Morgunblaðið - 30.05.2003, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 30.05.2003, Qupperneq 41
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 41 U M þessa helgi verður haldin heljarmikil þungarokkshátíð und- ir heitinu Sólmyrkvi á Grand Rokk og í Hinu Húsinu. Fer hún fram föstudaginn 30. maí og laugardaginn 31. maí en sólmyrkvi skellur sem kunnugt er á aðfaranótt laugardags- ins. Fram kemur úrval starfandi íslenskra þungarokkssveita en hvatinn að því að hátíðin var sett á laggirnar er sá að austurríska dauðarokksveitin Cadaverous Condition setti sig í samband við Sigurð Harðarson, oft- ast kallaður Siggi Pönk, og æsktu þess að fá að leika hér- lendis á hljómleikum. Sveitin leikur dauða- rokk af gamla skól- anum (Obituary, Death, Pestilence o.s.frv.). Siggi sá sína sæng uppreidda við þetta og ákvað að halda al- mennilega tónleika með íslenskum rokk- böndum í leiðinni. Hingaðkomnir ætla Cadaverous-liðar að ferðast um landið en meðfram tónleikunum verður ýmislegt gert í nafni listarinnar. Fyrir það fyrsta er sveitin, sem gefið hefur út nokkra hljómdiska heima í Austurríki, bú- in að láta pressa geisladisk sérstaklega vegna Íslandsfarar. Um er að ræða 200 eintök sem verður dreift frítt á viðkom- andi tónleikum. Platan kallast What The Waves Were Always Saying og inniheldur átta lög. Þar er m.a. að finna út- gáfu af laginu „Snaketime“ með íslensku iðnaðarsveitinni Reptilicus, jafn- framt sem lag með sveitinni Product 8 er á disknum, en þá sveit rekur Jó- hann Eiríksson, fyrrum Reptilicus-limur. Með þess- um disk fylgir smásaga eftir Bill Drummond sem var sérstaklega samin af þessu tilefni. Drummond þessi gerði garðinn frægan með KLF hér um árið og hefur verið virkur jaðar-listamaður síðustu ár. Þá koma Cadaverous-liðar hingað hlaðnir flöskuskeytum sem þeir ætla að varpa í íslenskan sæ. Flöskurnar munu innihalda áð- urnefnda útgáfu auk skilaboða til þeirra sem flöskurnar finna. Fyrri tónleikarnir fara fram á Grand Rokk og munu standa yfir frá kl. 23.00 til 2.00. Aðgangseyrir er 500 kr. Þar munu Cadaverous Condition spila en einnig For- garður Helvítis (sem hafa end- urheimt gamla trymbilinn sinn og ætla að leika bæði gamalt og glæ- nýtt efni), Sólstafir, Shiva (þessi akureyrska rokksveit er að koma saman á ný eftir talsvert hlé) og Myrk (breiðskífa þeirra, Icons of the Dark, kemur út í sumar). Seinni tónleikarnir munu fara fram í Hinu Húsinu og standa þeir yfir frá 18.00 til 22.00. Frítt verður inn á þá. Þar koma fram sem áður Cadaverous Condition og For- garður Helvítis en einnig Changer (sem eru tilbúnir með plötu, Scen- es, sem kemur út í júlí), Dark Har- vest („stjörnuband“ með Gulla Falk, trymbli Changer/Shiva og bassaleikara Forgarðsins), Potent- iam (þriðja breiðskífa þessa svart- þungarokksbands kemur út fljót- lega), Lack of Trust og Diminished. Þungarokkshátíðin Sólmyrkvi 30.–31. maí Cadaverous Condition. Bill Drummond. TENGLAR ..................................................... www.cadaverouscondition.com arnart@mbl.is Svört verða sólskin Skólavörðustíg 8 Sími/fax 511 3555 10% kynningarafsláttur af Lapponia skart - maí og júní PIPAR OG SALT Klapparstíg 44  Sími 562 3614 GRILLPÖNNUR kr. 2.900 (stærri) kr. 2.300 (minni)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.