Morgunblaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
innanhússmálning frá JOTUN
NIÐUR VERÐIÐ
NEGLUM
20-4
0%
AFSL
ÁTTU
R
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
20
48
1
0
3/
20
03
Svo eru vínberin líka helmingi dýrari hjá honum en í London.
Fyrirlestur um Evrópu og þjóðernishyggju
Átök ólíkleg
milli þjóða ESB
BRESKI fræðimað-urinn BrendanO’Leary heldur á
morgun, fimmtudag, fyrir-
lestur í stofu 101 í Lög-
bergi, einni af byggingum
Háskóla Íslands, en
O’Leary kemur til landsins
á vegum stofnunar stjórn-
sýslufræða og stjórnmála
við Háskóla Íslands og
breska sendiráðsins. Fyr-
irlestur O’Learys ber titil-
inn Þjóðernishyggja, sam-
bandsríkjastefnan og
Evrópusambandið og í
kjölfar hans verður efnt til
opinnar umræðu um efnið.
Munu þeir Guðmundur
Hálfdanarson, prófessor í
sagnfræði, og Ólafur Þ.
Stephensen, aðstoðarrit-
stjóri Morgunblaðsins,
ríða þar á vaðið og leggja orð í
belg. Fyrirlesturinn hefst kl. 16 og
er öllum opinn.
– Hvað veldur því að þú heim-
sækir nú Ísland?
„Ég fékk boð frá Háskóla Ís-
lands um að flytja fyrirlestur.
Einn af fyrrum nemendum mín-
um [við London School of Econ-
omics], Arnar Þór Másson, stóð
fyrir þessu heimboði. Ég hef áður
komið til Íslands og ferðast þar
um og fannst landið afar fallegt.
Ég á líka góðan vin á Íslandi,
Gunnar Helga Kristinsson
[stjórnmálafræðiprófessor], sem
var í sama námi og ég á sínum
tíma við London School of Econ-
omics. Gunnar Helgi og ég eigum
raunar ýmislegt sameiginlegt; við
fæddumst sama dag, á sömu
klukkustundu og á sama ári.“
– Þú munt í fyrirlestri þínum
fjalla um Evrópusambandið, sam-
bandsríkjastefnuna og þjóðernis-
hyggju.
„Ég ætla að velta upp þeirri al-
mennu spurningu hvort með sam-
bandsríkjastefnu [e. federalism]
megi fyrirbyggja spennu og deilur
milli ólíkra þjóðernishópa. Ég
mun spyrja þeirrar spurningar
hvort reynslan af sambandsríkj-
um gefi til kynna að best væri ef
Evrópusambandið yrði eiginlegt
sambandsríki. Eftir að hafa velt
þessari spurningu upp og leitast
við að svara henni ætla ég að halda
því fram að ólíklegt sé að sumar
þeirra tilllagna, sem nú berast frá
framtíðarráðstefnu Evrópu [eins
konar stjórnlagaþing ESB] gangi
upp ef takmarkið er að tryggja
stöðugleika í Evrópusambandinu.
Jafnframt ætla ég að skoða í
hvaða ríkjum sé líklegast að við-
brögðin við þróun Evrópusam-
bandsins einkennist af þjóðernis-
hyggju og loks mun ég skoða
þróun Evrópusambandsins með
hliðsjón af málefnum innflytj-
enda.“
– Er líklegt að til verði evrópskt
þjóðerni?
„Ég tel ólíklegt og raunar úti-
lokað að til verði einhver sérstök
evrópsk þjóð vegna hinna ólíku
sögulegu og menningarlegu að-
stæðna, sem ríkja í
löndum Evrópusam-
bandsins. Það þýðir þó
ekki að það geti ekki
mótast evrópsk, póli-
tísk sjálfsmynd sam-
hliða þeirri sjálfsmynd sem hver
þjóð hefur fyrir sig. Það er semsé
hugsanlegt að fólk þrói með sér
sérevrópska föðurlandsást, jafn-
framt því sem það heldur tryggð
við sitt þjóðerni í grunninn. Fjöldi
þeirra sem fyrst skilgreinir sig
sem evrópska, fremur en skil-
greina sig fyrst sem af einhverri
tiltekinni Evrópuþjóð, verður þó
aldrei mjög hár.“
– Þú hefur skrifað fjölda bóka
um þjóðernisátök. Hversu mikil-
væg hefur Evrópuhugmyndin
verið til að tryggja frið í álfunni?
„Saga Evrópusambandsins er
glæsileg hvað varðar þetta atriði;
þ.e. að binda enda á átök. Það hef-
ur tekist að binda enda á átök milli
Frakklands og Þýskalands en því
má halda fram að sú togstreita,
sem var milli þessara þjóða, hafi
verið í forgrunni þess óstöðug-
leika sem var í álfunni á síðustu og
þarsíðustu öld. Starfsemi Evrópu-
sambandsins og sú áhersla sem er
lögð á réttarríkið og lýðræði hafa
stuðlað að jákvæðri þróun í öðrum
ríkjum, sem vilja ganga í ESB.
Ólíklegt er að þær þjóðir, sem
hafa þessa hluti í forgrunni, efni til
stríðs hver við aðra. Maður getur
því verið jákvæður í garð Evrópu-
sambandsins þegar þessir hlutir
eru hafðir í huga.
Á hinn bóginn er augljóst að
Evrópusambandinu hefur ekki
tekist að binda enda á ýmis önnur
átök innan sambandsins. Þar má
nefna að Evrópusambandið lék
ekki stórt hlutverk við úrlausn
deilna á Norður-Írlandi og hefur
sömuleiðis ekki stuðlað að friði í
Baskalandi. Þá hefur Evrópusam-
bandinu ekki tekist að móta sam-
eiginlega utanríkisstefnu, t.d.
tókst því ekki að láta gott af sér
leiða í átökunum á Balkanskaga,
þó að reyndar hafi tekist betur til í
Makedóníu í hitteðfyrra heldur en
í Bosníu-Herzegóvínu á
sínum tíma.“
– Muntu í Íslands-
heimsókn þinni hafa
einhvern tíma til að
gera fleira en flytja
þennan fyrirlestur?
„Ég vonast til að geta ferðast
ofurlítið um landið ásamt vini mín-
um. Eins og aðrir erlendir ferða-
menn er ég síðan veikur fyrir Bláa
lóninu og fer því áreiðanlega í
heimsókn þangað. Ég hef líka
grunsemdir um að nýja og góða
veitingastaði sé að finna í Reykja-
vík og mun vafalaust reyna að
heimsækja einhvern þeirra.“
Dr. Brendan O’Leary
Brendan O’Leary er fæddur á
Norður-Írlandi árið 1958. Hann
er forstöðumaður Solomon Asch
Center for the Study of Ethno-
political Conflict og prófessor í
stjórnmálafræði við Pennsylv-
aniu-háskóla í Bandaríkjunum.
Áður var hann prófessor í stjórn-
málafræði við London School of
Economics. Í rannsóknum sínum
hefur hann lagt áherslu á þjóð-
ernishyggju og leiðir til að sætta
þjóðernisátök. Hann hefur ritað
fjölmargar greinar og bækur um
átökin á N-Írlandi og hann var
stjórnvöldum m.a. til ráðgjafar í
friðarumleitunum á sínum tíma.
Útilokað að til
verði sérstök
evrópsk þjóð