Morgunblaðið - 26.03.2003, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003 B 11
vinnuvélar
Smiðjuvegi 9A (gul gata) · 200 Kópavogur
Sími 554 4445 · www.egill.is
EGILL VÉLAVERKSTÆÐI ehf.
Viðgerðir · Breytingar · Nýsmíði · Vagnaviðgerðir · Loftpressur
RENNISMÍÐI - VÉLSMÍÐI
VÉLAVIÐGERÐIR
Til sölu
Grófin 8, 230 Keflavík
Sími 421 1200
Fax 421 6294
www.toppurinn.com
Toppurinn ehf.
MAN 26321 vörubíll, árg. 1983,
með grjótpalli. Hagstætt verð.Valtaratromla vélalaus. Selst ódýrt. Sky Jack vinnulyftur, árgerðir ´95-´96.
„VIÐ ERUM bæði að þjóna bænd-
um og vinnuvélaeigendum með
starfsemi okkar. Undanfarin þrjú
ár höfum við verið að þróa þjónustu
og vöruúrval okkar fyrir verktaka
og bjóðum í dag ýmsan búnað og
hjálpartæki fyrir vinnuvélar. Hjá
okkur er lögð áhersla á landið allt
sem markaðssvæði fyrir þjón-
ustuna,“ segir Finnbogi Magnús-
son, framkvæmdastjóri Bújöfurs
Búvéla á Austurvegi 69 á Selfossi.
Starfsmenn eru 5 hjá Bújöfri Búvél-
um á Selfossi en fyrirtækið er með
14 þjónustustaði víðs vegar um
landið.
Fjölnota vélar í boði
Búnaður undir heitinu Rototilt er
meðal þess sem verktökum er boðið
upp á en um er að ræða tæki sem
sett er á gröfuskóflur og gerir að
verkum að skóflan verður mun
hreyfanlegri en áður og grafan því
mun fjölhæfari. Fyrstir til þess að
nálgast svona tæki hjá fyrirtækinu
voru Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða á Selfossi. Finnbogi bendir á
vagn með krókheysi sem getur
dregið gáma eða palla upp á sig.
„Með þessu geta menn átt einn
vagn og síðan margar gerðir af út-
búnaði til að setja á hann. Svo erum
við með liðstýrða vinnuvél, Schäffer
Lader, sem fáanleg er í ýmsum
stærðum. Þessi vél hefur sýnt sig að
vera mjög gott tæki sem býður upp
á marga notkunarmöguleika, t.d. við
snjóblástur, lyftaravinnu og mokst-
ur, sem sagt fjölnota vél með mikla
möguleika. Svo aðstoðum við fyrir-
tæki við að nálgast notaðar vinnu-
vélar erlendis frá,“ sagði Finnbogi.
Nýtum okkur nálægðina við bændur
„Markaðshlutdeild okkar meðal
bænda hefur vaxið mjög undanfarin
ár og meðal annars náði markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins í dráttarvél-
um 24% á síðasta ári. Innflutningur
Valtra hófst árið 1994 og í desember
síðastliðnum afhentum við þrjú-
hundruðustu Valtra dráttarvélina
til Bændaskólans á Hólum.
Á þeim 4 árum sem við höfum
starfað á Selfossi hefur okkur verið
mjög vel tekið, við höfum fundið
mikinn velvilja hjá bændum gagn-
vart starfsemi okkar. Það er okkar
markmið að vera með allar þær vél-
ar og tæki sem bóndinn þarf við sín
fjölbreyttu störf. Það er sama þróun
í landbúnaðinum og í öðrum at-
vinnugreinum að gerðar eru auknar
kröfur til birgja varðandi þjónustu
og ráðgjöf og því er mikilvægt að
vera í sem mestri nálægð við við-
skiptavinina. Nálægðin skapar okk-
ur tækifæri til nánari tengsla við
bændurna og þá um leið möguleika
á betri þjónustu og þetta tækifæri
reynum við að nýta sem best,“ segir
Finnbogi Magnússon framkvæmda-
stjóri Bújöfurs Búvéla á Selfossi.
Bújöfur Búvélar hf. á Selfossi með 24% markaðshlutdeild í dráttarvélum
Áhersla lögð á þjónustu
við bændur og verktaka
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Bújöfurs Búvéla á Selfossi, með nýj-
ustu Valtra-dráttarvélina sem bíður afhendingar en hún verður ekki flokkuð
sem nein smávél.
Svæðisvinnumiðlun Suðurlands hélt
80 klukkustunda vinnuvélanámskeið í
samstarfi við Ökuskóla Suðurlands
dagana frá 3.–14. mars. Alls tóku 22 af
Árborgarsvæðinu og nágrenni þátt í
námskeiðinu, þar af ein kona. Við
námskeiðsslit fengu þátttakendur
námsvottorð frá Ökuskólanum og
lýstu ánægju sinni með námskeiðið en
þetta var fyrsta námskeið þessarar
tegundar hjá Svæðisvinnumiðluninni.
Námskeið þetta er liður í fræðslu-
starfi Svæðisvinnumiðlunarinnar en
markmið þess er að gefa fólki í at-
vinnuleit kost á að auka færni sína og
þekkingu á sem flestum sviðum og
nýta þannig tíma sinn á meðan á at-
vinnuleit stendur. Einnig opnar
fræðslan möguleika til þess fyrir fólk
að marka sér nýja braut á vinnumark-
aðnum og takast á við önnur viðfangs-
efni en áður í starfi.
22 tóku þátt í
vinnuvélanámskeiði