Morgunblaðið - 30.05.2003, Page 21
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 21
Lið-a-mótLið-a-mót
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Extra
sterkt
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
www.casa.is
Vertu vel klædd
á réttum stö›um
debenhams
S M Á R A L I N D
Komdu í Debenhams,
það gæti verið upphaf að sólríku sumarfríi!
Í sólinni
verða smáatriðin stór
Nú geturðu sannarlega notið þín til fulls í sólinni.
Full búð af nýjum vörum. Allt sem skipir máli fyrir
strandlífið ljúfa; Bikini, sundbolir, strandskór,
sparisandalar, töskur, handklæði, sólhattar,
sólarvörn, sólarolía og brúnkukrem.
Bara nefna það, við höfum það flottasta fyrir þig,
á frábæru verði.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
13
13
05
/2
00
3
Bikini 2.290 kr.
Sandalar verð frá 1.290 kr.
Bútasaums-klúbbar erustarfræktir
víða um landið og
nöfnin á þeim eru
skemmtileg eins og
til dæmis Bútapest,
Pjötlurnar, Ræm-
urnar, Iðnu Lísurn-
ar og Samansaum-
aðar. Saman koma
þessir klúbbar og
fleiri eins og bútar í
bútasaumsteppi og
mynda Íslenska
bútasaumsfélagið
sem var stofnað árið
2000.
Tilgangur félags-
ins er að styrkja
áhuga og útbreiða
þekkingu á búta-
saumi og halda uppi
samstarfi milli búta-
saumsfélaga og
klúbba á Íslandi,
ennfremur efla sam-
starf og vera tengi-
liður við hliðstæð
félög í öðrum löndum. Félagið er
opið jafnt áhugafólki sem faglærð-
um og eru félagar nú um 400. Að
sögn Margrétar Óskar Árnadótt-
ur, formanns Íslenska bútasaums-
félagsins, eru konur frá 40 ára og
upp úr flestar, en yngsti félaginn
er 28 ára kona og þá eru tveir
karlar skráðir í félagið.
Gróska um allan heim
Að sögn Margrétar hefur mikil
gróska einkennt starf íslenska fé-
lagsins allt frá stofnun og félagar
lýst ánægju með þann vettvang
sem mánaðarlegir fundir eru. Ís-
lenska bútasaumsfélagið hefur
staðið fyrir tveimur sýningum og
stendur sú seinni einmitt yfir í
Gerðubergi um þessar mundir og
ber heitið Íslandsteppi. Þar er
m.a. sýndur bútasaumur eftir
Borghildi Ingvarsdóttur en verk
hennar „Eldað í Flateyjardal“ var
valið það besta á sýningunni.
Bútasaumur er sameiginlegt
áhugamál margra um allan heim
og íslenskt bútasaumsfólk hefur
verið duglegt að fara til útlanda á
ráðstefnur og námskeið sem nóg
er af. Nokkrar eru á leiðinni til
Noregs í lok maí á norræna ráð-
stefnu bútasaumsfélaga sem hald-
in er þriðja hvert ár, en unnið er
að því að íslenska félagið gangi í
norræn samtök bútasaumsfélaga
þar sem hátt í 13 þúsund manns
eru félagar. Margrét Ósk segir að
þá gæti jafnvel komið til greina að
norræna ráðstefnan verði haldin
hér á landi, e.t.v. árið 2009. Hún
segir að í Evrópusamtökum búta-
saumsfélaga séu félög frá 15 Evr-
ópulöndum og að íslenska félagið
hafi einnig hug á að fá aðild að
þeim.
Eldað í Flateyjardal – Verk Borghildar Ingvarsdóttur, sem
var valið besta verk sýningarinnar sem nú stendur yfir í
Gerðubergi. Konurnar á myndinni eru að undirbúa lokamáltíð
í gönguferð sem höfundur fór sumarið 2002.
Bútar
koma saman
Sumarið 2002 – Verk eftir Þórdísi Björnsdótt-
ur. Hún hefur gert tilraunir með að prenta
myndir á tau og notar þær hér í bútasaumsverk.