Morgunblaðið - 12.03.2003, Síða 36
MINNINGAR
36 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN EGILSDÓTTIR,
Hæðargarði 35,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 13. mars kl. 13.30.
Guðrún J. Óskarsdóttir, Magnús S. Magnússon,
Svanborg E. Óskarsdóttir, Guðjón Antonsson,
Ragna S. Óskarsdóttir, Bergsveinn Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Bróðir minn,
ÁRSÆLL JÓHANNESSON
frá Lágafelli,
Miklaholtshreppi,
lést á St. Franciskusspítala, Stykkishólmi,
fimmtudaginn 6. mars.
Jarðarförin fer fram frá Fáskrúðabakkakirkju
laugardaginn 15. mars kl. 14.00.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Jóhannes Jóhannesson.
Elskuleg eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIGRÚN JOHNSEN LANGELYTH,
Suðurhvammi 15,
Hafnarfirði,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 5. mars, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. mars
kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Vignir B. Árnason,
Helena Vignisdóttir,
Arnar B. Vignisson, Hallfríður Hrund Jónsdóttir,
Sigrún Rut Hjálmarsdóttir,
Helgi Hreinn Hjálmarsson,
Kristján Örn Arnarsson,
Hallfríður Jónína Arnarsdóttir.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
KRISTJÁNS G. MAGNÚSSONAR
málarameistara,
frá Langa-botni,
síðast til heimilis
á Hrísateigi 10,
Reykjavík,
sem andaðist laugardaginn 15. febrúar síðastliðinn.
Magnús Kristjánsson, Hrafnhildur Hlíðberg,
Kristín Þórðardóttir, Sævar Örn Kristjánsson,
Árni Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
ELÍNAR ÞÓRU SIGURBJÖRNSDÓTTUR
frá Sveinsstöðum
í Grímsey.
Börn, tengdabörn
og þeirra fjölskyldur.
Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir og afi,
FRIÐRIK ÓLAFUR ÓLAFSSON,
sem lést í Laos miðvikudaginn 12. febrúar,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstu-
daginn 14. mars kl. 13.30.
Ólafur Friðriksson,
Lilja K. Hallgrímsdóttir, Albertó Marquez,
Ólafur Friðriksson, Brynhildur Jónsdóttir,
Þóra G. Friðriksdóttir, Skúli H. Magnússon,
Elísabeth A. Friðriksdóttir,
Bjarndís H. Friðriksdóttir,
Alexander H. Friðriksson,
Kristófer R. Friðriksson,
systkini og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ANNA MAGNEA BERGMANN,
Hringbraut 77,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 14. febrúar kl. 14.00.
Böðvar Þ. Pálsson,
Ásta Vigdís Böðvarsdóttir, Kristján Vilberg Vilhjálmsson,
Margrét Böðvarsdóttir,
Anna Þóra Böðvarsdóttir, Lúðvík U. Smárason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
EIRÍKUR HREIÐARSSON
garðyrkjubóndi,
Grísará,
Eyjafjarðarsveit,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 13. mars kl. 13.30.
Margrét Sigurðardóttir,
Ragnheiður María Pétursdóttir,
Sigríður Emilía Eiríksdóttir, Einar Þ. Einarsson,
Hreiðar Eiríksson, Hallfríður Böðvarsdóttir,
Sigurður Eiríksson, Hafdís Hrönn Pétursdóttir,
Snjólfur Eiríksson, Kristjana Helga Ólafsdóttir,
Aron Eiríksson,
Eiríkur Anton Eiríksson,
Helga Jóhannsdóttir,
barnabörn og systkini.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN SIGMUNDSSON
fyrrum bóndi
á Arnarhóli,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 14. mars klukkan 13.30
Hörður Kristinsson, Sigrún B. Sigurðardóttir,
Magnús Kristinsson, Brigitte Kristinsson,
Hallmundur Kristinsson, Anna Lilja Harðardóttir,
Kristinn Örn Kristinsson, Lilja Hjaltadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum öllum, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát elskulegrar eiginkonu minn-
ar, móður okkar, dóttur, tengdadóttur og
ömmu,
ÖNNU ALFONSDÓTTUR,
Starhólma 16,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar
og líknardeildar Landspítalans.
Harry Sampsted,
Alfons Sigurður Kristinsson, Gerður Aagot Árnadóttir,
Hannes Ómar Sampsted, Eygló Íris Oddsdóttir,
Bergsveinn Sampsted, Hrönn Sveinsdóttir,
Alfons Oddsson
og barnabörn.
Nú hefur afi minn fengið hvíldina.
En söknuðurinn ríkir hjá okkur hin-
um. Hann dvelur nú meðal vina og
systkina á góðum stað. Fyrirmynd
mín í svo mörgu, tilefni aðdáunar og
undrunar. Traustur og sannur.
Hann var listamaður af guðs náð,
sönnun þess að fólk fæðist með gáfur
sem það síðan ræktar með sér. Hann
var ekki einungis einstaklega hagur,
heldur sá hann gjarnan hlutina í nýju
ljósi sem er það sem gerir mann að
listamanni. Útskurðarmeistari á
heimsmælikvarða, jafnvígur á lág-
myndir og flókin mynstur, sem og
þrívíða hluti. Ótalmargar tréstyttur
og dásamlega fallegir húsmunir
sanna það. Það var gaman að sækja
hann í kvöldmatinn út í bílskúr og sjá
hvað hafði töfrast fram úr viðnum
eftir hverja dagstund. Á efri árum
náði hann mikill færni í vatnslitamál-
un, en auk þess kunni hann bókband,
málaði málverk og fékkst við gler.
Allt lá vel í höndum hans.
Umgengni hans var líka einstök
við verkfæri sín og eigur. Allt var í
röð og reglu, vel með allt farið og
umhyggja og vandvirkni með ein-
dæmum. Þannig var öll persóna
hans.
Réttlætiskennd hans var rík og
endurspeglaðist í pólitískum skoðun-
um hans. Ég var yfirleitt alltaf sam-
mála afa þegar rætt var um þjóð-
félagsmál við eldhúsborðið í
Bólstaðarhlíð. Hann var sósíalisti
eins og þeir eru fallegastir. Ef allir
sósíalistar væru einsog hann þá væri
allt gott.
Að búa við slíkt öryggi, virðingu
og ástúð einsog ég hafði og hef enn í
Bólstaðarhlíð hefur gefið mér allt.
Að verða þeirra gæfu aðnjótandi að
vera alinn upp af góðu fólki er ómet-
anlegt. Einn af mikilvægustu uppal-
endum mínum er nú dáinn, aldraður
með gott og langt líf að baki. Jón afi
minn var mér mikilvæg fyrirmynd á
margan hátt. Hann mótaði lífsvið-
horf mín meira en ég geri mér grein
fyrir. Ég minnist hans með söknuði,
virðingu og hlýju.
Sigrún Inga Hrólfsdóttir.
JÓN
JÓHANN
MAGNÚS-
SON
✝ Jón Jóhann Magnússon fædd-ist í Innri-Fagradal í Saurbæj-
arhreppi 16. nóvember 1912.
Hann lést á hjartadeild Landspít-
alans við Hringbraut 10. febrúar
síðastliðinn og var útför hans
gerð frá Háteigskirkju 18. febr-
úar.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.