Morgunblaðið - 30.05.2003, Qupperneq 36
ÍÞRÓTTIR
36 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„VIÐ lögðum upp með það fyrir leikinn að verjast aft-
arlega á vellinum. Leyfa Valsliðinu að koma framar og
sækja hratt þegar færi gæfust. Það tókst og við vorum að
spila fínan fótbolta í dag,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálf-
ari FH, eftir 4:0 sigur liðsins gegn Valsmönnum í gær.
Ólafur sagði að markmið liðsins hefði verið að ná í 7 stig
úr fyrstu þremur umferðunum en það hefði ekki tekist.
„Við ætluðum að vinna KA fyrir norðan en það er mikið
eftir af mótinu og margt sem á eftir að gerast í framhald-
inu.“ Spurður um framlag Dananna tveggja í liði FH sagði
Ólafur að þeir hefðu ekki komið sér á óvart þar sem hann
þekkti vel til þeirra. „Þetta eru góðir leikmenn og Allan
Borgvardt var áberandi í sóknarleiknum á meðan Tommy
Nielsen batt vörnina saman. Ég vissi vel hvað í þeim býr og
þeir eiga eftir að reynast okkur vel. Það er ekki aðeins í
leikjum sem þeir hjálpa okkur, þeir hafa báðir verið at-
vinnumenn og miðla af reynslu sinni til allra í liðinu. Auk
þess sem það er ekkert vesen á þessum köllum,“ sagði
Ólafur.
„Danirnir koma
mér ekki á óvart“
ÞORLÁKUR Árnason, þjálfari Vals, sá hlutina í víðu
samhengi er rætt var við hann eftir leikinn . „Það
var mikil spenna í mínu liði í upphafi leiks og það var
eins og við næðum ekki að hrista hana af okkur. Það
er búið að vera stutt á milli leikja og við vorum ekki
alveg nógu ferskir að þessu sinni.“ Þorlákur var ekki
sáttur við Braga Bergmann dómara leiksins og þá
sérstaklega þegar hann vísaði Benedikt Hinrikssyni
af velli fyrir brot undir lok fyrri hálfleiks. „Það var
ekki réttur dómur að mínu mati og svipað atvik átti
sér stað undir lok leiksins en þá var aðeins gula
spjaldinu brugðið á loft.“ Þorlákur sagði að mark-
mið liðsins í fyrstu fjórum leikjum sumarsins væru
skýr og liðið væri á réttri braut þrátt fyrir 4:0 tap.
„Mér fannst við leika vel í síðari hálfleik einum færri
og það var ekki fyrr en undir lokin að FH-ingarnir
settu mörk á okkur. Þessi ósigur er aðeins skráma
fyrir okkur og við verðum brattir í næsta leik gegn
Þrótti á okkar heimavelli,“ sagði Þorlákur. Þorlákur Árnason
„Ekki nógu ferskir
að þessu sinni“
TÍU íslenskir kylfingar, sem allir
eru 21 árs eða yngri, keppa um
helgina á Opna velska unglinga-
mótinu. Leiknar eru 36 holur á laug-
ardaginn og síðan halda 36 bestu
áfram og leika annað eins daginn eft-
ir. Þeir sem fara á mótið eru Birgir
Már Vigfússon GR, Gunnar Þór Ás-
geirsson GS, Gunnar Þór Gunnars-
son GKG, Hjörtur Brynjarsson
GSE, Magnús Lárusson GKJ, Magn-
ús Ingi Magnússon GR, Karl Har-
aldsson GV, Rúnar Óli Einarsson
GS, Sigmundur Einar Másson GKG
og Stefán Már Stefánsson GR.
JODY Morris og Ed de Goey, leik-
menn Chelsea, munu ekki leika með
liðinu á næstu leiktíð. Forráðamenn
Chelsea hafa ákveðið að bjóða þeim
ekki nýjan samning. Talið er að Jody
Morris, sem er 24 ára miðjumaður,
muni fara til Tottenham eða Black-
burn.
CHELSEA er aftur á móti tilbúið
að keppa við Liverpool um að
tryggja sér miðvallarleikmanninn
Joe Cole frá West Ham. Cole var
metinn á tíu millj. punda, en Chelsea
er tilbúið að greiða fimm millj.
punda fyrir hann. West Ham er í
miklum fjárhagserfiðleikum og
myndi ekki slá hendinni á móti þeirri
fjárhæð.
ÍTALSKA knattspyrnuliðið Roma
hefur boðið í sóknarmanninn Mido
sem er frá Egyptalandi. Mido er í
láni hjá Celta Vigo frá Ajax en talið
er öruggt að hann verði seldur frá
Ajax í sumar.
LlEYTON Hewitt, sem er númer
eitt á heimslistanum, komst áfram í
þriðju umferðina á Opna franska
meistaramótinu í tennis í gær. Hew-
itt sigraði Nikolay Davydenko frá
Rússlandi í fjórum settum (6–3, 4–6,
6–3, 7–6).
PATRICK Kluivert, sóknarmaður
Barcelona, hefur sagt að Ruud van
Nistelrooy, sóknarmaður Manchest-
er United, hafi hringt í sig nokkrum
sinnum til að reyna að fá sig til að
ganga til liðs við United. „Ef Nist-
elrooy réði ferðinni væri ég fyrir
löngu kominn til United. Ég hef leik-
ið á Ítalíu og Spáni og ég er viss um
að ég eigi eftir að leika með frægu
liði í ensku úrvalsdeildinni í framtíð-
inni,“ sagði Kluivert.
RICARDO, markvörður Boavista
og portúgalska landsliðsins, mun
leika með Benfica eða Arsenal á
næsta tímabili að hans sögn. „Ég hef
fengið tilboð frá Benfica og Arsenal
og ég mun leika með öðru hvoru lið-
inu á næsta tímabili, en það er undir
Boavista komið til hvors liðsins ég
verð seldur,“ sagði Ricardo.
GLASGOW Rangers hefur áhuga
á að kaupa brasilíska sóknarmann-
inn Mario Jardel frá Sporting Lisb-
on. Jardel er metinn á um 700 millj-
ónir íslenskra króna en hann á eitt ár
eftir af samningi sínum við Sporting.
FÓLK
Valsstúlkur fögnuðu sigri á ÍBVí stórskemmtilegum leik að
Hlíðarenda, 3:2. Valur skoraði sig-
urmarkið á 88. mín-
útu úr umdeildri
vítaspyrnu. Áður
höfðu Eyjastúlkur
náð forystunni í tvígang. Eyjaliðið
byrjaði leikinn betur og á 12 . mín-
útu skoraði Margrét Lára Viðars-
dóttir eftir góðan undirbúning
Olgu Færseth. Valur jafnaði síðan
með glæsimarki á 34. mínútu.
Laufey Jóhannssdóttir tók auka-
spyrnu utan af kanti og í stað þess
að senda boltann fyrir eins og
flestir á Valsvellinum áttu von á,
skaut Laufey að marki og skoraði
yfir Petru F. Bragadóttur í marki
ÍBV.
Síðari hálfleik hóf ÍBV líkt og
þann fyrri, af krafti. Olga Færseth
kom Eyjastúlkum í 2:1 á 54. mín-
útu eftir stungusendingu frá Mar-
gréti Láru Viðarsdóttur. Valsstúlk-
ur skoruðu síðan fallegt
jöfnunarmark á 77. mínútu. Dóra
Stefánsdóttir gerði markið eftir
hornspyrnu Laufeyjar Jóhanns-
dóttur. Á 88. mínútu dæmdi síðan
Eyjólfur M. Kristinsson umdeilda
vítaspyrnu á Eyjastúlkur. Rakel
Rut Stefánsdóttir handlék þá
knöttinn inn í eigin vítateig en svo
virtist sem um óviljaverk hefði ver-
ið að ræða. Laufey Ólafsdóttir tók
vítaspyrnuna og skoraði af öryggi
og 3:2 sigur Vals varð staðreynd í
þessum þýðingarmikla toppslag.
Leikmenn beggja liða léku mjög
vel. Í sterku Valsliði léku nöfnurn-
ar Laufey Ólafsdóttir og Laufey
Jóhannsdóttir vel og þá var Dóra
María Lárusdóttir sífellt að skapa
vandræði í vörn ÍBV. Þær Karen
Burke, Olga Færseth og Margrét
Lára Viðarsdóttir léku vel í góðu
Eyjaliði.
Umdeild
víta-
spyrna
Hjörvar
Hafliðason
skrifar
Aðstæður til knattspyrnuiðkunargerast vart betri hér á landi,
sól, léttur andvari og fínn hiti.
Heimamenn fundu
sig mun betur við
þessar aðstæður eft-
ir að hafa verið sein-
ir í gang fyrstu mínútur leiksins.
Það voru FH-ingar sem fengu
fyrstu færi leiksins og eftir nokkra
þokkalega möguleika skoruðu FH-
ingar úr vítaspyrnu á 18. mínútu.
Fram að þeim tíma höfðu Valsmenn
ekki gert sig líklega til þess að
skora, miðjumenn liðsins voru ragir
að fara fram á við og sóknarleik-
menn liðsins gáfu boltann hvað eftir
annað til baka úr fremstu víglínu án
árangurs.
Valsmenn fengu kalda vatnsgusu
í andlitið tveimur mínútum eftir
fyrsta markið er FH-ingar fóru í
sparifötinn hvað sóknarleikinn varð-
ar. Boltinn gekk hratt manna á milli
þar sem Jón Þorgrímur Stefánsson
fékk veggsendingu frá Allan Borg-
vardt og skoraði Jón með frekar
lausu skoti. Eflaust á Ólafur Þór
Gunnarsson eftir að naga sig í
handarbökin er hann sér markið
endursýnt, enda hefði hann getað
gert mun betur í því tilviki.
Valsmenn hresstust aðeins eftir
annað mark FH-inga og fékk Jó-
hann Hreiðarsson ágætt færi eftir
hinn fræga darraðardans í vítateig
FH-inga en Jóhann var of seinn að
átta sig á aðstæðum.
Danski framherjinn Allan Borg-
vardt fékk gullið tækifæri til þess
að bæta við marki á 32. mínútu er
hann skallaði framhjá fyrir opnu
marki.
Nokkur harka var í leiknum og
lyfti Bragi Bergmann gula spjald-
inu á loft í tvígang í uppbótartíma í
fyrri hálfleik og það rauða fór einn-
ig á loft er Valsmaðurinn Benedikt
Bóas Hinriksson brá fæti fyrir
Borgvardt.
Valsmönnum þótti dómurinn
strangur en FH-ingum ekki, en sá
sem þetta ritar hefur oftar séð gula
spjaldinu verið brugðið á loft eftir
slík samskipti.
Síðari hálfleikur hófst eins og sá
fyrri með miðjudansi beggja liða en
ef eitthvað var höfðu Valsmenn
frumkvæðið. FH-ingar voru nærri
því að skora sjálfsmark eftir að
Bjarni Eiríksson hafði gefið fyrir
markið frá vinstri en boltinn hrökk
af varnarmanni FH og rétt framhjá
markinu.
Hafnfirðingar fengu tvö fín færi
um miðbik síðari hálfleiks og í því
síðara skallaði Jón Þorgrímur Stef-
ánsson boltann í þverslá.
Allan Borgvardt og Jónas Grani
Garðarsson bættu við mörkum fyrir
FH á 32. mínútu og 85. mínútu og
sigurinn því öruggur.
Valsliðið var ekki að leika sinn
besta leik að þessu sinni. Sóknar-
menn liðsins létu lítið að sér kveða
og fengu oft og tíðum litla sem enga
hjálp frá miðjumönnum liðsins.
Vörn liðsins skánaði þegar á leið
enda sváfu varnarmenn liðsins á
verðinum í upphafi leiks – á þeim
kafla þar sem úrslitin réðust svo að
segja. Ólafur Þór Gunnarsson,
markvörður Valsmanna, átti slakan
dag og hefur eflaust ekki hug á því
að muna eftir þessum leik í langan
tíma.
FH-liðinu er ekki spáð mikilli vel-
gengni á þessu tímabili enda er liðið
óþekkt stærð í upphafi móts. Hins-
vegar minnti liðið verulega á sig í
gær með afbragðsleik. Tommy
Nielsen var sem klettur í vörninni
og hann skilar boltanum vel frá sér
þegar þess þarf. Daði var traustur í
markinu og fékk reyndar lítið að
spreyta sig á skotum Valsmanna að
þessu sinni.
Á miðsvæðinu bar mest á Baldri
Bett sem er geysilega vinnusamur
leikmaður og oft og tíðum vanmet-
inn.
Allan Borgvardt var í miklum
ham í gær og sýndi oft snilldar-
takta. Hann er lipur með knöttinn,
heldur honum vel þegar á þarf, er
með gott auga fyrir samspili og að
síðustu kann hann að skora mörk.
Það verður gaman að fylgjast með
honum í næstu leikjum. Jón Þor-
grímur Stefánsson var einnig
sprækur í framlínunni og mega
varnarmenn landsins ekki líta af
honum eitt augnablik – ef ekki á illa
að fara.
„Danskir dagar“
á Kaplakrika
ÞAÐ má segja að „danskir dagar“ séu í herbúðum FH-liðsins þessa
stundina þar sem dönsku leikmennirnir Tommy Nielsen og Allan
Borgvardt láta mikið að sér kveða. Þeir félagar voru áberandi í 4:0
sigri liðsins gegn Val á Kaplakrikavelli í gær og skoruðu báðir í
leiknum. Staðan í hálfleik var 2:0 en Valsmenn léku einum færri í
síðari hálfleik en héldu velli allt þar til á lokakafla leiksins er FH-
ingar bættu við tveimur mörkum til viðbótar. FH er með fimm stig að
loknum þremur leikjum en Valsmenn töpuðu sínum fyrsta leik á
leiktíðinni og er þetta aðeins í fjórða sinn frá upphafi sem liðið tap-
ar gegn FH í Kaplakrika.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
!
"
#" $%
&
'$( !
! )
$
&$ &
&)*
!
" #$
%&!
# '
!
(! !
)#$!
* !
+, -
.)
* ! /
01 -
2 (
!
*
(2$ 01 -
3
4 567878
93
.
2&
/'
! #
* "
:
;8 -
< 3
*=#
,> -
<#$
*
+1-
?
4
3
) @8
A4 $
% +, *+--.
. 5
/ * $ 0 1. "( 5234-
9
5>
5
'$ 6
( 5
!
4 5
%
$ 5
7+*>-
7 7 3
4 56767>
6)
*%7., 80 9 # *%7:4 80 &$ *%7:4 80 6 5 $ *%7,- 80
4#$ 5
%
4#$ 5 $ * 7:4 80
B5171, 8
>517+1 8
8517;; 8
651734 8
C*,-
6
;
Heimir Guðjónsson, FH, nær að