Morgunblaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 35
✝ Kristinn GísliSigurjón Magn-
ússon fæddist í
Reykjavík, 2. júní
1922. Hann lést á
líknardeild Landspít-
alans á Landakoti
hinn 28. febrúar síð-
astliðinn. Móðir hans
var Kristín Elín Matt-
hildur Friðriksdóttir,
f. 23. október 1903, d.
14. júní 1922. Faðir
hans var Magnús
Guðbrandsson bók-
ari, f. 4. janúar 1896,
d. 23. október 1991.
Fósturmóðir Kristins og kona
Magnúsar var Júlíana Oddsdóttir,
f. 26. júní 1904, d. 19. mars 1980.
Systkini hans samfeðra eru Kjart-
an Guðbrandur, f. 17. nóvember
1927, og Katrín Guðrún, f. 5. sept-
ember 1934.
Kristinn kvæntist 15. septem-
ber 1945 eftirlifandi eiginkonu
sinni Ingibjörgu Vigdísi Stefáns-
dóttur frá Flateyri við Önundar-
fjörð, f. 23. febrúar 1926. Foreldr-
ar hennar voru Stefán
Brynjólfsson, f. 8. apríl 1893, d. 5.
nóvember 1980, og Guðfinna Arn-
finnsdóttir, f. 11. janúar 1899, d.
16. júlí 1983. Börn Kristins og
Ingibjargar eru tvö: 1) Matthild-
ur, f. 2.febrúar 1946, gift Bjarna
Ágústssyni, f. 29. júní 1945. Börn
þeirra eru a) Ingi-
björg, f. 1970, gift
Hilmari Viðarssyni,
f.1970, og eiga þau
þrjú börn: Hildi Sif,
Daníel Kristin og
Sóleyju Ósk. b)
Kristín, f. 1972, gift
Árna Björgvini Hall-
dórssyni, f. 1972, og
eru börn þeirra tvö:
Bryndís Inga og
Bjarni Björgvin. c)
Ágúst f. 1978. 2)
Magnús Júlíus, f. 2.
apríl 1950, kvæntur
Sigurlínu Sigurðar-
dóttur, f. 10. maí 1950, og eru
börn þeirra fjögur: María Björg, f.
1982, Kristinn Jóhannes, f. 1984,
Sigurður Pétur, f. 1985, og Björn
Jakob, f. 1987.
Að skyldunámi loknu stundaði
Kristinn nám við Reykholtsskóla í
Borgarfirði og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi 1940. Sama ár hóf
hann nám í prentverki og lauk
prófi í prentiðn 1944. Hann vann í
Félagsprentsmiðjunni, Borgar-
prenti og Ísafoldarprentsmiðju.
Eftir að hann hætti sem prentari
var hann starfsmaður Reykjavík-
urborgar þar til hann hætti störf-
um fyrir aldurs sakir. Allan sinn
aldur bjó hann í Reykjavík.
Útför Kristins fór fram 6. mars,
í kyrrþey að ósk hins látna.
Látinn er í Reykjavík, tengdafaðir
minn, Kristinn Magnússon prentari.
Ég vil minnast hans með nokkrum
orðum og er mér það bæði ljúft og
skylt.
Hann fæddist og ólst upp í Reykja-
vík og bjó þar allan sinn aldur. Eftir
skyldunám stundaði hann nám við
Reykholtsskóla í Borgarfirði og síðan
við Iðnskólann í Reykjavík og lauk
þaðan sveinsprófi 1944. Framan af
ævinni vann hann sem prentari, eða
meðan heilsa hans leyfði það. Hann
var eftirsóttur vélsetjari og þótti
bæði afkastamikill, vandvirkur og
vinnusamur. Margir þekktir rithöf-
undar nutu handaverka hans. Síðar
varð hann starfsmaður Reykjavíkur-
borgar.
Lífsförunaut sinn Ingibjörgu Stef-
ánsdóttur frá Flateyri hitti hann á
stríðsárunum og var það honum mikil
gæfa. Samstiga gengu þau gegnum
lífið í 57 ár. Þau settust að í vesturbæ
Rekjavíkur og undu þar hag sínum
vel alla tíð. Þar mörkuðu þau spor
sem seint skefur yfir.
Þau lögðu hart að sér við að koma
þaki yfir höfuðið og bjuggu sér og
börnunum sínum tveimur fallegt
heimili á Melunum. Í þá daga var ráð
að leggja fyrir, reikna út kostnaðinn
og gæta þess að reisa sér ekki hurð-
arás um öxl. Það tókst þeim hjónun-
um með hagsýnina og nýtnina að leið-
arljósi. Oft var gestkvæmt á
heimilinu og glatt á hjalla. Húsbónd-
inn var hrókur alls fagnaðar og naut
hann sín vel í góðra vina hópi. Hann
mundi tímana tvenna og kunni frá
mörgu að segja. Það var gaman að
láta hann leiða sig um liðna tíma því
hann hafði góða frásagnarhæfileika
og kímnigáfu.
Kristni var mjög umhugað um af-
komendur sína og bar hag þeirra fyr-
ir brjósti. Hann hafði áhuga á því sem
barnabörnin höfðust að og lagði þeim
gjarnan lífsreglurnar og varaði þau
oft við hættunum sem alls staðar
liggja í leyni.
Fyrir tæpum 30 árum festu þau
hjónin kaup á sumarbústaðalandi í
Vatnsholti í Grímsnesi. Þar hafa þau
síðan unað hag sínum vel og breytt
kargaþýfi í sannkallaðan gróðurreit.
Allt var unnið með haka og skóflu,
handtökin voru mörg og draup svit-
inn af enni en þau uppskáru grænar
grasflatir, hávaxin tré og blómabreið-
ur. Kristinn naut sín einnig við veiðar
á Apavatni, meðan heilsa hans og
kraftar leyfðu. Fyrstu árin veiddi
hann frá landi og en seinna fékk hann
sér lítinn plastbát sem hann gat siglt
á til veiða. Hann var mjög fiskinn og
oftar en ekki kom hann með góðan
afla að landi. Nú er báturinn í nausti
og bíður vorsins en Kristinn ýtir ekki
oftar úr vör. En hann hafði búið í hag-
inn. Það var honum mikið kappsmál
að afkomendur hans fengju að njóta
þess sem hann hafði lagt grunn að og
byggt upp.
Þau byrjuðu smátt og frumstætt.
Kristinn gerði upp gamlan vinnuskúr
og flutti austur og var það íverustað-
ur þeirra hjóna fyrstu árin. Öllu var
haganlega fyrirkomið og á 8 fermetr-
um rúmaðist allt sem til þurfti. Þarna
var borðað, sofið, setið og spjallað og
allir voru velkomnir. Alltaf var heitt á
könnunni og nóg af meðlæti.
Árið 1980 létu þau byggja 38 fm
bústað og var þá mikil breyting á.
Seinna bættust við fleiri þægindi svo
sem rafmagn, rennandi vatn og allt
sem því fylgir. Kristinn gaf staðnum
nafnið Sælulundur og er það sann-
arlega réttnefni. Austur var haldið í
sæluna um hverja helgi frá því
snemma á vorin og fram á haust og
dvalið þar í sumarleyfum. Heilnæma
sveitaloftið, fuglasöngurinn og kyrrð-
in áttu vel við hann.
Kristinn var mikið snyrtimenni og
ber sumarbústaðurinn þess glöggt
vitni. Öllu var vel við haldið og hugsað
fyrir öllu. Allt var miðað að því að það
entist vel og að enginn gæti slasað sig
á því. Í geymsluskúrnum var allt í röð
og reglu, hver hlutur átti sinn stað,
hvort heldur um var að ræða smæstu
skrúfu eða nýtísku sláttuvél.
Lengi hefur Kristinn þjáðst af
astma og lungnaþembu. Fyrir tæp-
um tveimur árum fór hann í stóra
hjataaðgerð. Hún tókst vel og þegar
hann var að ná sér upp úr henni kom í
ljós að hann var með krabbamein
sem varð honum að aldurtila. Eigin-
kona hans hjúkraði honum í veikind-
unum af mikilli umhyggjusemi og
kærleika eins og henni einni er lagið.
Hann var alla tíð mikill listunn-
andi, kunni vel að meta falleg ljóð og
ljúfa orgeltóna. Sjálfur var hann gott
ljóðskáld, orti bæði rímuð og órímuð
ljóð. Hann samdi lög við nokkur ljóða
sinna og einnig fallegt lag við Faðir
vorið. Trúin og ljósið voru honum
hugleikin yrkisefni og eru mörg ljóða
hans um þessi efni. Ljóðabók hans
„Sagði mér þögnin“ kom út árið 1994.
Í henni er eftirfarandi ljóð um ljós
heimsins.
Vor Guð
hafði ljósið
í hendi sinni
og eyddi myrkrinu
með orðum sínum:
VERÐI LJÓS
Og það varð til
hinn fyrsta dag
himins og jarðar
án elds
En sá
er fæddist
í fjárhúsi
fann orðum sínum stað:
Ég er ljós heimsins.
Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins.“
(Jóh.8:12) og „Ég er upprisan og lífið,
sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann
deyi.“ (Jóh. 11:25).
Ég kveð Kristin með virðingu og
þökk. Megi góður Guð veita Ingu og
fjölskyldunni allri huggun og styrk.
Sigurlína Sigurðardóttir.
Elsku afi, Kristinn G. Magnússon,
er nú látinn. Okkur systkinin langar
að minnast afa Didda, eins og við köll-
uðum hann alltaf, með nokkrum orð-
um.
Það var alltaf gaman að heimsækja
ömmu og afa, hvort heldur sem var á
Birkimelinn, Keilugrandann og síð-
ast en ekki síst í Sælulund. Alltaf
tóku þau fagnandi á móti okkur og
sýndu áhuga á öllu því sem við vorum
að gera. Afi hafði lag á því að segja
skemmtilega frá. Hann sagði okkur
iðulega skemmtilegar sögur úr fortíð-
inni, frá því hann var að alast upp.
Flestar fjölluðu þær um prakkara-
strik eða íþróttaafrek sem við eigum
aldrei eftir að gleyma.
Margar bestu minningar okkar
systkinanna eru úr Sælulundi. Þar
höfðu afi og amma byggt sér sann-
kallaðan sælureit. Í Sælulundi gátu
allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Afi
var duglegur að veiða á Apavatni
meðan heilsa hans leyfði. Stundum
var hann í margar klukkustundir úti
á bátnum sínum og notaði ýmsar að-
ferðir við að ná sér í fisk. Þegar afi
hætti að geta farið sjálfur út á vatn
miðlaði hann af þekkingu sinni og
reynslu og kenndi okkur sem yngri
vorum hvernig fara ætti að. Hann
brosti sínu breiðasta og gladdist mik-
ið þegar við veiddum fisk. Garðinn í
kringum sumarbústaðinn höfðu
amma og afi byggt frá grunni. Í
miðjum garðinum er grasi vaxin
skeifa sem afi gerði sjálfur með hand-
afli. Í skeifunni er alltaf steikjandi
hiti og þegar sólin skín er gott að
leggjast út af og láta sólina skína á sig
og fá sér eitthvað gott í gogginn því
hjá ömmu er alltaf nóg til að kræs-
ingum. Afi var náttúruunnandi. Hann
fann oft fuglahreiður úti í móum og
trjám sem hann hlúði að og sýndi
okkur ef við lofuðum að fara varlega
svo ekki kæmi styggð að fuglunum.
Oftar en ekki sat afi úti í garði með
penna í hönd og orti ljóð. Að loknum
löngum en skemmtilegum degi
kveikti hann afi svo upp í grillinu og
grillaði ofan í mannskapinn. Hann
var sannkallaður grillmeistari Sælu-
lundar. Nóg var til handa öllum og oft
var glatt á hjalla og margt um mann-
inn í litla bústaðnum. Afi sá einnig um
að íslenski fáninn blakti við hún þeg-
ar gott var veður og von var á gest-
um. Það verður skrýtið og tómlegt að
keyra upp að Sælulundi í sumar þeg-
ar afi stendur ekki lengur á verönd-
inni, í gúmmískónum og köflóttu
skyrtunni, veifandi til okkar bros-
andi. En afi mun alltaf verða með
okkur í minningunni.
Afi Diddi var mjög metnaðargjarn
fyrir okkar hönd og hvatti okkur til
dáða í námi og leik og gladdist yfir
velgengni en stappaði í okkur stálinu
ef með þurfti. Hann fylgdist vel með
skólagöngu okkar frá því hún hófst
og ekki minnkaði áhugi hans á námi
okkar nú þegar við erum komin í
framhaldsskóla og háskóla. Afa var
einnig umhugað um að við færum
varlega í leik og í starfi.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum með þér elsku afi
Diddi. Það er gott að hugsa til þess að
nú ertu á himnum með móður þinni
sem þú fékkst aldrei að kynnast. Þú
lifir í minningu okkar um ókomna tíð.
Þín sonarbörn
María Björg, Kristinn Jóhannes,
Sigurður Pétur og Björn Jakob.
Leiðir okkar Kristins lágu fyrst
saman í Ísafoldarprentsmiðjunni við
Þingholtsstræti á sjöunda áratugn-
um. Við unnum báðir við vélsetningu
og umbrot á bókum og tímaritum; á
þeim tíma var blýsetning og hæðar-
prentun enn í hávegum höfð, en eins
og flestir vita er sú verkmenntun
löngu liðin. Unnum við oft að sömu
verkefnum, hann var góður verkmað-
ur, fljótur að skipuleggja útlit prent-
gripa, t.d. við umbrot á tímaritum og
bókum, þar sem setjarinn varð að
nota hugmyndaflug sitt til hins ít-
rasta til að skapa gott prentverk.
Honum voru gefnir ríkulegir hæfi-
leikar til tónsmíða og samdi nokkur
tónverk, einnig var hann hagyrðing-
ur góður, t.d. gaf hann út ljóðabók og
einnig birtust eftir hann ljóð í Lesbók
Morgunblaðsins til margra ára.
Ekki ósjaldan sá ég Kristinn með
blýant í hendi, djúpt hugsandi, hripa
niður á prófarkarblað ljóðlínur og oft-
ar en ekki gekk ég þá til hans, brosti
hann þá stoltur til mín yfir að hafa
komið einnhverju hugljúfu á blað.
Hann hafði góða kímnigáfu, sem
hann beitti oft í góðra vina hópi, en
var líka mikill alvörumaður og var að
mér fannst ekki allra, en innst inni sló
alltaf gott hjarta.
Eftir samveru okkar í Ísafoldar-
prentsmiðju liðu fjöldamörg ár þar til
leiðir okkar lágu saman á ný, er við
hjónin fluttum í næsta nágrenni við
Kristin og konu hans Ingibjörgu.
Einn fagran sumardag fyrir tveimur
árum buðu þau okkur hjónunum í
sumarbústað sinn við Apavatn; er við
ókum í hlað beið okkar kaffihlaðborð,
sem Ingibjörg var búin að útbúa á
sinn myndarlega hátt, þar nutum við
gestrisni þeirra hjóna í dásamlegu
veðri og umhverfi, þau voru auðsján-
lega stolt af þessum unaðsreit sínum,
sem þeim var mikils virði.
Oft bar fundum okkar Kristins
saman hér á Grandanum í Vestur-
bænum og í kirkjunni okkar, þar leit-
aði hann sér styrks í hljóðri bæn til
skaparans, enda var hann trúaður
maður. Ingibjörg reyndist Kristni
góður lífsförunautur og vinur og var
honum allt í öllu. Að leiðarlokum
þakka ég honum vináttuna og óska
honum Guðs blessunar á nýju tilveru-
stigi með þessum hugljúfu versum úr
Davíðssálmum:
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(23. Davíðssálmur,1-4.)
Ég og kona mín sendum Ingi-
björgu og fjölskyldunni okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Torfi Þ. Ólafsson.
KRISTINN GÍSLI
MAGNÚSSON
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
UNNUR JÚLÍUSDÓTTIR,
Hringbraut 84,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti föstudaginn
7. mars.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
13. mars kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Barnaspítala Hringsins og Hjartavernd.
Fyrir hönd aðstandenda,
Árni Theodórsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður minnar,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
Víðivöllum 6,
Akureyri.
Gestur Pálsson.
HARVEY GUDMUNDSON,
andaðist á heimili sínu í Chicago þriðjudaginn 25. febrúar.
Jane Gudmundson,
Lorie Gudmundson, Sverrir Bjartmarz,
Ásta Marie Bjartmarz.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
Hraunvangi 1,
Hafnarfirði,
andaðist á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði
sunnudaginn 2. mars.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Ólafur Pálsson,
Kristín Ólafsdóttir, Jónas Gunnlaugsson,
Páll Ólafsson, Sonja Guðrún Óskarsdóttir,
Jón Þorvarður Ólafsson, Bertha Guðrún Kvaran
og barnabörn.