Morgunblaðið - 23.03.2003, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 53
DAGBÓK
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 28. mars og
laugardaginn 29. mars í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Námskeið verður haldið dagana 29., 30. og 31. mars um
meðferð ilmolía við sjúkdómum. Einnig verða kynntar þær
vísindarannsóknir, sem hafa farið fram á undanförnum
árum um virkni olíanna á líkama og sál.
Kennarar verða dr. Erwin Haringer prófessor í
heimilislækningum og lífeðlisfræðum og
Margret Demleitner, grasalæknir og ilmolíufræðingur.
Bæði frá München. Kennt verður á ensku með túlkun.
Allt áhugafólk velkomið.
Nánari upplýsingar eru í Lífsskólanum,
sími 557 7070, netfang: lifsskolinn@simnet.is
www.simnet.is/lifsskolinn
LÍFSSKÓLINN
AROMATHERAPYSKÓLI ÍSLANDS
S ími 557 7070 - Fax 557 7011 - lifskoli@simnet.is
Húsmæðraorlof
Gullbringu- og Kjósarsýslu
Bessastaðahreppur, Garðabær, Gerðahreppur, Grindavík,
Kjósarhreppur, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Sandgerði,
Seltjarnarnes, Vatnsleysuströnd.
Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver
kona sem veitir, eða hefur veitt heimili forstöðu, án
launagreiðslu fyrir það starf.
Kárahnjúkar – Svartiskógur . . . . . . . . 27. til 29. júní.
Ítalía – Gardavatn. . . . . . . . . . . . . . . . 17. til 24. ágúst.
Helsinki – Tallin . . . . . . . . . . . . . . . . . 25. til 29. sept.
Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og taka á móti
pöntunum í síma á milli kl. 17 og 19 á virkum dögum frá
24. mars til 4. apríl nk.
Svanhvít Jónsdóttir . . . . . . . . . . . . . . 565 3708
Ína Jónsdóttir. . . . . . . . . . . . . . . . . . . 421 2876
Guðrún Sigurðardóttir . . . . . . . . . . . . 426 8217
Guðrún Eyvindsdóttir . . . . . . . . . . . . . 422 7174
Valdís Ólafsdóttir . . . . . . . . . . . . . . . . 566 6635
Sigrún Jörundsdóttir . . . . . . . . . . . . . 565 6551
Orlofsnefndin.
UM FLJÓTSHLÍÐ
Eyjafjalls grætur ásinn þar
ísa frá toppi hám
og hrynja lætur hvarmskúrar
haglið úr mekki blám,
af því að fætur Fljótshlíðar
fljótið sker uppað knjám –
Yggdrasils rætur við svo var
vættur með hvofti grám.
Bjarni Thorarensen
LJÓÐABROT
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú kafar djúpt í hlutina
og ert námfús. Þú ert vel
að þér í mörgu og getur átt
samræður við ólíkt fólk.
Leggðu hart að þér á
árinu því að þú munt
uppskera árið 2004.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú átt þess kost í dag að
eignast útlendan vin. Þér
finnst það spennandi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér kann að finnast eigin
tilfinningasemi fullmikil í
dag. Sýndu þolinmæði og
hugsaðu ekki of mikið um
þetta. Á morgun verður
þetta liðið hjá.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Athygli þín beinist að nán-
ustu samböndum þínum í
dag. Hlýddu á aðra af þol-
inmæði og svaraðu svo.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert staðráðin(n) í að
bæta heilsuna á einhvern
máta. Bætt mataræði er
spor í rétta átt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Reyndu að berjast ekki um
völdin við börn í dag.
Mundu að börn hugsa öðru-
vísi en fullorðnir. Þol-
inmæði!
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver vill fá sínu fram-
gengt gagnvart þér í dag og
því er líklegt að þú lendir í
orðaskaki við einhvern úr
fjölskyldunni. Stígðu út úr
þessu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ætlar þér að sannfæra
einhvern í dag. Því miður
getur þú í raun ekki breytt
hugsunarhætti annarra.
Sættu þig við það.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert haldin(n) þráhyggju
varðandi einhvern hlut sem
þig langar að kaupa. Ekki
láta þessa þráhyggju ná yf-
irhöndinni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samskipti við fólk, sér-
staklega konur, eru mjög
spennuhlaðin í dag. Gættu
þín á afbrýðisemi og ráð-
ríki.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Tilfinningarnar sem leynast
í undirmeðvitundinni koma
allar upp á yfirborðið í dag.
Með því gefst þér kostur á
að kynnast sjálfri/sjálfum
þér betur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Annaðhvort þú eða vinur
þinn verður gagntekin(n) af
ákveðinni hugmynd. Hvern-
ig sem því er farið verða
um það heitar umræður.
Gættu þín á að aðhyllast
ekki öfgakenndar skoðanir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér gæti fundist sem fólk í
valdastöðum sé að reyna að
ráðskast með þig í dag.
Gættu þín á svona leikjum
og taktu ekki þátt í þeim.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÚTTEKTARDOBL eru til
í mörgum myndum. Opn-
unardoblið er algengast,
en flestir keppnisspilarar
nota líka neikvæð dobl og
svardobl. Svokallað
„geimáskorunardobl“ er
minna þekkt:
Suður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ D87
♥ G103
♦ KD9
♣7654
Austur
♠ 64
♥ Á42
♦ Á108653
♣KG
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 hjarta
Pass 2 hjörtu 3 tíglar Dobl *
Pass 3 hjörtu Allir pass
Það verður verkefni les-
andans að spila vörn gegn
þremur hjörtum eftir
sagnirnar að ofan. En þær
þarf að skýra. Dobl suð-
urs á þremur tíglum sýndi
geimáhuga, en hafði ekk-
ert með tígul að gera. Ef
suður hefði sagt þrjú
hjörtu væri hann ein-
göngu að berjast um bút-
inn. Makker kemur út
með tígultvist og þú drep-
ur kóng blinds með ás. En
hvað svo?
Vonandi er tígultvistur
makkers einn á ferð. Þú
slærð því alla vega föstu,
því annars fer þetta spil
aldrei niður. En það væri
ótímabært að gefa makker
stunguna strax.
Norður
♠ D87
♥ G103
♦ KD9
♣KD9
Vestur Austur
♠ K9532 ♠ 64
♥ 76 ♥ Á42
♦ 2 ♦ Á108653
♣109832 ♣KG
Suður
♠ ÁG10
♥ KD985
♦ G74
♣ÁD
Ef þetta er heild-
armyndin er nauðsynlegt
að skipta yfir í spaða í
öðrum slag. Makker fær á
kónginn og spilar aftur
spaða og nú nær vörnin
tveimur stungum.
En er þetta rökrétt
vörn? Gæti makker ekki
allt eins átt sinn litastyrk
í laufi eins og spaða?
Vissulega, en það liggur
ekkert á að spila laufinu
hvort sem makker á þar
ásinn eða drottninguna.
Hins vegar er bráðnauð-
synlegt að spila spaðanum
ef makker er með kóng-
inn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 23.
mars, er sextug Dorothy
Lillian Ellison, Borgarheiði
31, Hveragerði. Hún tekur
á móti ættingjum og vinum
á heimili sínu milli kl. 15 og
18 í dag, afmælisdaginn.
BRÚÐKAUP. Hinn 22. júní
2002 voru Rósa Guðlaug
Kristjánsdóttir og Páll
Hrannar Hermannsson gef-
in saman í Ólafsvíkurkirkju
af séra Gunnari Eiríki
Haukssyni. Heimili þeirra
er á Starengi 12.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6
4. g3 Ba6 5. Da4 Bb7 6.
Bg2 c5 7. dxc5 bxc5 8. 0–0
Be7 9. Rc3 0–0 10. Bf4 d6
11. Hfd1 Db6 12. Hab1
Hd8 13. b4 Re4 14. Rxe4
Bxe4 15. bxc5 Dxc5 16.
Hb5 Dc7
Staðan kom upp í seinni
hluta Íslandsmóts skák-
félaga sem
lauk fyrir
skömmu í
húsakynnum
MH. Predrag
Nikolic (2638)
hafði hvítt
gegn Jóni L.
Árnasyni
(2517). 17. c5!
Bc6 18. cxd6
Bxd6 19.
Hxd6 Hxd6
20. Dc2! Dd8
21. Bxd6
Bxb5 21…
Dxd6 var ekki
heldur fýsi-
legur kostur
þar eð eftir
22. Rg5 g6 23. Hc5 Bxg2
24. Hc8+ Kg7 25. Dc3+ e5
26. Kxg2 er svartur í mik-
illi úlfakreppu. Í framhald-
inu fær hvítur tvo létta
menn fyrir hrók sem dugði
til sigurs. 22. Bc7 De7 23.
Rd4 Bc6 24. Bxc6 Rxc6 25.
Dxc6 Hc8 26. Rb5 h5 27.
a4 Db4 28. Rd6 Hf8 29.
Kg2 Dd2 30. Dc4 a5 31. h4
g6 32. Re4 Db4 33. Dc6
Hc8 34. Rd6 Hf8 35. Re8
Db2 36. Bd6 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
FRÉTTIR
DAGNÝ Jónsdóttir og Ásgerður
Ósk K. Jakobsdóttir, nemendur í
viðskiptafræði við Háskólann í
Reykjavík, hlutu lokaverkefnis-
styrk Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur sem afhentur var í
þriðja sinn.
Markmið verkefnis þeirra er að
rannsaka starfsmannaveltu í mat-
vöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu og kanna hverjar ástæður
hennar eru.
Styrkur VR er 250 þúsund krón-
ur en markmið með veitingu hans
er að efla rannsóknir á vinnumark-
aði með því að hvetja stúdenta í
háskólum til þess að huga betur að
þessum málaflokki. Dómnefnd
taldi verkefnið bæði áhugavert og
mikilvægt þar sem mikil þörf sé á
að skýra ástæður starfsmanna-
veltu í fyrirtækjum og það sé sam-
eiginlegt hagsmunamál starfs-
manna og atvinnurekenda.
Rannsaka starfs-
mannaveltu
Ungir jafnaðarmenn á Suður-
nesjum halda umræðufund á morg-
un, mánudaginn 24. mars kl. 20, á
kosningaskrifstofu Samfylkingar-
innar, Hafnargötu. Skipt verður í
umræðuhópa eftir áhugasviði. Allir
velkomnir.
Frambjóðendur B listans í Norð-
vesturkjördæmi, ásamt Halldóri
Ásgrímssyni, utanríkisráðherra
verða á Bifröst á morgun, mánudag-
inn 24. mars kl. 12. Skólinn skoðaður
undir leiðsögn aðstoðarrektors og
kl. 12.30 verður Halldór Ásgrímsson
með málstofu.
Á morgun, þriðjudagurinn 25. mars
kl. 20.30, verða frambjóðendur
B-listans með fund á Breiðinni
Akranesi. Gestur fundarins verður
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
STJÓRNMÁL
STUNDUM getur verið
vandmeðfarið með beyg-
ingu sjaldgæfra orða í máli
okkar. Er þeim því vissu-
lega nokkur vorkunn, sem
verður á að fara ekki rétt
með. Þetta henti nýlega
blaðamann við Mbl., og ég
veit það af fenginni
reynslu, að lesendur munu
ekki allir hafa veitt þessari
yfirsjón athygli. En gamall
móðurmálskennari hlaut
að hnjóta um hana. Í Mbl.
7. þ.m. stóð þetta í fyrir-
sögn á baksíðu: „Sást ekki
handa skil vegna reykjar-
mökks.“ Sá, sem þetta
skrifaði, hefur ekki áttað
sig á beygingu no. mökkur.
Þar sem hún hefur ekki
verið rædd sérstaklega í
þessum pistlum, virðist
ástæða til, að svo verði gert
nú. No. mökkur heyrir til
svonefndra u-stofna eins og
mörg önnur orð. Má hér
nefna algengt orð í þessum
flokki eins og köttur, en ég
held allir ráði við beygingu
þess: köttur, kött, ketti,
kattar í et. og í ft. kettir,
ketti, köttum, katta. Á
sama hátt beygist no.
mökkur. Nú held ég les-
endur átti sig, hver villan er
í áðurnefndri fyrirsögn. Ef.
mökks fær ekki staðizt,
heldur einungis makkar,
sbr. kattar. Hér skilur auð-
vitað á milli, að kettir eru
orðnir algengir í þjóðlífi
okkar, en mekkir ekki, sem
betur fer. Fyrirsögnin
hefði því átt að hljóða svo í
Mbl.: Sást ekki handaskil
vegna reykjarmakkar. Ég
held engum dytti í hug að
tala um eða skrifa sem svo:
Það sást til kötts vera að
elta fugla. Þar segðu allir:
Það sást til kattar o.s.frv.
Þá má og benda á, að no.
handaskil er venjulega haft
í einu orði, þótt ekki sé
beinlínis rangt að hafa það í
tveimur orðum, svo sem
stóð í fyrirsögninni. Vel má
hugsa sér að tala um skil
handa og svo snúa því við
og tala um handa skil. Orð-
bækur hafa no. hins vegar
alltaf sem eitt orð. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Mökkur – köttur