Morgunblaðið - 23.03.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.03.2003, Blaðsíða 11
STRÍÐ Í ÍRAK MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 11 AÐGERÐIR Bandaríkja-manna og Breta í Írakmagnast jafnt og þétt ogandstaðan yfirleitt lítil. Enginn vafi leikur á því hver útkom- an verður á vígvellinum, en sigur í stríðinu þýðir ekki að Bandaríkja- menn hafi náð takmarki sínu. Inn- rásin í Írak boðar gagngerar breyt- ingar á hinu pólitíska landslagi í arabaheiminum, en ekki er hægt að segja til um hvernig það landslag mun líta út þegar upp er staðið. Til marks um það að Bandaríkja- menn þurfa ekki aðeins að hafa í huga hvað þeir gera heldur hvernig er lítið atvik, sem gerðist þegar bandarískir landgönguliðar lögðu undir sig hafnarbæinn Umm Qasr á föstudag. Einn landgönguliðinn byrjaði á því að draga niður íraska fánann og draga þann bandaríska að húni í staðinn. Myndum af þessu var slegið upp á arabísku fréttasjón- varpsstöðinni al-Jazeera. Ekki leið hins vegar á löngu áður en fáninn var dreginn niður aftur vegna þess að hann þótti gefa til kynna að Bandaríkjamenn væru að hernema Írak. Sennilega hafa myndir af við- brögðum íbúa Safwan, fyrsta bæj- arins, sem bandarískar og breskar sveitir náðu á sitt vald, fremur verið bandarískum ráðamönnum að skapi. Þar búa sítar, sem sungu og döns- uðu, kysstu hermennina og buðu þeim mat og vatn. Íbúarnir rifu nið- ur veggspjöld af Saddam Hussein, tröðkuðu á þeim og hrópuðu: „Sadd- am, dagar þínir eru taldir.“ Farnir að huga að eftirleiknum Leiðtogar í Mið-Austurlöndum virtust margir hafa sætt sig við það nokkrum vikum áður en átökin hóf- ust að þau væru óumflýjanleg og þess í stað sett á oddinn að tryggja stöðu sína að þeim loknum. Í egypskum fjölmiðlum hefur verið lögð áhersla á að Saddam Hussein leiðtogi Íraks hafi kallað stríðið yfir sig sjálfur. Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sagði þegar hann var í Berlín nýverið að það væri tími til kominn að binda enda á ágreininginn og koma Hussein frá völdum. Um leið hafa egypskir embættismenn gefið til kynna að fyrir hendi væri vilji til pólitískra umbóta. George Bush hefur sagt að aðgerðirnar gegn Írak boði það að áhersla verði lögð á aukið lýðræði í þessum heimshluta. Sádar hafa verið loðnir í yfirlýs- ingum um stríðið, en Abdullah krón- prins hefur kvatt til þess að Araba- bandalagið samþykki nýja stefnu- skrá um umbætur. Þegar Persaflóastríðið braust út fyrir 12 árum stilltu Jórdanar sér upp við hlið Íraka. Nú hafa þeir fengið stýriflaugakerfi frá Banda- ríkjamönnum og bandarískir um- sjónarmenn munu manna þær og engum blöðum að fletta um það hvorum megin þeir standa. Sýrlendingar hafa einnig gefið til kynna að þeir muni ekki verða til vandræða. Arabaleiðtogar laga sig að breyttum valdahlutföllum Dennis Ross, sem var sérstakur erindreki í málefnum Mið-Austur- landa í stjórn Bills Clintons og starf- aði einnig í stjórn George Bush eldra, en stjórnar nú rannsóknar- stofnun um Austurlönd nær í Wash- ington, skrifar í dagblaðið Wall Street Journal á fimmtudag að þetta beri því vitni að arabaleiðtogar séu að laga sig að breyttum valdahlut- föllum. Þeir gera sér grein fyrir því að Hussein muni víkja og fyrir vikið koma þeir honum ekki til varnar. Ross segir að sú reiði, sem safnast hafi upp í aðdraganda stríðsins muni nú þverra, en þar með sé hins vegar ekki sagt að hún muni hverfa: „Frelsun Íraks mun skapa okkur [Bandaríkjamönnum] og þessum heimshluta tækifæri. Ef frelsunin fer hins vegar að fá á sig yfirbragð hersetu, ef notkun okkar á lýðræði fer að líta út eins og slagorð til að nota gegn þeim, sem okkur líkar ekki, en aldrei gegn þeim, sem okkur líkar, og ef við höldum áfram að láta okkur engu varða sárindin, sem skapast hafa vegna ágreiningsins milli Palestínumanna og Ísraela, munum við komast að því að þessi afstaða stjórnvalda er tímabundin og andúð í okkar garð frekar til fram- búðar.“ Leiðaraskrif dagblaðsins Daily Star í Líbanon bera því vitni hvað er í húfi. Þar segir að bera megi stríðið í Írak við fall tyrkneska heimsveldis- ins og stríð Araba og Ísraela árið 1948: „Nú eins og þá má benda á þrjá þætti í þessu ferli breytinga, sem er sérstakt áhyggjuefni út frá sjónarmiði Araba. Helsti aflvaki breytinganna kemur utan þessa heimshluta, arabar virðast hafa lítil ef nokkur áhrif á atburðarásina, sem mun marka framtíð þeirra, og fáir ef einhverjir á þessum slóðum virðast hafa nokkra hugmynd um það hvað sé í vændum.“ Í samantekt, sem Stofnun stríðs- og friðarrannsókna (IWPR) tekur reglulega saman um Írak og tengd mál um þessar mundir, er vitnað í Sheikh Naim Qassem, aðstoðarfor- mann Hezbollah-flokksins í Líban- on, sem sagði á ráðstefnu að stríðið í Írak væri rekið í krafti fyrirætlana Bandaríkjamanna um að endurgera hið pólitíska landakort í Mið-Aust- urlöndum í því skyni að ná yfirráðum yfir olíuauðlindum þeirra. „Munu tapa stríðinu pólitískt“ „Írak er nauðsynlegur lykill að því að ná því fram, sem Washington vill,“ sagði Qassem. „Bandaríkja- menn munu vinna stríðið í Írak auð- veldlega vegna hernaðarlegra yfir- burða sinna, en þeir munu tapa stríðinu pólitískt, félagslega og efna- hagslega vegna þess að þeir hafa lát- ið til skarar skríða einhliða, sem hef- ur vakið andstöðu um allan heim.“ Í yfirliti IWPR er bent á að meira að segja megi greina ákveðinn sam- hljóm með Ísraelum og aröbum gagnvart Bandaríkjamönnum. Vitn- að er í leiðara blaðsins Yediot Ahronot þar sem spurt er: „Af hverju Írak? Af hverju núna? Af hverju með stríði? Þegar allt kemur til alls lítur næstum allur heimurinn svo á að Saddam Hussein sé ekki fyrirhafnarinnar virði heldur af- dankaður harðstjóri með takmörkuð völd, sem nú sé þannig komið fyrir að hann ógni hvorki velferð heimsins né stöðugleika.“ Blaðið sagði að kostnaðurinn og umfang stríðsins yrði aðeins réttlætt ef herir Husseins hryndu eins og spilaborgir og íbúar Bagdad myndu fagna herjum Bandaríkjamanna og Breta og gereyðingarvopn fyndust fljótlega. Annars hlyti „trúverðug- leiki stjórnar Bush banvænt sár, Bandaríkin myndu draga sig inn í skel sálarkreppu og myndin af bandarískum hermönnum að drepa arabíska hermenn án góðs tilgangs myndu verða brennd í þjóðar- og trúarvitund Mið-Austurlanda til frambúðar og með skömm.“ Þau ummæli, sem hér hafa verið rakin sýna, að samhliða stríðinu í Írak fer fram stríð um ímyndir. Upp á framhaldið skiptir sigur Banda- ríkjamenn ekki aðeins máli, heldur hvernig hann verður knúinn fram. Þegar hryðjuverkin voru framin í Bandaríkjunum 11. september árið 2001 áttu Bandaríkjamenn samúð heimsbyggðarinnar. Bandamenn í baráttunni gegn hryðjuverkum voru viljugir og auðfundnir. Þegar stjórn Talibana var steypt í Afganistan og lagt til atlögu gegn al-Qaeda, hryðju- verkasamtökum Osamas bin Lad- ens, var stuðningurinn almennur og víðtækur. Bandaríkjamönnum hefur ekki tekist að sýna heimsbyggðinni fram á að aðgerðirnar á hendur Írökum séu rökrétt framhald af því sem á undan er gengið í baráttunni gegn hryðjuverkum. Nú er þess beð- ið í arabaheiminum að sjá hvernig Bandaríkjamenn fara með vald sitt þegar stríðinu lýkur. Ólga og raunsæi togast á í pólitík Mið-Austurlanda Reuters Reuters Íraki lemur mynd af andliti Saddams Husseins með skó á meðan banda- rískur landgönguliði rífur myndina niður í bænum Safwan á föstudag. Leiðtogar í arabaheiminum einbeita sér nú margir að því að tryggja stöðu sína þegar við blasir gerbreytt pólitískt umhverfi og lenda réttum megin þegar upp er staðið, skrifar Karl Blöndal. Andrúmsloftið í Mið-Austurlöndum sýnir að það verður ekki hlaupið að því fyrir Bandaríkjamenn að öðlast trúverðugleika í þessum heimshluta. BANDARÍSKIR hermenn drógu að húni þjóðfána sinn og tóku niður þann íraska er þeir tóku hafnarbæinn Umm Qasr á föstudag. Er ljóst var að það þótti senda röng skilaboð að sjá bandarískan fána blakta yfir íraskri jörð var hann tekinn niður aftur. Í gær mætti innrásarlið Bandaríkjamanna og Breta nokkurri mótstöðu í bænum og féll einn bandarískur landgönguliði. Um 450 Írakar hafa verið tekin til fanga í bænum og umhverfis hann. Tóku fánann niður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.