Morgunblaðið - 02.06.2003, Síða 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2003 11
aðist að ekki yrði tryggt að smærri
ríki innan sambandsins gætu haft
fullnægjandi áhrif á ákvarðanatöku
innan ESB. Hún sagðist telja að Sví-
þjóð gæti ásamt Danmörku og Bret-
landi nýtt sér stöðu sína utan EMU til
að þrýsta á um að komið yrði til móts
við slík sjónarmið.
Lækkun á gengi sænskra
hlutabréfa?
Í viðskiptablaðinu Dagens Industri
er haft eftir sérfræðingum að gengi
sænskra hlutabréfa kunni að lækka
verulega ef Svíar taki upp evruna.
Teun Draaisma, sérfræðingur í evr-
ópskum hlutabréfum hjá Morgan
Stanley, segir að upptaka evrunnar
myndi leiða til að sænskir fjárfestar
færi fé úr sænskum hlutabréfum yfir í
evrópsk sem muni leiða til þess að
gengi sænsku bréfanna muni hrynja.
Sænskir stofnanafjárfestar eru
sem stendur með um 60% af fé sínu
bundið í sænskum hlutabréfum. Dra-
aisma telur að það hlutfall muni
lækka og verða áþekkt og í öðrum
Evrópuríkjum. Í Þýskalandi, Finn-
landi og Danmörku sé hlutfallið til
dæmis 40% og um 20% á Ítalíu, Spáni
og Írlandi.
Einungis í Bretlandi og Sviss er
hlutfall innlendra hlutabréfa í hluta-
bréfasafni stofnanafjárfesta hærra en
í Svíþjóð eða 69% og 64%.
MEIRIHLUTI Svía er andvígur því
að taka upp evruna, samkvæmt skoð-
anakönnum á vegum Danske Bank.
Samkvæmt könnuninni hyggjast 42%
Svía greiða atkvæði með upptöku evr-
unnar í þjóðaratkvæðagreiðslu í
haust en 54% hyggjast greiða atkvæði
gegn evrunni. Síðastlið sumar voru
stuðningsmenn evrunnar um 20 pró-
sentustigum fleiri en andstæðingarn-
ir, en á þeim tíma sem síðan er liðinn
hefur andstæðingunum fjölgað jafnt
og þétt.
Í umræðum á sænska þinginu í síð-
ustu viku lagði Göran Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, áherslu á að
Evrópusambandið stjórnaði í raun nú
þegar sænskum efnahagsmálum.
Því væri mikilvægt fyrir Svía að
gerast aðilar að Efnahags- og mynt-
bandalaginu (EMU) og taka upp hina
sameiginlegu mynt.
Þrír stjórnmálaflokkar, Miðflokk-
urinn, Vinstriflokkurinn og Umhverf-
isflokkurinn, eru andvígir evrunni og í
öðrum flokkum eru skoðanir skiptar.
Andstaða frá hægri
Ann-Marie Pålsson, sem er þekkt-
ur hagfræðingur og situr á þingi fyrir
Hægriflokkinn, lét í vikunni í ljós efa-
semdir um ágæti þess að taka upp
hina sameiginlegu mynt. Hún sagðist
hafa fullan skilning á hinum hag-
fræðilegu rökum fyrir evrunni en ótt-
Andstaða við evruna eykst í Svíþjóð
Svíar ganga til atkvæðis um evruna í haust en andstaða við hana eykst.
Reuters
UM HUNDRAÐ sænskir fjárfest-
ar og heilbrigðisstarfsfólk sóttu
morgunverðarfund Útflutnings-
ráðs Íslands í Stokkhólmi á mið-
vikudag. Markmiðið með fundinum
var að gefa sænskum fjárfestum
og heilbrigðisstarfsfólki yfirlit yfir
íslensk heilsutæknifyrirtæki og
ræða möguleika á samstarfi þar á
milli.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, setti fundinn og sagði
m.a. að Ísland væri orðið að til-
raunastöð sem lofaði góðu varð-
andi þróun nýrrar tækni og vís-
indaframfara á sviði heilbrigðis-
mála.
Átta íslensk fyrirtæki
kynna starfsemi sína
Átta íslensk heilsutæknifyrir-
tæki kynntu starfsemi sína; Flaga-
Medcare, Future Medtec, Tauga-
greining, Kine, TM Software,
Hreyfigreining, Össur og Heil-
brigðistæknivettvangurinn.
Helga Valfells hjá Útflutnings-
ráði er ánægð með fundinn sem
var vel sóttur. Hún segir að tals-
menn íslensku fyrirtækjanna hafi
komið íslenska frumkvöðlaandan-
um á framfæri við sænska fagfólk-
ið og vonandi myndi fundurinn
leiða til viðskiptasambanda. „Ís-
lensk heilsutæknifyrirtæki sem
fært hafa út kvíarnar hafa sýnt
fram á mikinn vöxt og það sýnir að
við hugsum alþjóðlega,“ segir
Helga.
Hún telur jafnframt mikilvægt
að starfsfólk í þessum fyrirtækjum
hafi lært á Norðurlöndum og hluti
stjórnarmanna er jafnvel frá
Norðurlöndum. Þannig berist
þekking á milli og það hvetji enn
frekar til samvinnu innan Norð-
urlanda.
Nokkur íslensk fyrirtæki
eru orðin alþjóðleg
Helga segir að fundurinn hafi
verið gagnlegur til að sýna fram á
að nokkur íslensk heilstutæknifyr-
irtæki eru orðin alþjóðleg og það
sé ekki erfiðleikum bundið að reka
alþjóðlegt fyrirtæki frá Íslandi.
„Okkar starf er að koma aðilum í
samband og líklega eru það minni
fyrirtækin sem fá mest út úr
þessu, sprotafyrirtækin sem eru
að byggjast upp,“ segir Helga Val-
fells.
Ísland tilrauna-
stöð í heilsutækni
● SAMSKIP hafa keypt belgíska fé-
lagið Belgo-Ruys NV í Antwerpen
sem undanfarin ár hefur verið um-
boðsaðili Samskipa í Benelúxlönd-
unum. Félagið hefur fyrst og fremst
sinnt umboðsþjónustu og flutnings-
miðlun. Samningurinn tekur gildi 1.
júní n.k. og verður nafni Belgo-Ruys
þá breytt í Samskip NV.
Framkvæmdastjóri verður Björn
Einarsson sem jafnframt er fram-
kvæmdastjóri Samskipa BV í Rotter-
dam. Hann hefur aðsetur í Rotter-
dam. Samskip NV mun halda áfram
að sinna hlutverki Belgo-Ruys á sigl-
ingaleiðum milli Belgíu, Skandínavíu
og Rússlands. Jafnframt verður fyr-
irtækið áfram umboðsaðili Sam-
skipa á svæðinu, sem og eistneska
skipafélagsins ESCO, sem Samskip
eiga helmingshlut í.
„Öflugt markaðsstarf Belgo Ruys
hefur stuðlað að vexti Samskipa í
Benelúxlöndunum. Með kaupunum
skapast tækifæri fyrir Samskip til að
styrkja enn frekar stöðu sína á
þessu markaðssvæði, jafnframt því
sem hægt verður að bjóða upp á
enn betri þjónustu við viðskiptavini
félagsins,“ segir í frétt frá Sam-
skipum um kaupin. Samtals reka
Samskip 27 skrifstofur í 12 löndum,
auk umboðsskrifstofa vítt og breitt
um heiminn. Hjá fyrirtækinu starfa
um 800 manns og nemur ársvelta
félagsins um 200 milljónum Banda-
ríkjadala, um 14,3 milljörðum króna.
Samskip kaupa belg-
ískt flutningafyrirtæki
VIÐ skólaslitaathöfn í Vélskóla Ís-
lands hinn 24. maí síðastliðinn voru
brautskráðir 30 vélstjórar og vél-
fræðingar. Athöfnin fór fram í há-
tíðarsal Sjómannaskólans að við-
stöddum fjölmörgum gestum. Tveir
voru brautskráðir með 1. stig, fjór-
tán með 2. stig og fjórtán með 4.
stig sem er grunnurinn undir hæstu
starfsréttindi og er það 208 eininga
nám.
Eftirtaldir 4. stigs útskrift-
arnemar fengu verðlaun fyrir góð-
an námsárangur: Jón Garðar Stein-
grímsson fyrir vélfræðigreinar,
Gunnlaugur Már Sigurðsson fyrir
rafmagnsfræðigreinar, Hjörtur
Guðjón Guðmundsson fyrir áfang-
ann Hönnun skipa, Guðni Stein-
grímsson fyrir raungreinar og
ensku, Guðmundur Henry Stef-
ánsson hlaut verðlaun fyrir góðan
námsárangur í hraðferðarnámi til
2. stigs. Einnig veitti skólinn verð-
laun fyrir störf að félagsmálum og
hlaut Júlíus Pálsson sem útskrif-
aðist af 4. stigi þau.
Í ræðu skólameistara Björgvins
Þórs Jóhannssonar kom fram að ný
stjórnskipan muni koma til fram-
kvæmda hinn 1. ágúst. Menntafé-
lagið ehf. mun yfirtaka stjórn Vél-
skóla Íslands og Stýrimannaskólans
í Reykjavík.
Eftirtaldir kennarar munu láta af
störfum vegna aldurs við þessi
tímamót: Atli Marinósson vélfræð-
ingur, Benedikt Bjarnason vélfræð-
ingur, Einar Ágústsson, meistari í
rafvirkjun, Guðjón Indriðason vél-
fræðingur, Jón Hassing vélfræð-
ingur. Einnig munu láta af störfum
Sigríður E. Sæmundsdóttir skóla-
fulltrúi og Björgvin Þór Jóhanns-
son skólameistari.
Útskriftarnemendur 4. stigs ásamt skólameistara.
Þrjátíu vélstjórar brautskráðir
frá Vélskóla Íslands