Morgunblaðið - 23.03.2003, Page 50
50 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ER hægt að biðja um frið á jörð
með reiði og hatur í huga? Geta
slík mótmæli skilað tilætluðum ár-
angri? Þessara
spurninga verð-
ur að spyrja nú
þegar mörg stríð
geisa í heimin-
um. Ég skil vel
að ástandið í
Írak kalli fram
margar tilfinn-
ingar í brjóstum
manna. Ég er yf-
irlýstur friðar-
sinni, bið fyrir friði á hverjum degi
og er meðlimur í alþjóðlegum frið-
arsamtökum. Ég styð ekki stríð.
En setja verður spurningarmerki
við mótmælaaðferðir friðarsinna.
Hatur og reiði skaða engan nema
þá sem bera þær tilfinningar í
brjósti sér. Hægt er að finna frið-
samlegar leiðir til mótmæla og þar
vitna ég til mikilsverðari friðar-
sinna á borð við Mahatma Ghandi
og Nelson Mandela. Það liggur
styrkur í fjöldanum. En hatur leið-
ir alltaf af sér meira hatur. Besta
leiðin til að koma á friði í heiminum
felst í því að finna frið innra með
sjálfum sér. Margir menn hafa
reynt að breyta heiminum án þess
að breyta sjálfum sér. Þeim hefur
mistekist. Gandhi sagði: Þú verður
að vera breytingin sem þú vilt sjá
verða í heiminum. Við getum ekki
ætlast til þess að hafa áhrif á
ástand mála í heiminum með því að
öskra á ráðherra, lenda í slagsmál-
um og henda málningu á stjórn-
arráðið. Enginn er heilagur í al-
þjóðastjórnmálum. Látum söguna
dæma um það. Eina sem við getum
gert er að leita að friði innra með
okkur og skipuleggja í framhaldi
friðsamleg mótmæli. Til lengri
tíma litið er slík aðferðafræði lík-
legri til árangurs. Við búum í lýð-
ræðissamfélagi og getum kosið, við
getum skrifað í blöðin, lagt niður
vinnu í mótmælaskyni, sýnt and-
stöðu okkar á friðsamlegan máta.
Við verðum engu að síður að hafa í
huga að við getum ekki breytt öðr-
um, við getum einungis breytt okk-
ur sjálfum.
Megi friður ríkja á jörð.
Megir þú finna frið núna!
GUÐJÓN BERGMANN,
jógakennari og friðarfulltrúi
WPPS á Íslandi, Ármúla 38,
108 Reykjavík.
Friðlausir
friðarsinnar?
Frá Guðjóni Bergmann
Guðjón Bergmann
EINHVERRA hluta vegna telja
frambjóðendur Samfylkingarinnar
eðlilegt að halda því fram að stöð-
ugar skattahækkanir hafi verið á
yfirstandandi kjörtímabili. Eins og
þingmenn Samfylkingarinnar ættu
að vita hefur ríkisstjórnin lækkað
tekjuskatt á einstaklinga um 4% á
síðustu árum. Þetta verður vita-
skuld ekki flokkað sem skatta-
hækkun, en væri í því sambandi
hægt að nefna Reykjavíkurborg
sem dæmi um skattahækkun. Á
sama tíma og ríkisstjórnin hefur
lækkað tekjuskattinn, hefur R-list-
inn hækkað útsvarið í Reykjavík og
það þrátt fyrir skýr loforð fyrir
kosningar um hið gagnstæða.
Annað dæmi um skattalækkun er
að tekjuskattur á fyrirtæki hefur
lækkað niður í 18%, en hann var
30% í byrjun kjörtímabilsins og
50% fyrir rúmum áratug. Þetta
kallar Samfylkingarfólk ekki
skattalækkun, sem er ef til vill
skiljanlegt þegar litið er til þess að
Samfylkingin beitti sér ákaft gegn
þessari lækkun skattsins. Þessi
skattalækkun á fyrirtæki hefur
orðið til þess að efla íslenskt at-
vinnulíf, sem meðal annars sést á
því að íslensk útrásarfyrirtæki
kjósa nú að vera með sem stærstan
hluta starfsemi sinnar hér á landi.
Enn má nefna að eignarskattar rík-
isins hafa verið lækkaðir um helm-
ing, auk þess sem sérstakur eign-
arskattur hefur verið felldur brott.
Frambjóðendur Samfylkingunnar
virðist vera þeirrar skoðunar að
þetta sé ekki skattalækkun, en
engu að síður er þetta nokkuð sem
kemur sér ákaflega vel fyrir íbúð-
areigendur, sérstaklega þá sem
eldri eru og búa í skuldlausu hús-
næði. Staðreyndin er þess vegna sú
að ríkið hefur lækkað skatta á síð-
ustu árum. Það er umhugsunarvert
fyrir kjósendur þegar frambjóð-
endur geta ekki viðurkennt einfald-
ar staðreyndir en telja sig þess í
stað þurfa sýknt og heilagt að klifa
á sömu rangfærslunum.
PÉTUR ÁRNI JÓNSSON,
Tjarnarbóli 14.
Samfylkingin neitar
staðreyndum
Frá Pétri Árna Jónssyni
Alltaf á þriðjudögum