Morgunblaðið - 30.05.2003, Page 20
MYNDASÖGUR, þorskaljós, stólar,kjólar og hnífapör eru meðal þesssem Dögg Guðmundsdóttir og Fann-ey Erla Antonsdóttir hafa hannað
saman eða hvor í sínu lagi. Listakonurnar búa
báðar í Danmörku og kynntust þegar þær voru
við nám í Danmarks Design skólanum í Kaup-
mannahöfn.
Árið 2001 sýndu þær saman þorskaljósin svo-
kölluðu, lampa úr skreið, á innsetningum í List-
iðnaðarsafninu í Kaupmannahöfn. Síðan hefur
þeim verið boðið að sýna þorskaljósin í Svíþjóð og
Frakklandi. Þorskaljósin eru fjórtán þurrkaðir
þorskar sem hanga niður úr lofti í hlutverki ljósa-
króna.
Þeim hefur boðist að sýna víðar og eru m.a. í
sambandi við fólk frá netsjónvarpsstöð í Japan og
sýningaraðila í Eistlandi, auk Þýskalands og
Frakklands. „Við hlökkum auðvitað til að halda
áfram og vonumst til að fá styrki til þess en erum
nokkuð háðar því. Þetta er heilmikil landkynning
af því að innsetningin er svo sérstök. Til dæmis
tóku mjög margir eftir íslenska básnum á tvíær-
ingnum í Frakklandi þótt 1.500 manns hafi verið
að sýna, en 250.000 sóttu sýninguna,“ segir Fann-
ey.
Dögg og Fanney hafa haft sameiginlega vinnu-
stofu sl. þrjú ár ásamt fleiri listamönnum og unnið
að eigin og sameiginlegum verkefnum. Dögg er
iðnhönnuður frá Mílanó en Fanney er útskrifuð úr
keramikdeild Myndlista- og handíðaskólans þá-
verandi. Dögg hefur hannað húsgögn og ýmsa
nytjahluti en Fanney hefur haldið sig við flest
annað en leirlist; teiknað myndasögur og hannað
föt.
Skopmyndir og
latex-listaverk
Fanney teiknar skopmyndir og teiknimynda-
sögur fyrir þrjú blöð; The Copenhagen Post, viku-
blað með fréttum á ensku, og tvö minni hverf-
isblöð. Fanney var nú síðast fengin til að
myndskreyta glænýtt norrænt tímarit, Reflekt-
ioner. Tímaritið er gefið út í Danmörku en
einnig dreift í Svíþjóð
og Noregi, síðast var
það gefið út í 10.000
eintökum, en kemur út í ann-
að sinn um miðjan júní. Reflektioner
er þemablað þar sem tekið er fyrir
ákveðið efnissvið hverju sinni og það
rætt frá ýmsum vinklum. „Þetta
er mjög spennandi,“
segir Fanney. „Reflekt-
ioner er ekki þröngt
fagblað fyrir ákveðinn
hóp heldur á þaðað vera
þverfaglegt og
skemmtilegt blað sem
höfðar til forvitins fólks med breitt
áhugasvið og þörf fyrir að pæla dálít-
ið í hlutunum.“
Hún hefur mest að gera við mynd-
skreytingarnar og
hyggst reyna að útvega
sér fleiri verkefni á
þeim vettvangi. Fata-
hönnun hefur líka verið
stór hluti af listsköpun
Fanneyjar. Latex-kjóll
og stormjakki eftir hana hafa vakið
athygli og sýndi hún báðar flíkurnar á
sýningu í Frakklandi þar sem þorska-
ljósin voru einnig sýnd. Þessar flíkur
eru einkennandi fyrir
hönnun Fanneyjar en
gúmmí og latex hefur hún notað töluvert. Í nýj-
asta verki hennar „Cobweb“, eða köngulóarvef,
er latex strengt á ramma.
„Hugmyndin með Cobweb er að skoða sam-
hengið á milli efnismagns og þess pláss sem það
tekur, að gera skilvegg með litlu efni og skoða
hvenær hann sjónrænt fer að skilja rýmið að.
Einnig lék ég mér að efninu, að teygjanleika þess
og vildi ná fram togstreitu sem myndast við að
skapa spennu á milli rammans og þess sem
strengt er á hann. Ég notaði tiltölulega mjóan
spotta til að undirstrika þetta,“ segir Fanney.
Hönnunarsýning kvenna
í New York
Dögg er með mörg járn í eldinum um þessar
mundir. Í sumar tekur hún þátt í sýningu í New
York ásamt yfir 30 konum víðs vegar úr heim-
inum, en þar mun hún sýna stólinn Wing. Dögg
segir að konur séu aðeins 10% af iðnhönnuðum
hjá stórfyrirtækjum í heiminum og iðnhönnun
kvenna hafi ekki verið eins sýnileg og karla.
„Þetta er mjög athyglisverð hönnunarsýning sem
gefur konum möguleika á því að sýna sig og
sanna innan heims hönnunar, þar sem erfitt er
fyrir konur að koma sér á framfæri í heimi hönn-
uða og ná þeim samböndum sem karlar hafa og
eru búnir að afla sér í gegnum árin,“ segir Dögg.
Ásamt þremur öðrum hönnuðum í Kaupmanna-
höfn er Dögg að vinna að verkefni í samvinnu við
fyrirtækið Design Nord í Árósum sem nýlega hef-
ur opnað skrifstofu í Tævan. „Við sjáum um alla
hönnun fyrir heimilið en Design Nord sér um
tæknihönnun,“ segir Dögg, en hún á ásamt fé-
lögum í Kaupmannahöfn 5% í Design Nord og það
tryggir þeim verkefni á þeirra sviði.
Franska framleiðslufyrirtækið Ligne-Roset
hefur einnig tekið nokkra hluti frá Dögg í fram-
leiðslu. Þetta eru vasar og lampar sem hannaðir
voru á árunum 1996-1999. Að sögn Daggar hefur
sala gengið mjög vel og nú er hún að hanna teppi
og textíl fyrir fyrirtækið.
Hanna saman eða hvor í sínu lagi í Danmörku
Glæpamaður í
verkfalli! – Ein
af skopmynd-
um Fanneyjar
fyrir Copen-
hagen Post.
Dögg Guðmundsdóttir og Fanney Erla
Antonsdóttir við þorskaljósin sín.
Brú – Silfurhnífapör eftir Dögg. Hnífapörin
lyfta sér upp frá borðinu eins og brú og draga
nafn sitt af því.
Köngulóarvefur – Nýjasta verk
Fanneyjar, „Cobweb“ þar sem latex
er strengt á ramma.
steingerdur@mbl.is
Skop,
húsgögn og
skúlptúrar
DAGLEGT LÍF
20 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Acidophilus
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Fyrir meltingu
og maga
FRÁ
Kringlunni, sími 588 1680.
iðunn
tískuverslun
gallabuxur
kvartbuxur
ZigZag – Nýjasta verk Daggar er hið fjölnota ZigZag,
úr viði og málmi. Hægt er að nota það sem sæti eða
hillu og henta litlu hillurnar t.d. vel fyrir geisladiska.