Morgunblaðið - 30.05.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 9
Ný sending
af glæsilegum
sumarkjólum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Bankastræti 14, sími 552 1555
Hvítar gallastretsbuxur
frá
Ermalausir bolir
stærðir 36-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—16.
Laugavegi 56, sími 552 2201
ÚTSÖLU-
FORSKOT
25%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
www.casa.is
Ný sending af
sumarblómum
Laugavegi 63
sími 551 2040
Opið kl. 10-18.
ÍSLENSK börn segja foreldrum sín-
um sjaldan frá reynslu sinni af Net-
inu samkvæmt niðurstöðum úr könn-
un SAFT, sem er rannsóknar- og
fræðsluverkefni um örugga netnotk-
un og er hún studd af Evrópusam-
bandinu.
Niðurstöðurnar leiða í ljós að þörf
er á meira eftirliti foreldra með net-
notkun barna sinna en rúmlega helm-
ingur barna á aldrinum 9–16 ára telur
sig geta notað Netið án þess að for-
eldrar viti af því.
Könnunin var framkvæmd í fimm
löndum, Íslandi, Noregi, Svíþjóð,
Danmörku og Írlandi en þau eru öll
aðilar að verkefninu. 10 þúsund börn
og foreldrar tóku þátt í könnuninni
sem var framkvæmd af norska fyr-
irtækinu MMI, en Gallup sá um fram-
kvæmd á Íslandi.
Heimili og skóli – landssamtök for-
eldra er aðili að samstarfshópnum
fyrir hönd Íslands. Telja samtökin
niðurstöður könnunarinnar vera
kærkomið verkfæri í hendur foreldra
og skólastarfsmanna sem allir eru að
feta sig áfram sem uppalendur án fyr-
irmyndar þegar kemur að netnotkun.
Vita meira um Netið
en foreldrarnir
Niðurstöðurnar sýna að börn vilja
helst fá leiðbeiningar um notkun
Netsins frá foreldrum og skóla.
Niðurstöður sýna einnig að 100%
íslenskra barna á aldrinum 9 til 16 ára
hafa notað tölvur. Rúmlega helming-
ur þeirra segist hafa haft tækifæri til
að vafra á Netinu án vitundar for-
eldra sinna. Börnin segjast líka vita
meira um Netið en foreldrar þeirra.
Samkvæmt börnunum vita feður og
mæður álíka mikið um Netið en börn
tala almennt meira um reynslu sína af
Netinu við mæður sínar. Íslensk börn
ræða minna um reynslu sína af Net-
inu en börn í samanburðarhópnum.
Könnunin staðfestir einnig að það
er munur á því sem börn gera á Net-
inu og því sem foreldrar halda að þau
geri.
87% foreldra segjast sitja hjá börn-
um sínum þegar þau vafra um Netið,
en einungis um 22% barna upplifa að
svo sé. Þannig sýna niðurstöður að
börnum finnst foreldrar ekki fylgjast
mikið með eða ræða notkun þeirra á
Netinu. Þessi vitneskja gefur foreldr-
um gott svigrúm til að ræða öryggi á
Netinu og reglur sem þeir vilja að far-
ið sé eftir við notkun þess án þess að
börnum finnist að sér þrengt.
Þá segjast 66% íslenskra barna
nota spjallrásir. 41% þeirra segir að
þau hafi verið beðin að hitta aðila,
sem þau hafa kynnst á Netinu, augliti
til auglitis. Af þeim börnum sem
spjalla, hefur 21% hitt manneskju
sem þau hittu fyrst á Netinu í eigin
persónu, á meðan einungis 4% for-
eldra telja svo vera. Alls tóku 47%
barnanna jafnaldra, vin eða vinkonu,
með til slíks fundar.
Gefa ekki persónuupplýsingar
Flest börn eru sér meðvitandi um
að þau eiga ekki að gefa persónulegar
upplýsingar. Sum gefa rangar upp-
lýsingar en niðurstöður sýna að börn
eru reiðubúnari til að gefa persónu-
legar upplýsingar en foreldrar þeirra
halda. Um 33% barna treysta flestum
eða öllum upplýsingum sem þau finna
á Netinu.
Um 49% barna sem nota Netið
hafa heimsótt klámsíðu fyrir slysni
eða af ásetningi. Einn fjórði þeirra
hefur fengið sent klámfengið efni á
Netinu. Alls hafa 33% barna skoðað
heimasíður með ofbeldiskenndu efni
á meðan einungis 14% foreldra telja
að svo sé.
Samtökin Heimili og skóli segja að
eitt af markmiðum SAFT verkefnis-
ins sé að auka þekkingu foreldra og
skólastarfsmanna á þeim kostum sem
Netið býr yfir og leggja þeim til
fræðslu- og kennsluefni til að leið-
beina börnum og ungmennum um
örugga netnotkun.
Heimili og skóli nýta niðurstöður
SAFT kannana sem undirstöðu fyrir
SAFT kennsluefni sem nú er verið að
vinna fyrir kennara og foreldra.
Kennsluefnið verður tilbúið til notk-
unar í skólum næsta vetur og ætti það
að falla vel að kennslu í lífsleikni- og
tæknimennt. Að auki verður opnuð
vefsíða í tengslum við kennsluefnið.
Einnig vilja samtökin vekja athygli
netiðnaðarins á málefninu og leggja
honum lið við að samhæfa skilaboð
um örugga netnotkun á Evrópuvísu.
Morgunblaðið/Kristinn
Kristbjörg Hjaltadóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, kynnir niðurstöður nýrrar könnunar um börn og
netnotkun fyrir Jónínu Bjartmarz, Þórhildi Líndal og fleirum.
Vilja leiðbeiningar
um netnotkun