Morgunblaðið - 29.11.2002, Page 29
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 29
Velkomin á Laugaveginn
Við erum komin í jólaskap
Langur laugardagur
opið 11-18
KRINGLUNNI, S. 568 9017LAUGAVEGI 91, S. 511 1717
Kookai
Mia
Diesel
Studio N.Y.
Miss Sixty
Imitz
Saint Tropes
Laura Aime
Tark
Paul Smith
DKNY Jeans
Energie
Camper
4 you
Matinique
Van Gils
Mao
Billi Bi
Again and Again
Trend design
Nova Mas
Poplite
Spiral
Vagabond
Shellys
Dömudeild
mia dragtir 14.990
kjólar frá 5.990
mia peysur 2.990
mia flauelskápur 11.990
diesel gallabuxur mikið úrval
diesel barnafatnaður mikið úrval
Herradeild
mao jakkaföt 2.900
VanGils jakkaföt 37.990
4 you skyrtur 3.990
4 you bindi 2.990
diesel skór 8.990
GS skór
again spariskór 5.990
novamas kúrekastígvél 13.990
poplife skór 7.990
Ný sending af Billi Bi
Sautján Jeans
xtra.is bómullarpeysur 2.990
xtra.is flauelsbuxur 7.990
by herrmannabuxur 3.990
xtra.is kanaúlpur 9.990
Gott kaffihús í
jólastemmningunni
kvæmd.“ Undanfarið hefur mikil
vinna verið í gangi við að styrkja
ímynd Austur-Héraðs og færa stjórn-
sýslu og kynningarmál bæjarfélags-
ins til nútímalegra horfs. Þannig er
t.d. haldið úti líflegri vefsíðu, sem er
talin vera með bestu sveitarfélaga-
vefjum landsins. Ráðinn var sérstak-
ur aðili sem hefur endurskipulagt
kynningarmálin og eflt upplýsinga-
streymi frá sveitarfélaginu til muna.
Á skrifstofum Austur-Héraðs er unn-
ið að talsverðum breytingum á innra
skipulagi. Verið er að ljúka samningi
við Skyggni hf. um hýsingu og rekst-
ur tölvukerfa og leigu á miðlægum
búnaði bæjarfélagsins.
Markvisst er unnið að því að bæta
allan hugbúnað og m.a. verið að end-
urnýja skjalavistunar- og fjárhagseft-
irlitskerfi bæjarins. Með þessu móti
er stefnt að því að einfalda vinnu-
brögð og gera þau skilvirkari, bæði
innan bæjarkerfisins sjálfs og ekki
síst gagnvart þeim sem sveit-
arfélagið þjónustar.
Fyrir liggur stefnumótun
Austur-Héraðs 2001 til 2006,
sem var samin að undangeng-
inni hugmyndavinnu breiðs
hóps fólks á svæðinu. Eiríkur
segir skýrsluna stórvirki og
að það hafi verið ómetanlegt
að hafa fyrirliggjandi vilja
íbúa sveitarfélagsins til mál-
efna þess strax í upphafi.
Íbúaþing og
Haustþing ungs fólks
„Eitt af mínum fyrstu
verkum í starfi var að sitja
hér íbúaþing og hlusta á
væntingar íbúanna til sveitar-
félagsins og hvernig fólkið
sér hlutina virka í raun og
veru. Það var ekki hægt að
hugsa sér betri byrjun. Mun-
urinn aftur á móti á íbúa-
þinginu okkar og þeim sem
nú er verið að vinna í öðrum
sveitarfélögum er sá, að við
vorum tilbúin með ákveðna stefnu-
mótun og síðan var skerpt á henni
með bæjarbúum og þá ekki síst
hvernig við gætum komið hugmynd-
unum í framkvæmd.“
Eiríkur segir verkefnum stefnunn-
ar forgangsraðað eftir því sem fjár-
veitingar og aðrar áherslur leyfa.
„Fyrstu verkefnin voru fyrrnefnt
íbúaþing og svo Haustþing ungs fólks
á Héraði, sem stefnt er að því að verði
árviss viðburður til að ná fram áhrif-
um ungs fólks á samfélagið hér.
Varðandi ímyndarmál Austur-Hér-
aðs skiptir auðvitað mestu máli að
láta vita að við séum til. Að Austur-
Hérað sé ákjósanlegur kostur til bú-
setu. Nú erum við með nýtt nafn á
sveitarfélaginu sem varð til við sam-
einingu Egilsstaðabæjar, Skriðdals-
og Vallahrepps og Eiða- og Hjalta-
staðaþinghár og við þurfum að gera
okkur sýnilegri. Við viljum gjarnan fá
fólk til að flytja hingað, en það þarf að
vita fyrir hvað við stöndum og upp á
hvað við höfum að bjóða. Við gerum
okkur einnig grein fyrir því að við er-
um í samkeppni við önnur svæði um
fólk og þess vegna skiptir jákvæð
ímynd sveitarfélagsins og alls Austur-
lands miklu máli.
Verktakafyrirtæki
vilja lóðir
Búist er við umtalsverðri fólks-
fjölgun á Héraði þegar uppbygging
stóriðju kemst í algleyming og Eirík-
ur segir sveitarfélagið nú undirbúa
sig fyrir það. „Það tengist mest skipu-
lagsmálum, ekki síst lóðaframboði,“
segir hann. „Það er orðið afar áþreif-
anlegt að lóðaeftirspurn hefur aukist
til muna. Við fáum mjög ákveðnar
fyrirspurnir frá verktakafyrirtækjum
um land allt, sem vilja fá hér lóðir og
byggja upp. Jafnframt er verið að
skoða hvaða áhrif væntanleg fólks-
fjölgun muni hafa á aðra samfélags-
lega þætti.
Nýsir hf. vinnur nú skýrslu fyrir
okkur hér fyrir austan um áhrif virkj-
unar og stóriðju á samfélagslega
þætti eins og félagsþjónustu, skóla-
mál og menningu svo eitthvað sé
nefnt. Við erum þó býsna meðvituð
um þetta, enda höfum við nú þegar
verið í uppbyggingu á þessu sviði sem
sést best á því að það hefur fjölgað í
bæjarfélaginu á síðustu árum. Hér er
búið að einsetja grunnskólann og allt
skólaumhverfið þykir gott enda erum
við einnig með góðan leik- og mennta-
skóla, auk öflugs tónlistarskóla. Hér
eru síðan uppi hugmyndir um stofnun
þekkingarseturs sem mun innihalda
rannsókna- og háskólasetur. Þetta
eru verkefni sem styrkja munu fram-
tíð sveitarfélagsins og hafa mikil áhrif
á byggðaþróun á öllu Austurlandi.“
Eiríkur er bjartsýnn og segir Aust-
ur-Hérað öflugt sveitarfélag og ein-
sýnt að uppgangstímar eru framund-
an.
Vefslóð heimasíðu Austur-Héraðs
er www.egilsstadir.is.
Hinn ungi bæjarstjóri Austur-Héraðs, Eirík-
ur Bj. Björgvinsson, segir uppgangstíma
framundan í sveitarfélaginu.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd
NÝLEGA voru haldnir tónleikar í
samkomuhúsi Þykkvabæjar en
flytjendur voru tónlistarfólk á aldr-
inum 15 til 16 ára. Edda Karls-
dóttir, Helga Sæmundsdóttir og
Katla Gísladóttir léku á píanó, Haf-
steinn Már Heimisson á saxófón og
Írena Sólveig Steindórsdóttir lék á
þverflautu, allt einleiks- eða tvíleik-
sverk eftir ýmsa höfunda svo sem
J.S. Bach, Händel, W.A. Mozart, E.
Grieg og fleiri. Undirleikari var
Hédi Maróti, kennari í Tónlistar-
skóla Rangæinga, en flestir flytj-
endanna á tónleikunum stunda nám
þar.
Það var Lista- og menning-
arklúbburinn Ísafold sem stóð fyrir
tónleikunum en hann sam-
anstendur af nokkrum konum sem
láta sér ekkert listrænt óviðkom-
andi. Þar sem þeim hefur ekki ver-
ið boðin aðild að hinum hefðbundnu
„saumaklúbbum“ fannst þeim við-
eigandi að stofna klúbb þennan.
Aðspurðar sögðu Ísafoldarkonur
að tilgangur tónleikanna væri m.a.
sá að veita unglingunum tækifæri
til að flytja tónlist á öðrum vett-
vangi en venjulega, eins og á tón-
fundum og jólatónleikum tónlistar-
skólanna.
Ekkert ákveðið verkefni er fram-
undan hjá klúbbnum en vonir
standa til að þessir tónleikar séu
upphafið að einhverju meiru, m.a. á
sviði bókmennta og myndlistar
einu sinni til tvisvar á ári.
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Flytjendur og aðstoðarfólk á tónleikum voru Hédi Maróti, Hafsteinn Már
Heimisson, László Czenek, Katla Gísladóttir, Helga Sæmundsdóttir (sitj-
andi), Edda Karlsdóttir og Írena Sólveig Steindórsdóttir.
Tónleikar í Þykkvabæ
Hella