Morgunblaðið - 12.03.2003, Page 39

Morgunblaðið - 12.03.2003, Page 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 39 w w w .d es ig n. is © 20 03 IT M 90 46 Síðumúla 34 (Fellsmúlamegin) Sími 588 7332 Opið: Mán. - föst. 9-18, lau. 10-14 Handlaugar í borð. Stærðir 39x47, 41x53 og 47x56 cm Verð frá kr. 8.950,- stgr. WC með festingum og harðri setu. Tvöföld skolun. Stútur í vegg eða gólf. Verð frá kr. 17.950,- stgr. Einnarhandar blöndunartæki f. handlaug m. lyftit. Kr. 5.900,- stgr Einnarhandar blöndunartæki f. bað m. sturtusetti Kr. 5.900,- stgr Handlaug með fæti. 55x43 cm. Verð kr. 9.450,- stgr. Hitastýrð blöndunartæki m. brunaöryggi. verð frá kr. 8.990,- stgr. Verð sett með öllu Kr. 46.800,- stgr Innbyggingar WC Við látum verðið tala! D Ú N D U R v e t r a r t i l b o ð Hornbaðkör 145x145, hjartalöguð, tveggja manna. Verð með framhlíf og nuddi. Áður kr. 249.500,- stgr Nú kr. 189.900,- stgr Verð með framhlíf án nudds. Áður kr. 98.800,- stgr Nú kr. 79.650,- stgr Lúxus baðkör Extra djúp, formuð með handföngum. 180x83 cm kr. 38.990,- stgr 170x83 cm kr. 36.680,- stgr 170x75 cm kr. 23.650,- stgrFundarfært! Handlaug með fæti. 50x41 cm. Verð kr. 22.650,- stgr. Heilir sturtuklefar í horn. Öryggisgler, segullæsing, sturtu- sett, blöndunartæki, botn og vatnslás. 70x70 cm. Kr. 52.390,- stgr 80x80 cm. Kr. 53.390,- stgr 75x90 cm. Kr. 62.450,- stgr 90x90 cm. Kr. 62.450,- stgr Heilir rúnnaðir sturtuklefar í horn. Öryggisgler, segullæsing, sturtusett, blöndunartæki, botn og vatnslás. 80x80 cm. Kr. 68.780,- stgr. 90x90 cm. Kr. 71.450,- stgr. Baðkarshlíf milli veggja. Öryggisgler, segullæsing. h.140x l.140-200 cm. Verð frá Kr. 25.700,- stgr Baðkarshlíf. Hert öryggisgler. 85x140 cm. Kr. 14.900,- stgr Nuddsturtuklefar. 4-6 mm öryggisgler, segullæsing, sturtu- sett, 6 nuddstútar, sæti, blöndunartæki, botn og vatnslás. Verð frá: Kr. 122.650,- stgr. 1 2 3 4 7 85 6 Tilboðsverð aðeins: 1. WC rúlluhaldari-króm Kr. 1.190,- 2. Handklæðasnagi-króm Kr. 1.090,- 3. WC bursti+haldari-króm/gler Kr. 2.150,- 4. Handklæðaslá 60 cm-króm Kr. 2.100,- 5. Spegilhilla 70 cm-gler/króm Kr. 2.500,- 6. Glasahaldari+glös/króm Kr. 1.750,- 7. Sápustatíf-króm/gler Kr. 1.250,- 8. Handklæðahringur 17 cm-króm Kr. 1.350,- Frístandandi sturtuklefar með horn- eða framopnun. 80x80 cm. Öryggisgler, segullæsing, sturtusett, blöndunartæki, botn og vatnslás. Verð frá Kr. 67.900,- stgr GUNNAR Gunnarsson hrl. hefur verið ráðinn í embætti aðstoðarvega- málastjóra. Gunnar var val- inn úr hópi níu umsækjenda. Gunnar Gunn- arsson lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1966 og embættisprófi í lögfræði frá Há- skóla Íslands 1972. Gunnar hefur starfað sem lög- fræðingur hjá Vegagerðinni frá árinu 1973 og sem framkvæmda- stjóri stjórnsýslusviðs Vegagerðar- innar frá árinu 1990 og í yfirstjórn stofnunarinnar frá sama tíma. Aðstoðarvega- málastjóri Gunnar Gunnarsson Tæknin og fiskveiðarnar Ráð- stefna á vegum Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Ís- lands, sem ber yfirskriftina Tæknin og fiskveiðarnar, verður haldin í dag, miðvikudaginn 12. mars kl. 13, að Engjateigi 9. Fjallað verður um hvaða möguleika tæknin gefur og hvaða takmarkanir hún setur okkur við nýtingu sjávaraflans. Erindi halda: Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra, Magnús Magnússon verk- fræðingur, Ragnar Árnason prófess- or, Páll Reynisson eðlisverkfræðingur, Sævar Birg- isson skipatæknifræðingur, Kristinn A. Aspelund verkfræðingur, Páll Jensson prófessor ásamt Kristjáni Gíslasyni. Í lok ráðstefnunnar verð- ur rannsóknarskipið Árni Frið- riksson skoðað. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum félaganna www.vfi.is, www.tfi.is Trú og þjóðtrú í Rólantskvæði Ás- dís R. Magnúsdóttir, lektor í frönsku við Háskóla Íslands, heldur fyr- irlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, í dag, miðvikudag- inn 12. mars kl. 16.30, í Odda, stofu 201. Í fyrirlestrinum fjallar Ásdís um eitt elsta verk franskra bók- mennta, Rólantskvæði (La Chanson de Roland), sem samið var um 1100. Allir velkomnir. Skákmót Öðlinga, 40 ára og eldri hefst í dag, miðvikudaginn 12. mars kl. 19.30, í Félagsheimili T.R, Faxa- feni 12, þar sem tefld verður 1. um- ferð. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi. Næstu umferðir verða: 19. mars 2. umferð, 26. mars 3. umferð, 2. apríl 4. umferð, 9. apríl 5. umferð, 23. apríl 6. umferð og 7. umferð 30. apríl. Alla dagana verður teflt kl. 19.30. Mótinu lýkur 7. maí með hraðskákmóti og verðlaunaaf- hendingu. Keppt verður um farand- bikar, auk þess eru verðlaunagripir fyrir þrjú efstu sætin, bæði í að- almótinu og hraðskákmótinu. Þátt- tökugjald er kr. 2.000. Í DAG Fræðslufundur Keldna verður á morgun, fimmtudag 13. mars, kl. 12:20, í bókasafni Keldna, inn- gangur á norðanverðu húsi 2. Kristín Jónsdóttir, meinatæknir, gæðastjóri áSýklafræðideild LSH heldur fyrirlesturinn: Chlamidia trachomatis – Ævi og störf á Ís- landi. Íshafsleiðin milli Evrópu og Asíu Málstofa verður fimmtudaginn 13. mars kl. 16.15–18 í Háskóla Ís- lands, húsi VR-II við Hjarðarhaga, stofu 157. Íshafsleiðin milli Evrópu og Asíu. Frummælendur eru: Gest- ur Ólafsson arkitekt og skipulags- fræðingur hjá Skipulags-, arki- tekta- og verkfræðistofu ehf. og Þór Jakobsson, veðurfræðingur og verkefnisstjóri hafísrannsókna, Veðurstofu Íslands. Málstofan er hluti af fyrirlestra/málstofuröð á vegum Umhverfisstofnunar Há- skóla Íslands, í samstarfi við Líf- fræðistofnun, umhverfis- og bygg- ingarverkfræðiskor verkfræðideildar og jarð- og land- fræðistofu Raunvísindastofnunar. Ljóstæknifélag Íslands heldur námsstefnu um gatna- og vegalýs- ingu á morgun, fimmtudaginn 13. mars 9–15, á Grand Hótel Reykja- vík. Farið verður yfir þau atriði sem liggja til grundvallar ákvörðun um lýsingu vega og gatna, hönnun lýsingarinnar, val á efni og rekstur lýsingarkerfa. Markmiðið er að gefa þátttakendum gott yfirlit yfir þau atriði sem hönnun á lýsingu gatna- og vega nær til. Skráning á námstefnuna er á www.centrum.is/ lfi og námstefnugjald er 11.000 kr. Mígrensamtökin halda fræðslu- fund á morgun, fimmtudaginn 13. mars kl. 20, í safnaðarsal Háteigs- kirkju í Reykjavík. Fundarefni er réttindi fólks með mígreni innan al- mannatrygginga. Upplýsinga- fulltrúi Tryggingastofnunar kynnir og svarar fyrirspurnum. Fræðslurit um mígreni verða á staðnum. Allir velkomnir. Þjóðernishyggja, sambandsríkja- stefnan og Evrópusambandið Málþing í Háskóla Íslands á morg- un, 13. mars kl. 16 – 18, í Lögbergi stofu 101 í samstarfi við breska sendiráðið. Erindi halda: Brendan O’Leary forstöðumaður við Sol- omon Asch Center for the Study of Ethnopolitical Conflict og prófessor í stjórnmálafræðum við University of Pennsylvania, Guðmundur Hálf- danarson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og Ólafur Steph- ensen aðstoðarritstjóri Morg- unblaðsins. Fundar- og umræðu- stjórnendur verða Arnar Másson stjórnmálafræðingur og Davíð Logi Sigurðsson sagnfræðingur. FFA – fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur verður með kynn- ingu, kaffisopa og spjall í húsnæði Þroskahjálpar, Suðurlandsbraut 22, á mogrun, fimmtudaginn 13. mars kl. 20. Guðný Hallgrímsdóttir prestur segir frá því í hverju starf hennar er fólgið og hvernig hún vinnur með fötluðum og aðstand- endum þeirra. Allir velkomnir. Ljósagjörningur á Austurvelli verður á morgun, fimmtudaginn 13. mars kl. 20.30. Kveikt verður á 63 kertum fyrir atkvæði alþingis- manna. Undir sorgarmarsi Björg- vins Gíslasonar verður slökkt á 54 kertum fyrir þau atkvæði sem veittu stóriðjunni og Kára- hnjúkavirkjun brautargengi á al- þingi miðvikudaginn 5. mars sl. Kveikt verður á 139 kertum fyrir hvern dag mótmælanna á Aust- urvelli, segir í fréttatilkynningu. Allir velkomnir með útikerti. Á MORGUN VG á Suðurnesjum funda um at- vinnu-, sjávarútvegs- og Evr- ópumál á morgun, fimmtudginn 13. mars kl. 20, í kosningamiðstöð Vinstri grænna á Suðurnesjum, Hafnargötu 54 í Keflavík. Frum- mælendur verða: Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna, Helga Ingimundardóttir for- stöðumaður ferðaþjónustu Suð- urnesja sf. og Ragnar Arnalds, for- maður Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Fundarstjóri: Kolbeinn Óttarson Proppé frambjóðandi í 1. sæti. Föstudag 14. mars kl. 20 verður söngkvöld í kosningamiðstöðinni. Fram koma m.a. Kristján Hreinsson skáld, Sigvarður Ari Huldarsson trúbadúr, Þorvaldur Þorvaldsson bariton, félagar úr söngfélaginu Uppsiglingu o.fl. STJÓRNMÁL „Skógar í umhverfinu“ Landvernd og Skógræktarfélag Íslands halda ráðstefnu föstudaginn 14. mars kl. 13–18, í Mörkinni 6 í Reykjavík. Er- indi halda m.a.: Arnlín Óladóttir skógfræðingur, Ásrún Elmarsdóttir plöntuvistfræðingur, Björg Gunn- arsdóttir landfræðingur, Einar Þor- leifsson leiðsögumaður og nátt- úrufræðingur, Freysteinn Sigurðsson jarðfræðingur, Kristinn Haukur Skarphéðinsson fuglafræð- ingur og Ragnhildur Freysteins- dóttir landfræðingur. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Lesið í skóginn – tálgað í tré Grunnnámskeið verður haldið á veg- um Garðyrkjuskólans og Skógrækt- arinnar í námskeiðaröðinni, „Lesið í skóginn – tálgað í tré“, helgina 22.– 23. mars, á rannsóknarstöð Skóg- ræktar ríkisins á Mógilsá, kl. 10–18 báða dagana en Leiðbeinendur verða Guðmundur Magnússon hand- verksmaður á Flúðum og Ólafur Oddsson frá Skógræktinni. Þátttak- endur læra m.a. að lesa í marg- breytileg form trjánna og velja efni til ólíkra nota. Fjallað verður um einkenni og eiginleika íslenskra við- artegunda. Skráning á nánari upp- lýsingar fást á skrifstofu Garðyrkju- skólans eða á heimasíðu hans, www.reykir.is Á NÆSTUNNI Vann ein sesar-verðlaun Kvikmynd Sólveigar Anspach, Hertu upp hugann!, vann til sesar- verðlauna fyrir besta leik í aðalkven- hlutverki haustið 2000 og var til- nefnd fyrir bestu frumraun, besta leik í kvenhlutverki og besta unga leikarann. Myndin vann því ekki til fernra sesar-verðlauna eins og ranglega var greint frá í leiðara blaðsins í gær. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.