Morgunblaðið - 23.03.2003, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 39
PLUS
PLUS
ww
w.
for
va
l.is
Halldór G. Meyer
Gsm 864 0108
Heimilisfang: Hvassaleiti 28.
Stærð íbúðar: 126,3 fm
Stærð bílskúrs: 20,7 fm
Brunabótamat: 15,8 millj.
Byggingarár: 1960.
Verð 15,9 millj.
FALLEG 5 HERBERGJA ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ
MEÐ AUKAHERBERGI Í KJALLARA OG
BÍLSKÚR. 4 rúmgóð svefnherbergi eru á
hæðinni ásamt stórri stofu. Parket á öllum
herbergjum nema einu sem er dúklagt.
Eldhús með eldri innréttingu og dúk á gólfi.
Baðherbergi með baðkari – tengi fyrir
þvottavél. Aukaherbergi í kjallara sem
hægt væri að leigja út. Stór og góð
geymsla. Upphitaður bílskúr.
Halldór Meyer, sölufulltúi Re/max, sýnir
eignina frá kl. 14–16 í dag.
Hrafnhildur Bridde
lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS – 6 herb. – 103 RVÍK
www.hofdi.is
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Lækjargata 18, Hf. - Opið hús í dag frá kl. 14 til 17
Er þetta húsið þitt? Verið velkomin að
skoða glæsilegt 172 fm hús staðsett í
hjarta bæjarins. Byggt 1999 og engu
til sparað, frábært eldhús, skemmti-
leg gólfefni. Sjón er sögu ríkari. Hag-
stæð áhv. lán. Verð 24,5 millj.
Gils og Rósa taka vel á móti gest-
um og gangandi.
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafræðingur, löggiltur fasteigna- og skipasali
Þrastarás 28, Hf. - Opið hús í dag frá kl. 14 til 17
Nú þarft þú ekki að leita lengra.
Glæsilegt 190 fm endaraðhús á
tveimur hæðum. Góður bílskúr, frá-
bær staðsetning og glæsilegt útsýni.
Eldhús, innréttingar og allur frágangur
í sérflokki. Verð 23,5 millj.
Jón tekur vel á móti gestum,
verið velkomin!
Gistiheimilið Hvammur á Höfn
Vorum að fá í sölu þetta fallega og vel
rekna gistiheimili sem staðsett er við
smábátahöfnina. Í húsinu, sem er
mjög mikið endurnýjað og glæsilegt,
er þriggja herbergja „penthouse“-íbúð
ásamt 11 herbergja gistiheimili. Sjón
er sögu ríkari. Verð 29 millj. Áhv. hag-
stæð lán 24 millj. Allar nánari upplýs-
ingar veita sölumenn Höfða.
jöreign ehf
Sími 533 4040
www.kjoreign.is
Ármúla 21, Reykjavík
Dan V.S. Wiium hdl.,
lögg. fasteignasali,
NÝJAR/NÝLEGAR EIGNIR Á SKRÁ HJÁ OKKUR
LÓÐIR/JARÐIR
LÓÐ Á ARNARNESINU Eigum til
eina sjávarlóð á Arnarnesi í Garðabæ,
glæsileg staðsetning, öll gjöld greidd og
þetta er eignarlóð. Uppdráttur til á skrif-
stofu, þó er ekki búið að teikna neitt hús á
lóðina svo allir möguleikar eru opnir. Uppl.
veittar á skrifstofu hjá Dan eða Hákoni.
2JA HERBERGJA
VESTURBERG Stór, björt og rúm-
góð íbúð. Parket á gólfum, laus, ekkert
áhvílandi, stórar svalir. Verð 7,9 millj. Nr.
3620
KRÍUHÓLAR 2ja herb. íbúð á 2. hæð
í lyftuhúsi, útgangur út á stórar svalir til
austurs. Sérgeymsla í kjallara. Sameign
mjög snyrtileg, nýleg teppi. Hús í góðu við-
haldi. Gott leiksvæði fyrir börn. Verð 7,8
millj. Nr. 3611
LAUGARNESVEGUR Rúmgóð og
björt kjallaraíbúð, lítið niðurgrafin, á góðum
stað í Laugarnesinu. Íbúðin er 2ja-3ja herb.
Stutt í alla þjónustu. Verð 8,7 millj. Stærð
62 fm. Nr. 3618
3JA HERBERGJA
ÁLFTAMÝRI - M. BÍLSKÚR
Rúmgóð mikið endurnýjuð 3ja herb. íbúð á
4. hæð. Glæsilegt útsýni. Stærð 87 fm. Nýl.
bílskúr 21 fm. Örstutt í skóla o.fl. þjónustu.
Laus strax. Áhv. ca 5.0 millj. Verð 13,5 millj.
Nr. 3407
GNOÐARVOGUR Góð íbúð sem
hefur allt sér, en sameiginlegt þv.hús, hver
með sína vél. Vel staðsett í vinsælu hverfi.
81,5 fm. Flísar og parket á gólfum, sólskáli
o.fl. spennandi. Verð 11,5 millj. Nr. 3610
HÆÐIR
MÁVAHLÍÐ Mjóg góð sérhæð á 1.
hæð hússins, falleg gólf, baðherbergi ný-
legt, góð staðsetning, sam. þvottahús.
Verð 19,8 millj. Nr. 3472
RAÐHÚS/PARHÚS
GNITAHEIÐI - RAÐHÚS Vandað
nýlegt raðhús, tvær hæðir og ris, á fallegum
útsýnisstað rétt fyrir ofan Smárann. Hús
vandað og innréttingar sérlega skemmtileg-
ar. Falleg gólf. Verð 24,9 millj. Nr. 3458
FJARÐARSEL Endaraðhús á tveimur
hæðum ásamt sérbyggðum bílskúr. Rúmgóð-
ar stofur, fallegar innréttingar og gólf. Verð
17,9 m. Áhv. 8,2 húsbr. og byg.sj. Nr. 3470
JÓNSGEISLI - PARHÚS á tveim
hæðum, steypt einingahús m. einangraða
útveggi. Til afhendingar strax, fullfrágengið
að utan, gott fyrirkomulag, útsýni, innbygg.
bílskúr. Nr. 3453-3454
DALSEL Gott endaraðhús á þremur
hæðum með innréttaðri 2ja herbergja íbúð
á jarðhæð og merktu sérstæði í sameigin-
legri bílageymslu. Stærð 211 fm. Verð 19,8
millj. Nr. 3468
EINBÝLI
BOLLAGARÐAR/Seltjn. Nýlegt
vandað einbýlish. Hæð og ris m. innb. bíl-
skúr, ca 220 fm. Sérlega gott fyrirkomulag,
frábær staðsetning. Rúmgóðar stofur, ar-
inn. Vönduð eign en án gólfefna á neðri
hæð. Nr. 2355
ATVINNUHÚSNÆÐI
LAUGAVEGUR
Um er að ræða 377,9 fm jarðhæð auk
262,3 fm kjallara. Húsnæðið er nú nýtt fyrir
útibú Íslandsbanka. Verð 59,0 millj. Nr.
1386
FAXAFEN Um er að ræða skrifstofu-
húsnæði sem búið er að innrétta sem
kennsluhúsnæði. Niðurtekin loft, vönduð
gólfefni, allur frágangur er hreint afbragð.
Stærð 1.668 fm. Nr. 3459
Auk fjölda annarra eigna á skrá. Hafið
samband við sölumenn vegna frekari uppl.
Skrifstofan opin í dag frá kl. 12-14
NÝJAR/NÝLEGAR EIGNIR Á SKRÁ HJÁ OKKUR
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
HLYNSALIR 5-7
GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Í LYFTUHÚSI
2 FULLBÚNAR ÍBÚÐIR TIL SÝNIS
Sérlega vel staðsett fjögurra hæða, 24 íbúða
lyftuhús, þar sem allar íbúðir eru 3ja og 4ra
herbergja. Íbúðirnar hafa sérinngang af svala-
gangi, auk þess sem stæði í bílageymslu fylgir
öllum íbúðum. Val er um eik eða mahóní-viðar-
spón í innréttingar. Húsið stendur ofarlega í
Salahverfinu og er því á hæsta byggða svæði í
Kópavogi. Glæsilegt óhindrað útsýni er úr öll-
um íbúðum, útsýnið er frá suðri til norð-aust-
urs. Svalir íbúðanna snúa til suðurs.
SL. FÖSTUDAGUR, 21. mars,
var alþjóðlegur baráttudagur Sam-
einuðu þjóðanna gegn rasisma. Að
því tilefni stendur nú yfir viðamikil
dagskrá í Alþjóðahúsinu við Hverf-
isgötu í Reykjavík og vil ég hvetja
sem flesta til að líta við og kynna
sér það góða starf sem þar er unn-
ið.
Það er einlæg von mín að kyn-
þáttafordómum verði sem allra
fyrst útrýmt úr okkar samfélagi því
slíkir fordómar eru eyðileggjandi
og þar með hættulegir fyrir sam-
félagið allt, ekki bara fyrir þá sem
fordómarnir beinast gegn heldur
ekki síður þeim sem þá hafa. Til að
fordómum verði útrýmt þurfum við
fyrst að líta í eigin barm og við-
urkenna að öll berum við þar
ákveðna fordóma, meðvitaða eða
ómeðvitaða, hvort sem við viljum
það eður ei. Við þurfum að vera
hreinskilin við okkur sjálf og gera
okkur grein fyrir því hvaðan þessir
kynþáttafordómar koma, af hvaða
meiði þeir eru sprottnir. Í mínum
huga er alveg ljóst að fordómar,
hvaða nafni sem þeir nefnast og
ekki síst kynþáttafordómar eru
fyrst og fremst hræðsla við hið
óþekkta. Þeir eru runnir af sama
meiði og hræðsla við breytingar,
ótti við umbætur og andstaða við
framþróun. Eins og dæmin sanna
leiða fordómar ekki einungis til
átaka milli einstaklinga heldur geta
þeir einnig stuðlað að átökum milli
þjóða og heimshluta.
Ég er sannfærður um að öfl-
ugustu tæki okkar í baráttunni
gegn kynþáttafordómum séu þekk-
ing, fræðsla og upplýsing almenn-
ings í okkar þjóðfélagi. Við þurfum
að kynnast hvort öðru betur, læra
að skilja og bera gagnkvæma virð-
ingu fyrir ólíkum bakgrunni hvers
annars og ólíkum menningarheimi.
Við þekkjum mörg dæmi úr sögu
lands og þjóðar um þá fjölmörgu já-
kvæðu strauma og áhrif sem inn-
flytjendur og erlendir gestir hafa
flutt til landsins, áhrif og þekkingu
á sviði lista og menningar, viðskipta
og íþrótta svo einhver dæmi séu
nefnd. Í uppbyggingu íslensks sam-
félags á undanförnum árum hefur
verið lögð mikil áhersla á alþjóða-
væðingu. Í því sambandi þarf hvoru
tveggja að fylgjast að, það að sækja
þekkingu og að deila henni með
öðrum. Það annars vegar að fara
utan og hins vegar að fá hingað til
lands nýtt fólk til lengri eða
skemmri dvalar.
Borgaryfirvöld í Reykjavík líta
svo á að það séu mikil auðæfi falin í
þekkingu og reynslu fólks frá öðr-
um menningarsvæðum. Við fögnum
aukinni fjölbreytni borgarlífsins og
viljum leggja okkar af mörkum til
þess að allir borgarbúar njóti henn-
ar sem best. Í þeim tilgangi hefur
Reykjavíkurborg mótað sér stefnu
um fjölmenningarsamfélagið sem
hefur það að leiðarljósi að reykvískt
samfélag fái notið fjölbreytni í
mannlífi og menningu þar sem
þekking, víðsýni, jafnrétti og gagn-
kvæm virðing einkenni samskipti
fólks af ólíkum uppruna.
Málið er ofarlega á dagskrá
borgaryfirvalda og hefur verið unn-
ið markvisst að því að skipuleggja
þjónustu fyrir innflytjendur und-
anfarin ár og auðvelda þeim með
ýmsum hætti aðlögun að íslensku
samfélagi. Aðild Reykjavíkurborgar
að stofnun Alþjóðahússins var stórt
skref í því starfi.
Það er mikilvægt að við sem
stýrum borginni tökum skýra af-
stöðu gegn kynþáttafordómum og
ákveðum hvernig við ætlum að
stuðla að því að borgarbúar geti
sem best nýtt sér allt það sem fjöl-
menningarsamfélagið hefur upp á
að bjóða. Enn mikilvægara er þó að
hver og einn einstaklingur geri upp
sinn hug í því efni.
Á þeim stutta tíma sem ég hef
verið í starfi borgarstjóra hef ég
hitt sendiherra nokkurra þeirra
ríkja sem innflytjendur hér á landi
koma frá. Á fundum okkar hef ég
sett fram þá ósk að þeir láti mig
persónulega vita ef þeim finnist að
þegnar þeirra hafi orðið fyrir for-
dómum eða á þeim brotið innan
borgarinnar, því það mun ég aldrei
líða. Ég tel að hver einasti íslensk-
ur þegn verði að axla ábyrgð og
taka persónulega afstöðu gegn kyn-
þáttafordómum. Að þeir láti sig þá
varða og láti aldrei líðast að fólk
verði fyrir mismunun hér á landi
vegna uppruna, hörundslitar, eða
menningar.
Við líðum
ekki fordóma
Eftir Þórólf
Árnason
„Ég tel að
hver einasti
íslenskur
þegn verði
að axla
ábyrgð og taka per-
sónulega afstöðu gegn
kynþáttafordómum.“
Höfundur er borgarstjóri.