Morgunblaðið - 30.05.2003, Qupperneq 38
ÍÞRÓTTIR
38 FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild
FH – Valur .................................................4:0
Þróttur R. – KA.........................................3:1
ÍBV – Fylkir ..............................................1:0
KR – ÍA ......................................................1:0
Staðan:
KR 3 2 1 0 4:2 7
Fylkir 3 2 0 1 5:2 6
Valur 3 2 0 1 6:6 6
FH 3 1 2 0 5:1 5
ÍA 3 1 1 1 4:3 4
KA 3 1 1 1 4:5 4
Þróttur R. 3 1 0 2 5:6 3
ÍBV 3 1 0 2 4:7 3
Fram 2 0 1 1 2:4 1
Grindavík 2 0 0 2 1:4 0
Efsta deild kvenna,
Landsbankadeild
Þór/KA/KS – FH......................................0:2
Sif Atladóttir 22., Kristín Sigurðard. 90.
Valur – ÍBV ...............................................3:2
Laufey Jóhannssdóttir 34., Dóra Stefáns-
dóttir 77., Laufey Ólafsdóttir 88. (víti) –
Margrét L. Viðarsd. 12., Olga Færseth 54.
Staðan:
KR 3 2 1 0 11:2 7
Valur 3 2 1 0 7:4 7
ÍBV 3 2 0 1 15:4 6
Breiðablik 3 2 0 1 4:6 6
Stjarnan 3 1 0 2 5:6 3
FH 3 1 0 2 3:4 3
Þór/KA/KS 3 1 0 2 3:5 3
Þróttur / Haukar 3 0 0 3 1:18 0
1. deild karla
Leiftur/Dalvík – Víkingur R...................1:2
Heiðar Gunnólfsson 45. - Stefán Örn Arn-
arson 26., Daníel Hafliðason 36.
Afturelding – Breiðablik .........................1:0
Henning E. Jónasson 70.
Staðan:
Víkingur R. 3 2 1 0 6:2 7
Keflavík 2 2 0 0 7:3 6
Afturelding 3 1 2 0 2:1 5
Þór 2 1 1 0 3:2 4
Njarðvík 2 1 0 1 4:3 3
Haukar 2 1 0 1 3:5 3
HK 2 0 2 0 1:1 2
Stjarnan 2 0 1 1 3:5 1
Leiftur/Dalvík 3 0 1 2 1:4 1
Breiðablik 3 0 0 3 1:5 0
2. deild karla
Völsungur – Léttir ...................................6:0
Andri Valur Ívarsson 2, Baldur Sigurðsson
2, Guðmundur Óli Steingrímsson, Boban
Jovic.
KS – KFS ...................................................6:3
Róbert Haraldsson 2, Marko Mendic, Grét-
ar Sveinsson, Bjarki Már Flosason, Ragnar
Hauksson – Yngvi Borgþórsson, Alexandar
Ilic, Magnús Elíasson.
Staðan:
Völsungur 3 3 0 0 15:4 9
Víðir 2 2 0 0 5:1 6
KS 3 2 0 1 8:5 6
ÍR 2 1 0 1 5:3 3
Fjölnir 2 1 0 1 5:5 3
Tindastóll 2 1 0 1 4:6 3
KFS 3 1 0 2 6:11 3
Selfoss 2 0 1 1 2:3 1
Sindri 2 0 1 1 1:3 1
Léttir 3 0 0 3 1:11 0
3. deild karla B
ÍH – Árborg ...............................................0:0
Noregur
Álasund - Odd Grenland ...........................2:2
Brann - Bodø/Glimt...................................0:2
Bryne - Lyn................................................4:0
Tromsø - Stabæk.......................................1:3
Vålerenga - Molde.....................................2:0
Staða efstu liða:
Rosenborg 8 7 1 0 20:5 22
Viking 8 4 3 1 16:9 15
Bodö/Glimt 8 4 3 1 13:7 15
Stabæk 8 4 2 2 13:8 14
Sogndal 8 4 2 2 14:11 14
Odd Grenland 8 4 1 3 14:15 13
Bryne 8 3 0 5 14:13 9
Vålerenga 8 2 3 3 10:11 9
Lyn 8 2 3 3 12:17 9
Lilleström 8 2 3 3 7:13 9
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Grindavík: Grindavík – Fram...............19.15
1. deild karla:
Ásvellir: Haukar – Stjarnan......................20
Kópavogur: HK – Njarðvík.......................20
2. deild karla:
ÍR-völlur: ÍR – Víðir ..................................20
Selfoss: Selfoss – Tindastóll ......................20
3. deild karla:
Akranes: Deiglan – Grótta ........................20
Skeiðisvöllur: Bolungarvík – Drangur .....20
Borgarnes: Skallagrímur – Víkingur Ó....20
Þorlákshöfn: Ægir – Reynir S. .................20
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Afríka............20
Árskógsströnd: Reynir Á. – Magni ..........20
Hofsós: Neisti H. – Vaskur........................20
Eskifjörður: Fjarðabyggð – Einherji.......20
Egilsstaðir: Höttur – Neisti D. .................20
Fáskrúðsfj.: Leiknir F. – Huginn .............20
1. deild kvenna:
Vopnafj.: Einherji – Höttur.......................20
Í KVÖLD
WILLUM Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, var
að vonum glaður að leik loknum í gærkvöld. „Það var
mjög mikilvægt fyrir okkur að gefa að gefa tóninn hérna
í fyrsta heimaleiknum. Það gerðum við með að mæta
þeim í baráttunni. Það var vitað að Skagamenn myndu
mæta til að berjast fyrir sínu og ég er í raun ánægðastur
með baráttuþáttinn í leik okkar í dag. Ég varð smeykur
þegar við klúðrum hverju færinu á fætur öðru og það
læddist að mér sú hugsun að það myndi koma í bakið á
okkur.“
Nú var talið fyrir mót að vörnin yrði ykkar veikasti
hlekkur en þú hlýtur að vera ánægður með hana í kvöld?
„Það er nú þannig að við í þessum hópi erum ekkert að
velta okkur mikið upp úr því sem um er rætt meðal
manna úti í bæ. Hjá okkur er þetta einfalt, við ætlum
okkur að búa til jafnvægi í liðinu og að því leyti var þessi
leikur sá besti hjá liðinu hingað til. En nú þurfum við að
ná okkur á jörðina fyrir leikinn gegn KA á Akureyri.
Það verður ekki auðvelt að fara norður og ná í þrjú stig.
KA-menn koma særðir til leiks úr viðureign sinni við
Þrótt og mæta alveg örugglega dýrvitlausir gegn okk-
ur,“ sagði Willum Þór Þórsson.
GUNNLAUGUR Jónsson, fyrirliði Skagamanna, var
skiljanlega ósáttur í leikslok. „Við vorum ekki með í
fyrri hálfleik og það sem skildi liðin að var að KR-
ingar mættu tilbúnir en við ekki. Það er áhyggjuefni
að við skyldum ekki skapa okkur nein umtalsverð
færi. En mér fannst við vera inni í leiknum allan tím-
ann og við vorum alveg líklegir, sérstaklega í síðari
hálfleik þar sem við vorum síst lakari aðilinn.“
Gunnlaugur taldi að rauða spjaldið sem Baldur Að-
alsteinsson fékk hafi verið réttur dómur en taldi hins-
vegar að Þórhallur Hinriksson, miðvallarleikmaður
KR, hafi verið stálheppinn að fá að hanga inni á vell-
inum eftir tveggja fóta „tæklingu“ hans á Grétari
Rafni Steinssyni. „Þeir segja mér það sem hafa séð
þetta atvik í sjónvarpi að þetta hafi verið mjög gróf
tækling en kannski er best fyrir mig að hafa sem fæst
orð um þetta því ég var ekki í almennilegri aðstöðu til
að meta það.
Nú er næsti leikur gegn Fram á þriðjudaginn og
þann leik ætlum við að vinna. Við viljum fara með sjö
stig inn í tveggja vikna landsleikjahlé sem hefst að
Fram-leiknum loknum.“
Leikmenn ÍA voru afar frískir áupphafsmínútum leiksins, sóttu
ákveðið upp vinstri kantinn og voru
til alls líklegir. En
frískleikinn var
skammvinnur,
heimamenn tóku við
keflinu og sóttu
ákveðið, staðráðnir í að skora
snemma í blíðviðrinu og kæta þar
með stuðningsmenn sína. Tvíburn-
arnir Arnar og Bjarki Gunnlaugs-
synir léku afar vel og einnig Veigar
Páll Gunnarssonar sem varsíógn-
andi með hraða sínum og styrk, með
góðri hjálp frá miðjumönnum liðs-
ins, sem höfðu öll ráð í höndum sér.
Hver sóknin rak aðra upp við mark
ÍA og á 12. mínútu varði Þórður
Þórðarson markvörður vel skot frá
Arnari úr miðjum vítateig. Aðeins
tveimur mínútum síðar gerði Arnar
betur þegar hann skoraði markið
sem reyndist það eina sem gert var
í Frostaskjólinu þegar upp var stað-
ið. Höfundurinn að því var Veigar
Páll.
Eftir markið voru KR-ingar lík-
legri til að bæta við en Skagamenn
að jafna metin. Aukin harka færðist
í leikinn eftir því sem leið á fyrri
hálfleik og þótti mörgum sem Egill
Már Markússon dómari væri nokk-
uð spakur að setja mönnum stólinn
fyrir dyrnar.
Það var KR-ingum talsvert áfall
þegar Veigar Páll neyddist til þess
að fara af leikvelli á 25. mínútu eftir
að hafa meiðst skömmu áður. Við
það hvarf ákveðin vídd úr sóknar-
leik liðsins þar sem varamaðurinn
Garðar Jóhannsson er allt annars-
konar leikmaður en Veigar.
Áður en flautað var til loka fyrri
hálfleiks höfðu Arnar og Bjarki átt
ákjósanleg færi til þess að auka for-
ystuna en tókst ekki að reka smiðs-
höggið þar á.
Í síðari hálfleik, líkt og í þeim
fyrri, var oft ekkert út á uppbygg-
ingu sókna KR að setja en þegar
nær dró marki fór hins vegar mesti
glansinn af og varnarmenn ÍA
björguðu fyrir horn eða þá að sókn-
armenn KR máluðu sig út í horn
með einleik.
Sem fyrr voru tvíburarnir at-
kvæðamiklir. Arnar fór skelfilega að
ráði sínu á 58. mínútu þegar hann
stóð fyrir opnu marki á fjarstöng og
sendi knöttinn framhjá þegar lík-
lega hefði verið auðveldara fyrir
knattspyrnumann í hans gæðaflokki
að skora. Bjarki fór einnig illa að
ráði sínu á 66. mínútu þegar hann
náði ekki að stýra knettinum nógu
vel með höfðinu og Þórður varði of
auðveldlega. Aðeins einni mínútu
áður hafði Bjarka tekist að koma
knettinum í mark ÍA en markið ver-
ið dæmt réttilega ógilt vegna rang-
stöðu. Var þá jafnt komið á með lið-
unum því að á 48. mínútu hafði
Stefáni Þórðarsyni lánast að koma
boltanum í KR-markið en réttilega
verið dæmdur rangstæður.
Skagamenn voru skrefi á eftir
KR-ingum að þessu sinni og máttu
þar af leiðandi teljast sleppa nokkuð
vel með að fá aðeins eitt mark á sig.
Miðvallarleikmenn Skagamanna
náðu aldrei að hafa í fullu tré við
heimamenn og sóknarleikurinn var
þar af leiðandi lamaður og á tíðum
tilviljanakenndur, ef undan eru
skildar upphafsmínúturnar.
Eins og fyrr segir gaf Egill dóm-
ari mönnum nokkuð lausan tauminn
og því miður kunnu ekki allir leik-
menn að meta það. Þórhallur Hin-
riksson var stálheppinn að sleppa
með aðeins gult spjald á 84. mínútu
þegar hann braut gróflega á Grétari
Rafni Steinssyni rétt innan við
miðju Skagamegin. Brotið var al-
gjörlega ástæðulaust og verðskuld-
aði rautt spjald og var mesta furða
að Grétar skyldi geta leikið út leik-
inn. Félagi Grétars, Baldur Aðal-
steinsson fékk hinsvegar verðskuld-
að spjald fyrir að ganga af hörku
fram gegn Þórhalli eftir brotið.
Meistararnir tylltu
sér á toppinn
ÍSLANDSMEISTARAR KR tylltu sér á topp efstu deildar karla í gær-
kvöldi þegar þeir unnu sanngjarnan sigur á Skagamönnum, 1:0, á
heimavelli, með marki Arnars Gunnlaugssonar á 14. mínútu. KR-
ingar voru mun sterkari allan leikinn, en gekk illa að færa sér það í
nyt þegar kom upp að marki ÍA og því var sigur þeirra minni en
möguleiki var á. Þetta var níundi sigur KR á ÍA á heimavelli í röð og
um leið var þetta 200. tapleikur Skagamanna á Íslandsmóti meist-
araflokks frá upphafi.
Ívar
Benediktsson
skrifar
A $
"B &%0
?
$! *
*
&)
3
4 56767>
A
#=)
:
&
'
A
#G
( G!
A
!
#
<E
*
(
>, -
*'
9
;0 -
?
4
3
) @8
A%7$
% +, *+--.
. 5
6$ 6 11
! ) "( 5+.>,
9
# 99 $*.
5
#B #&$5 % 5
!
4 5
%
$ 5
7,*B-
7 7 3
4 56767>
A %
*
,C -
%3
3)A
#
!
F %
E !
'
#$
!#$ !#
*F
< (#
;> -
*
0C -
/ $ *?74, 80 ($ *B734 80
4#$ 5
%
4# 5 ?734 8C
($
B5171: 8
B>*,-
>
8
Arnar Gunnlaugsson, framherjiKR-inga, var hæstánægður
með sigurinn á Skagamönnum í gær
en þar réði mark
hans úrslitum. Arn-
ar er fæddur og
uppalinn Skagamað-
ur og lék með félag-
inu allt þar til hann hélt í atvinnu-
mennsku fyrir rúmum áratug.
Tölfræði Arnars í íslenskri knatt-
spyrnu er hreint mögnuð. Í gær lék
hann sinn 50. leik í efstu deild. Í
þessum 50 leikjum hefur hann alls
skorað 37 mörk. Þá hefur Arnar
einnig spilað 18 leiki í næstefstu
deild og gert 18 mörk þar.
„Það var frábært að vinna í þess-
um leik sérstaklega í ljósi þess
hvernig aðrir leikir fóru í dag,“
sagði Arnar í samtali við Morgun-
blaðið eftir viðureignina á KR-velli í
gærkvöldi. „Það var vitað fyrir leik-
inn að sigur myndi færa okkur topp-
sætið og það var ekkert annað sem
komst að í huga okkar en að taka
toppsætið í kvöld.
Þetta var baráttuleikur og lítið
um fallega knattspyrnu. Það komu
einhverjir smá spilakaflar, en í heild
var þetta baráttuleikur og það sem
skar úr um úrslit leiksins var að
okkur langaði meira í sigurinn. Ég
hefði sjálfur átt að innsigla sigurinn
um miðjan síðari hálfleik, en ég veit
ekki hvernig ég fór að því að klúðra
því færi sem ég fékk þá. Ég var var
hálfpartinn byrjaður að fagna.“
Var það ekki svolítið súrsætt að
gera sigurmarkið gegn gömlu félög-
unum?
„Vissulega var það skrýtið að
gera sigurmark gegn ÍA. En nú er
ég í KR og það kemst ekkert annað
að hjá mér núna en KR. Við eigum
frábæra áhorfendur og vonandi
standa þeir þétt við bakið á okkur í
allt sumar.“
Ef þú berð þennan leik saman við
leikinn sem þú lékst með Feyenoord
gegn Skaganum í Evrópukepninni
fyrir tíu árum síðan. Var þetta eit-
hvað svipað?
„Nei þetta var töluvert öðruvísi í
kvöld en þegar ég lék með Feyen-
oord. Þá var ég bara krakki og ég
leit á alla strákana í Skagaliðinu
sem góða vini mína. Ég var ekkert
tilbúinn í svona slag þá, en maður
hefur harnað mikið síðan á þessum
árum og nú veit ég að það gildir
engin miskunn í þessu,“ sagði Arnar
Gunnlaugsson og brosti. Því má við
bæta að yngri bróðir hans, Garðar,
lék síðustu 30 mínúturnar í fremstu
víglínu ÍA.
Eftir
Hjörvar
Hafliðason
„Engin miskunn“
ÚRSLIT
„Ánægður með
jafnvægið í liðinu“
„Vorum ekki með
í fyrri hálfleik“
Skagamennirnir Reynir