Morgunblaðið - 30.05.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Evró á toppi
Tónlistans
Evróvisjónhitinn situr enn í
landanum Fólk 44
Breyttir
straumar
Nýstárleg ráðgjöf sérfræðinga
um hárstíl Miðopna
Samskipti
kynjanna
Fæða sem dregur úr kynlöngun
kvenna um 90% Viðhorf 26
FJÖLDI þeirra barna í Írak sem
þjást af bráðum næringarskorti
hefur næstum því tvöfaldast síðan
stríðinu gegn stjórn Saddams
Husseins lauk og
heilbrigðiskerfi
landsins hrundi,
að því er Barna-
hjálp Sameinuðu
þjóðanna (UNI-
CEF) greindi frá
í gær. „Aukinn
næringarskortur
sýnir að heilsu
barnanna hefur
yfirleitt hrakað,“
sagði Geoffrey
Keele, talsmaður
UNICEF, á fréttamannafundi í
Bagdad.
Frá því átökunum lauk hefur
hlutfall þeirra barna sem þjást af
næringarskorti aukist úr fjórum
prósentum í 7,7%, sagði hann og
bætti við að niðurgangstilvikum
meðal barna í landinu hefði fjölgað
mikið.
Fyrir stríðið þjáðist hátt í ein
milljón barna af stöðugum næring-
arskorti, þar af taldist um fjórð-
ungur vera bráðatilfelli, sagði
Keele. „Næringarskortur er í raun
mjög góð vísbending um heilsufar
barna yfirleitt, því hann byggist á
svo mörgum þáttum; möguleikum á
að fá mat og hreint vatn, aðgangi
að fullnægjandi hreinlætisaðstöðu
og hreinlæti. Börn í Írak hafa ekk-
ert af þessu.“
Vannær-
ing hrjáir
fleiri börn
Bagdad. AFP.
Skorturinn í Írak
meiri eftir stríðið
„ÞETTA varð okkur mikið áfall, algjört reið-
arslag og við erum bara mjög ringluð og vit-
um ekkert hvað verður,“ sagði Krystyna
Pohorecka sem ásamt eiginmanni sínum
Hieronim Graczyk hefur búið á Raufarhöfn í
rúm sjö ár. Þau komu frá Póllandi, en nú
starfa um 25 landar þeirra í frystihúsi Jökuls
á staðnum og segja þau óvissu ríkjandi í
þeirra hópi.
Öllu starfsfólki Jökuls, um 50 manns, hefur
verið sagt upp störfum en 20 verða end-
urráðnir. Jökull er hluti af Brimsamstæð-
unni, sem er dótturfélag Eimskipafélagsins.
Tap varð af rekstrinum upp á 96 milljónir
króna á liðnu ári og á fyrstu fjórum mánuðum
þessa árs nemur tapið um 26 milljónum
króna. Aukin samkeppni, einkum vegna mik-
ils framboðs fisks frá Kína og gengi krón-
unnar, hafi þar mest áhrif.
Þau hjónin, Krystyna og Hieronim, flutt-
ust til Íslands í febrúar árið 1996 og hafa búið
og starfað á Raufarhöfn síðan. „Okkur hefur
líkað mjög vel og við viljum vera hér áfram,
við höfum ekki löngun til að flytja heim til
Póllands aftur. Það er betra að vera á Íslandi,
meira öryggi,“ sagði Krystyna. Þau bjuggu
til að byrja með í verbúð, en fluttu síðan í
leiguíbúð í fjölbýlishúsi á staðnum. Fyrir
tveimur og hálfu ári festu þau kaup á ein-
býlishúsi við Tjarnarholt. „Við keyptum hús-
ið því við ætluðum okkur svo sannarlega að
búa hér á staðnum áfram. Við höfðum örugga
vinnu og það var fyrir öllu í okkar huga. Það
gekk allt svo vel og við vorum ánægð,“ sagði
hún. Þau Hieronim eru sammála um að gott
sé að búa á Íslandi og því hafi þau ákveðið að
setjast að fyrir fullt og allt. Atvinnuöryggi
hafi þar ráðið mestu, en eins sé gott að búa í
litlu rólegu samfélagi. „Fólkið er vingjarnlegt
og þetta samfélag er gott, þess vegna viljum
við vera áfram,“ sagði Hieronim. „Ég vona
bara að Guð hlusti á okkur þegar við biðjum
um að fá að vera áfram. Ég veit ekki hvað við
getum gert ef við missum vinnuna,“ sagði
Krystyna, en hún er trúnaðarmaður hjá
Jökli. „Við skiljum það samt vel að Íslending-
arnir gangi fyrir með vinnu, þetta er þeirra
land.“
Hún kvaðst sorgmædd vegna uppsagn-
anna og samdráttarins hjá frystihúsinu og
sagði að tíðindin hefðu komið sér í opna
skjöldu. Algjörlega óvænt og því hefði áfallið
verið mikið. Hún sagði að 15. júní næstkom-
andi ætti að liggja fyrir hvaða starfsmenn
verði endurráðnir til fyrirtækisins og síðan
yrði starfsemin stöðvuð vegna sumarleyfa frá
29. júní til 11. ágúst. En þá yrðu starfsmenn
einungis 20. „Næstu tvær vikur verða erfiðar,
á meðan við bíðum eftir fregnum af því hvort
við fáum að halda áfram eða verðum í hópi
þeirra sem fara. Við erum ekki farin að hugsa
mikið um hvað gerist ef við fáum ekki vinnu,
við stöndum uppi ráðalaus en vonum það
besta,“ sagði Krystyna.
Mikil óvissa er ríkjandi í hópi Pólverja eftir uppsagnirnar hjá Jökli á Raufarhöfn
Erum mjög ringluð og
vitum ekkert hvað verður
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hjónin Krystyna Pohorecka og Hieronim
Graczyk: „Næstu tvær vikur verða erfiðar.“ Raufarhöfn / 4, 6
Akureyri. Morgunblaðið.
MAHMOUD Abbas og Ariel Sharon, for-
sætisráðherrar Palestínumanna og Ísraela,
áttu „mjög árangursríkan“ fund í Jerúsalem í
gærkvöld, að sögn embættismanna beggja
aðila. Á fundinum voru ræddir ásteytingar-
steinar varðandi öryggisgæslu og stofnun
palestínsks ríkis er gætu flækt friðarumleit-
anir fyrir botni Miðjarðarhafs. Í næstu viku
hitta forsætisráðherrarnir George W. Bush
Bandaríkjaforseta.
Eftir fundinn í gærkvöld tilkynnti palest-
ínskur ráðherra að Ísraelar hefður lýst sig
reiðubúna til að láta lausa tvo palestínska
fanga sem lengi hafa setið í ísraelsku fangelsi
og er annar þeirra háttsettur félagi í Frels-
issamtökum Palestínu (PLO).
Þetta var annar fundur Sharons og Abbas
á hálfum mánuði. Deiluaðila greinir á um yf-
irlýsingu um viðurkenningu á rétti Palest-
ínumanna til að stofna ríki og um með hvaða
hætti Palestínumenn skuli koma í veg fyrir
frekari árásir herskárra manna á Ísraela, en
þetta eru lykilatriði í svokölluðum Vegvísi,
þriggja þrepa friðaráætlun sem Bandaríkja-
menn, Rússar, Sameinuðu þjóðirnar og Evr-
ópusambandið hafa lagt fram.
Vegvísirinn verður aðalatriðið á fundi Abb-
as og Sharons með Bush, er fram fer í Jórd-
aníu á miðvikudaginn. Í gærkvöld var til-
kynnt að á þeim fundi myndu Ísraelar og
Palestínumenn gefa út sameiginlega yfirlýs-
ingu um Vegvísinn. Ætlar Bush þar að
þrýsta á um að þegar verði hafist handa við
að framfylgja áætluninni og binda enda á 32
mánaða blóðug átök.
Ánægja með
fund Abbas
og Sharons
Jerúsalem. AFP, AP.
Ísraelar láta háttsettan
PLO-mann lausan
Ísraelskir landnemar/14
BÚDDANUNNUR í Nepal fylgjast kátar með
hátíðahöldum í tilefni af því að hálf öld var í gær
liðin frá því að Nýsjálendingurinn Sir Edmund
Hillary og nepalski sherpinn Tenzing Norgay
komust á tind Everests, hæsta fjalls heims.
Hillary hitti í gær m.a. Gyanendra, konung Nep-
als (t.h.). Sagði Hillary að sér hefði aldrei tekist
að komast á Everest hefði hann ekki notið hjálp-
ar nepölsku sherpanna.
AP
EPA
Sir Edmund Hillary
þakkar sherpunum