Morgunblaðið - 30.05.2003, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 31
Aðalfundur Bridsfélags
Reykjavíkur
Aðalfundur Bridsfélags Reykja-
víkur verður haldinn þriðjudaginn
10. júní næstkomandi. Fundurinn
hefst klukkan 18:00 og fer fram í
húsnæði Bridssambands Íslands að
Síðumúla. Spilamennska í sumar-
bridge hefst ekki fyrr en að aflokn-
um fundinum.
Fundarefni verða venjuleg aðal-
fundarstörf og kosning nýrrar
stjórnar.
Sumarbrids BA hafið
Að venju heldur Bridsfélag Ak-
ureyrar úti starfsemi yfir sumarið
og er spilað sumarbrids á þriðju-
dögum kl. 19:30 í Hamri, félags-
heimili Þórs. Þegar hafa verið spil-
uð tvö kvöld.
Þriðjudaginn 20. maí mættu 12
pör og fyrsta kvöld sumarsins unnu
Björn Þorláksson og Frímann Stef-
ánsson. Efstu pör urðu:
Björn Þ. – Frímann S. 65,2%
Ragnheiður H. – Reynir H. 59,3%
Jón S. – Kolbrún G. 56,3%
Hjalti B. – Gissur J. 54,8%
Þriðjudaginn 27. maí mættu 9
pör og tókst þeim félögum að
„verja titilinn“. Annars fór svo:
Björn Þ. – Frímann S. 62,5%
Jón S. – Una S. 56,5%
Reynir H. – Soffía G. 54,6%
Sveinbjörn S. – Sigurður M. 53,2%
Næsta spilakvöld verður bryddað
upp á nýjung sem kallast Makk-
eraMargaríta og felst í því að þeir
stöku spilarar sem það vilja geta
sett nafn sitt í pott sem pör verða
svo dregin úr. Þar gætu ýmis ný
pör litið dagsins ljós!
Að lokum vill B.A. óska liði
Norðurlands eystra kærlega til
hamingju með sigurinn á nýaf-
stöðnu Kjördæmamóti.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Aðeins hefir dregið úr þátttök-
unni en föstudaginn 23. maí spiluðu
18 pör. Lokastaðan í N/S:
Sigtryggur Ellertss. - Þorsteinn Laufdal
256
Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 250
Júlíus Guðmss. - Óskar Karlsson 240
Hæsta skor í A/V:
Vilhjálmur Sigurðss. - Þórður Jörundss.
265
Eysteinn Einarss. - Magnús Oddsson 251
Auðunn Guðmss. - Bragi Björnsson 246
Einar Einarss. - Hörður Davíðss. 246
Sami þátttakendafjöldi var sl.
þriðjudag eða 18 pör.
Lokastaðan í N/S:
Ásta Erlingsd. - Ólafur Lárusson 249
Lárus Hermannss. - Sigurður Karlss. 242
Garðar Sigurðss. - Haukur Ísaksson 234
Hæsta skor í A/V:
Eysteinn Einarss. - Magnús Oddss. 270
Gróa Guðnad. - Sigrún Pétursd. 236
Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 219
Meðalskor báða dagana var 216
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 20. maí var spilaður
tvímenningur. Úrslit urðu þessi.
Jón Pálmason – Ólafur Ingimundarson 129
Árni Bjarnason – Þorvarður S. Guðm. 119
Bragi Björnsson – Auðunn Guðmundss.
118
Þriðjudaginn 27. maí var spilaður
tvímenningur. Úrslit urðu þessi.
Jón Pálmason – Sverrir Jónsson 142
Árni Bjarnas. – Þorvarður S. Guðmundss.
124
Guðni Ólafsson – Ásgeir Sölvason 114
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Fiskiðju-
samlags Húsavíkur hf.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf. boðar til aðal-
fundar, vegna rekstrarársins 2000, þriðjudag-
inn 13. júní 2003.
Fundurinn verður haldinn á Veitingahúsinu
Sölku á Húsavík og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 16. gr.
samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikn-
ingur félagsins, munu liggja frammi á skrif-
stofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir
aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á fundarstað.
Óski hluthafar eftir að ákveðin mál verði tekin
til meðferðar á aðalfundinum, þarf skrifleg
beiðni um það að hafa borist félagsstjórn með
nægjanlegum fyrirvara, þannig að unnt sé að
taka málið á dagskrá fundarins.
Hluthafar, sem ekki geta mætt á fundinn, en
hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skrif-
lega.
Stjórn Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf.
Aðalfundur
MG-félags Íslands
MG-félag Íslands heldur aðalfund laugardag-
inn 31. maí 2003 kl. 14.00 í Hátúni 10a, Reykjav-
ík, í kaffisal Öryrkjabandalags Íslands. Gestur
fundarins er Haraldur Ólafsson læknanemi.
Stjórnin.
NAUÐUNGARSALA
Nauðungarsala
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Suðurgötu 1,
Sauðárkróki, fimmtudaginn 5. júní 2003, kl. 14.00, á neðan-
greindum eignum:
M/b Berghildur SK-137, skrnr. 1581, þingl. eigandi er Bergeyjan
ehf. Gerðarbeiðandi er Byggðastofnun.
Háleggsstaðir, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Jóels Friðriks-
sonar. Gerðarbeiðendur eru Lífeyrissjóður Norðurlands, Lánasjóður
landbúnaðarins, Húsasmiðjan hf. og Ingvar Helgason hf.
Hólavegur 35, Sauðárkróki, þingl. eign Steinþórs Héðinssonar.
Gerðarbeiðandi er Íbúðalánasjóður.
Sæmundargata 5C, Sauðárkróki, þingl. eign Hallgríms Siglaugssonar.
Gerðarbeiðandi er Lífeyrissjóður Norðurlands.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
28. maí 2003.
TILKYNNINGAR
Auglýsing
um deiliskipulag og breytingu á deiliskipu-
lagi í Grímsnes- og Grafningshreppi
Samkvæmt 25. gr. laga nr. 73/1997, er hér með
lýst eftir athugasemdum við deiliskipulag og
breytingu á deiliskipulagi sbr. eftirfarandi:
a) Breyting á deiliskipulagi við Hvamma 25
og 27 í landi Ásgarðs í Grímsnesi Breytingin
felst í að mörk lóðar nr. 27 færist um 15 m
inn á lóð nr. 25. Byggingarreitur færist sem
því nemur og er 10 m frá lóðarmörkum.
b) Breyting að deiliskipulagi í landi Snæfoks-
staða í Grímsnesi Breytingarnar felast í að
lóðir við Grámosaveg stækka og fjölgar um
eina lóð, einnig stækkar skipulagssvæðið
til vesturs.
c) Deiliskipulag af nýju hverfi, Miðborgir, í
landi Miðengis. Nýtt deiliskipulag frístunda-
svæðis í landi Miðengis er ber heitið Mið-
borgir.
Skipulagstillögur liggja frammi á skrifstofu
Grímsnes- og Grafningshrepps frá 30. maí til
30. júní 2003. Skriflegum athugasemdum við
skipulagstillögurnar skal skila á skrifstofu sveit-
arfélagsins til 15. júlí 2003. Þeir, sem ekki gera
athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunni.
Sveitarstjóri Grímsnes-
og Grafningshrepps
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats-
skyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/
2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn,
Sveitarfélaginu Ölfusi
Skógrækt á tæplega 400 ha svæði í landi
Tungufells, Borgarfjarðarsveit
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulags-
stofnunar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 27. júní
2003.
Skipulagsstofnun.
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Auglýsing um deiliskipulag
í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér
með auglýst til kynningar tillaga að deili-
skipulagsáætlun í Reykjavík:
Stakkahlíð, Hamrahlíð, Bogahlíð.
Tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast af
Stakkahlíð, Hamrahlíð og Bogahlíð.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að leyft verði að rífa
atvinnuhúsnæði að Stakkahlíð 17 og byggja
tvílyft fjölbýlishús með neðanjarðarbílgeymslu
Á fyrrum gæsluvallarlóð og leiksvæði að
Stakkahlíð 19 er gert ráð fyrir að heimilt verði
að byggja tveggja deilda leikskóla. Sunnan
þeirrar lóðar er afmarkaður göngustígur milli
Stakkahlíðar og Bogahlíðar. Gert er ráð fyrir að
gönguleið fyrir framan lóðina nr. 17 við Hamra-
hlíð verði bætt og afmörkuð að höfðu samráði
við eigenda hússins til þess að auka öryggi.
Að öðru leyti er ekki gert ráð fyrir breytingum á
lóðum og húsum á svæðinu. Nánar vísast í
kynningargögn.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8.20 – 16.15 og fimmtudaga til 18.00, frá 30.
maí 2003 til 11. júlí 2003. Einnig má sjá
tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum
og athugasemdum við hana skal skila
skriflega til Skipulags- og byggingarsviðs
(merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 11. júlí
2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 30. maí 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
UPPBOÐ
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Klausturhólum 27,
Grímsness- og Grafningshreppi, föstudaginn 6. júní 2003
kl. 14:00:
Klausturhólar 27, Grímsness- og Grafningshreppi.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
28. maí 2003.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Brekkugata 10, íb. 010101, Akureyri, þingl. eig. Gunnar Árni Jónsson,
gerðarbeiðendur Byko hf., Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin
hf., miðvikudaginn 4. júní 2003 kl. 10:00.
Glerárgata 34, iðnaðarhús, 01-0101, Akureyri, þingl. eig. Legsteinar
ehf., gerðarbeiðendur DHL Hraðflutningar ehf. og sýslumaðurinn
á Akureyri, miðvikudaginn 4. júní 2003 kl. 10:30.
Hafnarbraut 25, 01-0101, Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Anna Rósa
Jóhannsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
4. júní 2003 kl. 14:00.
Möðruvallastræti 5, íb. 010201, eignarhl. Akureyri, þingl. eig. Hjalti
Gestsson, gerðarbeiðandi Verkval, verktaki, miðvikudaginn 4. júní
2003 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
28. maí 2003.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
ATVINNA
mbl.is