Morgunblaðið - 12.03.2003, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 41
Lundúnamessa
í Dómkirkjunni
Sr. Jón A Baldvinsson, sendiráðsprestur, sem staddur er hér á landi í
námsleyfi, mun syngja messu í Dómkirkjunni, sunnud. 16. mars kl. 14.
Messan er að frumkvæði fyrrverandi sóknarbarna hans á Bretlands-
eyjum og er hugsuð sem kærkomið tækifæri til endurfunda.
Eftir messu verður kirkjukaffi á Hótel Borg og mun undirbúnings-
nefndin viðra þar hugmyndir um árlega samkomu þessa hóps.
Gamlir og nýir félagar úr Íslenska kórnum í London eru beðnir að
koma til æfingar í Dómkirkjunni, þriðjudagskvöldið 11. mars kl. 20.
Undirbúningsnefndin.
RIMASKÓLI í Reykjavík varð
um helgina Íslandsmeistari barna-
skólasveita í skák og hlaut þar með
keppnisrétt á Norðurlandamóti í
Finnlandi í september. Skólinn
heldur upp á 10 ára afmæli sitt á
þessu ári og er árangur skákmann-
anna góð afmælisgjöf til skólans.
Þetta mun vera fyrsti Íslandsmeist-
aratitill Rimaskóla í skák. Sigurinn
var mjög öruggur, en sveitin hlaut
29 vinninga af 36 mögulegum. Rima-
skóli gerði einungis eitt jafntefli, við
Melaskóla, en vann allar aðrar við-
ureignir. Melaskóli varð í öðru sæti
með 24 vinninga og Hlíðaskóli náði
þriðja sætinu eftir stigaútreikning
við Laugarnesskóla, en báðar sveit-
irnar hlutu 23½ vinning. Alls tóku 18
sveitir þátt í mótinu frá 11 skólum.
Sigursveit Rimaskóla skipuðu:
1. Hjörvar Grétarsson 9 v. af 9
2. Ingvar Ásbjörnsson 8 v.
3. Egill Gautur Steingrímsson 7 v.
4. Sverrir Ásbjörnsson 5 v.
Hjörvar Steinn, sem sigraði alla
andstæðinga sína, er einungis 9 ára
gamall. Vigfús Ó. Vigfússon er liðs-
stjóri Rimaskóla. Í sveit Melaskóla,
sem lenti í öðru sæti voru:
1. Hallgerður Helga Þorsteins-
dóttir 3½ v. af 9
2. Haraldur Franklín 6½ v.
3. Dofri Snorrason 6 v.
4. Árni Snorrason 8 v.
Liðsstjóri Melaskóla var sem fyrr
Arngrímur Gunnhallsson. Lið
Hlíðaskóla skipuðu:
1. Helgi Brynjarsson 7 v. af 9
2. Aron Hjalti Björnsson 5½ v.
3. Atli Dagur Sigurðarson 3 v.
4. Bjarki Brynjarsson 8 v.
Liðsstjóri Hlíðaskóla er Tómas
Einarsson. Lokaröðin á mótinu varð
eftirfarandi:
1. Rimaskóli-A, Rvk. 29 v.
2. Melaskóli-A, Rvk. 24 v.
3. Hlíðaskóli, Rvk. 23½ v.
4. Laugarnesskóli-A, Rvk. 23½ v.
5.–6. Hvaleyrarskóli, Hafnarf.
20½ v.
5.–6. Breiðagerðisskóli-A, Rvk.
20½ v.
7. Flataskóli, Garðabæ 19 v.
8.–9. Digranesskóli, Kópav. 18½ v.
8.–9. Lundarskóli Akureyri 18½ v.
10.–11. Salaskóli-A, Kópav. 17 v.
10.–11. Salaskóli-B, Kópav. 17 v.
12. Laugarnesskóli-B, Rvk. 16½ v.
13. Melaskóli-B, Rvk. 15½ v.
14.–15. Breiðagerðisskóli-B, Rvk.
14½ v.
14.–15. Rimaskóli-B Rvk. 14½ v.
16. Korpuskóli, Rvk. 11½ v.
17. Melaskóli-C, Rvk. 11 v.
18. Rimaskóli-C, Rvk. 9½ v.
Skákstjóri var Haraldur Baldurs-
son.
Skákmót fyrir
40 ára og eldri
Skákmót öðlinga, þ.e. keppenda
40 ára og eldri, hefst miðvikudaginn
12. mars í Faxafeni 12, félagsheimili
TR, kl. 19:30. Tefldar verða sjö um-
ferðir eftir Monrad-kerfi og er um-
hugsunartíminn 1½ klst.á 30 leiki
og svo 30 mínútur til að ljúka skák-
inni. Teflt er á miðvikudagskvöld-
um og hefst taflið alltaf klukkan
19:30. Tefldar verða sjö umferðir.
Mótinu lýkur 7.maí með hrað-
skákmóti og verðlaunaafhendingu.
Keppt er um veglegan farandbikar,
en auk þess eru verðlaunagripir
fyrir þrjú efstu sætin,bæði í aðal-
mótinu og hraðskákmótinu. Þátt-
tökugjald er kr. 2.000.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur
S Ásgrímsson í síma 895-5860. Tek-
ið er við skráningum í sama síma.
Metþátttaka á
Meistaramóti Hellis
Metþátttaka er á Meistaramóti
Hellis, sem hófst á mánudagskvöld,
en skráðir keppendur eru 40. Nokk-
uð var um óvænt úrslit í fyrstu um-
ferð. Aron Ingi Óskarsson (1.440)
lagði Þór Örn Jónsson (1.820), Atli
Freyr Kristjánsson (1.465) gerði
jafntefli við Sverri Örn Björnsson
(1.945) og Sveinn Arnarsson (stiga-
laus) gerði jafntefli við Óskar
Maggason (1.695). Áhugasamir
geta enn tekið þátt og eru hvattir til
að hafa samband við Gunnar (861
9416).
Rimaskóli Íslandsmeist-
ari barnaskólasveita
Íslandsmeistarar Rimaskóla í flokki barnaskólasveita. Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóla, Sverrir Ásbjörnsson,
Ingvar Ásbjörnsson, Egill Gautur Steingrímsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Vigfús Vigfússon þjálfari.
SKÁK
Skáksamband Íslands
ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLASVEITA
7.–9. mars 2003
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
HINN 11. desember heimsóttu
Morgunblaðið hinir hressu krakkar
í 7.E í Álftanesskóla. Þau höfðu þá
þegar tekið þátt í skólaverkefninu
Dagblöð í skólum og komu til að
forvitnast frekar um þá vinnu sem
liggur að baki útgáfu dagblaða.
Krakkarnir spurðu margs eins og
vera ber, enda sjálfsagt að nota
tækifærið og fræðast eftir megni.
Morgunblaðið þakkar þessum
skemmtilega hópi kærlega fyrir
komuna um leið og við óskum þeim
gleðilegs nýárs!
Morgunblaðið/Sverrir
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is