Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.01.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 C 39HeimiliFasteignir Bollagata - góð Í einkasölu virkil. góð 62 fm 2ja herb. íbúð á jarðh./kjallara í góðu húsi (endurnýjað) á þessum vinsæla stað. Íbúðin er að mestu með mahóní-parketi, nýleg eldhúsinnrétting, stórt svefnherbergi. Þetta er góð eign sem fer fljótt. Áhv. 3,4 m. V. 8,9 m. 1922 Hverfisgata - bakhús Vorum að fá í einkasölu, skemmtil. 2-3ja herb. íbúð á 1. hæð í þríbýli. 2 litlar stofur, möguleiki á að hafa aðra sem svefnherbergi. Eldhús með ágætri innréttingu. Svefnher- bergi með skápum. Baðherb. með sturtu. B.b.mat. 5,9 m. Áhv. 4,3 m. V. 6,5 m. 1891 Marbakkabraut - Kópavogi Vorum að fá í sölu, þessi 2 parhús við Mar- bakkabraut. Húsin eru á 2 hæðum og skilast fullfrág. að utan en fokh. að innan. Teikn. og allar nánari uppl. á skrifst. V. 13,9 m. 2001 Skeifan Höfum fengið í sölumeðferð þessa vel stað- settu fasteign samtals 502,8 fm, tvennar innkeyrsludyr. Allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum atvinnuhúsnæðis Guðmundi og Bjarna. 1867 Óðinsgata Um er að ræða verslunarhúsnæði á jarðhæð um 65 fm. Húsnæðið er í útleigu í dag. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu. Möguleiki á að borga hluta kaupverðs með V.N. V. 8,5 m. 2101 Álfheimar - fjárfestar Höfum fengið í sölumeðferð 237,3 fm versl- unar og lagerhúsnæði sem er að miklum hluta í langtíma leigu, leigutekjur krónur 160,000 á mán. og óleigt er ca 80 fm sem hægt væri að innrétta sem ósamþykkta ein- staklings íbúð með bílskúr. Teikningar og allar nánari upplýsingar hjá Guðmundi og Andrési. TILBOÐ. 2010 Álfabakki - fjárfestar Höfum fengið í sölumeðferð þessa fasteign sem er í útleigu að stærstum hluta eða ca 586 fm, leigutekjur krónur. 450,000. á mán. og síðan mjög gott geymslu húsnæði ca 95 fm. Teikningar og allar nánari upplýsingar hjá Andrési og Guðmundi. TILBOÐ. 2004 Lyngháls Höfum fengið í sölumeðferð alhliða iðnaðar- húsnæði, sem skiptist í tvo eignarhluta efri hæð samtals 1,712 fm á 2. hæð, með góðri lofthæð, innkeyrsla frá Lynghálsi. Hentar vel fyrir matvælaiðnað eða heildsölu. Neðri hæð samtals 683 fm með aðkeyrslu frá Krók- hálsi, ásamt byggingarrétti upp á ca 2.620 fm á 3 hæðum, grunnflötur hæðar 873 fm. Allar nánari upplýsingar og teikningar hjá Guðmundi sölumanni. Tilboð 1879 Suðurlandsbraut - fjár- festar Til sölu er verslunar og lagerhúsnæði samtals 1,630 fm, góð staðsetning, allar nánari upplýsingar hjá sölumönnum at- vinnuhúsnæðis. Guðmundi og Bjarna. 2082 Sumarhús á Spáni - al- gjör sæla Í sölu hús á Spáni á Costa Blanca ströndinni. Um er að ræða frá 3ja her- bergja íbúðum til einbýlishúsa og allt þar á milli. Möguleiki á lánum allt að 70% af kaupverði Allar nánari upplýsingar gefur Ellert á skrifstofu eign.is 1964 Erluás - Hafnarfjörður Erum með til sölu endahús í botnlanga á 2 hæðum samtals 257,9 fm með miklu útsýni og í góðu skjóli. Skilast uppsteypt með pappa á þaki, grófjöfnuð lóð, plast í gluggum, undir er óuppfyllt 40 m2 rými, möguleiki á að skipta niður í 2 íbúðir, rúmgóður bílskúr V. 15,9 m. 1934 Heiðarbrún - Hvera- gerði Vorum að fá í sölu parhús á einni hæð með bílskúr, samtals 129 fm. Sam- anstendur af 2 svefnherbergjum, eld- húsi, baði, þvottahúsi, stofu, forstofu og bílskúr. Húsið afhendist fullbúið að utan og tæplega tilbúið undir tréverk að inn- an. Lóð er grófjöfnuð. V. 13,4 m. 1965 Seljendur  Sölusamningur – Áður en fast- eignasala er heimilt að bjóða eign til sölu, ber honum að ganga frá sölu- samningi við eiganda hennar um þjónustu fasteignasala á þar til gerðu samningseyðublaði. Eigandi eignar og fasteignasali staðfesta ákvæði sölusamningsins með undirritun sinni. Allar breytingar á sölusamningi skulu vera skriflegar. Í sölusamningi skal eftirfarandi koma fram:  Tilhögun sölu – Koma skal fram, hvort eignin er í einkasölu eða al- mennri sölu, svo og hver söluþóknun er. Sé eign sett í einkasölu, skuldbind- ur eigandi eignarinnar sig til þess að bjóða eignina aðeins til sölu hjá ein- um fasteignasala og á hann rétt til umsaminnar söluþóknunar úr hendi seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld annars staðar. Einkasala á einnig við, þegar eignin er boðin fram í maka- skiptum. – Sé eign í almennri sölu má bjóða hana til sölu hjá fleiri fast- eignasölum en einum. Söluþóknun greiðist þeim fasteignasala, sem sel- ur eignina.  Auglýsingar – Aðilar skulu semja um, hvort og hvernig eign sé auglýst, þ. e. á venjulegan hátt í eindálki eða með sérauglýsingu. Auglýsingakostn- aður skal síðan greiddur mán- aðarlega samkv. gjaldskrá dagblaðs. Öll þjónusta fasteignasala þ. m. t. auglýsingar er virðisaukaskattskyld.  Gildistími – Sölusamningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með fyrirvara (hámark 30 dagar) og gera þarf það skriflega. Ef einkasölusamn- ingi er breytt í almennan sölusamn- ing þarf einnig að gera það með skrif- legum hætti. Sömu reglur gilda þar um uppsögn.  Öflun gagna/söluyfirlit – Áður en eignin er boðin til sölu, verður að út- búa söluyfirlit yfir hana. Seljandi skal leggja fram upplýsingar um eignina, en í mörgum tilvikum getur fast- eignasali veitt aðstoð við útvegun þeirra skjala sem nauðsynleg eru. Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk beins útlagðs kostnaðar fasteignasal- ans við útvegun skjalanna. Í þessum tilgangi þarf eftirfarandi skjöl:  Veðbókarvottorð – Þau kosta nú 900 kr. og fást hjá sýslumannsemb- ættum. Opnunartíminn er yfirleitt milli kl. 10.00 og 15.00. Á veðbók- arvottorði sést hvaða skuldir (veð- bönd) hvíla á eigninni og hvaða þing- lýstar kvaðir eru á henni.  Greiðslur – Hér er átt við kvittanir allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem á að aflýsa.  Fasteignamat – Hér er um að ræða matsseðil, sem Fasteignamat ríkisins sendir öllum fasteignaeig- endum í upphafi árs og menn nota m.a. við gerð skattframtals. Fast- eignamat ríkisins er til húsa að Borg- artúni 21, Reykjavík sími 5155300.  Fasteignagjöld – Sveitarfélög eða gjaldheimtur senda seðil með álagn- ingu fasteignagjalda í upphafi árs og er hann yfirleitt jafnframt greiðslu- seðill fyrir fyrsta gjalddaga fasteigna- gjalda ár hvert. Kvittanir þarf vegna greiðslu fasteignagjaldanna.  Brunabótamatsvottorð – Vott- orðin fást hjá því tryggingafélagi, sem eignin er brunatryggð hjá. Vottorðin eru ókeypis. Einnig þarf kvittanir um greiðslu brunaiðgjalda. Ef fá þarf nýtt brunabótamat á fasteign, þarf að snúa sér til Fasteignamats ríksins og biðja um nýtt brunabótamat.  Hússjóður – Hér er um að ræða yf- irlit yfir stöðu hússjóðs og yfirlýsingu húsfélags um væntanlegar eða yf- irstandandi framkvæmdir. Formaður eða gjaldkeri húsfélagsins þarf að út- fylla sérstakt eyðublað Félags fast- eignasala í þessu skyni.  Afsal – Afsal fyrir eign þarf að liggja fyrir. Ef afsalið er glatað, er hægt að fá ljósrit af því hjá viðkom- andi sýslumannsembætti og kostar það nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn- legt, því að það er eignarheimildin fyrir fasteigninni og þar kemur fram lýsing á henni.  Kaupsamningur – Ef lagt er fram ljósrit afsals, er ekki nauðsynlegt að leggja fram ljósrit kaupsamnings. Það er því aðeins nauðsynlegt í þeim til- vikum, að ekki hafi fengist afsal frá fyrri eiganda eða því ekki enn verið þinglýst.  Eignaskiptasamningur – Eigna- skiptasamningur er nauðsynlegur, því að í honum eiga að koma fram eign- arhlutdeild í húsi og lóð og hvernig af- notum af sameign og lóð er háttað.  Umboð – Ef eigandi annast ekki sjálfur sölu eignarinnar, þarf umboðs- maður að leggja fram umboð, þar sem eigandi veitir honum umboð til þess fyrir sína hönd að undirrita öll skjöl vegna sölu eignarinnar.  Yfirlýsingar – Ef sérstakar kvaðir eru á eigninni s. s. forkaupsréttur, umferðarréttur, viðbyggingarréttur o. fl. þarf að leggja fram skjöl þar að lút- andi. Ljósrit af slíkum skjölum fást yf- irleitt hjá viðkomandi fógetaembætti.  Teikningar – Leggja þarf fram samþykktar teikningar af eigninni. Hér er um að ræða svokallaðar bygg- ingarnefndarteikningar. Vanti þær má fá ljósrit af þeim hjá byggingarfull- trúa. Kaupendur  Þinglýsing – Nauðsynlegt er að þinglýsa kaupsamningi strax hjá við- komandi sýslumannsembætti. Það er mikilvægt öryggisatriði. Á kaupsamn- inga v/eigna í Hafnarfirði þarf áritun bæjaryfirvalda áður en þeim er þing- lýst.  Greiðslustaður kaupverðs – Al- gengast er að kaupandi greiði afborg- anir skv. kaupsamningi inn á banka- reikning seljanda og skal hann tilgreindur í söluumboði.  Greiðslur – Inna skal allar greiðslur af hendi á gjalddaga. Seljanda er heimilt að reikna dráttarvexti strax frá gjalddaga. Hér gildir ekki 15 daga greiðslufrestur.  Lánayfirtaka – Tilkynna ber lán- veitendum um yfirtöku lána.  Lántökur– Skynsamlegt er að gefa sér góðan tíma fyrir lántökur. Það getur verið tímafrekt að afla tilskil- inna gagna s. s. veðbókarvottorðs, brunabótsmats og veðleyfa.  Afsal – Ef skjöl, sem þinglýsa á, hafa verið undirrituð samkvæmt um- boði, verður umboðið einnig að fylgja með til þinglýsingar. Ef eign er háð ákvæðum laga um byggingarsam- vinnufélög, þarf áritun bygging- arsamvinnufélagsins á afsal fyrir þinglýsingu þess og víða utan Reykja- víkur þarf áritun bæjar/sveitarfélags einnig á afsal fyrir þinglýsingu þess.  Samþykki maka – Samþykki maka þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan býr í eigninni.  Gallar – Ef leyndir gallar á eigninni koma í ljós eftir afhendingu, ber að tilkynna seljanda slíkt strax. Að öðr- um kosti getur kaupandi fyrirgert hugsanlegum bótarétti sakir tómlæt- is. Gjaldtaka  Þinglýsing – Þinglýsingargjald hvers þinglýsts skjals er nú 1.200 kr.  Stimpilgjald– Það greiðir kaupandi af kaupsamningum og afsölum um leið og þau eru lögð inn til þinglýs- ingar. Ef kaupsamningi er þinglýst, þarf ekki að greiða stimpilgjald af af- salinu. Stimpilgjald kaupsamnings eða afsals er 0,4% af fasteignamati húss og lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri milljón.  Skuldabréf – Stimpilgjald skulda- bréfa er 1,5% af höfuðstóli (heildar- upphæð) bréfanna eða 1.500 kr. af hverjum 100.000 kr. Kaupandi greiðir þinglýsingar- og stimpilgjald útgef- inna skuldabréfa vegna kaupanna, en seljandi lætur þinglýsa bréfunum.  Stimpilsektir– Stimpilskyld skjöl, sem ekki eru stimpluð innan 2ja mán- aða frá útgáfudegi, fá á sig stimp- ilsekt. Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr- ir hverja byrjaða viku. Sektin fer þó aldrei yfir 50%.  Skipulagsgjald – Skipulagsgjald er greitt af nýreistum húsum. Af hverri byggingu, sem reist er, skal greiða 3‰ (þrjú pro mille) í eitt sinn af brunabótavirðingu hverrar húseignar. Nýbygging telst hvert nýreist hús, sem virt er til brunabóta svo og við- byggingar við eldri hús, ef virðing- arverð hinnar nýju viðbyggingar nem- ur 1/5 af verði eldra hússins. Þetta á einnig við um endurbætur, sem hækka brunabótavirðingu um 1/5. Húsbyggjendur  Lóðaumsókn – Eftir birtingu aug- lýsingar um ný byggingarsvæði geta væntanlegir umsækjendur kynnt sér þau hverfi og lóðir sem til úthlutunar eru á hverjum tíma hjá byggingaryf- irvöldum í viðkomandi bæjar- eða sveitarfélögum – í Reykjavík á skrif- stofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2. Skilmálar eru þar afhentir gegn gjaldi, ef tilbúnir eru. Umsækjendur skulu fylla út nákvæmlega þar til gert eyðublað og senda aftur til viðkom- andi skrifstofu. Í stöku tilfelli þarf í umsókn að gera tillögu að húshönn- uði en slíkra sérupplýsinga er þá get- ið í skipulagsskilmálum og á umsókn- areyðublöðum.  Lóðaúthlutun – Þeim sem út- hlutað er lóð, fá um það skriflega til- kynningu, úthlutunarbréf og þar er þeim gefinn kostur á að staðfesta út- hlutunina innan tilskilins tíma, sem venjulega er um 1 mánuður. Þar koma einnig fram upplýsingar um upphæðir gjalda o.fl. Skilyrði þess að lóðaút- hlutun taki gildi eru að áætluð gatna- gerðargjöld o.fl. séu greidd á réttum tíma. Við staðfestingu lóðaúthlutunar fá lóðarhafar afhent nauðsynleg gögn, svo sem mæliblað í tvíriti, svo og hæðarblað í tvíriti og skal annað þeirra fylgja leyfisumsókn til bygg- ingarnefndar, auk frekari gagna ef því er að skipta.  Gjöld – Gatnagerðargjöld eru mis- munandi eftir bæjar- og sveit- arfélögum. Upplýsingar um gatna- gerðargjöld í Reykjavík má fá hjá borgarverkfræðingi en annars staðar hjá byggingarfulltrúa. Að auki koma til heimæðargjöld. Þessi gjöld ber að greiða þannig: 1/10 innan mánaðar frá úthlutun, síðan 30% sex mánuðum eftir úthlutun, 30% tólf mánuðum eftir úthlutun og loks 30% átján mánuðum eftir úthlutun.  Framkvæmdir – Áður en unnt er að hefjast handa um framkvæmdir þarf framkvæmdaleyfi. Í því felst byggingaleyfi og til að fá það þurfa bygginganefndarteikningar að vera samþykktar og stimplaðar og eft- irstöðvar gatnagerðargjalds og önnur gjöld að vera greidd. Einnig þarf að liggja fyrir bréf um lóð- arafhendingu, sem kemur þegar byggingarleyfi er fengið og nauðsyn- legum framkvæmdum sveitarfélags er lokið, svo sem gatna- og holræsa- framkvæmdum. Í þriðja lagi þarf að liggja fyrir stað- setningarmæling bygginga á lóð en þá þarf einnig byggingarleyfi að liggja fyrir, lóðarafhending að hafa farið fram og meistarar að hafa skrifað upp á teikningar hjá byggingarfull- trúa. Fylla þarf út umsókn um vinnu- heimtaugarleyfi til rafmagnsveitu og með þeirri umsókn þarf að fylgja byggingarleyfi, afstöðumynd sem fylgir byggingarnefndarteikningu og umsókn um raforku með undirskrift rafverktaka og húsbyggjanda. Umsækjanda er tilkynnt hvort hann uppfyllir skilyrði rafmagnsveitu og staðfestir þá leyfið með því að greiða heimtaugargjald. Fljótlega þarf að leggja fram sökklateikningar hjá byggingarfulltrúa og fá þær stimpl- aðar en að því búnu geta fram- kvæmdir við sökkla hafist. Þá þarf út- tektir á ýmsum stigum framkvæmda og sjá meistarar um að fá bygginga- fulltrúa til að framkvæma þær.  Fokhelt – Fokheldisvottorð, skil- málavottorð og lóðasamningur eru mikilvæg plögg fyrir húsbyggjendur og t.a.m. er fyrsta útborgun húsnæð- islána bundin því að fokheldisvottorð liggi fyrir. Byggingarfulltrúar gefa út fokheldisvottorð og skilmálavottorð og til að þau fáist þarf hús að vera fokhelt, lóðarúttekt að hafa farið fram og öll gjöld, sem þá eru gjald- fallin að hafa verið greidd. Skrifstofur bæja- og sveitarfélaga (í Reykjavík skrifstofa borgarstjóra) gera lóð- arsamning við lóðarleigjanda að upp- fylltum ýmsum skilyrðum, sem geta verið breytileg eftir tíma og að- stæðum. Þegar lóðarsamningi hefur verið þinglýst, getur lóðarhafi veð- sett mannvirki á lóðinni. Húsbréf  Húsbréfalán – Lán innan hús- bréfakerfisins eru svokölluð hús- bréfalán. Þau eru veitt til kaupa á not- uðum íbúðum, til nýbygginga einstaklinga, nýbygginga bygging- araðila og til endurbóta á eldra hús- næði. Annars vegar er um að ræða fasteignaveðbréf, sem gefin eru út af íbúðarkaupanda, húsbyggjanda eða íbúðareiganda, og eru þau skuldavið- urkenningar þessara aðila. Húsbréfin sjálf koma kaupanda ekki beint við. Seljendur aftur á móti eignast hús- bréf með því að selja Íbúðalánasjóði fasteignaveðbréfin. Þar með losna seljendur við að inn- heimta afborganir af fasteignaveð- bréfunum og geta notað húsbréfin á þann hátt, sem þeir kjósa; ýmist með því að selja þau á verðbréfamarkaði, eiga þau sem sparnað eða nota hús- bréfin til að greiða með annaðhvort við kaup, eða upp í skuldir sínar. Hér að neðan er birt dæmi um þann feril, sem á sér stað við kaup á notaðri íbúð. Frekari upplýsingar ásamt al- mennri fjármálaráðgjöf í tengslum við lánveitinguna veita bankar og sparisjóðir.  Kaup á notaðri íbúð  Frumskilyrði fyrir húsbréfaláni, er að umsækjandi verður að sækja um skriflegt mat á greiðslugetu sinni hjá banka eða sparisjóði.  Þegar mat þetta er fengið, gildir það í sex mánuði.  Umsækjandi skoðar sig um á fast- eignamarkaðnum í leit að notaðri íbúð.  Þegar hann hefur í höndum sam- þykkt kauptilboð, kemur hann því til Íbúðalánasjóðs ásamt greiðslu- matskýrslu og öðrum fylgigögnum  Meti stofnunin kauptilboðið láns- hæft, fær íbúðarkaupandinn afhent fasteignaveðbréfið til undirritunar og hann getur gert kaupsamning.  Fasteignaveðbréfið er síðan afhent seljanda eftir undirskrift.  Því næst lætur kaupandi þinglýsa kaupsamningi og kemur afriti til seljanda.  Seljandi lætur þinglýsa fast- eignaveðbréfinu, útgefnu af kaup- andanum, sem Íbúðalánasjóður síðan kaupir og greiðir fyrir með húsbréfum. Afgreiðsla þeirra fer fram hjá Íbúðalánasjóði.  Stofnunin sér um innheimtu af- borgana af fasteignaveðbréfinu.  Lánskjör – Fasteignaveðbréfið er verðtryggt. Lánstími er 25 eða 40 ár og ársvextir eru nú 5,1%. Þeir eru fastir og breytast því ekki á lánstím- anum. Gjalddagar á nýjum fast- eignaveðbréfum eru nú mánaðarlega eða ársfjórðungslega og afborganir hefjast á 3ja reglulega gjalddaga frá útgáfu bréfsins, sé um mánaðarlega gjalddaga að ræða og öðrum reglu- lega gjalddaga sé um ársfjórðungs- lega gjalddaga að ræða. Á allar greiðslur, bæði vexti og af- borganir, eru jafnan reiknaðar verð- bætur í samræmi við neyzluvísitölu. Lántökugjald er 1%. Mánaðarleg greiðslubyrði af 1 millj. króna láni til 25 ára er í dag 5.924 kr.  Önnur lán– Íbúðalánasjóður veitir einnig fyrirgreiðslu vegna byggingar leiguíbúða eða heimila fyrir aldraða, meiriháttar endurnýjunar og end- urbóta eða viðbygginga við eldra íbúðarhúsnæði. Margir lífeyrissjóðir veita einnig lán til félaga sinna vegna húsnæðiskaupa, svo að rétt er fyrir hvern og einn að kanna rétt sinn þar. Möguleikar á lán- um til kaupa á íbúðarhúsnæði kunna einnig að vera fyrir hendi hjá bönkum og sparisjóðum. Minnisblað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.