Morgunblaðið - 12.03.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 43
DAGBÓK
Megrun er úrelt!
- Að borða en grennast samt!
Sólginn í sykur og kolvetni?
Orkulaus?
Borðar lítið en fitnar samt?
Vantar þig leiðir til lausnar?
Námskeið laugardaginn 15. mars kl. 10-16
með Þorbjörgu Hafsteinsdóttur næringarþerapista.
Skráning og nánari upplýsingar í s. 848 5366.
FISKBÚÐIN VÖR
Höfðabakka 1, sími 587 5070
Bryggjustemmning í Vör!
Opið hús, allir velkomnir
Rauðmagi 10 kr. stk.
Lúða 299 kr./kg
Rauðspretta 199 kr./kg
Ýsuflök 499 kr./kg
Í raspi 599 kr./kg
Gos og grillkynning
Hoppukastali fyrir börn
Afmælisþakkir
Ég vil þakka öllum sem heimsóttu mig 6. mars
á 90 ára afmæli mínu á Hótel Sögu. Ég vil
þakka fyrir allar gjafirnar, þær voru svo
miklar að maður finnur ekki orð að lýsa þeim.
Einnig þakka ég fyrir öll skeytin sem ég fékk.
Þakka öll elskulegheit.
Sigurður Ólafsson
frá Kjarlaksvöllum,
Saurbæ, Dalasýlsu.
SÍÐASTA lota úrslita-
leiks Englendinga og Pól-
verja um NEC-bikarinn fór
hægt af stað og engin sér-
stök teikn voru á lofti um
stórfengleg umskipti. Pól-
verjar höfðu gott forskot og
tími Englendinga virtist á
þrotum. Hér er spil nr. 50 af
64:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ ÁG3
♥ Á2
♦ 542
♣ÁG432
Vestur Austur
♠ K98 ♠ 102
♥ 9876 ♥ KDG1043
♦ G1093 ♦ D
♣K5 ♣D976
Suður
♠ D7654
♥ 5
♦ ÁK876
♣108
Samningurinn var sá
sami á báðum borðum, eða
fjórir spaðar í suður. Hvern-
ig myndi lesandinn spila
með hjartaníunni út?
Vörnin á augljóslega þrjá
slagi: einn á tromp, einn á
tígul og einn á lauf. En 4-1
legan í tígli skapar vanda-
mál. John Armstrong var
sagnhafi á öðru borðinu.
Hann tók á hjartaás og spil-
aði tígli á ásinn. Svínaði svo
spaðagosa og spilaði aftur
tígli úr borði. Austur lét á
móti sér að trompa og kóng-
urinn átti slaginn. Spilið er
nú vonlaust. Armstrong gaf
vestri tígulslag, en vestur
mætti því af hörku með
fjórða tíglinum og tryggði
vörninni þannig annan slag
á tromp – einn niður. Á hinu
borðinu valdi sagnhafi svip-
aða leið og spilið féll.
En það er til vinningsleið.
Hún er sú að gefa austri
fyrsta slaginn á tíguldrottn-
ingu! Þá getur sagnhafi
svínað spaðagosa, tekið
spaðaásinn og spilað síðan
ÁK í tígli og trompað fjórða
tígulinn með hundinum í
borði. Þetta er falleg leið, en
alls ekki örugg og því lang-
sótt við borðið.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 12.
mars, er sextug Ragnheiður
Skúladóttir, píanóleikari,
Suðurgötu 9, Keflavík. Eig-
inmaður hennar er Sævar
Helgason. Þau eru að heim-
an í dag.
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 12.
mars, er sjötug Erna Eden
Marinós, Frostafold 49.
Eiginmaður hennar er Ingi-
mundur Ólafsson. Þau eru
stödd á Kanaríeyjum.
KOM MILDA NÓTT
Kom milda nótt er mýkir dagsins sár,
kom morgunstund er færir ljós og yl,
ég bíð þess eins að brátt ég liggi nár,
ég beiddist aldrei þess að verða til.
Kom þunga starf og þreyt hinn aldna mann
er þekkti vel hve lítil var hans dáð.
Feyk stormur tímans öllu sem ég ann,
lát arð minn jafnan því sem til var sáð.
Kom ljúfa gleymska, leið mig þín á vit,
kom langa myrkur, vef mig þínum hjúp.
Kom alda sterka hönd, lát hvert mitt rit
og hvert mitt kvæði sökkt í neðsta djúp.
Jón Helgason
LJÓÐABROT
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3
Rc6 4. e4 d6 5. g3 g6 6. Bg2
Bg7 7. d4 O-O 8. d5
Rd4 9. Be3 Rxf3+
10. Bxf3 Bh3 11. g4
Re8 12. Hg1 f5 13.
gxf5 gxf5 14. Hg3
fxe4 15. Bxe4 Bf5
16. Dh5 Dd7 17. O-
O-O Df7 18. Dh4
Kh8 19. Hf3 Dg6
Staðan kom upp á
Edduskákmótinu,
minningarmóti um
Guðmund J. Guð-
mundsson, sem lauk
fyrir skömmu í
Borgarleikhúsinu.
Jaan Ehlvest (2600)
hafði hvítt gegn Etienne
Bacrot (2671). 20. Hxf5!
Hxf5 21. Dh3 Hh5 22. Df3
og svartur gafst upp enda
er hann að verða manni
undir.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ákveðin og djörf
persóna. Þá ertu einnig
nægilega sterkur
einstaklingur til þess að
standast áföll eða vonbrigði.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur mikla samúð með
vini þínum. Reyndu að
koma honum til aðstoðar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sköpunar- og listhæfi-
leikar koma fram hjá þér í
starfi. Af þeim sökum vilja
margir notfæra sér aðstoð
þína til þess að hanna
verkefni eða fá ráðlegg-
ingar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kannt að meta fegurð í
listum. Heimsóttu listagall-
erí, listaverslun eða lista-
safn til þess að svala áhuga
þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert undir smásjánni hjá
öðrum svo þú skalt haga
gjörðum þínum svo að þú
gefir engan höggstað á þér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hafðu augun hjá þér svo
þú missir ekki af þeim
tækifærum sem bjóðast.
Þú skalt engu að síður
flýta þér hægt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Persóna þín er örlát í garð
annarra. Af þeim sökum er
fólk rausnarlegt við þig í
staðinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þig dreymir dagdrauma í
ríkari mæli en áður. Það er
í lagi svo lengi sem þú ger-
ir þér grein fyrir mörkum
draums og veruleika.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú er tækifæri til þess að
lífga upp á heimilið.
Kauptu eitthvað fallegt
fyrir heimilið eða fjölskyld-
una. Fallegir hlutir geta
oft breytt miklu á heim-
ilum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er ástæðulaust fyrir
þig að hengja haus því þú
hefur unnið vel. Vertu fast-
ur fyrir í rökræðum við
vinnufélaga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú freistast til þess að
kaupa munaðarvöru handa
sjálfum þér. Því ekki að
kaupa frekar eitthvað sem
kemur öðrum að notum?
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Persónuleiki þinn er við-
kvæmur og blíður gagn-
vart öðrum, einkum fjöl-
skyldunni. Segðu hvað þér
býr í brjósti.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þessi dagur hentar til þess
að íhuga stöðu þína og
finna lausn á því hvernig
þú getur látið drauma þína
rætast.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Íslandsmót í paratvímenningi
Íslandsmót í paratvímenningi
verður spilað helgina 22.–23. mars í
Siðumúla 37.
Spilaður verður barómeter, allir
við alla en fjöldi spila fer eftir þátt-
töku. Keppnisstjóri verður Björgvin
Már Kristinsson. Skráning í s. 587
9360 eða www.bridge.is
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag hófst vel sóttur tví-
menningur þar sem tvö kvöld af
þremur gilda. Það er því lítið mál
fyrir þá sem ekki gátu mætt þá, að
koma næstu tvö kvöld.
Hæstu skor :
NS:
Erla Sigurjónsdóttir–Sigfús Þórðarson 272
Eggert Bergss.–Unnar Atli Guðm. 234
Magnús Aspelund–Steingrímur Jónass. 228
AV:
Georg Sverriss.–Sigurjón Tryggvas. 249
Hallgrímur Hallg.–Hermann Friðriks. 248
Ragnar Björnss.–Sigurður Sigurjónss. 246
Gullsmárabrids
Eldri borgarar spiluðu tvímenn-
ing á tólf borðum í Gullsmáranum
mánudaginn 10. marz. Miðlungur
220. Efst vóru:
NS
Sigurpáll Árnason–Jóhann Ólafsson 278
Ernst Backman–Karl Gunnarsson 259
Sigtryggur Ellertss.–Þórarinn Árnas. 252
Jón Bondó og Magnús Gíslason 249
AV
Filip Höskuldsson–Páll Guðmundsson 277
Eggert Kristinss.– Kristjana Halldórsd. 254
Ari Þórðarson–Díana Kristjánsdóttir 241
Heiðar Þórðarson–Björn Björnsson 224
Guðlaugur Árnason–Jón Páll Ingibers 224
Félag eldri borgara í Kópavogi
Það mættu 24 pör þriðjudaginn 4.
mars og lokatölur í N/S urðu þessar:
Jón Stefánss. - Þorsteinn Laufdal 278
Lárus Hermannss. - Sigurður Karlsson 238
Helga Helgad. - Sigrún Pálsd. 229
Hæsta skorin í A/V:
Vilhj. Sigurðss. - Þórður Jörundss. 282
Guðm. Magnúss. - Magnús Guðmss. 268
Guðm. Þórðars. - Magnús Þorsteinss. 235
Það mættu einnig 24 pör sl. föstu-
dag en þá urðu úrslitin þessi í N/S:
Júlíus Guðmss. - Oliver Kristófss. 292
Vilhj. Sigurðss. - Þórður Jörundss. 244
Alfreð Kristjánss. - Óskar Karlss. 234
Hæsta skorin í A/V sl. föstudag:
Bent Jónss. - Garðar Sigurðss 71
Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ásmundss. 258
Hörður Davíðss. - Einar Einarss. 248
Meðalskor báða dagana var 216.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
MEÐ MORGUNKAFFINU
Af hverju viltu endi-
lega lækna mig? Ég
kann ágætlega við
ástandið svona!
Ég hef það á til-
finningunni að
við eigum eftir að
fá á okkur kæru
vegna læknamis-
taka…
ÁRNAÐ HEILLA