Morgunblaðið - 12.03.2003, Síða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 45
SÆNSKI landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu Henrik Larsson mun
leika með Celtic gegn Liverpool í
UEFA-leik á morgun í Glasgow.
Larson hefur verið frá keppni í sex
vikur eftir að hann kjálkabrotnaði.
Hann hefur skorað 34 mörk fyrir
Celtic í vetur.
NORSKI knattspyrnumaðurinn
Stig Inge Björnebye hefur ákveðið
að leggja skóna á hilluna, 33 ára
gamall. Björnebye ákvað að hætta í
kjölfarið á tveimur alvarlegum
meiðslum sem hann varð fyrir á síð-
asta ári, fyrst á auga og síðan á fæti.
BJÖRNEBYE hóf feril sinn hjá
Kongsvinger í Noregi, síðan lá leiðin
til Rosenborg, Liverpool, Bröndby
og loks Blackburn þar sem hann lék
síðast í desember á síðasta ári.
STEVE Bruce, knattspynrustjóri
Birmingham, hefur fengið tvo mark-
verði að láni í herbúðir sínar, þá
Aleksander Klak frá Póllandi og
Bernard Lama, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörð Frakka, en Bruce hef-
ur að undanförnu leitað að reyndum
markverði til að hlaupa í skarðið fyr-
ir Nico Vaesen sem meiddist gegn
Aston Villa í síðustu viku, Vaesen
verður frá keppni í hálft ár. Lítist
Bruce á annan hvorn markvörðinn
reiknar hann með að gera við hann
stuttan samning.
OLD Trafford, heimavöllur Man-
chester United, og Villa Park,
heimavöllur Aston Villa, verða vett-
vangur undanúrslitaleikjanna í
ensku bikarkeppninni í knattspyrnu
sem báðir fara fram sunnudaginn 13.
apríl. Arsenal eða Chelsea leika við
Sheffield United á Old Trafford
klukkan 13.30 og þremur klukku-
stundum síðar eigast við Watford og
Southampton á Villa Park.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, segist aldrei hafa hitt
Neil Warnock, knattspyrnustjóra
Sheffield United. „Vonandi fæ ég
tækifæri til þess á Old Trafford. Við
myndum ekki mæta með varaliðið
okkar þangað, eins og Warnock hef-
ur sagt á léttu nótunum,“ sagði
Wenger.
KJERSTI Grini ein besta hand-
knattleikskona Norðmanna gæti
þurft að leggja handboltaskóna á
hilluna. Grini gekkst undir sína
þriðju aðgerð á hné í vikunni og
verður hún frá keppni og æfingum
næstu 7–8 mánuðina. Læknar hafa
metið stöðuna á þann veg að ferill
Grini gæti verið á enda en hnéð er
illa farið eftir þrenn alvarleg meiðsli.
SIR Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, tilkynnti í
gær að ljóst væri að tveir af lykil-
mönnum hans yrðu frá keppni í
minnst fjórar vikur vegna meiðsla á
hné. Það eru þeirt Roy Keane og
Juan Sebastíán Verón. Þeir missa af
Evrópuleikjum gegn Basel og
Deportivo La Coruna – og deildar-
leikjum við Aston Villa og Fulham.
FÓLK
EKKI er loku fyrir það skotið
að Árni Gautur Arason geti
varið mark Íslendinga í leikn-
um við Skota í undankeppni
EM í knattspyrnu sem fram
fer á Hampden Park í Glas-
gow þann 29. mars. Árni Gaut-
ur gekkst undir aðgerð á oln-
boga í byrjun síðustu viku.
„Aðgerðin tókst vel og ég er
allur að koma til. Saumarnir
verða teknir úr á mánudaginn
og þá veit ég meira hvernig ég
hef það í handleggnum en
læknirinn sem framkvæmdi
aðgerðina sagði mér að ég
ætti að verða kominn í lag fyr-
ir Skotaleikinn. Af minni hálfu
er því ekki útilokað að ég geti
spilað en svo er aftur annað
mál hvort ég verð valinn í lið-
ið,“ sagði Árni Gautur við
Morgunblaðið.
Árni Gautur
með gegn
Skotum?
RÚNAR Sigtryggsson og sam-
herjar hans hjá spánska liðinu
Ciudad Real drógust í gær gegn
Celje Pivovarna Lasko frá Slóv-
eníu í undanúrslitum Evr-
ópukeppni bikarmeistara í hand-
knattleik. Fyrri leikurinn verður
á Spáni 29. mars, en seinni leik-
urinn í Slóveníu viku síðar.
Sænska liðið Redbergslid og
Lemgo, Þýskalandi, mætast í
hinni viðureigninni.
Portland San Antonio frá Spáni
og ungverska liðið Fotex KC
Veszprém mætast í undan-
úrslitum í Meistaradeildinni og í
hinni viðureigninni eigast við
Prule Ljubljana frá Slóveníu og
franska liðið Montpellier.
Í EHF-keppninni eigast við
rússneska liðið Lukoil-Dynamo
Astrakhan og Dunaferr frá Ung-
verjalandi og í hinni viðureign-
inni eigast við tvö lið frá Spáni –
Barcelona og Altea.
Sävehof mætir Skjern
Mótherjar Gróttu/KR í Áskor-
endakeppninni – sænsku leik-
mennirnir hjá Sävehof í Gauta-
borg leika gegn danska liðinu
Skjern í undanúrslitum og
franska liðið Creteil mætir gríska
liðinu Filippos Verias.
Rúnar og félagar
til Slóveníu
Rune Bratseth yfirmaður knatt-spyrnumála hjá Rosenborg
lagði nýtt tilboð á borð Árna Gauts
fyrir helgina og ósk-
aði eftir svari frá ís-
lenska landsliðs-
markverðinum á
mánudaginn. Árni
Gautur lagðist því undir feld en ákvað
loks að svara tilboði Rosenborg neit-
andi, tilboði sem Braseth segir við
norska fjölmiðla að hafi verið lokatil-
boð af hálfu félagsins.
„Ég var einfaldlega ekki tilbúinn að
binda mig áfram hjá Rosenborg
svona snemma. Ég vill halda öllum
möguleikum opnum fram að sumri en
svo getur vel farið svo að ég geri nýj-
an samning ef ekkert annað kemur
upp. Þó svo að Bratseth segi þetta
hafi verið lokatilboð þá getur vel verið
að félagið sé að setja á mig pressu. Ef
ég hefði skrifað undir núna þá væri ég
algjörlega í höndum þeirra ef tilboð
kæmi í mig í sumar,“ sagði Árni Gaut-
ur við Morgunblaðið í gær. Árni segir
að ákvörðun hans um að svara neit-
andi hafi ekkert með sjálft tilboðið að
gera.
Ekki endanlegt
svar frá mér
„Ég tók það skýrt fram við Brat-
seth að þetta væri ekki endanlegt
svar frá mér og ég sagðist vera opinn
fyrir því að ræða við þá síðar. Þó svo
að mér líði mjög vel í Noregi gæti ver-
ið gaman breyta til enda er ég búinn
að vera hér í rúm fimm ár.“
Leikmannamarkaðurinn í Evrópu
verðuropnaður á nýjan leik júlí en
Árni Gautur segist geta byrjað að
ræða við önnur félög strax ef svo ber
undir.
En vilja ekki forráðamenn Rosen-
borg reyna að selja þig sem fyrst til að
freista þess að fá eitthvað fyrir þig?
„Jú auðvitað er það ein lausn fyrir
þá en ég veit ekki nákvæmlega hvað
þeir hugsa. Ég tók ákveðna áhættu
með því að hafna tilboðinu því það
getur vel verið að þeir bregðist við
með því að setja mig á varamanna-
bekkinn þó þeir segist ætla að verða
sanngjarnir hvað liðið varðar. Aðal-
málið var að ég var ekki tilbúinn að
binda mig strax.“
England eða Þýskaland
Árni Gautur segist vita um áhuga
annarra félaga á sér en að því hann
best viti hafi ekkert tilboð borist.
Hann segir að fyrirspurnir hafi borist
en umboðsmaður sinn sé að vinna í
málunum og skoða hvaða lið eru að
leita að markvörðum.
Ef þú ættir að velja þér einn stað
umfram aðra sem þú vildir leika á.
Hvar væri hann?
„Ég hef svo sem ekkert hugsað það
til hlítar en auðvitað væri gaman að
reyna fyrir sér í þessum stærri deild-
um eins og á Englandi og í Þýskalandi
en ég geri mér samt grein fyrir því að
markaðurinn er mjög erfiður um
þessar mundir.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Árni Gautur Arason, landsliðsmarkvörður Íslands.
FRAMTÍÐ Árna Gauts Arasonar landsliðsmarkvarðar í knattspyrnu
er óljós eftir að hann hafnaði nýju tilboði frá norska meistaraliðinu
Rosenborg. Árni hefur leikið með Rosenborg undanfarin fimm ár og
hefur orðið meistari í öll skiptin en samningur hans við félagið
rennur út í haust.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Morgunblaðið/RAX
Ólafur Stefánsson í landsleik gegn Júgóslavíu á HM í Portúgal.
Árni hafnaði
lokatilboði
Rosenborgar