Morgunblaðið - 30.05.2003, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 25
út með
ir
manni
Toni &
ru stórir
ofan, sem
verið
um þrjú
stu tísku-
í stíl tek-
ur á móti blaðamanni og spyr hvort
hún geti tekið jakkann. Síðan er
boðið upp á þrettán mismunandi
drykkjartegundir. Á meðan við-
skiptavinirnir bíða geta þeir horft á
sjónvarp þar sem sjá má nýjustu
straumana í hártísku víða um heim.
Lyktin er fersk, það er verið að þvo
einum viðskiptavinanna. Í leiðinni
fær hann höfuð- og hnakkanudd.
„Við viljum hafa það þannig að
þegar fólk kemur til okkar í klipp-
ingu njóti það þess að fá dekur í
leiðinni,“ segir Hildur Árnadóttir,
annar eigenda stofunnar. Hinn eig-
andinn, Sigrún Davíðsdóttir, er á
kafi við að lita hár eins við-
skiptavinarins.
Stofan er á tveimur hæðum. Á
neðri hæðinni fer hárlitunin fram.
Ung kona situr og bíður þess að lit-
urinn nái festu í hárinu og talar í
farsímann á meðan. Hún er einnig
klædd eftir nýjustu tísku. Á efri
hæðinni er önnur kona týnd á bak
við tímarit á meðan verið er að
þurrka á henni hárið.
Hildur leiðir blaðamann að ein-
um af sínum föstu viðskiptavinum
sem er nýkominn inn. „Hvað seg-
irðu um að stytta svolítið að aftan
og fá nýjar línur í hárið?“ segir
Hildur við viðskiptavininn. Yfir
stendur ráðgjöf þar sem fagmað-
urinn fer yfir hvað gera skuli. Ráð-
gjöfin er veitt um leið og viðskipta-
vinirnir koma inn, síðan fara allir í
hárþvott og nudd. Að lokinni klipp-
ingu fá allir hárblástur. Meðan á
herlegheitunum stendur er við-
skiptavininum boðið upp á
drykkjarföng.
Nýleg tónlist af geisladiski
hljómar í Bang & Olufsen-
hljómtækjunum. „Öll þessi smáat-
riði skipta svo miklu máli. Við-
skiptavinurinn verður að fá ráðgjöf
til þess að hann fái réttu klipp-
inguna fyrir sig,“ segir Hildur. „Við
leggjum okkur fram um að kynnast
persónunni sem kemur í klippingu.
Við tökum eftir klæðaburði og vaxt-
arlagi,“ segir Hildur.
Hún segir eina af helstu breyt-
ingunum sem hún hafi tekið eftir
frá því hún hóf störf í geiranum fyr-
ir þrettán árum að herrarnir vilji
nú einnig fá ráðgjöf.
Mikil áhersla er lögð á þjónustu
og fara allir 15 starfsmenn stof-
unnar á þjónustunámskeið árlega.
Einnig er boðið upp á naglasnyrt-
ingu og förðun. Starfsmenn stof-
unnar fylgjast grimmt með nýjustu
tískustraumunum. „Við förum út
svona þrisvar á ári og fáum hug-
myndir. Þess á milli fáum við send-
ar hugmyndir á tölvupósti og með
faxi. Þegar við komum heim sýnum
við starfsfólki okkar það sem við
lærðum.“
Toni & Guy eru tveir af fjórum
bræðrum sem opnuðu fyrstu hár-
greiðslustofuna á Englandi árið
1963. Nú bera um 300 stofur víða
um heim nafnið.
„Við leggjum mjög mikið upp úr
því að starfsfólkið sé klippt eftir
nýjustu tísku. Við verðum að vera
vel til höfð og stúlkurnar málaðar
og snyrtilegar um hárið. Þetta er
bara rosalega stór partur af ímynd-
inni enda höfum við heyrt fólk tala
um að það sé svo gaman að koma
hingað því það séu allir svo flipp-
aðir,“ segir Hildur.
Hún segir að þau á stofunni séu
sífellt að reyna að finna upp á nýj-
ungum. „Maður má ekki staðna.
Það er ákveðin hugmyndafræði á
bak við þetta allt saman. Við viljum
skapa ímynd bæði fyrir stofuna og
við viljum einnig að viðskiptavin-
urinn geti skapað sér eigin ímynd,“
segir Hildur sem er þotin í að
klippa og lita næsta viðskiptavin.
g höfuðnudd.
Björg Rúnarsdóttir sem ber erlenda starfsheitið „style director“ (t.v.)
greiðir Sigríði Erlu Viðarsdóttur ásamt Herborgu Jónasdóttur nema.
Áður en viðskiptavinurinn kveður fær hann að sjá hvernig tekist hefur.
því.
Morgunblaðið/Jim Smart
verið
ar
s-
ði
tíl.
irisbe@mbl.is
UTANVEGAAKSTUR ertalsvert vandamál áReykjanesi, bæði afhálfu jeppa- og mótor-
hjólamanna, að sögn staðgengils
sýslumannsins í Keflavík. Skemmst
er að minnast snautlegrar ferðar á
sex jeppum í Krókamýri en mál
gegn ökumönnum þeirra er nú í
höndum ríkislögreglustjóra.
Utanvegaakstur á torfærumótor-
hjólum er vaxandi vandamál og
hafa ökumenn þeirra m.a. valdið
umtalsverðum gróðurskemmdum á
Sveifluhálsi og nágrenni. Rétt er að
minna á að utanvegaakstur er
bannaður en auk þess er Reykja-
nesið að stórum hluta fólkvangur.
Ásgeir Eiríksson, staðgengill
sýslumanns, segir að erfitt sé að
koma í veg fyrir utanvegaakstur en
lögreglan hafi þó reynt eftir mætti
að stemma stigu við honum. Lög-
regla hafi jafnvel gengið svo langt
að stöðva bíla með kerrur með tor-
færumótorhjólum í eftirdragi og
gert ökumönnum grein fyrir að á
Reykjanesi væri ekkert æfingar-
svæði fyrir þá. Ásgeir segir að tor-
færumótorhjólum hafi mjög fjölgað
og sumir ökumenn þeirra víli ekki
fyrir sér að aka eftir göngu- og reið-
stígum og upp um fjöll og hlíðar.
Talsverðar skemmdar hafa verið
unnar á gróðri við Djúpavatn og á
Sveifluhálsi og nágrenni og útivist-
armaður sem hafði sambandi við
Morgunblaðið sagðist fyrir
skömmu hafa séð til mótorhjóla-
manna á fullri ferð á Selsvöllum,
fjarri vegum og slóðum.
Verða að uppfylla skilyrði
Mótorhjólamenn hafa um árabil
stundað utanvegaakstur á svæði við
Reykjanesbraut sem nefnt er
„Broadstreet“ eða Breiðstræti.
Landeigandi, Reykjanesbær, hefur
gefið leyfi fyrir þessum akstri fyrir
sitt leyti og hafa mótorhjólmenn
gagnrýnt lögreglu fyrir að banna
aksturinn samt sem áður. Aðspurð-
ur bendir Ásgeir á að ekki sé leyfi
til æfingaaksturs á svæðinu en um-
sókn liggi fyrir hjá embættinu frá
Vélhjólaíþróttafélagi Reykjaness.
Til að hægt sé að gera Breiðstræti
að æfingasvæði verði, skv. reglu-
gerð, að afmarka það, leggja fram
tryggingar og þar verði að vera eft-
irlit. Að þessum skilyrðum uppfyllt-
um sé ekkert sem hindri að mót-
orhjólamenn fái leyfi til
æfingaaksturs.
Í Álfsnesi í Kollafirði er verið að
koma upp æfingasvæði fyrir mót-
orhjólamenn og segir Ásgeir að þar
verði öll þessi skilyrði uppfyllt.
Hann minnir einnig á að sýslumað-
urinn í Keflavík hafi samþykkt
Breiðstræti sem keppnissvæði en
sækja verði um leyfi fyrir hverja
keppni. Mótorhjólamenn hafa einn-
ig æft sig í Sandvík en Ásgeir segir
ekki leyfi til utanvegaaksturs þar
en þetta sé vinsælt útivistarsvæði.
Ásgeir leggur áherslu á að sýslu-
maður fari einfaldlega eftir lögum
og reglum sem um þetta gilda.
Aðspurður segist Ásgeir hafa
fulla trú á að það myndi draga úr ut-
anvegaakstri ef mótorhjólmenn
hefðu afmarkað æfingasvæði. Þetta
velti þó á mótorhjólamönnum sjálf-
um sem verði að beita sig sjálfsaga.
Hann segir lögreglu hafa ágæta
reynslu af akstursíþróttum s.s.
ralli, körtubílaakstri og torfæru.
Vandamálið sé ekki bundið við
Reykjanesskagann heldur verði að
taka á því á landsvísu.
Lögregla segir jeppa- og mótorhjólamenn hafa valdið
umtalsverðum gróðurskemmdum á Reykjanesi
Utanvegaakstur á
torfæruhjólum
vaxandi vandamál
Morgunblaðið/RAX
Akstur vélknúinna farartækja utan vega getur valdið spjöllum á landinu.
ÞAÐ vantar æfingasvæði fyrir tor-
færumótorhjól og meðan svo er
verður utanvegaakstur alltaf
vandamál. Þetta er álit Hjartar L.
Jónssonar, sem er gamalreyndur
mótorhjólamaður og umsjón-
armaður með enduro-keppnum
Vélíþróttaklúbbsins. Hann gagn-
rýnir sýslumanninn í Keflavík fyr-
ir að banna akstur á gamalgrónum
æfingasvæðum og segir að með
því stuðli hann að utanvegaakstri
með tilheyrandi gróðurskemmd-
um.
Hjörtur segir að svonefnt Breið-
stræti hafi verið notað sem tor-
færubraut síðan snemma á átt-
unda áratug síðustu aldar og sé í
raun elsta akstursíþróttabraut
landsins. Sýslumaður hafi síðan
tekið upp á því að banna akstur í
brautinni og jafnvel beitt tugþús-
unda króna sektum. Þetta valdi
því að menn leiti á staði sem lög-
regla kemst ekki á. Segist hann
vita til þess að fimm ný æf-
ingasvæði hafi litið dagsins ljós á
Reykjanesi eftir að lögregla bann-
aði akstur um Breiðstræti. Hirti
finnst óeðlilegt að æfingasvæði
séu í Vestmannaeyjum, Selfossi,
Ólafsvík og víðar en erfiðlega
gangi að fá leyfi á Reykjanesi. Tel-
ur hann að sýslumaðurinn í Kefla-
vík sé ósveigjanlegri gagnvart
mótorhjólamönnun en aðrir sýslu-
menn.
14 bráðabirgðakeppnissvæði
Hjörtur bendir á að akstur á tor-
færumótorhjólum sé fjölmennasta
mótorsport landsins og til séu um
og yfir 1.000 slík hjól í landinu. Á
laugardaginn var hafi 218 manns
skráð sig til keppni á Kirkjubæj-
arklaustri en þetta séu fleiri kepp-
endur en í úrvalsdeild karla, svo
eitthvað sé nefnt. Barátta mót-
orhjólamanna fyrir æfingasvæð-
um hafi verið erfið og það sé sé
fyrst nú eftir 25 ár sem mót-
orhjólamenn á höfuðborgarsvæð-
inu sjái fram á að fá framtíðar æf-
inga- og keppnissvæði í Álfsnesi.
Fram til þessa hafi Vélíþrótta-
klúbburinn fjárfest í a.m.k. 14
bráðabirgðakeppnissvæðum.
Spurður um hvort mót-
orhjólamenn aki mikið utan vega á
hálendinu segist Hjörtur vita til
þess að það hafi gerst. Hann kann-
ast einnig við að mótorhjólamenn
aki eftir kindaslóðum. Hjörtur
bendir á að víða séu slóðir sem
hverfi nánast alveg undir sand,
milli þess sem þær eru eknar og
margir álíti ranglega að það sé ut-
anvegaakstur. Þessar leiðir fari
jeppamenn engu síður en mót-
orhjólamenn. Hjörtur telur enn-
fremur að í lögum sé heimilað að
aka gamlar þjóðleiðir, s.s. Presta-
stíg milli Grindavíkur og Hafna og
Biskupabraut milli Þingvalla og
Skálholts. Lögregla hafi ekki
amast við slíkum akstri hingað til.
Aðspurður segist hann telja að
þetta sé jafnvel heimilt þó að hin
forna þjóðleið hafi aldrei áður ver-
ið ekin.
Hjörtur segir að meðan
skemmtilegustu slóðar heims séu á
hálendi Íslands sé engin ástæða til
að aka utanvega.
Skortur á æfingasvæðum
er rótin að vandanum