Morgunblaðið - 07.01.2003, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 07.01.2003, Qupperneq 42
42 C ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir BRETLAND er upphafs-land iðnvæðingar og nú-tímaborgarmyndunar.Frá 1800 til 1900 lét nærri að íbúafjöldinn fjórfaldaðist, fór úr 9 milljónum í 33 milljónir, þar af bjuggu 5 milljónir í London og hafði slíkur mannfjöldi aldrei í gervallri veraldarsögunni fyrr sést í einni borg. London var á þessum tíma – lokaárum langs valdatíma Viktoríu drottningar – höfuðborg heimsveldis þar sem sem sólin aldrei settist. Feiknaör vöxtur borganna varð til þess að Bretar áttu alla 19. öldina við að stríða meiri og alvarlegri hús- næðisvanda en aðrar þjóðir. Aðgerð- ir til úrbóta hófust ekki að marki fyrr en eftir lok fyrri heimsstyrjald- arinnar, er forsætisráðherrann Lloyd George og ríkisstjórn hans beittu sér fyrir öflugu félagslegu byggingarátaki undir lykilorðinu „Homes Fit For Heros“ með tilvísun til allra þeirra ungu hermanna sem voru að snúa heim frá vígvöllum meginlandsins. Þá var það einnig þungt á met- unum að um gervalla Evrópu var róttæk verkalýðsbarátta á mikilli siglingu í kjölfar byltingarinnar í Rússlandi og breskum ráðamönnum þótti öruggast að halda sínu heima- fólki góðu með stórátáki í húsnæðis- málum. Af framangreindum orsökum fór af stað þegar á árunum upp úr 1920 stórfellt félagslegt byggingarátak á vegum breskra sveitarfélaga, og er þetta upphafið á „council housing“ í Bretlandi, sem átti eftir að ná til um 30% alls húsnæðis í landinu. Frá Atlee til Thatcher Bretar höfðu sigur í síðari heims- styrjöldinni undir traustri forystu erkiíhaldsmannsins Winstons Churchills. Þeir treystu hins vegar verkamannaflokknum undir forystu Clements Attlees betur fyrir upp- byggingarátaki eftirstríðsáranna, þar sem efling félagslegra leigu- íbúða var lykilatriði. Á árunum eftir 1945 varð breska velferðarríkið til undir forystu- manna eins og Aneurin Bevan, heil- brigðisráðherra verkamannaflokks- ins á upphafsárum National Health Service, bresku heilbrigðisþjónust- unnar. Sjálft velferðarhugtakið – sem öðlast hefur sess í orðaforða flestra þjóða heims – er raunar komið frá William Beveridge (síðar Beveridge lávarður), opinberum embættis- manni sem á stríðsárunum leiddi undirbúning hinnar komandi upp- byggingar eftirstríðsáranna á sviði félags- og atvinnumála. Þrátt fyrir gífurlega aukningu á byggingu félagslegs húsnæðis tókst stjórn Attlees ekki að fullu að ná settum markmiðum. Íhaldsflokk- urinn bauðst til þess að bæta um betur, sem átti sinn þátt í kosn- ingasigri þeirra árið 1951. Flokk- urinn efndi loforðin; félagslegar íbúðarbyggingar í Bretlandi náðu sínu sögulega hámarki á árunum 1953–1954, síðustu stjórnarárum stríðskempunnar miklu, sir Winst- ons Churchills. Í rauninni ríkti sátt í Bretlandi í rúma þrjá áratugi um þau markmið velferðarþjóðfélagins sem þeir Attlee, Bevan og Beveridge höfðu mótað við lok styrjaldarinnar. For- sætissráðherrar Íhaldsflokksins all- ar götur frá Winston Churchill til Edwards Heaths fylgdu – með óverulegum blæbrigðamun – einnig meginstefnu velferðaruppbyggingar hinnar keynesísku hagfræði. Eins og alkunna er þá átti þetta eftir að gerbreytast og lykilmann- eskjan í því ferli var Margaret Thatcher. Með valdatöku hennar sem forsætisráðherra Stóra- Bretlands árið 1979 upphófst tími nýfrjálshyggjunnar sem ríkjandi stjórnmálaorðræðu á Vesturlöndum. Meðal helstu stefnumála hins ger- breytta Íhaldsflokks var að einka- væða leiguíbúðir sveitarfélaganna með setningu laga um rétt leigjenda að kaupa þær íbúðir sem þeir bjuggu í, „Right to Buy“. Ráðherra húsnæðismála varð Michael Heselt- ine, sem seinna átti eftir að stinga náðarstunguna þegar Thatcher var á endanum komið frá völdum árið 1990. Árið 1986 afhenti Járnfrúin í eigin persónu lyklana að milljónustu „Right to Buy“ íbúðinni; í dag eru eftir aðeins um þrjár milljónir af þeim sex milljónum sem var að finna innan kerfisins 1979. Efling húsnæðisfélaga Eftir pólitíska eyðimerkurgöngu í heil fjögur kjörtímabil tókst Verka- mannaflokknum loks árið 1997 að endurheimta völdin í Bretlandi. Til þess að þetta tækist varð flokkurinn að hafa svo gagnger búningaskipti að mörgum þykir orðið erfitt að þekkja hann fyrir sama flokk. Undir forystu Tony Blairs hefur „New Labour“ – Nýi Verka- mannaflokkurinn – í mörgum atrið- um haldið áfram helstu stefnu- málum Margétar Thatcher og Michaels Heseltines í húsnæðis- málum. Húsnæðisstefna Verkamanna- flokks Tony Blairs einkennist kannski helst af aukinni áherslu á sjálfstæð húsnæðisfélög sem rekstr- arform. Sú stefna hófst í litlum mæli þegar á stjórnarárum Harolds Wil- sons, en komst á þó nokkurt skrið á Thatcher-tímanum, þá sem aðferð til þess að færa yfirráð yfir leigu- húsnæði frá borgarstjórnum þar sem róttæku öflin í Verka- mannaflokknum voru í lykilstöðu. Eftir valdaskiptin 1997 hefur sundurlimun gamla leiguíbúðageir- ans tekið á sig það form að verið er að færa leiguíbúðir sveitarfélaganna í stórum skömmtum, svonefndum „Large Scale Voluntary Transfers“ yfir til húsnæðisfélaga. Slíkt er þá ætíð gert með samþykki leigjend- anna í sérstakri atkvæðagreiðslu. Rökin að baki þessu eru ekki síst þau að með þessum hætti er hægt að ráðast í nauðsynlegar endurbætur með lántöku á almennum fjár- málamarkaði án þess að skuldastöðu aðþrengdra sveitarfélaga sé íþyngt. Þetta nýja félagslega húsnæð- iskerfi hefur einnig verið fest í sessi með því að rekstraraðilanir, þ.e. hús- næðisfélögin eru háð ákveðnu op- inberu eftirliti og fá að því loknu skráningu sem „Registered Social Landlord (RSL)“ – skráður fé- lagslegur leigusali. Samkvæmt álitsgerð í „Green Paper“ bresku ríkisstjórnarinnar frá árinu 2000 er gert ráð fyrir því að árið 2010 verði búið að færa eign- arhald meginhluta gamla breska „council flat“ kerfisins yfir til við- urkenndra húsnæðisfélaga. Raunar minnir þessi aðferðafræði um margt á hvernig hér á landi var staðið að tilfærslu leiguíbúða Reykjavíkurborgar til Félagsbú- staða hf. árið 1997. Stærðargráðan í ríki Tony Blairs hvað þetta snertir er hins vegar óneitanlega nokkru stærri en sést hefur hér í borginni við Sundin. Húsnæðismál í Bretlandi Morgunblaðið/Sverrir Frá London. Húsnæðisstefna Verkamannaflokks Tony Blairs einkennist kannski helst af aukinni áherslu á sjálfstæð húsnæðisfélög sem rekstrarform, segir grein- arhöfundur. Húsnæðisfélög eftir Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðing á húsnæðissviði Borgarfræðaseturs/jonrunar@hus Hafnarfjörður - Fasteignasalan Hraunhamar er nú með í sölu raðhús að Vörðubergi 22, 220 Hafnarfirði. Þetta er steinsteypt hús, byggt árið 1994 og er það 168,6 fermetrar, en bílskúr er 25 fermetrar. „Um er að ræða fullbúna og vandaða eign með af- girtum garði,“ sagði Helgi Jón Harðarson hjá Hraunhamri. „Komið er inn í góða forstofu með flísum og þaðan er gengt í rúmgóða gestasnyrtingu sem á er gluggi. Innangengt er í bílskúr frá forstofu. Úr holi er gengið inn í mjög fallegt eldhús með vönduðum innréttingum, þar eru flísar á milli skápa og nýtt keramikhelluborð. Góð borðstofa er við eld- húsið. Stofan er björt með útgangi út á verönd og í suðurgarð. Frá holi er gengt í ágætt þvottaherbergi með hillum. Upp er gengið um parketlagðan stiga, þar er mjög fallegt og rúmgott baðherbergi með baðkari, sturtu- klefa, hvítri innréttingu og flísum í hólf og gólf. Tvö allstór barnaherbergi eru á efri hæðinni með skápum, sjónvarpsskáli og rúmgott alrými (er her- bergi á teikningu). Útgangur er út á suðursvalir. Einnig er uppi stórt hjónaherbergi með skáp. Park- et er á gólfum og hiti er í hellulögðu plani fyrir utan húsið. Ásett verð á þessari eign er 19,5 millj. kr.“ Vörðuberg 22 er raðhús, 168,6 ferm. að stærð en bílskúr er 25 ferm.. Ásett verð er 19,5 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Hraunhamri. Vörðuberg 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.