Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 11
Aðeins sé um vasapeninga að ræða á þeim vettvangi sem hann hefur verið að dæma á. „Það var í raun einfaldlega þannig að maður fékk allt uppihald frítt og hugsað var um mann eins og ungbarn.“ Það er tímafrekt að dæma í Evrópu- keppni; þegar Leifur fór utan á síðasta vetri í þeim tilgangi var yfirleitt flogið út á mánu- degi, hann dæmdi leik á þriðjudegi og annan á miðvikudegi og kom síðan heim á fimmtu- degi. Það segir sig sjálft að slíkur maður er ekki draumur vinnuveitandans, „en ég var þó ekki marga daga í burtu umfram vetr- arfríið mitt, en í burtu engu að síður. Þróun upplýsingatækni hjálpaði mikið til og far- tölvan var ávallt ferðafélagi minn. Því gafst alltaf tími til skýrslugerða og skipulagsvinnu í flugvélum, lestum og hótelherbergjum.“ Leifur segir að til að dómari geti orðið mjög góður þurfi talsverða ögrun; til að mynda það að dæma í Evrópukeppni. „Við erum hins vegar illa settir landfræðilega og getum líklega ekki átt eins marga alþjóða- dómara og til dæmis Lúxemborg, svo ég nefni eitt land sem er meira að segja lakara en við í körfubolta; dómarar þaðan geta keyrt í marga leiki vegna þess hve landið er miðsvæðis í Evrópu en við þurfum auðvitað alltaf að fljúga og í því felst ákveðinn kostn- aður.“ Dómari þarf að vera ákveðnum hæfileik- um búinn, segir Leifur aðspurður: „Dómari er ekki ósvipaður leikstjórnanda liðs; hann þarf að hafa geysilegan leikskilning. Og það er atriði sem maður getur ekki kennt. Dóm- ari sem hefur ekki góðan leikskilning verður alltaf í erfiðleikum. Matsatriðin eru svo mörg; hvenær er hagræði og hvenær ekki. Maður þarf auðvitað líka að kunna reglurnar mjög vel en ég tel vægi þeirra innan við 50% á móts við leikskilninginn og tilfinningu fyrir því sem er að gerast.“ Honum fannst gaman að dæma í útland- inu. „Alveg frábært.“ Segist hafa farið á marga staði sem hann hefði líklega ekki far- ið á ella, litlar borgir sem stórar. „Það er alltaf reynt að kynna dómurunum bæði fé- lagið sem þeir eru að dæma hjá og stað- hætti. Margir staðirnir búa yfir mikilli sögu og þetta hafa því oft verið mjög fróðlegar ferðir.“ Stjórnmálamaðurinn Það kom eflaust mörgum á óvart, sér- staklega í Hafnarfirði, þegar Leifur var ráð- inn skólastjóri Áslandsskóla, eins og áður var vikið að. Að ráðinn skyldi maður úr öðrum stjórn- málaflokki en fer með völd í bænum. Spurt er: hvernig kom það til að hann fór út í stjórnmálavafstur fyrir síðustu kosn- ingar? „Ætli ég hafi ekki bara verið plataður!“ segir hann og glottir. „Sjálfstæðismenn sáu eitthvað í mér og báðu mig um að gefa kost á mér í prófkjör og ég ákvað að vera með vegna þess að ég hef metnað fyrir hönd Hafnarfjarðar. Sá uppgangstími sem átti sér stað í bæjarfélaginu á síðastliðnu kjörtíma- bili fór ekki framhjá mér og ég vildi leggja því starfi lið. Prófkjörið gekk síðan vonum framar en ég er ekki viss um að ég hefði nokkurn áhuga á því að fara á eitthvert þjóðmálaflakk. Ég hef áhuga á Hafnarfirði og fyrir hvað hann stendur; það má því segja að pólitík mín rúmist innan bæjarmarkanna að vissu leyti.“ Leifur segist reyndar hafa haft svo mikið að gera í skólanum síðan hann tók við starf- inu að hann hafi ekki einu sinni „kíkt á svo mikið sem einn ráðsfund. Ég hef satt að segja ekki komið nálægt pólitíkinni eftir að ég byrjaði hér, einfaldlega ekki gefist tími til.“ Leifur segir verkefnalista stjórnmálafylk- inga í bæjarstjórn að miklu leyti eins. „Ég sit til dæmis í fjölskylduráði og þar er að minnsta kosti mjög góð samvinna; menn eiga ekki að þurfa að vera á móti bara til þess að vera á móti. Auðvitað greinir menn stundum á um leiðir og aðferðir en verkefnin þarf að leysa og því má ekki gleyma að við erum að vinna að hagsmunum sveitarfélagsins.“ Hann bendir á að vissulega verði ekki framhjá því litið að stjórnmálaflokkar hafi hver sín sérkenni og stefnumið. Niðurstaða fólks sé hins vegar oft sú að það styðji ákveðnar persónur „því verkefnin eru oft svo lík þó að stundum vilji menn fara ólíkar leið- ir. Ég studdi til dæmis Ingvar vin minn Viktorsson, hægri krata, á sínum tíma þegar Alþýðuflokkurinn var og hét og þarf ekki að fara í grafgötur með það. Það er ekki þar með sagt að ég hafi stutt alla sem voru með honum á lista, en það er vandamál að þegar maður velur sér menn í bæjarstjórn er mað- ur að greiða einhverjum öðrum atkvæði í leiðinni. Ég hef oft heyrt fólk velta því fyrir sér hvort það sé framkvæmanlegt að kjósa um persónur í bæjarstjórnarkosningum en ekki flokka og það er vissulega athugunarverður möguleiki hvort sem af því verður einhvern tíma eða ekki.“ Vissulega, segir Leifur, voru ekki allir sáttir við að hann skyldi hreppa skólastjóra- stöðuna. „Sumir eru því miður fastir í því að það eigi að ráða menn úr þeim stjórnmála- flokki sem ræður í bænum hverju sinni, menn eigi bara að vera með rétta stimpilinn og það eigi að duga.“ Leifur segir að því miður hafi ýmsar mið- ur góðar sögur um sig farið af stað í bænum – svo mjög að hann hafi beinlínis fengið bak- þanka um tíma vegna eigin stjórnmálavafst- urs. „Það sem kom mér leiðinlegast á óvart var það blaður sem fór í gang; lyga- og kjafta- sögur um mig og mína persónu og maður fór hálfpartinn að rannsaka í sínum fórum hvort eitthvað af þeim gæti ef til vill átt við rök að styðjast!“ Hann er beðinn að nefna dæmi. „Eitt það alvarlegasta var það að mér átti að hafa verið vísað úr starfi tímabundið fyrir það að hafa lagt hendur á nemendur. Þegar ég heyrði þetta hugsaði ég með mér hvort það væri virkilega þess virði að vera í stjórnmálum; ef það þykir nægileg réttlæt- ing fyrir því að búa til svona sögur að við- komandi starfi á þeim vettvangi. Ef svo er held ég að betur sé heima setið en af stað farið. Þetta var ekki það sem ég vildi að mín börn lifðu við.“ Hann segir ekkert athugavert við það þótt ákveðnir einstaklingar séu á milli tann- anna á fólki; „ég skil það vel, ef það er vegna verka sem menn hafa unnið að en það getur ekki verið eðlilegt að fólk hafi til þess leyfi að búa til rætnar lygasögur um fólk, bara af því að það sinnir störfum í stjórn- málum.“ Hann segir að bersýnilega hafi einhverj- um þótt stafa ógn af umsókn hans um starf skólastjóra við Áslandsskóla, því þegar um- sóknir lágu fyrir hafi alls kyns sögur strax farið á kreik. Hann segist hafa staðfestan grun um hverjir voru þar að verki. „Þetta var lítill hópur sem kom sögunum af stað en ég held að nú séu menn farnir að jafna sig. Óneitanlega snertir þetta mann en ég met þó þá aðila sem hafa haft samband við mig og beðið mig afsökunar.“ Leifi finnst það í raun ótrúlegt að í þjóð- félaginu sé hálfgert „veiðileyfi“ á fólk sem starfar við stjórnmál. „Það er eins og segja megi hvað sem er um þá aðila, satt eða ósatt. Tökum forsætis- ráðherra, einn hæfasta stjórnmálamann sög- unnar, sem dæmi; ef brot af því sem sagt hefur verið um hann bara upp á síðkastið væri satt væri löngu ljóst að hann sæti í fangelsi. Ég held að fólk verði aðeins að gæta að því hvað það lætur út úr sér.“ m Samfylkingin treysti Morgunblaðið/Jim Smart við vinnum með sérstök skólaheit og ákveðnar dyggðir. Svo er örugglega á fleiri tt en venjulega í nýjum skóla. skapti@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Leifur dæmir leik ÍR og Keflavíkur í Seljaskóla í síðustu viku. Morgunblaðið/Golli Leifur aðstoðar Valgerði Sigurðardóttur, forseta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, við að opna skólatorg Öldutúnsskóla, en skólatorgið var opnað sl. haust. Í einfaldleik mínum finnst mér að við all- ar svona ráðningar eigi faglegt mat al- gjörlega að ráða. Pólitík má alls ekki ráða ferðinni. Það sem kom mér leiðinlegast á óvart var það blaður sem fór í gang; lyga- og kjaftasögur um mig og mína persónu, og maður fór hálfpart- inn að rannsaka í sínum fórum hvort eitthvað af þeim gæti ef til vill átt við rök að styðjast! Það er ótrúlegt að í þjóðfélaginu sé hálf- gert „veiðileyfi“ á fólk sem starfar við stjórnmál. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.