Morgunblaðið - 04.03.2003, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 B 17HeimiliFasteignir
Opið mán.-fim.
kl. 9-12 og 13-18,
fös. kl. 9-12 og 13-17.
Sýnishorn úr söluskrá.
Sjá margar eignir og
myndir á fmeignir.is og
mbl.is.
ELDRI BORGARAR
GRANDAVEGUR - LYFTA
Fyrir 60 ára og eldri er til sölu mjög góð
þriggja herb. íbúð á 4. hæð í vinsælu
lyftuhúsi. Vandaðar innréttingar, yfir-
byggðar svalir, þvottahús í íbúð. Mikil
sameign, húsvarðaríbúð, veislusalur
o.fl. 21034
Einbýlishús
ESJUGRUND - KJALARNESI
Erum með í sölu fallegt 194 fm einbýlis-
hús. Tvöfaldur 53 fm bílskúr. Aukaher-
bergi í kjallara með sérinngangi. Falleg
gólfefni, gegnheilt parket. Eign sem
vert er að skoða. Verð 18,5 m. 7876
FANNAFOLD
Vorum að fá í sölu áhugavert 124 fm
einbýlishús, auk þess 49 fm bílskúr, allt
á einni hæð. Þrjú svefnherbergi öll
parketlögð. Stórt upphitað bílaplan
með stæði fyrir sex bíla. Eign sem vert
er að skoða. Laust nú þegar. Nánari
uppl. á skrifstofu. 7851
EINARSNES
Steinsteypt einbýlishús, hæð og ris, við
Einarsnes í Skerjafirði. Húsið er upp-
haflega byggt 1936 en seinna var þak-
inu lyft og er hátt ris á húsinu. Húsið er
samtals 153 fm, hæðin er 104 fm og
risið mælist 48 fm. Eign sem gefur
ýmsa möguleika. 7846
KJÓSAHREPPUR
Til sölu íbúðarhús og útihús úr jörðinni
Blönduholt í Kjós. Um er að ræða eldri
hús, íbúðarhúsið hefur verið í endur-
byggingu og gefur ýmsa möguleika.
Sjá myndir á mbl.is. 11225
Raðhús
SELBREKKA - KÓP. - AUKAÍB.
Vorum að fá í sölu fallegt raðhús á
tveimur hæðum. Vel viðhaldin eign,
með miklu útsýni. Aukaíbúð á jarðhæð
ásamt innbyggðum bílskúr. Parket og
flísar á gólfum, svefnherbergi. Áhv. 3,0
m. Verð 22,0 m. 6577
Hæðir
SILUNGAKVÍSL
Vorum að fá í sölu mjög áhugaverða
efri sérhæð í tvíbýlishúsi á þessum vin-
sæla stað. Aðalhæðin er rúmir 100 fm,
auk þess tæplega 50 fm á neðri hæð.
Einnig tilheyrir eigninni 31 fm bílskúr.
Glæsilegt útsýni. Áhv. 4,2 m. húsbréf
og byggsj. Sjá myndir á mbl.is. 5482
MÁVAHLÍÐ
Vorum að fá í sölu 134 fm íbúðarhæð,
auk þess 26 fm íbúðarherb. í kjallara.
Hæðin skiptist í stórt hol, tvær stofur,
hjónaherb., barnaherb., eldhús, bað-
herb. og þvottahús. Íbúðarherbergi í
kjallara er með eldunaraðstöðu og bað-
herbergi. Komið er að viðhaldi innan-
og utanhúss og er tekið tillit til þess í
verðlagningu. Ásett verð 15,2 m. 5484
4ra herb. og stærri
SÆBÓLSBRAUT - KÓPAVOGI
Vorum að fá í sölu rúmgóða 95 fm íbúð
á efstu hæð í níu íbúða húsi. Þrjú rúm-
góð svenherb. Tengt fyrir þvottavél á
baði. Flísar og parket á gólfum. Ekkert
áhvílandi. Verð 13,5 m. 3817
LAUGARNESVEGUR
Vorum að fá í sölu rúmgóða íbúð á
fyrstu hæð í fjögurra hæða fjölbýli. Þrjú
svefnherbergi. Gert hefur verið við hús-
ið að utan. Verð 12,7 m. 3816
EYJABAKKI
Vorum að fá í sölu fjögurra herb. íbúð á
2. hæð ásamt 48 fm bílskúr. Þvottahús
inn af eldhúsi. Þrjú svefnh. Parket og
dúkur á gólfum. Húsið lagfært að utan,
fyrir fjórum árum. Verð 14,5 m. 3815
FRÓÐENGI - BÍLSKÝLI
Mjög góð fjögurra herb. íbúð á fyrstu
hæð ásamt stæði í bílskýli. Þrjú svefn-
herb. Snyrtilegar innréttingar. Skápar í
öllum herb. Stutt í skóla og alla þjón-
ustu. Eign sem vert er að skoða. 3731
JÖRFABAKKI
Mjög góð fjögurra herb. íbúð á 2. hæð
með 14 fm aukaherb. í kjallara, þvotta-
hús í íbúð. Í íbúðinni eru þrjú svefnher-
bergi, hol, stofa, þvottahús og flísalagt
baðherb. Parket á stofu og herb. Mjög
barnvænt umhverfi. 3738
LAUGARÁSVEGUR
Mjög góð 93 fm fjögurra herb. íbúð á 3.
hæð í litlu fjölbýli á þessum vinsæla
stað. Íbúðin er upprunaleg var vandlega
innréttuð með góðum innréttingum og
fallegum hurðum. Mjög vel umgengin
eign. Gott útsýni. Eign sem vert er að
skoða. 3746
KLEPPSVEGUR
Falleg þriggja til fjögurra herb. 117 fm
íbúð í snyrtilegu og vel viðhöldnu fjöl-
býli. Íbúðin skiptist í tvö rúmgóð svefn-
herb., opna og bjarta stofu ásamt borð-
stofu sem auðvelt er að breyta í þriðja
svernherb. Fallegt eldhús með sprautu-
lakkaðri innréttingu og borðkrókur
ásamt þvottahúsi og geymslu innan
íbúðar. Verð 11,4 m. 3787
HJALTABAKKI
Mjög góð fjögurra herb. íbúð á þriðju
hæð í góðu fjölbýlishúsi. Húsið tekið í
gegn að utan fyrir nokkrum árum. Ný-
legt eldhús, flísalagt baðherbergi og öll
parketlögð. Suðursvalir. Mjög barnvænt
umhverfi. Verð 11,9 m. 3742
3ja herb. íbúðir
LAUFENGI - GRAFARVOGI
Vorum að fá í sölu þriggja herb. íbúð á
2. hæð. Parket og flísar á gólfum. Stutt í
alla þjónustu. Sérinngangur af svölum.
Barnvænt umhverfi. Ekker áhv. Verð
10,6 m. 21104
HAMRABORG - LYFTUHÚS
Vorum að fá í sölu fallega þriggja herb.
íbúð á 4. hæð með miklu útsýni.
Þvottahús á hæðinni. Húsið og sameign
nýlega tekið í gegn að utan. Nýtt gler.
Verð 10,4 m. 21103
LAUGARNESVEGUR
Vorum að fá í sölu rúmgóða 73 fm íbúð
á 2. hæð. Nýtt baðherbergi. Snyrtileg
sameign. Áhugaverð eign. Verð 9,5 m.
21099
ÆSUFELL - FRÁBÆRT ÚTSÝNI
Erum með í sölu rúmgóða fjögurra
herb. íbúð í lyftuhúsi, á 4. hæð, ásamt
bílskúr. Parket og flísar á gólfum. Tengt
fyrir þvottavél á baði. Hægt að kaupa
íbúðina án bílskúrs. 21094
GULLSMÁRI - EFSTA HÆÐ
Vorum að fá í sölu fallega þriggja herb.
íbúð á 8. hæð á þessum vinsæla stað.
Parket á gólfum. Flísalgat baðherbegi.
Frábært útsýni. Snyrtileg sameign. Verð
13,9 m. 21105
2ja herb. íbúðir
VESTURBERG
Erum með í sölu fallega tveggja her-
bergja íbúð á 2. hæð. Parket og flísar á
gólfum. Nýjar hljóðeinangrandi eldvarn-
arhurðir fram í sameign. Húsið klætt og
nýtt gler. Verð 7,5 m. 1794
VÍKURÁS - LAUS
Erum með í sölu fallega tveggja herb.
íbúð á 2. hæð. Parket á gólfum. Flísar á
baðherbergi. Sameiginlegt þvotthús er
á hæðinni ásamt sérgeymslu. Verð 9,4
m. 1792
VESTURBERG - BREIÐHOLTI
Erum með í sölu tveggja herb. íbúð á 2.
hæð í þriggja hæða húsi. Nýtt parket,
nýjar flísar á baðherbergi. Sameign, ný
teppi og ný máluð. Áhugaverð vel um-
gengin eign. Laus fljótlega. 1765
IÐUFELL
Vorum að fá í sölu rúmgóða tveggja
herb. íbúð á 1. hæð. Yfirbyggðar svalir,
húsið hefur verið klætt að utan. Ekkert
áhv. Verð 7,5 m. 1795
Landsbyggðin
FLJÓTSHÓLAR I & IV
Til sölu er 1/7 hluti af jörðinni Fljótshól-
um I og IV í Gaulverjabæjarhreppi. Hlut-
anum fylgir 11.920 lítra framleiðsluréttur
í mjólk, veiðiréttur í Þjórsá, 5 ha útskipt,
sem eru ekki innifalin í eignarhlutanum í
jörðinni. Nánari uppl. gefur Magnús á
skrifstofu FM. 10987
SUÐURHVAMMUR - KÚABÚ
Til sölu jörðin Suðurhvammur í Mýrdals-
hreppi. Um er að ræða myndarlegt kúa-
bú með yfir 100 þús. lítra framleiðslu-
rétti í mjólk. Góðar byggingar, falleg
sveit. Áhugaverð jörð í fullum rekstri
sem vert er að skoða. Nánari upplýs-
ingar á skristofu FM. 10901
FAGRAHLÍÐ Í FLJÓTSHLÍÐ
Til sölu jörðin Fagrahlíð í Fljótshlíð. Á
jörðinni er eldra íbúðarhús með inn-
byggðum bílskúr auk eldri útihúsa.
Jörðin er án bústofns, véla og án fram-
leiðsluréttar. Áhugaverð jörð í fögru um-
hverfi. Nánari uppl. á skrifstofu FM.
Verð 22,0 m. 10972
Hesthús
HESTHÚS - HEIMSENDI
Til sölu nýlegt hesthús á þessum vin-
sæla stað. Um er að ræða 4 bil. Húsinu
er skipt upp í 5 sjálfstæðar einingar,
tvær 7 hesta einingar, eina 8 hesta ein-
ingu og eina 13 hesta. Húsið er allt með
vönduðum innrétt., loft upptekin, klædd
litaðri járnklæðningu. Kjallari er undir
öllu húsinu, sem er vélmokaður, loft-
hæð þar um 2,2 m. Gott gerði er við
húsið og einnig rampur eða innkeyrsla í
kjallarann. 12199
BÚJARÐIR – BÚJARÐIR
Til sölu hjá okkur eru nú margar áhugaverðar jarðir, m.a. hlunn-
indajarðir, jarðir með greiðslumark í sauðfé og mjólk, einnig
jarðir fyrir garðyrkju, skógrækt, hrossarækt, svínarækt, frí-
stundabúskap og ferðaþjónustu. Jarðir þessar eru víðs vegar
um landið. Erum einnig með á söluskrá fjölda sumarhúsa og
hesthúsa. Hjá okkur er einnig oft til sölu sauðfjár- og mjólkur-
framleiðsluréttur. Fáið senda söluskrá í pósti eða nálgist eintak
á skrifstofu. Minnum einnig á fmeignir.is og mbl.is.
Pall@hollustadir.is var inn-gangsorð Páls Péturs-sonar félagsmálaráð-herra, þegar hann opnaði
formlega sértstaka aðgangsstýrða
þjónustusíðu fyrir fasteignasala á
vefsvæði Íbúðalánasjóðs síðastlið-
inn föstudag. Um er að ræða
gagnvirka þjónustusíðu sem ætlað
er að vera helsti samskiptavett-
vangur fasteignasala og Íbúða-
lánasjóðs.
Páll, sem verið hefur ráðherra
húsnæðismála undanfarin 8 ár,
sagði í ræðu sinni að sú end-
urskipulagning húsnæðislánakerf-
isins sem gerð var með stofnun
Íbúðalánasjóðs, væri annað
tveggja mikilvægustu mála sem
hann hefði unnið að í ráðherratíð
sinni.
Hann lagði áherslu á mikilvæga
stöðu Íbúðalánasjóðs fyrir fjöl-
skyldurnar í landinu þar sem sjóð-
urinn tryggi öllum landsmönnum
hagstætt lánsfé til íbúðakaupa á
sömu kjörum. Ráðherrann tók sér-
staklega fram að í tíð Íbúðalána-
sjóðs hefðu um 6.000 tekjulágar
fjölskyldur náð að festa kaup á
eigin húsnæði með tilstuðlan við-
bótarlána. Það sé margfalt fleiri
fjölskyldur en áður fengu inni í
gamla félagslega húsnæðiskerfinu.
Þá vék Páll að hugmyndum
Samtaka banka og fjármálafyr-
irtækja sem vilja taka yfir starf-
semi Íbúðalánasjóðs. Varaði ráð-
herrann við slíkum hugmyndum,
enda myndi sú kerfisbreyting stór-
auka greiðslubyrði viðskiptavina
Íbúðalánasjóðs af íbúðalánum.
Guðmundur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, fór
yfir helstu atriði hinnar nýju þjón-
ustusíðu, en á síðunni eru meðal
annars aðgengilegar vinnureglur
og leiðbeiningar fyrir fast-
eignasala, fréttir, spjallþræðir,
fyrirspurnir,
skoðanakann-
anir og fleira.
Þá notaði
Guðmundur
tækifærið og
fór yfir þær
aðgerðir sem
Íbúðalána-
sjóður greip
til í kjölfar
fjársvikamál
fasteignasala
sem upp
komst síðast-
liðið haust.
Einn lið-
urinn væri
hertar kröfur
til frágangs
skjala sem
frá fast-
eignasölum
koma.
Sagði Guð-
mundur hina
gagnvirku þjónustusíðu Íbúðalána-
sjóðs einn þátt þeirra aðgerða sem
sjóðurinn hefur gripið til, en á síð-
unni verði áhersla lögð á að starfs-
fólk fasteignasalna hefði greiðan
aðgang að vinnureglum og leið-
beiningum um hvaðeina er kæmi
að frágangi hinna ýmsu skjala sem
tengjast afgreiðslu lána Íbúðalána-
sjóðs.
Þjónustusíða Íbúðalánasjóðs
fyrir fasteignasala
Páll Pétursson félagsmálaráðherra opnaði þjónustusíðuna við sérstaka athöfn sl. föstudag.
Markaðurinn
eftir Hall Magnússon,
sérfræðing stefnumótunar og
markaðsmála íbúðalánasjóðs/
hallur@ils.is
Morgunblaðið/Jim Smart
VÍNBERJAKLASAR eða þrúgur
vínviðar eru ekki aðeins freist-
andi á borði til átu heldur vinsæl
fyrirmynd í skreytingar frá gam-
alli tíð í fornum menningarlöndum
– bæði á ýmsa hluti, munstur í
efni og á veggfóður, málað á glös
og diska, upphleypt sem skraut á
teppi og þannig mætti telja.
Þetta er ósköp eðlilegt þar sem
vínviður er talin ein elsta rækt-
unarplanta mannkyns.
Vínviður eða Vitis vinifera er
talinn ættaður frá Litlu-Asíu og
hefur verið ræktaður í hátt í
6000 ár. Mikill sykur er í vínberj-
um og úr þeim er búið til vín auk
þess sem þau eru höfð til matar
og úr þeim unninn ávaxtasafi.
Rúsínur eru ekkert annað en
þurrkuð vínber og þannig er það
líka með kúrenurnar.
Þrúgur vínviðar