Morgunblaðið - 29.12.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 304. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 2002 mbl.is
Myndbönd
ársins 2002
Gullmolarnir sem frumsýndir
voru á myndbandi Fólk 56
Samúel Kristjánsson 21 árs
framkvæmdastjóri 10
Stanzað í
Skógarsal
Petra Sveinsdóttir á
Stöðvarfirði heimsótt 20
TUGIR þúsunda bandarískra hermanna og
tugir herskipa munu fara til Persaflóa á næstu
vikum, er bandaríska varnarmálaráðuneytið
fylkir liði sínu til árásar á Írak, að því er fulltrú-
ar ráðuneytisins segja. Þegar eru á svæðinu
rúmlega fimmtíu þúsund bandarískir hermenn.
Embættismenn í varnarmálaráðuneytinu
sögðu að þetta væru mestu liðsflutningar sem
Bandaríkjamenn hefðu ráðist í hingað til. Með
þeim yrði hernaðarundirbúningurinn mun sýni-
legri og augljósari en hann hefði hingað til ver-
ið.
„Möguleikinn á átökum í Írak er um það bil
að verða deginum ljósari fyrir alla Bandaríkja-
menn,“ sagði háttsettur embættismaður í hern-
um, er ekki vildi láta nafns síns getið.
Liðsaukanum er ætlað að knýja Saddam
Hussein Íraksforseta til að gera grein fyrir og
hætta við tilraunir sínar til að koma sér upp
efna-, lífefna- og kjarnorkuvopnum, segja tals-
menn Bandaríkjahers. Engin ákvörðun hafi
verið tekin um að hefja styrjöld.
Tvö flugmóðurskip gerð klár
Alls fengu um 25 þúsund hermenn, í flugher,
flota og landher, skipanir frá varnarmálaráðu-
neytinu nú eftir jólin, og tvö flugmóðurskip
verða gerð klár í að halda til Persaflóans. Munu
flutningarnir taka nokkrar vikur og hefjast
fljótt upp úr áramótum.
George W. Bush forseti samþykkti þessa
áætlun í síðustu viku á fundi með Donald Rums-
feld varnarmálaráðherra og Tommy Franks
hershöfðingja, sem mun stjórna herliði Banda-
ríkjanna, komi til átaka.
Samkvæmt upplýsingum embættismanna á
alls að flytja um 50 þúsund hermenn til Persa-
flóasvæðisins til viðbótar þeim 57 þúsund sem
varnarmálaráðuneytið hefur verið að flytja
þangað síðan í ársbyrjun. Á embættismönnun-
um var að skilja að síðustu 25 þúsund hermenn-
irnir yrðu síðan fluttir á svæðið „á næstunni“.
Tugþúsundir bandarískra
hermanna til Persaflóa
Reuters
DONALD Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hlær innilega með hermönn-
um á bandarísku herstöðinni Sayliyah í Qat-
ar. Rumsfeld segist ekki í nokkrum vafa um
að Írakar ráði yfir gereyðingarvopnum.
„Möguleikinn á átök-
um í Írak að verða
deginum ljósari“
Enginn vafi
Washington. AP, Los Angeles Times.
ÓOPINBERAR niðurstöður úr for-
setakosningunum er haldnar voru á
föstudaginn í Kenýa bentu til þess í
gær að frambjóðandi stjórnarand-
stöðunnar, Mwai Kibaki, hefði hlotið
afgerandi meira fylgi en fram-
bjóðandi stjórnarflokksins, Uhuru
Kenyatta. Samkvæmt upplýsingum
Stofnunar í lýðræðismennt, sem er
sjálfstætt starfandi kenýsk stofnun,
hefur Kibaki um 72% fylgi.
Mwai Kibaki ræðir við fréttamenn.
Útlit fyrir
sigur Kibakis
Nairobi. AFP.
Reuters
YFIRVÖLD í Norður-Kóreu hafa
gert eftirlitsmönnum á vegum Al-
þjóðakjarnorkumálastofnunarinnar
(IAEA) að yfirgefa landið ekki síðar
en á gamlársdag, að því er fram kom
í tilkynningu frá stofnuninni í gær.
N-kóresk stjórnvöld segjast ætla
að opna á ný kjarnorkuvinnslustöð
sem hefur verið lokuð í átta ár.
IAEA segir ekki hægt að útiloka að
þar verði framleidd kjarnorkuvopn.
Yfirgefi
N-Kóreu á
gamlársdag
Vín. AFP.
♦ ♦ ♦
ÞAÐ umhverfi sem myndlistarsköp-
un er búið hér á landi er gagnrýnt
bæði af yngri kynslóð listamanna,
sem telja tækifæri vannýtt, og eldri
kynslóð listmálara, sem telja að sér
hafi verið ýtt til hliðar.
Í viðtali við Morgunblaðið segir
Einar Hákonarson að einsýni ein-
kenni stefnumótun þeirra listfræð-
inga er stýra opinberum sýningar-
sölum og harmar hann þá þróun sem
átt hefur sér stað á undanförnum ár-
um þess efnis að ákveðnum lista-
mönnum er boðið að sýna en salirnir
ekki opnaðir fyrir umsóknum lista-
manna.
Á sama tíma má greina sterka
kröfu meðal listamanna af yngri
kynslóð og fagfólks á sviði myndlist-
armiðlunar um að íslensk listasöfn
sinni með markvissari hætti því sem
er efst á baugi og framsæknast í list-
sköpun samtímans, hvort sem um er
að ræða alþjóðlega myndlist eða ís-
lenska. Telur Ósk Vilhjálmsdóttir,
myndlistarmaður og fyrrverandi for-
maður Nýlistasafnsins, m.a. að með
markvissri stefnumótun stjórnvalda
mætti nýta mun betur þau tækifæri
er bjóðast við að gera íslenska list-
sköpun sýnilega á alþjóðasviði
myndlistar, t.d. með því að styrkja
þær stofnanir og fyrirtæki sem sinna
myndlist hér á landi. „Aukinn alþjóð-
legur áhugi á norrænni myndlist
ætti að færa okkur aukin tækifæri til
að rjúfa þá einangrun sem íslensk
myndlist býr við,“ segir Ósk.
Málarar telja sig útilokaða – yngri
kynslóð vill nýta betur tækifærin
Faglegra umhverfi myndlistar
ÓMÆLT magn reykts svínakjöts,
kalkúna, rjúpna, hreindýrakjöts
og meðlætis og úrval eftirrétta
hefur runnið ljúflega ofan í land-
ann undanfarna daga. Eftir letilíf
og fjölda jólaboða sjá því margir
þann kost vænstan að taka sprett-
inn í ræktinni. Sjálfsagt gættu
margir hófs í átinu yfir hátíð-
arnar en mættu engu að síður í
líkamsrækt í gær, en ljósmyndari
Morgunblaðsins leit þá inn í eina
af líkamsræktarstöðvunum. Lík-
amsrækt er hluti af lífsstíl
margra og rauðir dagar á alman-
akinu breyta þar engu um. Án efa
var samviskan betri hjá ein-
hverjum sem fóru út í vetrardag-
inn eftir hörkupúl milli jóla og
nýárs, aðrir láta það ekki einu
sinni hvarfla að sér á þessum árs-
tíma.
Morgunblaðið/Jim Smart
Átök í
heilsu-
ræktinni
EIRÍKUR Þorláksson, forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur, segir
að íslensk listasöfn líti á það sem
hlutverk sitt að reka metnaðarfulla
sýningarstefnu, sem samræmist
ekki fyrri starfsháttum, þar sem sal-
ir voru leigðir út eftir umsóknum.
„Það sem söfnin hafa verið að gera
markvisst er að setja sýningardag-
skrá sína í ákveðið alþjóðlegt sam-
hengi. Ekkert safn getur vonast til
að standa undir nafni í samanburði á
alþjóðavettvangi ef sýningardagskrá
felst í því að úthluta sölum eftir ein-
hverjum misskildum lýðræðisvið-
miðum,“ segir Eiríkur og ítrekar að
ekki sé verið að útiloka ákveðna hópa
listamanna heldur einfaldlega velja
til sýningar verk listamanna sem
kallist á við það besta sem er að ger-
ast á alþjóðlegu listasviði.
Í viðtali hér í blaðinu svara þeir
Eiríkur Þorláksson og Ólafur Kvar-
an, safnstjóri Listasafns Íslands,
fjölmörgum gagnrýnissjónarmiðum
varðandi starfsemi safnanna. Þeir
telja takmarkað fjármagn setja söfn-
unum skorður í því hlutverki að fjalla
um hina virku listsköpun samtímans
og að varðveita og miðla listasög-
unni. Ólafur Kvaran sér möguleika í
aukinni samvinnu safnastofnana.
„Söfnin á höfuðborgarsvæðinu gætu
staðið sameiginlega að stórri alþjóð-
legri sýningu, t.d. á þriggja ára
fresti,“ bendir Ólafur m.a. á.
Breyttir tímar fela í sér nýjar kröfur
– peningaleysi háir stóru söfnunum
Af menningarástandi/22
Þetta er alltaf
hörkuvinna
FIMMTÍU og fimm manns létust í
sprengjutilræðinu er framið var í
stjórnsýsluhúsinu í Grozní, höfuð-
stað Kákasushéraðsins Tétsníu, á
föstudagsmorguninn. Rússneska
neyðarráðstafanaráðuneytið stað-
festi þetta í gær.
55 létust
Moskvu. AFP.
♦ ♦ ♦