Morgunblaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vinsælasti
áfangastaður á Ítalíu. Heimsferðir bjóða vikulegt flug til Rimini
alla þriðjudaga í sumar en Rimini er vinsælasti áfangastaðurinn á Ítalíu
og hefur slegið í gegn í sumar enda flest flug orðin uppseld. Hér bjóða
Heimsferðir vinsælustu gististaðina, frábærlega staðsetta og hér er
auðvelt að njóta lífsins til hins ítrasta í fríinu. Héðan er stutt að fara til
Feneyja eða Flórens og kynnast heillandi menningarheimi þessa ótrú-
lega lands eða einfaldlega njóta
einnar fegustur sólarstrandar við
Adríahafið. Að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða sem bjóða þér spenn-
andi kynnisferðir á meðan á dvöl-
inni stendur.
Við þökkum ótrúlegar viðtökur
Síðustu sætin til
Rimini
í maí og júní
frá kr. 27.063
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 27.063
á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
20. maí – flugsæti til Bologna.
Verð kr. 47.962
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
20. maí – Nautic, vikuferð.
Verð kr. 57.950
M.v. 2 í stúdíóíbúð í viku, Nautic,
20. maí.
SELJA er ekki mjög algeng í görðum fólks, en finnst á
stöku stað. Ein slík er hér í Hveragerði og vakti mikla
athygli þegar reklar hennar voru í blóma skærgulir.
Að sögn Kolbrúnar Þóru Oddsdóttur, umhverf-
isstjóra Hveragerðisbæjar, vex seljan best í kalkríkum
þurrum jarðvegi og á sólríkum stað. Hún getur orðið 6
til 12 m há og um 60–80 ára gömul. Hún vex ýmist sem
runni eða stakstætt tré. Seljutré eru ýmist karlkyns
eða kvenkyns, því þurfa fleiri tré að standa saman svo
að kventrén geti myndað fræ.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Seljan leit út eins og hún væri skreytt í tilefni páskanna, skærgul og skrautleg.
Selja í allri sinni dýrð rétt fyrir laufgun
Hveragerði. Morgunblaðið.
Á FYRSTU þremur mánuðum ársins
veitti Félagsþjónustan í Reykjavík
um 17% fleira fólki fjárhagsaðstoð en
á sama tíma í fyrra. Heldur hefur þó
hægt á fjölguninni en Stella Víðisdótt-
ir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Félagsþjónustunnar, segir að sveiflur
í fjölda styrkþega haldist mjög í hend-
ur við hlutfall atvinnulausra í borg-
inni.
Félagsþjónustan veitir þeim fjár-
hagsaðstoð sem ekki hafa rétt á at-
vinnu- eða örorkubótum, fá skertar
bætur eða hafa laun undir viðmiðun-
armörkum. Samanlögð upphæð fjár-
hagsaðstoðar og hugsanlegra bóta
eða launa getur þó ekki orðið hærri en
67.000 krónur fyrir einstaklinga og
120.000 krónur fyrir hjón.
Nemar eru 15%
Stella segir að um og yfir 40%
þeirra sem fá fjárhagsaðstoð séu ein-
hleypir karlmenn og um 18% ein-
hleypar konur. Þetta fólk hafi af ein-
hverjum völdum dottið út af
vinnumarkaðnum. Öryrkjar eru um
12% og einstæðar mæður um þriðj-
ungur. Þá eru 15% nemar, oftast ung-
ar, lítið menntaðar, einstæðar mæður
sem nema í framhaldsskóla eða leggja
stund á sérnám en eru félagslega illa
staddar og geta í fæstum tilfellum
leitað til fjölskyldu sinnar um fjár-
hagslegan stuðning. Um 46% þeirra
sem fá aðstoð eru atvinnulaus en
þetta hlutfall var tæplega 39% í fyrra.
Einn af hverjum tíu hefur vinnu, í
flestum tilfellum illa launað hluta-
starf. Stella segir að talsvert hafi
dregið úr fjölgun þeirra sem óska eft-
ir og fá fjárhagsaðstoð síðustu mán-
uðina ef miðað er við útgjöld Fé-
lagsþjónustunnar. Hugsanleg
skýring gæti verið sú að heldur hefur
dregið úr atvinnuleysi í Reykjavík.
Í fyrra fengu 3.565 manns fjárhags-
aðstoð Félagsþjónustunnar í Reykja-
vík, tæplega 600 fleiri en árið 2001.
Útgjöld til fjárhagsaðstoðar fyrstu
þrjá mánuði ársins voru 274 milljónir
en voru 232 milljónir í fyrra.
Félagsþjónustan
veitir 17% fleiri
fjárhagsaðstoð
LÖGREGLAN á Blönduósi stöðvaði
tvítugan ökumann á 180 km hraða á
Hringveginum rétt sunnan við bæinn
í gær. Er þetta eitt alvarlegasta tilvik
um ofsaakstur sem lögreglan á
Blönduósi hefur kynnst. Ökumaður-
inn sinnti strax stöðvunarmerkjum og
kom í ljós að hann hafði ekki neinar
sérstakar ástæður fyrir athæfinu.
Hann var ekki sviptur ökuskírteininu
á staðnum en brot hans verður tekið
til meðferðar hjá sýslumanni. Einn
farþegi var með ökumanni en bíllinn
var venjulegur fjöslkyldubíll af Sub-
aru-gerð. Þetta atvik kemur í kjölfar-
ið á tveimur öðrum mjög alvarlegum
hraðakstursbrotum undanfarna
daga. Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
seint á laugardagskvöld ökumann bif-
hjóls á 166 km hraða í Ártúnsbrekk-
unni. Bifhjólið kom á 123 km niður
brekkuna og hóf lögreglan þá eftirför.
Mældist hraðinn þá 166 km.
Ökumaðurinn sinnti strax stöðvun-
armerkjum lögreglu en hann er um
fertugt og var með 15 ára son sinn aft-
an á hjólinu. Hann var ekki sviptur
ökuskírteininu á staðnum þar sem
lögreglan mældi hraðann á ferð, þ.e.
með því að halda jöfnu millibili milli
hjólsins og lögreglubílsins. Dómari
mun ákveða hvort hann missir öku-
skírteinið.
Á fimmtudag voru síðan tveir 17
ára piltar á sportbílum teknir á 190
km hraða og ökuskírteinin tekin af
þeim á staðnum. Mun dómari ákveða
refsingu.
Á 180 km hraða
við Blönduós
EBBA Sigurðardóttir predikaði í
sérstakri hátíðarmessu í Bústaða-
kirkju í gær, sunnudag, en tilefnið
var 50 ára afmæli kvenfélags sókn-
arinnar á þessu ári. Séra Pálmi
Matthíasson og sr. Ólafur Skúlason
biskup, eiginmaður Ebbu, þjónuðu
fyrir altari. Söfnuðurinn varð 50
ára í fyrra. Ebba og Ólafur voru
prestshjón í sókninni í 25 ár.
Ebba hefur áður flutt predikanir
við ýmis tækifæri. Hún segist í sam-
tali við Morgunblaðið hafa gengið í
kvenfélag sóknarinnar árið 1964,
um það leyti sem Ólafur eig-
inmaður hennar varð prestur í
sókninni. „Þá kynntist ég þeim kon-
um sem stofnuðu félagið og hef
haldið tryggð við það síðan,“ segir
Ebba. Hún var formaður félagsins
um tíma og þegar Ólafur tók við
biskupsembættinu var hún gerð að
heiðursfélaga þess.
Ebba segir að kvenfélagskonur
hafi unnið mikið starf innan kirkj-
unnar; þær hafi m.a. sinnt eldra
fólki innan sóknarinnar og um tíma
sáu þær um þrif í kirkjunni. Þá áttu
þær mikinn þátt í fjáröflun vegna
byggingar Bústaðakirkju. Kirkjan
var vígð 1971. Í tilefni dagsins í gær
færðu þær kirkjunni píanó að gjöf.
Í predikun sinni minntist Ebba
m.a. Auðar Matthíasdóttur, fyrsta
formanns kvenfélagsins og eins af
stofnendum þess, en Auður lést á
síðasta ári.
Að lokinni messu var boðið upp á
kaffi og heitar vöfflur með rjóma,
sem karlarnir í sókninni bökuðu.
Morgunblaðið/Sverrir
Ebba Sigurðardóttir predikaði í Bústaðakirkju í gær. Sr. Pálmi Matthías-
son og sr. Ólafur Skúlason þjónuðu fyrir altari.
Kvenfélagskonur
hafa unnið mikið starf
innan kirkjunnar
SIGURGEIR Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtaka Ís-
lands, segir að Ísland hljóti að
þurfa að búa við þá niðurstöðu sem
fengist í samningaviðræðum við
Heimsviðskiptastofnunina, WTO,
um aukna fríverslun. Hann segir
engan ágreining milli Bændasam-
takanna og íslenskra stjórnvalda
um áherslur Íslendinga í viðræðun-
um. „Menn gera sér grein fyrir því
að Ísland verður áfram aðili að
WTO. Það hlýtur því að verða að
búa við þá samningsniðurstöðu sem
þar fæst.“
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, sagði í viðtali í Morg-
unblaðinu í gær að vegna
viðræðnanna við WTO um aukna
fríverslun á vettvangi stofnunarinn-
ar muni þurfa að breyta styrkja-
kerfi landbúnaðarins og að hann
muni að miklu leyti þurfa að laga
sig að þeirri landbúnaðarstefnu,
sem rekin verður í Evrópusam-
bandinu (ESB) þegar þar að kem-
ur.
Verður að endurskoða stuðn-
ingskerfi landbúnaðarins
Aðspurður um þetta segir Sig-
urgeir: „Það er enginn ágreiningur
um það að verði niðurstaða WTO-
viðræðnanna í líkingu við það sem
tillögur ESB gera ráð fyrir eða
gangi hún lengra í niðurskurði en
tillögur ESB þá hljótum við að
verða að endurskoða og breyta að
einhverju leyti stuðningskerfi við
landbúnaðinn hér á landi í þá átt að
stuðningurinn flokkist í mun meira
mæli en nú er sem grænar
greiðslur.“ Hann segir að með
grænum greiðslum myndi stuðning-
urinn ganga út á aðra þætti en þá
sem tengdust beint framleiðslunni.
Hann verði t.d. tengdur umhverf-
isbótum, landfræðilegri legu, bú-
setu og ýmsu slíku sem horfir til
vistvænni búsetuhátta. Hann tekur
þó fram að þetta þýði ekki að heild-
argreiðslur þurfi að lækka. „Það
verður undir pólitískum vilja komið
hér á landi á hverjum tíma.“
Ísland uni
niðurstöðu
WTO-við-
ræðnanna