Morgunblaðið - 23.03.2003, Page 22
22 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ELÍN Árnadóttir, eini ís-lenski efnatæknifræð-ingurinn, er komin á eft-irlaunaaldur og ætti meðréttu að láta af störfum í
lok apríl. Elín starfar hjá Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins og
hefur fengið leyfi til að vinna
áfram, eins lengi og mikið og hún
treystir sér til. „Hér starfar eng-
inn annar tæknifræðingur hjá
stofnuninni,“ segir Elín. „Og ég
hef heyrt að ég sé eini efnatækni-
fræðingurinn á landinu. Ég ætla
ekki að hætta á meðan ég er í
svona fínu formi og ég fæ að vera
hér. Þetta er skemmtilegt starf og
nú fæ ég að ráða mínum vinnu-
tíma að nokkru.“
Tilviljun
Elín segir að tilviljun hafi ráðið
því að hún innritaðist í efnatækni-
fræði við tækniskóla í Gautaborg
en þaðan lauk hún prófi árið 1976.
„Ég ætlaði að læra allt annað,“
segir Elín. „Það má segja að ég
hafi óvart og fyrir misskilning
lært efnatæknifræði. En þannig
var að við hjónin bjuggum í fjór-
tán ár í Gautaborg, þar sem mað-
urinn minn var við sérnám í lækn-
isfræði. Þegar börnin okkar fjögur
voru komin í framhaldsskóla
ákváðum við Sigríður Hannesdótt-
ir vinkona mín að rifja upp stærð-
fræðina úr menntaskóla, en henni
hafði ég ekki sinnt þegar ég átti
að gera það. Ég ætlaði að leika
mér með stærðfræðina en svo
vegna smámisskilnings þegar við
komum í skólann fór þetta öðru-
vísi. Konan sem tók á móti okkur
var ekki hrifin þegar við komum
og vildum fara að læra stærð-
fræði. Hún fór óðara að beina okk-
ur inn á aðrar brautir og vildi að
við færum til dæmis í listasögu
eða eitthvað annað kvenlegra en
þá gellur í Sigríði: „Nei við viljum
læra eitthvað teknískt …“ en á
sænsku þýðir það nám í tækni-
skóla en ekki eingöngu í stærð-
fræði. Þannig að við vorum reknar
út og vísað á annan skóla en þá
tók ekki betra við. Við ætluðum að
læra stærðfræði í tómstundum.
Svona pínulítið, eins og eitt fag í
öldungadeild í tækniskóla, en þeg-
ar við komum þangað var ekki um
annað að ræða en fullt nám.“
Saga eða
verslunarfræði
Elín segir að ekki hafi verið
tekið vel á móti þeim í tækniskól-
anum. Ungi maðurinn, sem þeim
var vísað á og þær ræddu við, vildi
endilega að þær færu í sögu eða
verslunarfræði. Það ætti betur
við.
„Við streittumst við í þó nokkra
stund eða þangað til hann gaf sig
og sagði að við gætum svo sem
reynt þetta. Alveg viss um að við
myndum ekki komast nokkurn
hlut áfram og gefast upp á stund-
inni. En það hljóp svo mikil
þrjóska í okkur – sem höfðum alls
ekki ætlað í fullt nám heldur gutla
svolítið og leika okkur – að við
hættum ekki fyrr en við vorum
Ætlaði að lesa stærðfræði
Tilviljun réð því að Elín
Árnadóttir lagði stund á
efnatæknifræði í stað stærð-
fræði. Kristín Gunnarsdóttir
ræddi við hana.
Morgunblaðið/Kristinn
Elín Árnadóttir, efnatæknifræðingur á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
SVANA Helen Björnsdóttirverkfræðingur og nánastasamstarfsfólk hennar,Bjarni Þór Björnsson
stærðfræðingur og meðeigandi,
Guðmundur Sigurðsson læknir og
Hjörleifur Pálsson verkfræðingur
hafa sett upp tvö rafvædd matskerfi
fyrir aldraða undir merkjum verk-
fræðistofunnar Stika.
Um er að ræða svokallað vistun-
armat og RAI mat aldraðra sem
fyrr segir, en að sögn Svönu nýta
þessi kerfi sér sérstakt öruggt heil-
brigðisnet sem kalla má heilbrigð-
isnet matskerfa. Þetta heilbrigðis-
net hefur Stiki hannað í samvinnu
við Landssíma Íslands og Opin
kerfi, sem í upphafi lánaði allan
búnað til verkefnisins.
Vistunarmat aldraðra var lögfest
árið 1990. Samkvæmt lögunum
skyldu allir sitja við eitt og sama
borð við mat á þörf er óskað var eft-
ir langtímavist á stofnun og mark-
miðið að þeir sem mesta hefðu þörf-
ina nytu forgangs. Matið er
þrískipt, þverfaglegur hópur kann-
ar félagslegar aðstæður, líkamlegt
atgervi, og andlegt atgervi og
færni. Að sögn Svönu og félaga varð
fljótt nær óvinnandi vegur að sam-
ræma skráningu og mat á umsókn-
um aldraðra um vist á stofnun,
skrifræðið í algleymingi og fjöldi
einstaklinga á skrá á mörgum stöð-
um.
RAI er skammstöfun fyrir: Raun-
verulegur aðbúnaður íbúa, nafnið
RAI-mat felur því í sér aðferð til
þess að meta heilsufar og aðbúnað
þeirra sem vistaðir eru á hjúkrun-
ar- og dvalarheimilum aldraðra.
Um er að ræða aðferð sem tekin var
upp í Bandaríkjunum fyrir rúmum
áratug og er háð höfundarrétti, en
heilbrigðisráðuneytið hefur tryggt
sér samning við fjölþjóðlegan um-
boðsaðila þess, Inter-Rai sem heim-
ilar notkun aðferðarinnar. Sam-
kvæmt reglugerð er skylt að meta
heilsufar og aðbúnað árlega og
byggja matið á RAI-aðferð.
Svana segir að RAI-kerfið og
vistunarmatskerfið keyri á sama
neti sem í daglegu tali hafi verið
nefnt heilbrigðisnet matskerfa sem
er hluti af íslenska heilbrigðisnet-
inu. „Allar heilbrigðisstofnanir og
aðilar sem nota fyrrgreind mats-
kerfi þurfa að tengjast matsgrunn-
unum með öruggum hætti. Um 30
stofnanir munu sjálfar skrá vistun-
armatsgögn. Nú þegar eru um 60
heilbrigðisstofnanir sem skrá RAI-
matsgögn. Þær munu einnig fá að-
gang að vistunarmatsgögnum.
Hluti þessara stofnana skráir mats-
gögn í bæði kerfin og áætlað er að
samanlagður fjöldi tengdra stofn-
ana, þ.e.a.s. skráningarstaða, verði
um áttatíu,“ segir Svana.
Persónuvernd í öndvegi
Ströng persónuvernd er nokkuð
sem Stiki hefur haft að leiðarljósi í
vinnu sinni við þessi kerfi og við
uppsetningu þeirra. Að sögn Svönu
og félaga, er á hverri stofnun settur
upp tölvuöryggisbúnaður, beinir og
eldvarnarveggur, með dulkóðunar-
hugbúnaði. Í samræmi við niður-
stöður í rannsóknarverkefni sem
unnið var hjá Háskóla Íslands sem
hluti af meistaraverkefni Hjörleifs
Pálssonar verkfræðings var valið að
nota IPSec dulkóðun til þess að
tryggja öryggi gagnaflutnings í
netsamskiptum. Vegna útbreiðslu
Cisco vélbúnaðar til slíkra nota var
leitað til Opinna kerfa, eins og áður
er getið, um lán á slíkum búnaði til
prófunar. Góðar niðurstöður próf-
ana og gæði búnaðarins leiddu svo
til þess að heilbrigðis- og trygging-
armálaráðuneytið valdi að kaupa
Cisco beint og dulkóðunarhugbúnað
í þá frá Opnum kerfum.
Aðkoma Landssíma Íslands er
með þeim hætti, að sögn Svönu, að í
samræmi við stefnu ráðuneytis um
uppbyggingu á íslensku heilbrigð-
isneti eru almennar gagnaflutnings-
leiðir notaðar til flutnings mats-
gagna í RAI- og vistunar-
matskerfum. „Heppilegast þótti að
nota ATM-net Landssíma Íslands.
Fyrir því lágu tvær ástæður. Önnur
var sú, að netið er lokað og hin, að
það tryggir notendum næga band-
vídd til gagnaflutnings. Þar sem
matskerfin tvö eru rauntímakerfi
og öll matsgögn skráð í gagna-
grunna sem hýstir eru á einum stað,
er mikilvægt að tryggja sem bestan
svartíma kerfanna. Fleira mætti
nefna, m.a. að um er að ræða svo-
kallað sýndareinkanet, VPN, en slík
net birtast notandanum eins og um
hans einkanet væri að ræða, en í
raun væri um hluta af almennu fjar-
skiptaneti sem næði um land allt að
ræða. Það er nánast útilokað fyrir
utanaðkomandi aðila að komast inn
á gagnastraum sem streymir frá
sýndarrásum í ATM neti og er ör-
yggi gagna í slíku neti sambærilegt
við gagnaöryggi á leigulínum. Að
auki eru svo gögnin dulkóðuð,“ seg-
ir Svana.
Vísir að Íslenska heilbrigðisnetinu
Svana og samstarfsmenn segja
að um þessar mundir séu nokkur
tilraunaverkefni í gangi við upp-
byggingu á Íslenska heilbrigðisnet-
inu, en að þeirra mati sé hér komin
mjög góð og örugg lausn sem nota
má og útvíkka fyrir íslenska heil-
brigðisnetið. Þróun heilbrigðisnets-
ins getur valdið gjörbyltingu í allri
þjónustu á heilbrigðissviðinu. „Hér
er gífurlegt hagræði á ferðinni,
pappír getur horfið úr kerfinu, bréf,
lyfseðlar, beiðnir og svör berast raf-
rænt á milli aðila um heilbrigðisnet-
ið. Allt verður aðgengilegra. Sparn-
aðurinn verður verulegur,
auðveldara og fljótlegra verður að
taka allar ákvarðanir og allt slíkt
verður betur fram sett. Þetta þýðir
betri þjónusta fyrir minni pening,“
segir Svana.
Bylting í þjónustu við aldraða
gudm@mbl.is
Verkfræðistofan Stiki hefur sett upp og hannað tvö rafvædd matskerfi, vistunarmat aldraðra og RAI-mat aldraðra, sem hafa valdið
byltingu í umsóknum, skráningu og mati á þörf aldraðra fyrir vist og þjónustu á stofnunum. Guðmundur Guðjónsson ræddi við
verkfræðingana Svönu Helen Björnsdóttur og Hjörleif Pálsson, Bjarna Þór Björnsson stærðfræðing og Guðmund Sigurðsson lækni.
Morgunblaðið/Kristinn
Eigendur og starfsmenn Stika, f.v.: Hrafnhildur Sveinbjörnsdóttir, Svana Helen
Björnsdóttir, Bjarni Þór Björnsson, Guðmundur Sigurðsson, Guðbrandur Guð-
mundsson, Hjörleifur Pálsson og Steffi Botzelmann.