Morgunblaðið - 26.03.2003, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003 B 21
vinnuvélar
Vélaver hf. – Lágmúla 7
Símar 588 2600 og 893 1722
Til sölu JCB 3cxSuper ´97
Notkun 5.587 vst.
Verð kr. 3.200.000 án vsk.
Til sölu JCB 3cx-4 ´98
Notkun 4.320 vst.
Verð kr. 3.200.000 án vsk.
Til sölu Manitou MLT 632 ´98
Notkun 2.082 vst.
Verð kr. 2.300.000 án vsk.
Til sölu JCB 526-55 T ´98
Notkun 5.732 vst.
Verð kr. 2.200.000 án vsk.
Til sölu JCB 4cxSuper ´97
Notkun 5.950 vst.
Verð kr. 3.300.000 án vsk.
Til sölu JCB 803 Super ´01
Notkun 1.208 vst.
Verð kr. 2.250.000 án vsk.
DILBERT
mbl.is
40 ÁR eru liðin um þessar mundir frá
því að fyrsta sending af JCB vinnu-
vélum kom til landsins. Árni Gests-
son í Globus hóf innflutning á vél-
unum og náðu þær strax miklum
vinsældum og töluvert af elstu vél-
unum er enn í nothæfu ástandi.
Upp úr 1970 jókst verulega salan á
JCB vélunum og 1980 kom fram ný
og gjörbreytt traktorsgrafa með fjór-
hjóladrifi, skotbómu og opnanlegri
framskóflu sem eftir það þótti sjálf-
sagður búnaður. Á þessum áratug
voru að mestu seldar traktorsgröfur,
beltavélar og hjólaskóflur. Árið 1986
var stofnuð vinnuvéladeild í Globus
um sölu og markaðssetningu á JCB
en þar áður voru vélarnar hluti af
vélaflórunni í búvéladeild Globus hf.
Bæði skotbómulyftarar og traktors-
gröfur frá JCB eru með mestu mark-
aðshlutdeild hérlendis í sínum flokk-
um.
Í lok níunda áratugarins verður
mikil aukning í vöruþróun frá JCB og
koma þá fram nýjar vélar eins og t.d.
JCB Robot og Mini-vélar og fjórhjól-
stýrðar vélar eins og 4cx og 2cx
traktorsgröfurnar og Loadall skot-
bómulyftarar. Þá hefst samstarf
JCB, Sumitomo og Ushida um smíði
á belta- og hjólavélum. Og ný lína af
liðstýrðum hjólaskóflum með stjórn-
húsið á afturhlutanum. Í öllum helstu
vélum frá JCB var farið að bjóða po-
wer-skiptingar og upp úr miðjum tí-
unda áratugnum kemur ný kynslóð
skotbómulyftara og síðustu árin
Midi-vélar, 5–6 tonn á beltum, ásamt
Micro-beltavélum 800-1.200 kg.
JCB framleiðir vélar í Englandi, og
árið 2001 opnuðu þeir nýja verk-
smiðju í Bandaríkjunum. JCB stefnir
að stóraukinni framleiðslu á heims-
markaði og er markið sett á 50 þús-
und vélar árið 2005.
Í árslok 1994 er Globus hf. skipt
upp í tvö sjálfstæð félög þannig að til
verður Globus–Vélaver hf. sem tók yf-
ir alla starfsemi véladeilda Globus og
var nafnið á nýja fyrirtækinu notað í
næstu fimm ár eða þar til Globus
nafnið er fellt úr heiti félagsins í árs-
lok 1999.
JCB er önnur algengasta gerð
vinnuvéla á landinu með um 650 vél-
ar í vinnu og hefur mörg síðastliðin ár
verið mest selda vinnuvélin hér á
landi.
JCB í 40 ár á Íslandi
Vélaver er m.a. með gröfur frá JCB.