Morgunblaðið - 30.05.2003, Page 39
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 39
Heimamenn léku undan norðan-vindinum í fyrri hálfleik en
það voru samt gestirnir sem tóku
strax frumkvæðið.
Þeir voru miklu
fljótari með boltann
og náðu betra sam-
spili en Leiftur/Dal-
vík. Norðanmenn voru ósamstiga
og aðgerðir þeirra ómarkvissar.
Vörnin gaf að vísu fá færi á sér en
miðjuspilið var í molum og þeir
náðu aldrei góðum sóknum í hálf-
leiknum. Þótt Víkingar réðu gangi
leiksins náðu þeir ekki að brjóta
vörn heimamanna á bak aftur.
Fyrsta færi gestanna kom rétt eft-
ir miðjan hálfleikinn og úr því varð
mark. Stefán Örn Arnarson náði að
pota boltanum í bláhornið af mark-
teig eftir að Daníel Hafliðasyni
hafði tekist að koma knettinum
framhjá tveim varnarmönnum.
Annað færi Víkinga gaf líka mark
þegar Daníel Hjaltason þrumaði
knettinum í þverslá marks heima-
manna og nafni hans Hafliðason
fylgdi vel á eftir og kom knettinum
í markið af stuttu færi. Leiftur/
Dalvík náði að minnka muninn með
síðustu spyrnu hálfleiksins þegar
boltinn hrökk af einum Víkinganna
á miðjum vallarhelmingi þeirra og
Heiðar Gunnólfsson spyrnti við-
stöðulaust að marki. Boltinn sveif í
fallegum boga undan vindinum og
yfir Ögmund í marki Víkings, sem
átti sér einskis ills von.
Þetta virtist hleypa heimamönn-
um kappi í kinn því þeir komu mun
ákveðnari til seinni hálfleiksins.
Voru meira með boltann en gest-
irnir og léku mun betur saman en í
fyrri hálfleiknum. Sem fyrr gekk
þeim þó illa að skapa sér færi og
hlýtur það að vera þeim töluvert
áhyggjuefni að hafa einungis skor-
að eitt mark í fyrstu þremur um-
ferðunum. Víkingar voru ekki eins
einbeittir í seinni hálfleik og í þeim
fyrri og náðu aldrei að nýta sér að
hafa vindinn í bakið. Þeir náðu þó
að hrinda öllum áhlaupum heima-
manna og koma í veg fyrir að þeim
gæfist færi á að jafna leikinn. En
svona værukærð hefði getað komið
þeim í koll og ekkert nema bitleysi
í sókn heimamanna kom í veg fyrir
að þeir næðu stigi úr leiknum.
Fáir heimamanna léku vel allan
leikinn en margir voru sprækir í
seinni hálfleik. Forizs Sandor var
yfirburðamaður á vellinum, ótrú-
lega klókur og útsjónarsamur leik-
maður, og Árni Thor Guðmundsson
var traustur við hlið hans í vörn-
inni. Miðjan var úti að aka í fyrri
hálfleik en allt önnur eftir hlé. Lið
gestanna var frekar jafnt og áttu
þeir Bjarni Hall og Daníel Hafliða-
son hvað bestan leik.
Maður leiksins: Forizs Sandor,
Leiftri/Dalvík.
Sigur Aftureldingar
Færin gefa engin stig eins ogBlikar fengu að sannreyna
þegar þeir sóttu Aftureldingu heim
í Mosfellsbænum í
gær. Kópavogsbú-
arnir sóttu stíft og
sköpuðu sér mörg
færi án árangurs en
heimamenn sættu færis og Henn-
ing E. Jónasson skoraði eina mark
leiksins á 70. mínútu, 1:0 fyrir Aft-
ureldingu. Sigurinn fleytir liðinu í
þriðja sætið en Blikar eru eftir
sem áður á botni deildarinnar –
hafa tapað öllum þremur leikjum
sínum.
„Við vissum að Blikar kæmu
dýrvitlausir í leikinn því þeir voru
án stiga,“ sagði Sigurður Þórir
Þorsteinsson, þjálfari Mosfellinga,
eftir leikinn. „Við ætluðum hins
vegar að vera grimmir líka, taka á
móti þeim og ekki liggja til baka en
það gekk ekki nógu vel fyrir hlé.
Það var svo sem ekki leikin nein
gæða knattspyrna en ég er mjög
ánægður með að fá þessi þrjú stig
því deildin er sterkari en í fyrra og
öll liðin tekið stig af hvort öðru svo
að ekkert má útaf bregða.“
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari
Breiðabliks, var ekki eins sáttur.
„Við biðum eftir þessum leik sem
átti að koma okkur á sporið en það
gekk ekki þrátt fyrir ótal mark-
tækifæri og með ólíkindum að nýta
ekki að eitt þeirra.“
Maður leiksins: Albert Arason,
Aftureldingu.Það gekk mikið á fyrstu mínúturn-ar í Laugardalnum í gær. Eftir
átta mínútna leik fékk Þróttur horn-
spyrnu frá vinstri
sem Björgólfur
Takefusa tók. Sören
Byskov, markvörður
KA, handsamaði
knöttinn af miklu öryggi, beið eftir að
menn færu út úr vítateignum og
renndi boltanum síðan út að hægra
horni hans. Þá kom Björgólfur aftan
að honum, skaust fram fyrir hann og
náði boltanum og renndi honum í
mannlaust markið. Hræðileg mistök
hjá Sören, en hann átti svo sem eftir
að bæta fyrir þau því hann var besti
maður norðanmanna í leiknum.
Mínútu síðar fékk Slobodan Milisic,
varnarjaxlinn hjá KA, réttilega gult
spjald og 1,45 mínútu síðar sýndi
Kristinn Jakobsson dómari honum
gula spjaldið á nýjan leik og rautt í
kjölfarið. Síðara spjaldið var nokkuð
strangur dómur, sérstaklega þegar
hugsað er til þess sem dómarinn
leyfði það sem eftir var leiks.
Það kom auðvitað niður á KA-
mönnum að vera einum leikmanni
færri í tæplega 80 mínútur. Þróttarar
höfðu verið meira með boltann og
höfðu verið hættulegri í sóknarað-
gerðum sínum. Fljótlega eftir Milisic
var rekinn af velli virtist sem heima-
menn teldu sig ekki þurfa að hafa of
mikið fyrir að krækja í öll þrjú stigin
því leikur þeirra breyttist, hann varð
allur rólegri en áður og bakverðirnir
tóku nú upp á því að senda langar og
háar sendingar fram á Björgólf og
Sören Hermansen, en báðir vilja
þessir menn frekar fá knöttinn til sín
með jörðinni. Þetta skilaði afskaplega
litlum árangri.
Markið sem KA fékk á sig var
klaufalegt og jöfnunarmark Steinars
Tendens á 35. mínútu var ekki síður
klaufalegt þó á annan hátt væri, en
mikil mistök markvarðarins líkt og í
marki Þróttara.
Fátt markvert gerðist það sem eft-
ir var fyrri hálfleiks en KA-menn
urðu þó fyrir enn einu áfallinu þegar
þjálfari þeirra, Þorvaldur Örlygsson,
meiddist undir lok hans og kom ekki
til leiks þegar flautað var til síðari
hálfleiks. Við stöðu hans tók Pálmi
Rafn Pálmason og lék hann mjög vel,
mikið efni þar á ferð.
Síðari hálfleikur var fjörugri en sá
fyrri og heimamenn byrjuðu á því að
bjarga á marklínu sinni eftir horn-
spyrnu gestanna. Sören varð síðan að
taka á öllu sínu í marki KA og það oft-
ar en einu sinni. Hann sá við Hjálmari
Þórarinssyni er hann komst einn í
gegn og varði síðan fasta aukaspyrnu
Björgólfs en réð hins vegar ekki við
aukaspyrnu hans á 69. mínútu.
Hinum megin varði Fjalar Þor-
geirsson, markvörður Þróttar, frá
Steinari. Hjálmar gulltrygði síðan
fyrsta sigur Þróttar í deildinni þegar
fimm mínútur voru eftir til leiksloka
með góðu marki eftir fína sendingu
frá Sören félaga sínum. KA var nærri
að minnka muninn á síðustu mínút-
unni þegar Pálmi Rafn átti gott skot
úr aukaspyrnu, en Fjalar varði vel.
Bæði Þróttur og KA eru með mjög
frambærileg lið sem geta gert hvaða
liði sem er í deildinni skráveifu á góð-
um degi. Þróttarar eru léttleikandi,
mjög vinnusamir og duglegir auk
þess sem liðið er vel skipulagt. KA-
menn eru með fljóta og sterka fram-
herja sem ekki má líta lengi af og á
miðjunni eru ágætir spilarar.
Þróttarar með
tak á KA-mönnum
ÞRÓTTARAR fengu sín fyrstu
stig í gær þegar þeir lögðu KA-
menn 3:1 í dálítið furðulegum
leik. Þróttarar virðast hafa eitt-
hvert tak á KA því liðin hafa nú
mæst sjö sinnum í efstu deild
og hefur KA aðeins unnið einu
sinni. Síðast mættust liðin fyrir
nítján árum og þá skoraði Ás-
geir Elíasson, núverandi þjálfari
Þróttar, annað marka Þróttar í
2:2 jafntefli.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
6!
*
!B*
0
" #$
0
D 9 )
!""
!
%&( *
!($*$ ) 0 0 ""
#$
$ "
*
&!*
B
6!
0
! *
*
& !#
* ""
!
&6!
$
)2
)#$
G'
!!
* A "
;1 -
(!
*G
!
+6 -
G
*E %E
60 -
<
92 =#
/
'
E 3
.
E '
!
!
!#
*? #
;0 -
I(
2HIH
! !
;6 -
#$
*
+6 -
$!
3
4 56767> ?
4
3
) @8
3
$
% +, *+--.
. 5
* $
! $ "( 524.+
9
B '0 B*,
5
6E
5
!
4 5
%
$ 5
7B1*6-
7 7 3
4 56767>
609 E*B71- 80 &! $F *($ 7:+ 80
4#$ 5
%
4# 5 609 E*B71+ 80 B517, 8
B5B7.4 8
>5B7>, 8
85B734 8
B,*6-
B1
+
Barátta á
Ólafsfirði
VÍKINGAR sóttu þrjú stig norður yfir heiðar í 1. deildarkeppni karla í
gær þegar þeir heimsóttu Leiftur/Dalvík til Ólafsfjarðar. Mikil bar-
átta einkenndi leikinn og marktækifæri voru fá en Víkingar höfðu
2:1 sigur að lokum.
Valur
Sæmundsson
skrifar
Stefán
Stefánsson
skrifar
FH-stúlkur gerðu góða ferð til Ak-ureyrar, þar sem þær lögðu
stöllur sínar úr Þór/KA/KS sann-
gjarnt, 2:0. Leikurinn var mjög slak-
ur af hálfu heimaliðsins og þurfti FH
engan glansleik til sigurs. FH skor-
aði fyrra mark sitt um miðjan fyrri
hálfleikinn, en þá komst Sif Atladótt-
ir óvænt í gegnum Þórsvörnina og
renndi boltanum örugglega framhjá
Söndru Sigurðardóttur. Það var svo
Kristín Sigurðardóttir sem gull-
tryggði sigur FH á lokamínútu leiks-
ins.
Sigríður Guðmundsdóttir og Val-
dís Rögnvaldsdóttir voru mjög góðar
í vörninni hjá FH og Sif Atladóttir
þefvís á færin.
Þóra Pétursdóttir var best hjá
heimaliðinu, en hún kom inn á sem
varamaður á 65. mínútu.
FH-ingar
fögnuðu á
Akureyri
Morgunblaðið/Jim Smart
Leósson og Gunnlaugur Jónsson með fyrrverandi samherja sinn, Bjarka Gunnlaugsson, á milli sín.