Morgunblaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 24
LANDIÐ
24 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HJÁLPARSVEIT Skáta í Hvera-
gerði er um þessar mundir að
kaupa nýja björgunarbifreið. Í dag
á sveitin tvær bifreiðar en önnur er
orðin óhæf til björgunarstarfa og
því aðkallandi að fá nýja í hennar
stað.
Nýr bíll Toyota Landcruiser 70,
sem hentar mjög vel til þeirra
starfa sem sveitin þarf að sinna,
hefur þegar verið pantaður og
verður hann afhentur 15. mars nk.
Bifreiðin kostar fullbúin með
björgunartækjum, sjúkrabúnaði og
fjarskiptatækjum 4.500.000 kr.
þegar tollar hafa verið felldir nið-
ur.
Að sögn Sævars Arasonar hefur
Hjálparsveitin í Hveragerði starfað
í 26 ár. Nú eru félagar um 30 tals-
ins. Fyrir utan stærri leitir, sem
ekki eru margar á ári, sinnir sveit-
in m.a. aðstoð á Hellisheiði þegar
veður er vont og fólk sem kemst
hvorki lönd né strönd þarf aðstoð.
Engin leið er að telja upp hin ýmsu
verkefni sem sveitin fær á hverju
ári en öll taka þau í budduna, líka
þau litlu.
Eftir því sem að tækin verða full-
komnari og flóknari þarf að kosta
meiru til við þjálfun björg-
unarsveitarmanna ásamt því sækja
endurmenntunarnámskeið sem
nauðsynleg eru.
Allt þetta kostar mikla peninga
og fer mikill tími félaga í fjáröflun.
Eins og í öðrum björgunarsveitum
er hér um áhugamannahóp að
ræða sem sinnir þessu samfélags-
verkefni í frítíma sínum frá vinnu.
Þrátt fyrir dugnað hjálparsveit-
armanna við fjáröflun hrekkur það
ekki til í þessu tilfelli. Eins og sjá
má af framangreindu er ærið verk-
efni að reka björgunarsveit og fara
félagar hennar nú fram á að bæj-
arbúar og landsmenn allir sem nota
Hellisheiðina allan ársins hring sjái
sér fært að styrkja sveitina og gera
henni mögulegt að búast þeim bún-
aði sem nauðsynlegur er.
Áheitagangan verður þannig að
farið verður laugardaginn 15. mars
frá Hveragerði og gengið með
sjúkling í sjúkrabörum sem leið
liggur um Suðurlandsveg, Hellis-
heiði og að hringtorgi við Rauða-
vatn. Þaðan um Breiðholtsbraut og
yfir á Nýbýlaveg að Toyota-
umboðinu þar sem göngunni lýkur.
Styrkja má sveitina með því að
hafa samband við Ólaf Óskarsson,
formann hjálparsveitarinnar.
Hveragerði
Hjálparsveitin gengur
til Reykjavíkur
HEILBRIGÐISSTOFNUN Þing-
eyinga og Skútustaðahreppur buðu
nýlega íbúum sveitarinnar til
heilsudags í Íþróttamiðstöðinni í
Reykjahlíð. Sigbjörn Gunnarsson
sveitarstjóri ávarpaði viðstadda og
bauð menn velkomna, hann gat
þess að undirbúningur að byggingu
nýrrar heilsugæslustöðvar sé haf-
inn enda löngu tímabært að bæta úr
þeirri ófullburða aðstöðu sem
heilsugæslan býr við í Mývatns-
sveit.
Dagbjört Bjarnadóttir hjúkr-
unarfræðingur skýrði frá söfnun
meðal fyrirtækja og einstaklinga í
sveitinni, á tækjum til sjúkraþjálf-
unar. Þessum tækjum hefur nú ver-
ið komið fyrir í aðstöðu til sjúkra-
þjálfunar sem nýlega hefur verið
útbúin í Íþróttamiðstöðinni. Dag-
björt afhenti Sveinbirni Sigurðs-
syni sjúkraþjálfara gjafabréf fyrir
tækjunum, en hann hefur annast
sjúkraþjálfun hér að undanförnu
með góðum árangri.
Þeir Ásgeir Böðvarsson yf-
irlæknir og Friðfinnur Her-
mannsson framkvæmdastjóri Heil-
brigðisstofnunar Þingeyinga
kynntu framtíðarstefnu og framtíð-
arsýn þeirra á verkefnum og mögu-
leikum heilsugæslunnar í héraðinu.
Þar er um afar áhugaverðar hug-
myndir að ræða sem snúast m.a. um
fjölbreytta heilsutengda ferðaþjón-
ustu, þar sem gengið er útfrá miklu
samstarfi ferðaþjónustuaðila og
heilbrigðisstofnunarinnar. Dag-
skránni lauk með því að Sveinbjörn
sjúkraþjálfari sýndi tæki og að-
stöðu þá sem sjúkraþjálfuninni hef-
ur verið búin og viðstaddir þáðu
léttar veitingar í boði Skútustaða-
hrepps.
Heilsugæslustöðin í Mývatnssveit
var sett á fót um 1970 hún hefur frá
upphafi búið við afar ófullkomnar
aðstæður og er nú í gömlu íbúðar-
húsnæði sem á engan hátt uppfyllir
þær kröfur sem gerðar eru til slíkr-
ar aðstöðu. Tveir hjúkrunarfræð-
ingar starfa við stöðina og er þó
hluti starfs þeirra einnig við síma-
þjónustu „ráðgjöf í reykbindindi“,
sem þær hafa sinnt á landsvísu
ásamt fleirum. Tilvera heilsugæslu-
stöðvarinnar er íbúum afar mik-
ilvæg, enda hafa þeir mikið traust á
frábæru starfsfólki stöðvarinnar.
Ekki síst yfir sumartímann, þegar
mikill fólksfjöldi gistir sveitina er
það óviðunandi að búa ekki betur
að starfseminni en raun ber vitni.
Nú örlar hins vegar á að úr verði
bætt á allra næstu árum.
Mývatnssveit
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Heilsugæslustöðin í Reykjahlíð í Mývatnssveit.
Heilsudagur í Mývatnssveit
TÖLUVERÐ hálka hefur verið í Mýrdalnum eftir að það
gerði snjógráða um síðustu helgi. Kalla varð út veghefil
frá Vík til aðstoða dráttarbíl með stóra gröfu sem hafði
lent útaf í Gatnabrún í Mýrdal og dró hann dráttarbílinn
upp brúnina. Dráttarbíllinn var að fara austur á Stokks-
nes við Höfn, til að brjóta niður mannvirki sem þar
standa. Ekki urðu skemmdir á farartækinu né slys á
fólki.
Morgunblaðið/Jónas ErlendssonVeghefillinn dregur dráttarbílinn upp Gatnabrún.
Veghefill aðstoðar
dráttarbíl í Gatnabrún
Fagridalur
SUÐURNES
FORELDRAR barna í grunnskól-
um Reykjanesbæjar kjósa frekar
að börnin fái löng helgarleyfi en
vikuleyfi yfir vetrartímann. Þetta
er ein helsta niðurstaða skoðana-
könnunar sem foreldrarnir tóku
þátt í. Skoðanakönnunin var gerð í
febrúar af Skólaskrifstofu Reykja-
nesbæjar að beiðni foreldraráða og
foreldrafélaga grunnskólanna. Til-
gangurinn var að kanna hug for-
eldra til vetrarleyfa áður en skóla-
dagatöl grunnskóla fyrir skólaárið
2003 - 4 verða samþykkt. Þetta
kemur fram á heimasíðu Reykja-
nesbæjar.
Skólarnir skoða
niðurstöður
Alls eru 65% foreldra hlynnt
langri helgi í lok október og/eða
febrúar en einungis 28% voru
hlynnt vikulöngu vetrarfríi í lok
október. Spurt var hvort foreldrar
þyrftu sérstök úrræði í skólanum í
vetrarleyfi og vekur það athygli að
mikill meirihluti telur sig ekki
þurfa slíkt. Þó er munur á svörum
hjá foreldrum yngri og eldri
barna. Eiríkur Hermannsson,
fræðslustjóri Reykjanesbæjar,
segir að skólarnir hafi fengið nið-
urstöður könnunarinnar til skoð-
unar og muni koma með tillögur
um hvernig best sé að hátta skóla-
dagatali næsta árs með tilliti til
þeirra. Að því loknu verður málið
til umfjöllunar fræðsluráðs bæj-
arins.
Góð þátttaka í könnun
Könnunin var send til foreldra
elstu barna í leikskólum Reykja-
nesbæjar, svo og foreldra barna í
1.-9. bekk grunnskólanna, alls for-
eldra 1.754 barna. Þátttaka í könn-
uninni var ágæt eða 61% og gafst
foreldrum tækifæri á að koma á
framfæri athugasemdum. Í þeim
kom fram að margir foreldrar, eða
137, vilja lengra sumarleyfi í stað
vetrarleyfis, 30 sögðu vetrarleyfi
stangast á við vinnumarkaðinn og
20 sögðu að allir skólar þyrftu að
fara í frí á sama tíma, þ.m.t. tón-
listarskólinn.
Morgunblaðið/Þorkell
Skólarnir í Reykjanesbæ hafa fengið niðurstöður könnunarinnar um vetr-
arfrí til skoðunar. Hér má sjá krakkana í Heiðarskóla að leik.
Foreldrar vilja
löng helgarleyfi
Reykjanesbær
TVEIMUR af fimm starfsmönnum
Sandgerðishafnar verður sagt upp.
Taka uppsagnirnar gildi 1. apríl
næstkomandi. Starfsmenn hafnar-
innar munu taka að sér afgreiðslu
fyrir Ísverksmiðjuna í kjölfar end-
urskipulagningar hafnarinnar. Öll-
um hafnarframkvæmdum sem fyr-
irhugaðar voru á þessu ári hefur
verið frestað. Þetta var samþykkt á
fundi hafnarráðs á dögunum en
fundargerð ráðsins liggur fyrir
fundi bæjarstjórnar í dag.
„Minnkandi tekjur og minnkandi
afli eru ástæður uppsagnanna,“
sagði Reynir Sveinsson, formaður
Hafnarráðs. „Tekjurnar hafa stór-
minnkað undanfarin ár og ekki
bætti úr skák að við fórum út í
framkvæmdir á Norðurgarði hafn-
arinnar sem kostuðu um 100 millj-
ónir, við greiddum um 25% af því.
En það var veðjað á, samkvæmt
ráðleggingum Síldarvinnslumanna á
sínum tíma, að þeir myndu senda
skipin hingað en við fáum greinilega
á þessari vertíð ekki eina loðnu. Þar
sjáum við tekjuminnkun upp á um
fimm milljónir.“
Reynir segir að öllum frekari
hafnarframkvæmdum verði slegið á
frest ef frá eru taldar nauðsynlegar
viðhaldsframkvæmdir. „Á meðan
ekki kemur meiri afli og meiri
tekjur er komið nóg af framkvæmd-
um í bili.“
Reynir segir að til að mæta sam-
drætti í afla sé ætlunin að fara út í
aukna markaðssetningu. „Það verð-
ur að reyna að snúa þessari nei-
kvæðu þróun við.“ Hann segir vonir
bundnar við að byggðakvóti sem
fékkst úthlutað komi til með að hafa
margfeldisáhrif í bæjarfélaginu.
„Staðan er alvarleg, en við horfum
bjartsýnir fram á veginn.“
Tveimur hafnarstarfs-
mönnum sagt upp
Sandgerði
SUÐURFRÉTTIR, nýtt blað sem
dreift verður með pósti vikulega til
allra íbúa á Suðurlandi og Suðurnesj-
um, kemur út í fyrsta skipti í dag.
Blaðinu er einnig dreift í öll stærri
fyrirtæki og stofnanir í kjördæminu.
Blaðið er gefið út af Íslenskri fjöl-
miðlun sem áður gaf út Suðurnesja-
fréttir á Suðurnesjum um árabil.
Suðurnesjafréttir verða lagðar niður
í kjölfar útkomu nýja blaðsins.
Í fréttatilkynningu segir að blaðið
verði stærsta héraðsfréttablað lands-
ins og er ætlað að verða snar þáttur í
lífi íbúa kjördæmisins. „Vandaður
fréttaflutningur og fagleg mannlífs-
umfjöllun mun einkenna nýja blaðið
en í næstu viku opna Suðurfréttir
nýjan vefmiðil í tengslum við nýtt
blað.
Nú er kominn sameiginlegur vett-
vangur fyrir Suðurkjördæmið þar
sem opin skoðanaskipti geta notið
sín.“
Íslensk fjölmiðlun er staðsett í
Reykjanesbæ og á Selfossi en rit-
stjóri, eigandi og ábyrgðarmaður er
Jóhann Friðrik Friðriksson.
Suðurfréttir koma út
Suðurnes