Morgunblaðið - 26.03.2003, Síða 8
8 B MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
vélsleðar
ÞÓR VAR einn af fyrstu vélsleða-
mönnum á vettvang þegar leit var
gerð að þremur vélsleðamönnum á
Langjökli fyrir skemmstu. Hann
segir að framundan sé einhver mesti
ferðamannatími ársins og fjölmargir
fara á fjöll á vélsleðum og jeppum
um páskana. Það sé því áríðandi að
menn beri sig rétt að til þess að kom-
ast hjá vandræðum.
Almenna reglan að stoppa strax
„Á leið yfir jökul í mjög slæmu
skyggni er auðvelt að heltast úr lest-
inni. Oft gerist þetta þegar vélsleðar
hætta að ganga en þeir eru misjafnir
með þetta eftir gerðum. Oftast fenn-
ir inn á loftinntakið og snjór og krap
kemst inn á blöndunga og sleðarnir
hætta að ganga. Almenna reglan, er
að stöðva strax verði menn en fara
ekki út úr leið. Þá hefur sá sem
fremstur fer tækifæri til þess að fara
til baka eftir plotter á GPS og finna
viðkomandi. Þegar veðrið er gríðar-
lega vont er stundum ekki nema ör-
fárra metra skyggni svo menn þurfa
ekki að fara langt út úr slóðinni til
þess að finnast ekki,“ segir Þór.
Hann segir einnig mikilvægt að
ferðafélagar hafi komið sér saman
um viðbrögð, áður en lagt er af stað,
ef einhver verður viðskila. Þetta geti
flýtt fyrir því að menn finnist. Einnig
er mikilvægt að menn viti hvaða út-
búnaður er með í ferð.
„Oft er gott að aka hlið við hlið ef
veður er mjög slæmt, sérstaklega ef
stóran hóp er að ræða. Oftast aka
menn í röð og eiga þá erfitt með að
sjá fremsta og aftasta sleða. Einnig
er gott að stoppa af og til og athuga
hvorn nokkurn vanti í hópinn. Verði
einhver viðskila og stoppi þarf sá að
meta það hvort hann þurfi að grafa
sig í fönn. Til þess þarf ákveðinn út-
búnað. Einnig er mikilvægt að ræsa
vélsleðann og kveikja á ljósabúnað-
inum til þess að vekja á sér athygli ef
björgunarsveitarmenn nálgast.“
Námskeið og fræðslufundir
Þór segir að það geti skipt sköpum
að fara úr blautum fötum ef þeir
þurfa að grafa sig í fönn. „Það þýðir
lítið að fara ofan í svefnpoka ef und-
irfötin eru blaut. Það þarf því að
hugsa fyrir því að vera þurr.“
Til þess að vera undir það versta
búinn á ferðalögum á vélsleðum í
óbyggðum þurfa menn að kunna skil
á rötun, notkun GPS-tækja, ofkæl-
Hálendið
varasamt vél-
sleðamönnum
Mjög óvanalegar aðstæður eru á hálendi landsins til
ferðalaga á vélsleðum. Bæði eru miklar leysingar og
snjóleysi. Þór Kjartansson, formaður Landssambands
vélsleðamanna í Reykjavík og flokkstjóri í vélsleðadeild
Flugbjörgunarsveitarinnar, gefur hér nokkur góð ráð til
þeirra sem ætla á vélsleðum um hálendið.
Frá björguninni á Langjökli. Eins og sjá má hefur fallið snjóflóð í hlíðinni.
Frá björgun á Langjökli fyrir
skemmstu. Þyrlan að taka á loft í
Þjófadölum.
Það er ekki alltaf svona blíða á fjöll-
um. Myndin er úr Þursaborgum.
ÞEIR sem eru að fara inn á hálendið
þurfa ákveðinn útbúnað. Veður eru vá-
lynd á hálendinu og þar skiptast á
skin og skúrir. Þess vegna er nauð-
synlegt að gera ráð fyrir því að ým-
islegt geti farið úrskeiðis og vera undir
það búinn. Þór Kjartansson fer hér yf-
ir það allra nauðsynlegasta í útbún-
aðinum.
Fjarskipti
Nauðsynlegt er að einhver úr hópn-
um, og helst allir, hafi einhvers konar
fjarskiptatæki. NMT-farsímar eru
góðra gjalda verðir en margir staðir á
hálendinu eru sambandslausir og
slæmt samband er á mjög stórum
hluta þess. Gervihnattasímar eru
öruggastir en þeir eru mjög dýrir í inn-
kaupum og notkun. GSM-símar koma
sér sömuleiðis oft vel. Það næst GSM-
samband mjög víða í jöðrum hálend-
isins þar sem settir hafa víða verið
upp GSM-sendar í tengslum við virkj-
anaframkvæmdir. Stundum næst
GSM-samband þar sem ekki næst
NMT-samband. En líklega er mik-
ilvægasta fjarskiptatækið VHF-
talstöðvar. Fjölmargir endurvarpar
eru á hálendinu og mynda þétt net
fjarskipta. Ekki er skipulögð hlustun
alls staðar en nánast öruggt er að ein-
hver er ávallt að hlusta. VHS-talstöð
kostar um 30.000 kr. og því ódýrari
en NMT-sími. Langjökull er t.d. víða
NMT-sambandslaus en víðast hvar
næst samband um VHS-talstöð. Raf-
hlöðurnar endast líka lengur í VHS-
talstöð en í farsíma, eða í allt að tvo
sólarhringa með réttri notkun.
Mikilvægt er að menn hafi með sér
12 volta hleðslutæki sem stungið er í
sambandi við vélsleðann, hvort sem
það er fyrir farsíma eða talstöð. Raf-
hlöðurnar endast mun skemur í miklu
frosti.
GPS-staðsetningartæki eru mik-
ilvæg og sömuleiðis að inni á þeim séu
réttir punktar. Punktalaust tæki gerir
lítið gagn. Til eru sérstakar GPS-
punktabækur með leiðum um hálend-
ið. Landssamband vélsleðamanna
hefur einnig komið sér upp banka með
sérstökum vélsleðaleiðum. Öllum vél-
sleðamönnum gefst kostur á aðgangi
að gagnabankanum og að fá settar
leiðir inn á tækið. Ekki er síður mik-
ilvægt að menn kunni að nota þennan
búnað.
GPS-tækin geta bilað og þá er mik-
ilvægt að hafa með sér kort og átta-
vita. Sama gildir um kortið og áttavit-
ann og GPS-tækið; menn verða að
kunna að nota þennan búnað.
Svefnpoki
Svefnpoki á alltaf að vera með í för,
hvort sem farið er í dagsferð eða helg-
arferð. Þær aðstæður geta alveg eins
komið upp í dagsferðum að menn
verði að grafa sig í fönn. Það fer lítið
fyrir svefnpokanum, sem þarf að vera
góður og helst gerður fyrir meiri kulda
en -20 gráður.
Hlífðarpoki
Auk svefnpoka verður að vera með
hlífðarpoki, svokallaður bivak sem ver
bæði fyrir raka og vindkælingu. Þeir
eru gerðir úr öndunarefni því annars
saggar inni í pokanum og þá missir
hann einangrun. Ekki er mælt með
plastpokum og álpokum því þeir
hleypa ekki raka út.
Einangrunardýna
Ekki er síður mikilvægt að einangra
sig frá snjónum. Það fer lítið fyrir
henni í farangrinum en hún er afar
mikilvæg til að einangra menn í svefn-
poka og hlífðarpoka frá snjónum.
Skófla
Til þess að grafa sig í fönn verða
menn að hafa með sér skóflu. Til eru
skóflur með skaptinu lausu frá skófl-
unni, sérstakar fjallaskóflur, sem fer
lítið fyrir í farangrinum.
Snjóflóðaýlir og snjóflóðastöng
Mikil vakning hefur verið meðal vél-
sleðamanna um snjóflóð. Þeir eru í
jafnmikilli ef ekki meiri hættu en aðrir
fjallamenn að lenda í snjóflóði. Almenn
regla er sú að enginn fer til fjalla að
vetri nema að vera með snjóflóðaýli.
Blys
Til þess að gera vart við sig getur
verið nauðsynlegt að skjóta upp blysi
eða kveikja á blikkljósi. Búnaður af
þessu tagi fæst í flestum útivist-
arverslunum.
Vasaljós og aukarafhlöður
Það er erfitt að athafna sig, grafa
sig í fönn og leita að hlutum á vélsleð-
anum í niðamyrkri. Þá getur eitt lítið
vasaljós verið sem himnasending.
Hitabrúsi og gasprímus
Fáanlegir eru litlir hitabrúsar og
gasprímusar. Prímusarnir fást á bens-
ínstöðvum. Einnig er nauðsynlegt að
hafa með sér einhvern mat, t.d. súkku-
laðistykki. Allt sem hjálpar til að halda
hita á líkamanum eykur líkur á því að
allt fari á besta veg.
Innanundirfatnaður
Ef sá fatnaður sem er næst lík-
amanum er rakur tapast einangrun.
Mælt er með því að menn hafi með sér
auka innanundirfatnað, aukapeysu og
-sokka. Þá er nauðsynlegt að hafa
góða húfu því mesta varmatapið fer í
gegnum höfuðið. Það snýst því nánast
allt um það að halda á sér hita og forð-
ast ofkælingu meðan beðið er eftir
björgun.
Nauðsynlegur bún-
aður vélsleðamanna
Í s h l u t i r e h f . • S ú ð a r v o g i 7 • 1 0 4 R e y k j a v í k • S í m i : 5 7 5 2 4 0 0 • F a x : 5 7 5 2 4 0 1 • N e t f a n g : i s h l u t i r @ i s h l u t i r. i s
Brothamrar og borvagnar
Tjöru- og efnisdreifararMælitæki
Vigtarkerfi
Festi- og tengivagnar
www.ishlutir.is
Vinnuvélar
Smágröfur, sturtuvagnar
Liðtrukkar Rafstöðvar
HYUNDAI
Helluhraun 2, Hf., s. 555 7200.
www.bilalind.is
NISSAN PATROL GR 33” 1990
ek. 206 þ.km. Mjög góður bíll
V. 1.090 þ. tilboð
JEEP GRAND CHEROKEE LTD
1997 ek. 92 þ.km. Gullfallegt
eintak. V. 1.850 þ. áhv. 1.200 þ.,
afb. 30 þ. Listaverð 2.050 þ.
MIKIL EFTIRSPURN
Vantar allar gerðir bíla
á skrá og á staðinn