlega 11%. Geir sagði að tilgangurinn með frumvarpinu væri tvíþættur. Annars vegar að afla ríkissjóði tekna m.a. vegna ýmissa út- gjalda sem fallið hefðu á rík- issjóð á undanförnum dögum, s.s. vegna samninga um bætt kjör eldri borgara. Og hins vegar að gjaldtaka af áfengi og tóbaki yrði nokkurn veginn í samræmi við verðlagsþróun. Minnti hann á í því sambandi að álögur á áfengi og tóbak hefðu að mestu leyti staðið óbreyttar í krónum talið um langt skeið. Ráðherra sagði að hann hefði kynnt efni frum- varpsins fyrir þingflokksfor- mönnum sl. þriðjudag og kvaðst þá strax hafa lagt áherslu á að málið fengi skjóta afgreiðslu. Vildu fara betur yfir frumvarpið Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, kvaðst við fyrstu umræðu um frumvarpið hafa skilning á því að það þyrfti hraða meðferð. Hann sagði enn- fremur að þingflokkur VG væri í raun fylgjandi því að álögur á áfengi og tóbak yrðu hækkaðar. Hækkanirnar væru í fullu sam- ræmi við gildandi heilbrigð- isáætlun í landinu sem og í samræmi við markmið Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar og fleiri aðila sem hvetja stjórn- völd til þess að stýra neyslunni með því að leggja umtalsverð gjöld á áfengi og tóbak. „Þann- ig sé reynt að hamla gegn óhóf- legri notkun þessara skaðlegu efna eða vímugjafa,“ sagði hann. Þingmenn Samfylkingarinnar voru á hinn bóginn ekki eins já- kvæðir í garð frumvarpsins. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði m.a. að hækkun neysluvísitölunnar um 0,3% hefði meiri áhrif en ráðherra hefði gefið til kynna. Sagði hann skynsamlegra að gefa þinginu meiri tíma til að fara yfir frumvarpið og áhrif þess. Jafnvel þótt það „leiddi af sér örlitla örtröð í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins í einn eða tvo daga,“ eins og Lúðvík komst að orði. Aðrir þingmenn Samfylkingarinnar tóku í sama streng. Eftir fyrstu umræðu var frumvarpinu vísað til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Sú nefnd fór yfir frumvarpið í nokkra klukkutíma í gærkvöld. Kom frumvarpið úr nefnd óbreytt til þriðju og síðustu um- ræðu. Var það síðan afgreitt sem lög frá Alþingi. Alþingi samþykkti í gærkvöld lög um breytt gjald af áfengi og tóbaki Tekjuauki ríkissjóðs um 1,1 milljarður króna Morgunblaðið/Ásdís FRUMVARPI til fjárlaga var vísað til þriðju og síðustu umræðu eftir atkvæðagreiðslu á Alþingi í gær þar sem tillögur meirihluta fjárlaganefndar, um aukin útgjöld upp á 4,3 millarða kr. frá því sem gert var ráð fyrir í sjálfu fjárlagafrumvarpinu, voru samþykkt- ar. Tillögur minnihluta fjárlaganefndar sem og einstakra þingmanna voru ýmist felldar eða dregnar til baka. Í þriðju umræðu, sem fram fer í desem- ber, verður m.a. fjallað um tekjuhlið frum- varpsins. Tillögur meirihlutans um auknar tekjur munu m.a. felast í 1,1 milljarði sem kemur til vegna hækkunar á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi. Meirihlutinn mun þó einnig leggja til aukin útgjöld upp á 1,8 milljarða kr. vegna samkomulags ríkisstjórnarinnar og eldri borgara um að bæta kjör aldraðra. Ólafur Örn Haraldsson, formaður fjár- laganefndar þingsins, sagði m.a. við at- kvæðagreiðsluna í gær að fjárlagafrumvarp- ið, sem verið væri að greiða atkvæði um, bæri með sér ábyrga stefnu ríkisstjórnarinn- ar í ríkisfjármálum. „Eftir skammvinna og grunna lægð í efnahagslífinu horfum við nú fram á betri tíma með auknum hagvexti og stöðugleika sem mun bæta kjör almennings í landinu.“ Bryndís Hlöðversdóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, sagði hins vegar að frumvarpið bæri skýran vott um að kosningar væru í nánd. „Ríkisstjórnin tekur ekki á raunhæfan og heildstæðan hátt á fjár- hagsstöðu ýmissa grunnstofnana samfélags- ins eins og t.d. í heilbrigðis- og menntakerf- inu. Tillögur ríkisstjórnarinnar eru því miður handahófskenndar. Þá eru árlegar jólagjafir til gæluverkefna óvenju ríkuleg- ar.“ Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, kvaðst þeirrar skoðunar að fjárlagafrum- varpið myndi ekki sæta miklum tíðindum þegar það yrði skoðað. Heldur ekki árangur ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum. „Það má heita að rekstur ríkisins sé í járnum og tæp- lega það ef frá er dregin eignasala,“ sagði hann í atkvæðagreiðslunni í gær. Fjárlagafrumvarpi vísað til 3. umræðu Tillögur um 4,3 milljarða útgjöld sam- þykktar VEGNA rannsóknar á meintum brot- um stjórnenda gegn Baugi Group hf. fór ríkislögreglustjórinn fram á að Hreinn Loftsson gerði grein fyrir tveggja milljóna króna innborgun á reikning hans frá 5. júlí árið 2000 sem bókuð var sem eign á viðskiptareikn- ingi hjá Baugi. Í frétt í Ríkisútvarpinu var vísað til bréfaskrifta í þessu máli en aðilar ekki nafgreindir og sendi Hreinn Loftsson fjölmiðlum af því tilefni afrit af bréfaskriftunum við ríkislögreglu- stjóra og telur hann málið að fullu upplýst af hans hálfu. Í svarbréfi Hreins til ríkislögreglu- stjóra kemur fram að um hafi verið að ræða fyrirframgreiðslu upp í þjón- ustusamning við lögmannsstofu hans, Austursel. Af einhverjum ástæðum hafi upphæðin verið færð á viðskipta- reikning í hans nafni í bókhaldi Baugs en hafi átt að vera á nafni stofunnar. Bendir Hreinn á að fyrstu mánuð- ina eftir að hann hóf stofurekstur hafi komið fyrir að greiðslur bærust inn á reikning hans hjá Sparisjóði Hafnar- fjarðar; í þessu tilviki hefði greiðslan fyrst átt að fara inn á reikning Aust- ursels og síðan á einkareikning hans en engu að síður hafi verið gerð grein fyrir greiðslunni á viðskiptamanna- reikningi Hreins hjá Austurseli. Ríkislögreglustjóri fór fram á að Hreinn afhenti hreyfingarlista yfir reikning sinn í júlí og ágúst 2000, hreyfingar á viðskiptareikningi sínum í bókhaldi Austursels og öll gögn sem gerðu grein fyrir ráðstöfun upphæð- arinnar og ljósrit af þjónustusamn- ingi sínum við Baug. Ekki skriflegur samningur Hreinn sendi umbeðin gögn nema ljósrit af þjónustusamningi þar sem skriflegur samningur var ekki til. Í bréfinu segir að á milli Baugs og Austursels hafi verið viðskiptatengsl sem tengdust lögfræðiþjónustu Hreins. Austursel hafi fengið um- ræddar tvær milljónir upp í þjónustu sem stofan hafi veitt Baugi og á það bent að munnlegir samningar séu jafngildir sem skriflegir væru. Sama fjárhæð, tvær milljónir, hafi síðan verið færð sem úttekt Hreins gagn- vart Austurseli en sem skuld Aust- ursels við Baug. Slíkum úttektum gagnvart Austurseli megi Hreinn ráðstafa að vild. Í bréfinu áréttar Hreinn að ekki geti verið um brot á hlutafélagalögum að ræða þar sem hann sem stjórnarformaður hafi ekki fengið lán hjá Baugi Group. Þá segir Hreinn að ástæða þess að reikningur vegna umræddrar fyrirframgreiðslu hafi ekki verið sendur strax hafi verið sú að hann hafi átt að vera liður í upp- gjöri milli Baugs og Austursels sem dróst á langinn. Ríkislögreglustjóri bað um gögn um viðskipti Austursels við Baug Tvær milljónir fyrirfram vegna lögfræðiþjónustu VÍFILFELL hefur keypt bókhlöðuna við Mjóasund í Hafnarfirði af Hafnarfjarðarbæ og afhent hana samtök- unum Regnbogabörnum til afnota. Það voru Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Vífilfells, og Lúðvík Geirsson, bæj- arstjóri Hafnarfjarðar, sem undirrituðu kaupsamning- inn í gær. Í fréttatilkynningu frá Regnbogabörnum kemur fram að kaupverð hússins sé 26 milljónir króna. Vífilfell af- henti að lokinni samningsundirrituninni Regnbogabörn- um húsið til afnota. Bókhlaðan að Mjósundi var vígð 31. maí 1958. Arki- tekt var Sigurður J. Ólafsson bæjarverkfræðingur. Fyrstu árin notaði bókasafnið einungis neðri hæðina en Iðnskólinn í Hafnarfirði leigði efri hæðina. Árið 1972 fékk bókasafnið til afnota allt húsið, sem er um 536 fer- metrar. Safnið var til húsa að Mjósundi 12 í tæp 44 ár. Hinn 20. apríl 2002 var bókasafnið opnað í nýju húsnæði að Strandgötu 1. Í fréttatilkynningunni segir að þrátt fyrir að húsið sé í góðu ástandi sé ljóst að gera þurfi nokkrar breytingar á því til að það verði nothæft til að hýsa Samfélagsmiðstöð Hafnarfjarðar og Regnbogabörn. Áætlað er að starfsemi í húsinu hefjist í febrúar nk. Opin kerfi hafa gefið ýmis skrifstofutæki til starfsem- innar og Ispan í Kópavogi gefið nýtt gler í allt húsið. Þegar hafa yfir tvö þúsund manns gerst stofnmeðlimir í Regnbogabörnum. Skráning stofnmeðlima stendur enn á vefsetri félagsins, www.regnbogaborn.is. Félagið var formlega stofnað 16. nóvember sl. Stefán Karl Stefáns- son leikari er formaður samtakanna. Morgunblaðið/Þorkell Vífilfell kaupir hús fyrir Regnbogabörn, gamla bókasafnið í Hafnarfirði. Regnbogabörn fá gamla bókasafnið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.