Morgunblaðið - 23.03.2003, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
8 konur und
Fáar franskar kvikmyndir hafa í seinni tíð notið jafn-
mikilla vinsælda og viðurkenningar og 8 femmes eða
8 konur eftir hinn umdeilda leikstjóra François
Ozon, sem frumsýnd er hérlendis um helgina. Þessi
fagurlega hannaða blanda af morðgátu, gamanmynd,
ÞAÐ eru jólin. Allt er ákafi í snjó á einangruðusveitasetri í Frakklandiá 6. áratugnum þegarfjölskyldan safnast sam-
an til jólahalds. Konurnar eru átta,
á ýmsum aldri og ólíkrar gerðar.
Karlmaðurinn er einn, sjálfur fjöl-
skyldufaðirinn. Við sjáum hann
ekki en fylgjumst með konunum
hittast og fagna hver annarri í
vandlega litaðri leikmynd. En
fögnuður og hátíðahöld verða senn
víðsfjarri þegar maðurinn finnst
myrtur í herbergi sínu og grunur
og tortryggni vakna í kvennahópn-
um, ásakanir og gagnásakanir.
Hver er morðinginn? Er það eig-
inkonan (Catherine Deneuve)? Hin
pipraða systir hennar (Isabelle
Huppert)? Hin dularfulla systir
mannsins (Fanny Ardant)? Tann-
hvöss tengdamamma hans (Dan-
ielle Darrieux)? Þjónustustúlkan
ósvífna (Emmanuelle Béart)? Eða
ráðskonan móðurlega (Firmine
Richard)? Önnur hvor fallegu
dætranna (Virginie Ledoyen og
Ludivine Sagnier)?
Þessar átta konur í 8 konur eru
taflmennirnir í refskák hins 35 ára
gamla leikstjóra François Ozon
sem afhjúpar lygar þeirra og
leyndardóma jafnt og þétt á milli
þess sem þær bresta í söng og
dansa og sannleikurinn um líf
þeirra stígur fram í þessari til-
búnu, stílfærðu og lokuðu söguver-
öld. Ozon er einn djarfasti leik-
stjóri Frakka og hefur í þeim
fjórum kvikmyndum í fullri lengd
sem hann gerir fyrir 8 konur
fjallað um sifjaspell, morð, sjálfs-
víg, sjálfspyntingarhvöt og gægju-
þörf. En engin fyrri mynda Ozons
hefur fengið viðlíka viðtökur og 8
konur. Hún vann t.d. Silfurbjörn-
inn í Berlín, fékk 12 tilnefningar
til Sesarverðlaunanna í heimalandi
leikstjórans þar sem 3,7 milljónir
manna sáu hana; erlendis hafa um
2,3 milljónir látið heillast af 8 kon-
um.
François Ozon er myndarlegur,
dökkhærður maður, opinn og
þægilegur viðræðu. 8 konur er
byggð á leikriti og leikstjórinn
reynir ekki að fela það heldur
þvert á móti nýtir sér afmarkað
rýmið til að ýta undir einangr-
unartilfinningu hjá áhorfand-
anum. En þegar hann er spurður
hvort söng- og dansatriðin hafi
einnig verið í leikritinu segir
hann svo ekki hafa verið. Þeim
bætti hann við og eykur þannig
enn á stílfærslu þessa gerviheims;
annað slíkt áhrifabragð er að láta
leikkonurnar tala beint við
myndavélina. „Þessu voru leik-
konurnar ekki vanar,“ segir hann.
„Það er því í þessum atriðum sem
ekki aðeins persónurnar heldur
leikkonurnar um leið afhjúpa sína
viðkvæmu, brothættu eiginleika.
Hugmyndin var að þarna felldu
bæði leikkonur og persónur grím-
ur sínar og opna innsýn í það sem
undir býr.“
Skrímsli eða ekki skrímsli
Það væri synd að segja að mynd-
in sýni þessar kvenpersónur í já-
kvæðu ljósi. Köld eru kvennaráð,
gæti myndin fullt eins heitið, og
Catherine Deneuve, ein aðal-
leikkonan, hefur kallað þær
„skrímsli“. Hafa feministar gert at-
hugasemdir við kvenlýsingarnar?
„Nei,“ svarar Ozon brosandi.
„Þetta er gamanmynd. Sannarlega
birtir hún grimmd þessara kvenna,
en einnig viðkvæmni þeirra og
nærgætni. Við sjáum samstöðu
þeirra á vissum augnablikum ekki
síður en sundrungu. Það væri frek-
ar að hlutverk karlmannsins í verk-
inu sé einhliða og neikvætt. Hann
er rola.“
En hvað segirðu um þau ummæli
Deneuve að kvenpersónurnar séu
skrímsli?
„Hefur hún virkilega sagt þetta?
Jæja, kannski líður henni eitthvað
illa með sjálfa sig. Í mínum huga
eru þær ekki skrímsli. Þær eru á
vissan hátt ýktar persónur en þær
þjást og maður fær samúð með
þeim. Þær eru ekki skrímsli nema í
þeim skilningi að við erum öll
skrímsli á vissan hátt. Manneskjur
eru flóknar og margsamsettar;
einnig þessar átta konur.“
Karlmaðurinn hefur gert sitthvað
hræðilegt en samt er hann fórn-
arlambið í myndinni. Er hann fórn-
arlamb þessara kvenna eða sjálfs
sín og þess sem hann hefur gert?
„Hvað heldur þú?“ spyr Ozon
kankvís á móti. „Hver og einn
verður að meta það fyrir sig.“
Hann segir að allar þessar stóru
frönsku leikkonur hafi lagt sitt af
mörkum við persónusköpunina og
sumu hafi hann jafnvel breytt í
handriti vegna tillagna frá þeim.
En var erfitt að ná þeim öllum
saman, búa til þennan sterka leik-
hóp?
„Ekki eins erfitt og ég bjóst við.
Þær virðast hafa treyst mér og
áttu ekki í neinum vandræðum með
að vinna saman. Sumar leikkonur
vissi ég að vildu ekki leika á móti
öðrum stórstjörnum, leikkonur eins
og Isabelle Adjani og Sophie
Marceau. Umboðsmenn þeirra
sögðu nei en kannski núna, þegar
myndin hefur slegið í gegn, gegndi
öðru máli.“
Gildi tilraunanna
Kemur velgengni 8 kvenna hon-
um á óvart?
„Já, vegna þess að í upphafi var
handritið mjög tilraunakennt og
skrýtið, m.a. þessi blanda af leikn-
um og sungnum atriðum. Ég vissi
að þessar frægu leikkonur myndu
vekja athygli á myndinni en viðtök-
urnar hafa farið fram úr mínum
björtustu vonum. Ég er mjög
ánægður með að hafa náð til stærri
áhorfendahóps en mér hefur áður
tekist. Að vissu leyti var ég í þess-
ari mynd að reyna að ná aftur
sambandi við barnið í mér. Svei
mér, ef það hefur ekki tekist. Mig
langaði til að gera mynd sem ég
hefði sjálfur gaman af, mynd sem
hefði innanstokks sem mest af því
sem ég elska í kvikmyndum. Ég
þurfti hins vegar að vinna hratt,
því tökutíminn var aðeins tveir
mánuðir, og gat ekki leyft mér að
vera of sjálfsmeðvitaður.“
Er mikilvægt fyrir þig að reyna
sífellt eitthvað nýtt þegar þú gerir
kvikmyndir, prófa ólík kvikmynda-
form t.d.?
„Já, mér finnst gaman að gera
tilraunir og prófa mig áfram í
sköpuninni. Ég forðast að end-
Höfundurinn: François Ozon
Köld eru kven
François Ozon á tökustað: Langaði að
gera bíómynd sem ég hefði sjálfur
gaman af að horfa á …
„FYRST langar mig til að segja þér
að ég var á Íslandi í hitteðfyrra og
það var einn besti staður sem ég hef
nokkurn tíma komið til.“ Þannig tekur
Ludivine Sagnier forystuna í upphafi
viðtals. Hún er sú ljóshærða sem leik-
ur yngri og, að því er virðist, lítt lífs-
reyndu dótturina í 8 konur. Hún er 22
ára, en persónan sex árum yngri.
Rétt eins og Virginie Ledoyen byrjaði
hún að leika mjög ung að árum, eða
um tíu ára, og hefur yfir tvo tugi
mynda að baki. Frami hennar í seinni
tíð hefur verið mjög hraður, enda er
hún afar hæfileikarík leikkona, sem
bæði sést á leik hennar í 8 konur og
því að hún er þegar búin að leika í
þriðju mynd sinni fyrir François Ozon
og nú síðast í amerískri stórfram-
leiðslu, Pétri Pan eftir Ástralann P.J.
Hogan.
Hún er líka óvenju líflegur, hrein-
skilinn og skemmtilegur viðmælandi
með hása, heillandi rödd. Hún heldur
áfram, uppnumin yfir Íslandsferðinni:
„Ég fór til Íslands í frí vegna þess að
mig langaði að sjá eldfjöll, leigði mér
bíl og keyrði allan hringinn í þrjár vik-
ur. Fór til Landmannalauga,“ – hún
man og ber nöfnin fram kórrétt –
„Jökulsárlón, Þórsmörk. Þetta var
stórkostlegt!“
Fyrsta mynd hennar með Ozon var
einnig byggð á leikriti, eins og 8 kon-
ur; það var Vatn drýpur á brennandi
steina (1999), sem Rainer Werner
Fassbinder samdi. „Þetta var
stærsta hlutverk sem ég hafði þá
fengið. Mig hafði alltaf langað til að
leika á sviði en ekki haft tækifæri til,
dáði Fassbinder og myndir François
Ozon, og þarna sameinaðist þetta
þrennt. Það var dásamlegt. Vinnu-
brögðin voru leikhúsleg; við æfðum
verkið í tímaröð. Þetta gerði hina
dramatísku vinnu stigmagnaða í
spennu. Ég fékk sömu tilfinningu þeg-
ar við vorum að gera 8 konur á leik-
húslýstu sviði en þurftum samt að
skapa trúverðugan mannlegan sögu-
heim. François tók hana líka í réttri
tímaröð og það finnst mér mjög
skemmtileg og gefandi aðferð.“
Hvernig vinnur hann með leik-
urum?
„Hann skilgreinir ekki persónu-
sköpunina svo mikið fyrirfram heldur
vill frekar að við vinnum hana með
hugmyndafluginu. Hann er frekar hlé-
drægur leikstjóri að þessu leyti. En
t.d. í 8 konum leikstýrði hann þessum
8 leikkonum með ólíkum hætti. Þetta
eru svo ólíkir persónuleikar; Cather-
ine Deneuve vinnur allt öðru vísi en
Isabelle Huppert sem vinnur öðruvísi
en Fanny Ardant o.s.frv. Sumar vilja
mikla leikstjórn, aðrar vilja enga. Ég
þarfnaðist hvatningar en fékk hana
ekki í miklum mæli frá honum.“ Hún
hlær að hreinskilni sinni. „Hann hafði
í svo mörg horn að líta. Hann er mjög
kröfuharður við mig – sagði: „Þú ert
yngst og reynsluminnst og verður að
leggja hart að þér. Ég þarf að sinna
stórstjörnunum og þú verður að
sanna þig.“ Hann talaði ekki mikið við
mig.“ Þetta segir hún blátt áfram og
alveg beiskjulaust.
En nú ertu nýbúin að leika í þriðju
myndinni fyrir hann, Sundlauginni,
þannig að hann hlýtur að vera
ánægður með þig?
„Ja, ég vona það. Og eftir því sem
ég vinn meira fyrir hann krefst hann
sífellt meira af mér. Þetta verður
þannig ekkert auðveldara. En mér
finnst það ágætt. Margir leikstjórar
vinna með því að skjalla leikara: „Þú
ert stórkostleg. Alveg dásamleg. Ekki
breyta neinu.“ François segir frekar:
„Haltu áfram. Þetta er ekki nóg. Ég
vil meira.“ Ég skil þetta þannig að
hann meti mig sem leikkonu og vilji
að ég taki framförum. Hann er læri-
faðirinn minn.“
Hún segist hafa þurft að fara í leik-
prufu fyrir 8 konur vegna þess að
Ozon hafi óttast að hún væri of kven-
leg til að leika strákslega stelpu, eins
og yngri dóttirin er. „Ég féll á prófinu
og hann sagðist því miður þurfa að
ráða aðra leikkonu. Mér fannst þetta
heimsendir fyrir mig; ég hafði bundið
svo miklar vonir við þessa mynd. En
tíu dögum fyrir tökur kom í ljós að
leikkonan sem átti að leika mitt hlut-
verk var barnshafandi. François
hringdi og sárbændi mig að koma til
hjálpar. Ég þóttist ekki hafa áhuga
fyrst í stað, en gafst svo upp á að
leika og hoppaði hæð mína um leið og
ég lagði símtólið á. Ég þurfti að vinna
hlutverkið hratt og skal opinbera það
fyrir þér að ég sótti persónusköp-
unina ekki aðeins í mína karlmann-
legu eiginleika heldur byggði ég hana
líka á François sjálfum.“
Veit hann af því?
„Já,“ segir hún prakkaralega, „en
hann vill ekki að ég segi það. Og nú er
ég búin að segja þér það.“
Voru stjörnuleikkonurnar góðar við
þig?
„Já, auðvitað. Ég var barnið á
staðnum. Það ríkti góður andi í tök-
unum. Allar þessar konur að tala um
eldamennsku, börn og allt það. Við
lékum konur sem eru nánar og skyld-
ar og þannig samband myndaðist
smám saman milli okkar.“
Hún segist stolt af myndinni og
glöð yfir velgengni hennar. „En hvort
ein milljón manna sér myndina eða
fjórar milljónir er ekki málið fyrir mig.
Hún kann að breyta minni stöðu sem
leikkona og styrkja hana. Kannski ber
ég mest úr býtum af öllum þessum
leikkonum því þeirra staða var sterk
fyrir. Nú get ég frekar byggt minn feril
eins og ég vil hafa hann.“
Nú er hún að leika eitt aðal-
hlutverkanna í Pétri Pan, hina mál-
lausu Skellibjöllu, og segist njóta þess
töfraheims til fullnustu. „Tæknilega
er þetta erfitt verkefni og ég fæ
skemmtilega innsýn í brellulistina.
Ameríkanar vinna miklu meira en
Frakkar í kvikmyndagerð, 13 tíma
vinnudag sem hefst klukkan 6 á
morgnana. Hérna fáum við klukku-
tíma í hádegishlé, væna máltíð og vín
með og allir reykjandi, en í Ameríku
er hádegishléið hálftími, hvergi má
reykja og ekkert áfengi leyft. Ég kann
betur við frönsku leiðina. Í Hollywood
var mér bannað að fá mér drykk með
bílstjóranum mínum. Ég kann ekki við
svona einangrun, snobb og stétta-
skiptingu.“
Þannig að vinna í Hollywood er ekki
framtíðardraumur þinn?
„Ef leikstjórar eins og Tim Burton
eða David Lynch eða Steven Soder-
bergh byðu mér áhugavert hlutverk
myndi ég strax segja já. En mig lang-
ar ekki að tilheyra framleiðsluvélinni
vestra. Ég hef aldrei átt mér Holly-
wood-draum. Minn draumur er evr-
ópskur.“
Hún segir að þegar hún var ung
stelpa hafi draumurinn verið að verða
leikkona eða blaðamaður, svo lög-
fræðingur, svo læknir, svo kennari.
„Ég sagði við sjálfa mig að eina leiðin
til að láta alla þessa drauma rætast
væri að leika hin ólíku hlutverk; eina
leiðin til að eignast mörg líf er að
verða leikari. Og blekkingin er miklu
skemmtilegri en hinn niðurdrepandi
veruleiki.“ Hún hlær.
Er þá eitthvað sem þér líkar ekki
við leiklistina?
„Kynningarviðtöl! Nei, annars. Ég
skynja vissa hættu – hættu á að
þjást of mikið, að ganga of nærri
sjálfri mér. Þegar maður skapar sárs-
aukafullar tilfinningar og fórnar sjálf-
um sér um leið er viss hætta á að
missa tökin. Þetta er ekki auðvelt,
getur verið dapurlegt, en það á heldur
ekki að vera auðvelt. Við erum öll
hrædd við að deyja en við tökumst á
við það.“
Mörg líf leikarans
Ludivine Sagnier: Hættan við starf
leikarans er að þjást of mikið …
Yngri dóttirin: Ludivine Sagnier