Morgunblaðið - 29.11.2002, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 29.11.2002, Qupperneq 38
LISTIR 38 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ S kemmtilegar hug- myndir eru vel þegnar til að létta lands- mönnum lund í skammdeginu og er innflutningur lamadýra ein slík. Ekki spillir fyrir að væntanlegir innflytjendur eru augsýnilega gefnir fyrir gamansemi og hafa því til staðfestingar nefnt félag sitt Íslama. Þá vilja þeir koma dýrunum fyrir í Dalasýslu í þeim tilgangi væntanlega að þau verði kölluð Dala lama. Á þessari hugmynd eru hins vegar fleiri hliðar og ekki allar eins spaugilegar. Ein er að alls óvíst er að Íslama fái að flytja lamadýrin til landsins, því yf- irvöldum kann að þykja þau slæm viðbót við íslenska fánu. Þau eru sennilega ekki eins geðgóð og ís- lenska belj- an, að minnsta kosti ekki ef marka má heims- bókmenntir á borð við Fangana í sólhofinu, þar sem þau veittust ítrekað að þeim mæta manni Kolbeini kafteini. Og svo hafa þau líka þann skelfilega ágalla að líta öðru- vísi út en íslenska beljan, íslenski hesturinn og íslenska rollan. Þau myndu því stinga í stúf og það þykir ekki gott. Þeim rökum er oft beitt gegn innflutningi dýra að þau geti borið með sér smit, en slík rök verða varla tekin nema mátulega hátíð- lega. Hægt er að gera kröfur um að smitberar séu ekki fluttir til landsins, en þegar slíkum rökum er beitt til að hindra algerlega innflutning er aðeins um að ræða tæknilegar hindranir gegn inn- flutningi. Þá er í raun verið að leggja ígildi óendanlega hárra tolla á innflutninginn, en skiln- ingur hefur sem betur fer farið vaxandi á því að tollar eru tæki sem hafa fáar aðrar afleiðingar en að gera þjóðir fátækari. Tollar eru iðulega rökstuddir með því að þeir eigi að vernda innlenda fram- leiðslu eða afla ríkinu tekna, en þeir eru afleitt tæki til þessara hluta. Tollar eru vel þekktir úr land- búnaði og hafa þar það hlutverk að vernda innlenda framleiðslu sem ýmsir telja að muni ekki að öðrum kosti geta keppt við hina erlendu. Á þetta hefur svo sem ekki reynt, en líklegt er að margir innlendir framleiðendur þyrftu að hverfa til annarra starfa ef inn- flutningur landbúnaðarafurða yrði gefinn frjáls. Það yrði vissu- lega sársaukafullt á meðan á því stæði, en þó illskárra en að halda uppi óhagkvæmri framleiðslu, því sú stefna er líka sársaukafull fyrir þá sem þurfa að greiða hærra verð fyrir framleiðsluna. Auk þess hefur kerfið þvælst fyrir hagræðingu í greininni og þannig dregið nauðsynlega aðlögun á langinn. Miklu nær væri að leysa bændur úr viðjum kerfisins, en leyfa þeim þá líka að stunda þann búskap sem þeir kjósa sjálfir, hvort sem það er lamadýrafram- leiðsla, stækkun búa eða annað sem þeir telja að geti orðið þeim til hagsbóta. Engin grein, hvorki landbúnaður né nokkur önnur, getur orðið hagkvæm þegar hún er undir „verndar“væng hins op- inbera og reglur þess hindra hag- ræðingu og frumkvæði. En jafnvel þótt vilji verði áfram til að halda bændum í fjötrum rík- isins og ekki náist um það sam- staða að hætta opinberum af- skiptum af landbúnaði, þá eru tollar ekki rétta leiðin til að styðja við framleiðslu bænda. Tollar hafa tvo stóra ókosti, þeir brengla starfsemi markaðarins og fela þann kostnað sem hlýst af stuðn- ingnum. Miklu hreinlegra væri að hafa alla styrki til framleiðenda uppi á borðum svo allir gætu séð hver kostnaðurinn er í raun. Þess vegna væri skárra að fella niður alla tolla og aðrar innflutnings- hindranir vegna landbúnaðarins og auka þess í stað niðurgreiðslur, í stað þess að halda í núverandi kerfi. Faldir styrkir eru almennt óæskilegir, en þeir eru því miður vinsælir í stjórnmálum, því þá veit enginn hver styrkurinn er í raun. Og það er jafnvel ekki litið á földu styrkina sem styrki, þeir eru bara eitthvert saklaust fyrirbæri – eða jafnvel jákvætt – á borð við tolla, skattaívilnanir og tæknilegar inn- flutningshindranir. Földu styrk- irnir gleðja fáa mikið og kostn- aðurinn dreifist á marga. En kostnaðurinn er engu að síður fyrir hendi og hann safnast saman í háar fjárhæðir þegar földu styrkirnir eru mikið notaðir. Þeir sem bera kostnaðinn vita þó ekki hversu mikill hann er og óánægja þeirra er þess vegna minni en hún væri ef fjárhæð styrkjanna lægi fyrir. En tollar eru ekki alltaf ein- göngu hugsaðir til að vernda inn- lenda framleiðslu, stundum er til- gangurinn með þeim nær eingöngu að afla ríkinu tekna. Flókin og stigbreytileg gjöld á bíla eru gott dæmi þar um og þeir sem séð hafa verð á bílum í Bandaríkjunum og Þýskalandi telja sig sjálfsagt og réttilega hlunnfarna í hvert sinn sem þeir þurfa að endurnýja bílinn sinn. Með þessum háu gjöldum á bíla er ríkið ekki aðeins að afla sér nokk- urra milljarða aukalega – og um- fram þann kostnað sem það ber af vegagerð – það er líka að draga úr lífsgæðum hér á landi umfram það sem ástæða er til vegna tekju- öflunar. Heppilegra væri að ríkið aflaði teknanna með almennum sköttum en ekki þessum sérstöku bílasköttum. Ástæðan er sú að með sérstökum sköttum á bíla skekkir ríkið það val sem fólk stendur frammi fyrir. Fólk velur ekki á eðlilegum forsendum í hvað það vill verja fjármunum sínum og getur þess vegna ekki komist að hagkvæmustu niðurstöðu fyrir sig. Kostnaðurinn af tollum er þess vegna tvíþættur, bæði sýnilegur og falinn. Óhagræðið er aug- ljóslega fyrir hendi, en hversu mikið veit enginn. Með því að fella niður alla tolla og aðrar innflutn- ingshindranir mætti bæta lífskjör hér á landi, jafnvel án þess að rík- ið missi spón úr aski sínum ef ekki er vilji til þess. Og að auki væri hægt að flytja inn lamadýr og sannreyna þannig hvort þau gætu verið hagkvæm viðbót við aðra framleiðslu bænda – og hvort þau eru eins skapstygg og Hergé vildi vera láta. Bílar og lamadýr Tollar eru iðulega rökstuddir með því að þeir eigi að vernda innlenda fram- leiðslu eða afla ríkinu tekna, en þeir eru afleitt tæki til þessara hluta. VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj@mbl.is HRAÐSKREIÐIR bílar, stór- hættuleg og seiðandi glæpakvendi, banvænir bardagasnillingar og for- ríkir glæpamenn kemur auðvitað allt við sögu í nýjustu James Bond- myndinni, sem margir hafa beðið spenntir eftir enda var smábútur hennar tekin upp á Íslandi. Ekki má svo gleyma sérlega hentugum tæknibúnaði, sem kemur, ef að lík- um lætur, okkar manni til aðstoðar á ögurstundu. James Bond, njósnara hennar hátignar, þarf örugglega ekki að kynna fyrir nokkru mannsbarni. Í fjóra áratugi hefur þessi lífseigi kvennabósi skemmt bíógestum um heim allan með sínum hnyttnu til- svörum og fágaða skopskyni. Nú er sem sagt komið að tuttugustu myndinni um konung njósnaranna og vonast menn til að Bond bregð- ist ekki áhorfendum í þetta sinn eftir alla þá æfingu, sem að baki er. Sagan hefst á hernumda svæðinu milli Norður- og Suður-Kóreu með miklum eltingarleik á svifnökkvum. Leikurinn berst gegnum Hong Kong til Kúbu og loks til London. Þar hittir Bond tvær konur, sem koma til með að gegna mik- ilvægum, en ólíkum hlutverkum í verkefni hans, en það er að fletta hulunni af svikara og koma í veg fyrir hræðilegt stríð. Bond eltir ill- mennin m.a. til Íslands, þar sem hann kynnist óþægilega vel nýju gereyðingarvopni, en uppgjörið við höfuðóvininn þarf hann að sækja þangað sem þetta allt byrjaði, til Kóreu. Pierce Brosnan fer með hlutverk Bonds og Bond-stúlkan er að þessu sinni Óskarsverðlaunahafinn Halle Berry. Sem fyrr leikur Judi Dench hina harðsvíruðu M og háðfuglinn John Cleese er tækjameistarinn R. Höfundur sögunnar er Ian Fleming og leikstjórn var í höndum Ný- Sjálendingsins Lee Tamahori. Hann á að baki nokkuð ólíkar myndir, m.a. Once Were Warriors (1994), glæpamyndina Mulholland Falls (1996) með Nick Nolte, óbyggðamyndina The Edge (1997) með Anthony Hopkins og Alec Baldwin og spennutryllinn Along Came a Spider (2001) með Morgan Freeman. 007 eltir illmenni alla leið til Íslands Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri frumsýna 007 – Die Another Day. Leikarar: Pierce Brosnan, Halle Berry, Rosamund Pike, Rick Yune, Lawrence Makoare, Michael Madsen, Judi Dench og John Cleese. Komið er að tuttugustu myndinni um konung njósnaranna, James Bond. BANDARÍKJAMAÐURINN Ro- land Michell, sem leikinn er af Aar- on Eckhart, reynir allt hvað hann getur til að einbeita sér að erfiðu námi í breskum háskóla og hann forðast aðstæður, sem skapað geta náin samskipti við hitt kynið. Hann hefur fengið styrk til að kynna sér verk hins virta ljóðskálds Randolph Henry Ash, sem uppi var á Viktor- íutímanum og er mikið átrún- aðargoð í augum Michells. Hann er enn undir leiðsögn læri- meistara síns þegar hann finnur tvö ástarbréf í textabók, sem einu sinni tilheyrði hinu mikilsvirta skáldi. Eftir nokkra rannsóknavinnu og eftirgrennslan, er hann handviss um að bréf þessi eru ekki frá eig- inkonu skáldsins, heldur beinist grunur hans að annarri konu, sem einnig naut virðingar sem viktor- ískt skáld og hét Christabel La- Motte. Roland ákveður að fá í lið með sér Dr. Maud Bailey, sem leik- in er af Gwyneth Paltrow, og er að sérhæfa sig í lífi og verkum La- Motte. Í sameiningu púsla þau saman sögu um forboðið ástarævintýri og lenda þar að auki í sams konar að- stæðum sjálf þegar þau feta í fót- spor ástfanginna skálda þvert yfir England og yfir til meginlandsins meira en öld áður. Þau þurfa líka að passa sig á því að þessi nýja uppgötvun falli ekki keppinautnum Fergus Wolfe í hendur. Handritshöfundur að þessari allri þessari rómantík er David Henry Hwang. Handritið skrifaði hann upp úr samnefndri sögu A.S. Byatt, sem út kom 1990, en Byatt fékk þá skáldsagnarverðlaun í Bretlandi fyrir verk sitt. Leikstjórinn Neil LaBute, sem hlaut menntun sína bæði í Banda- ríkjunum og á Bretlandi, á nokkrar myndir að baki sem notið hafa virð- ingar og verðlauna. Nefna má In the Company of Men (1997), Your Friends & Neighbors (1998) og Nurse Betty (2000). Forboðin fortíðarást Háskólabíó frumsýnir Possession. Leikarar: Gwyneth Paltrow, Aaron Eck- hart, Jeremy Northam, Jennifer Ehle, Lena Headey, Holly Aird, Toby Steph- ens, Trevor Eve, Tom Hickey, Georgia Mackenzie og Tom Hollander. Handritið að þessari rómantísku mynd skrifaði David Henry upp úr samnefndri sögu A.S. Byatt, sem út kom 1990, en Byatt fékk þá skáld- sagnarverðlaun í Bretlandi fyrir verk sitt. Jennifer Ehle og Jeremy Northam í hlutverkum sínum. LANGHOLTSKÓRINN, undir stjórn Jóns Stefánssonar, hélt glæsi- lega tónleika sl. sunnudag í Lang- holtskirkju og flutti íslensk, færeysk og dönsk tónverk, sem flest voru samin sem sam- starfsverkefni Kórs Langholts- kirkju, Tríton- kórsins frá Dan- mörku, undir stjórn Johns Høybye, og Skýr- ák-kórsins frá Færeyjum, undir stjórn Kára Bæk. Tónleikarnir hófust á Canite tuba in Sion, um áhrifamikinn lúðraþyt, skemmtilegt verk er var vel flutt. Kári Bæk átti næsta verk, nokkuð svo þrástefjað, er óx að innri gerð er á leið verkið. Í þessu verki sungu Sigríður Gröndal og Sæmundur Helgason einsöng og mæddi þó meira á Sigríði, er naut reynslu sinnar sem einsöngvari. Frumflutt var verkið Supremum est mortal- ibus bonum eftir Oliver Kentish, töluvert áhrifamikið verk, þótt end- urtekningar tónhugmynda og fá- brotið (statískt) tónferlið gerðu verkið á köflum nokkuð einlitt. Með kórnum lék Steef van Oosterhout á klukkur og sjávartrommu, þar sem framkalla mátti sjávarnið með því að láta kornótt efni renna til á skinni trommunnar. Guðmundur Sigurðs- son lék á orgelið tónefni sem féll mjög vel að tónmáli kórsins. Ólafur H. Jóhannsson las ágætlega upp hluta textans, en vel væri athugandi fyrir tónskáldið að umrita þann þátt fyrir einsöngvara. Hvað um það, þá er þetta verk sérlega áhrifamikið og stemmningsríkt. Ég vil lofa eina þá eftir Báru Grímsdóttur var jafnskemmtilegt áheyrnar og fyrir nokkrum mánuð- um, enda lagrænt og sérlega vel út- fært og var einnig mjög vel flutt af kórnum. Ég vil vegsama Drottin eft- ir Árna Harðarson er einnig gamall kunningi og var þetta ágæta verk mjög vel flutt. Frumflutt var kór- verkið Eilífi ljóssins faðir eftir Árna Egilsson við texta eftir Herdísi Andrésdóttur. Þetta er að mörgu leyti sérkennilegt verk, þar sem fitj- að er upp á ýmsu er einkenndi „móderne“ söngverk fyrrum. Einnig má merkja áhrif frá hljóðfæratón- list, er birtist í hröðum og stuttum tónstefjum, sem fara vel á hljóðfæri en eru erfið í söng. Þrátt fyrir þetta var margt vel gert í þessu skemmti- lega verki, sem kórinn söng ótrúlega vel. Eftir Tryggva M. Baldvinsson var flutt verkið „From Zachariah’s praise and prediction“ en líklega er predikun Sakaríasar hér við enskan texta þar sem verkið var samið vegna samstarfs Kórs Langholts- kirkju og kóranna frá Danmörku og Færeyjum. Þetta ágæta verk var mjög vel flutt og sama má segja um lokaverk tónleikanna, Magnificat eftir John Høybye, sem er áhrifa- mikið verk og nokkuð vel samið. Það var mjög vel sungið og átti Regína Unnur Ólafsdóttir þar nokkrar vel sungnar einsöngsstrófur. Það sem sérstaklega tók hugann var afburðagóður flutningur kórs Langholtskirkju, undir stjórn Jóns Stefánssonar, og þau verk sem best er að muna eru hið dulúðuga verk Olivers Kentish, skrítilegt og marg- litt verk Árna Egilssonar og hinn glaðværi og lagræni kórall Báru Grímsdóttur. Nútíma- kórverk TÓNLIST Langholtskirkja Kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar flutti íslensk, færeysk og dönsk kórverk. Sunnudaginn 24. nóvember. KÓRTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson Jón Stefánsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.