Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 29
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 29
! !
" !
# $ % %&
' #(#
)## %&
Súlumót frá formaco
● úr pappa
● einföld og þægileg í notkun
● fæst í mörgum lengdum
og breiddum
Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykjavík
Sími 577 2050 • Fax 577 2055
formaco@formaco.is • www.formaco.is
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin
til Verona, einnar fegurstu borgar
Ítalíu á hreint ótrúlegum kjörum.
Þú bókar 2 sæti, en greiðir bara
fyrir 1, og kemst til einnar fegurstu
borgar Ítalíu á hlægilegu verði. Að
auki getur þú valið um úrval hótela
í hjarta Verona og bílaleigubíla frá
Avis á einstaklega hagstæðu verði.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Ítalía
13. ágúst
frá kr. 19.950
5 eða 12 dagar
Verð kr. 19.950
M.v. 2 fyrir 1.
Fargjald kr. 32.200 / 2 = 16.100.-
Skattar kr. 3.850.-
Samtals kr. 19.950.- pr. mann.
Gildir út 13. ágúst, heim 18./25. ágúst
Almennt verð kr. 20.950.-
Úrval hótela í boði.
Lægsta verð á bílaleigubílum.
Síðustu sætin
Kertafleyting á Reykjavíkurtjörn
verður á vegum íslenskra friðar-
hreyfinga miðvikudaginn 6. ágúst.
Athöfnin er í minningu fórnar-
lamba kjarnorkuárásanna á jap-
önsku borgirnar Hírósíma og
Nagasakí 6. og 9. ágúst 1945, um
leið og kröfunni um kjarn-
orkuvopnalausan heim er haldið á
loft. Safnast verður saman við suð-
vesturbakka Tjarnarinnar (við
Skothúsveg) klukkan 22:30 og verð-
ur þar stutt dagskrá. Þorbjörn
Broddason prófessor flytur ávarp
og Ingibjörg Haraldsdóttir les ljóð.
Fundarstjóri verður Rósa Björk
Brynjólfsdóttir.
Kertafleyting við Minjasafnið á
Akureyri fer fram á miðvikudags-
kvöld til að minnast fórnarlamba
kjarnorkuárásanna á Japan 1945.
Þetta er sjötta árið í röð sem at-
burðanna er minnst með þessum
hætti á Akureyri. Athöfnin hefst kl.
22:00 með stuttu ávarpi Kristínar
Sigursveinsdóttur og ljóðalestri
Bergljótar Þrastardóttur. Eftir það
verður kertum fleytt á tjörninni.
Flotkerti verða seld á staðnum.
Á MORGUN
Listræn Viðeyjarganga er yfir-
skrift gönguferðar sem Kristinn E.
Hrafnsson listamaður mun í kvöld
stýra um Viðey. Í göngunni verður
fjallað verður sérstaklega um lista-
verk bandaríska myndhöggvarans
Richard Serra. Verkið kallast
Áfangar og samanstendur það af níu
stuðlabergssúlnapörum sem hugsuð
eru sem rammar um ákveðna hluta
útsýnisins. Einnig verður stiklað á
stóru í sögu Viðeyjar. Ferðin hefst
með siglingu frá Sundahöfn kl 19:30
og endar með kaffisölu í Viðeyjar-
stofu.
Í DAG
SJÓBIRTINGUR er farinn að
veiðast í þekktum sjóbirtingsám í
Vestur-Skaftafellssýslu og þó að
þekkt sé að fyrstu birtingar
veiðist þar seint í júlí, er það mál
manna að núna sé meira af fiski
en gengur og gerist í venjulegu
ári og telja menn skýringuna
vera að fiskur gekk óvenju
snemma til hafs í vor.
Sjóbirtingar hafa veiðst í
Vatnamótunum og í Veiðiósi í
Skaftá. Þeir hafa flestir eða allir
verið stórir, þeir stærstu 10
punda. Smærri birtingurinn
gengur jafnan seinna. Góð skot
hafa verið í Veiðiósi, sem er tal-
inn neðsta veiðisvæði Grenlækj-
ar. Sjóbirtingar hafa og veiðst í
Fitjaflóði og allt fram á Segl-
búðasvæði, en þar veiddist sá
fyrsti strax um miðjan júlí, 9
punda. Um líkt leyti sáust fyrstu
birtingarnir stökkva í vatnaskil-
unum við Tungulæk og nokkrum
dögum seinna fóru þeir fyrstu að
veiðast. Hafa nú nokkrir fiskar
komið á land, þeir stærstu 10
punda. Ekki höfum við frétt af
sjóbirtingi í Geirlandsá enn sem
komið er, en þar hafa einhverjir
laxar verið að veiðast.
14 punda úr Kerlingardalsá
Sjóbirtingur er einnig byrjaður
að ganga í Kerlingardalsá og
Vatnsá við Vík. Það eru eingöngu
heimamenn í Vík sem veiða í
Kerlingardalsá og einn þeirra,
Guðgeir Guðmundsson gerði sér
lítið fyrir og landaði 14 punda
fiski þar fyrir fáum dögum, tók
fiskinn á spón. Guðgeir setti í
annan stórbolta, en sá sleit.
Fimmta vika veiða í Veiðivötn-
um gaf 1.196 urriða og bleikjur
samkvæmt vefsíðunni veidivotn-
.is og var þá heildarveiðin komin
í 6.900 fiska, 5.684 urriða og
1.216 bleikjur. Engir nýir risar
hafa veiðst, stærstir eru enn 9,6
punda úr Hraunsvötnum og 9
punda úr Ónefndavatni og Litla-
sjó. Langsamlega gjöfulasta
vatnið er Litlisjór með 2.410 en
þess ber að geta að það er afar
stórt vatn og mest stundað allra
vatnanna á svæðinu.
Sjóbirtingur byrjaður
að ganga í árnar
Morgunblaðið/Einar Falur
Kathryn Maroun frá Kanada og Anthony Luke leiðsögumaður í Laxá í
Kjós með vænan sjóbirting á miðsvæði árinnar.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
UNGIR jafnaðarmenn í Reykja-
vík, ungliðahreyfing Samfylking-
arinnar í Reykjavík, gagnrýna af-
stöðu páfa vegna afstöðu hans til
hjónabanda samkynhneigðra í
bréfi sem þeir afhentu fulltrúa
kaþólsku kirkjunnar á Íslandi í
gær.
Í opnu bréfi til páfa biðja ungu
jafnaðarmennirnir hann að end-
urskoða afstöðu sína til þess að
„tveir samkynhneigðir ein-
staklingar gangi að eigast“, en
sem kunnugt er fordæmdi Páfa-
garður sambönd samkynhneigðra
með yfirlýsingu sem hann sendi
frá sér 31. júlí sl.
Í bréfinu segir ennfremur: „Við
teljum eðlilegt að þeir [samkyn-
hneigðir] fái að njóta allra þeirra
réttinda og bera allar þær skyld-
ur sem hjónabandi fylgja sam-
kvæmt lögum í hverju landi. Í því
felst jafnræði, mannvirðing og
reisn.“
Fulltrúi kaþólsku kirkjunnar,
Séra Húbert Th. Óremus, veitti
bréfinu viðtöku og kvaðst ætla að
koma því áleiðis.
Gagnrýna afstöðu páfa til
hjónabanda samkynhneigðra
Morgunblaðið/Kristinn
Séra Húbert Th. Óremus tekur hér við bréfinu úr hendi Andrésar Jóns-
sonar, formanns Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.
UNDIRBÚNINGUR er hafinn
vegna fyrirhugaðrar lengingar
flugbrautarinnar við Þingeyri en
verja á fimm milljónum króna til
þeirrar vinnu á árinu og tæplega
150 milljónum í framkvæmdir á
næstu þremur árum.
Hermann Hermannsson hjá
Flugmálastjórn segir að nú sé ver-
ið að skoða í hvora áttina eigi
lengja völlinn eða hvort eigi að
lengja hann í báðar áttir. Í annan
endann sé einungis hægt að lengja
brautina í sjó fram en færa þurfi
til veg í hvora áttina sem brautin
verður lengd. Skoða þurfti kostnað
í þessu sambandi og marga flug-
tæknilega þætti og þetta er því
engan veginn einfalt mál að sögn
Hermanns. Bæði Flugmálastjórn
og Flugfélag Íslands vinna saman
að því að kanna möguleikana sem
fyrir hendi eru.
„Þingeyrarflugvöllur þjónar sem
þverbraut fyrir flugvöllinn á Ísa-
firði þannig að þegar ekki er hægt
að lenda á Ísafirði er lent þarna.
Eins og staðan er núna geta vélar
Flugfélags Íslands lent en ekki
tekið á loft með fulla vigt. Það er
að vísu ekki mjög algengt að ekki
sé hægt að lenda á Ísafirði en þeg-
ar það gerist er þetta auðvitað
mjög bagalegt,“ segir Hermann.
Lenging Þingeyr-
arflugvallar er
í undirbúningi VEFURINN Hafsteinn.is var form-lega opnaður s.l. föstudag, 1. ágúst.
Að vefinum standa stuðningsmenn
Hafsteins Þórs Haukssonar sem er
í framboði til embættis formans
SUS, Sambands ungra sjálfstæðis-
manna. Þing SUS verður haldið í
Borgarnesi dagana 12. til 14. sept-
ember en framboð Hafsteins var
kynnt í vor.
Í tilkynningu segir að vefurinn
verði vettvangur fyrir lifandi um-
ræðu um stjórnmál og málefni líð-
andi stundar en að auki verða birtar
upplýsingar um helstu stefnumál
Hafsteins, fréttir af kosningabarátt-
unni og upplýsingar um þing SUS.
Ritstjóri vefsins er Ragnar Jón-
asson en kosningastjóri er Haukur
Þór Hauksson.
Vefurinn
Hafsteinn.is
opnaður
DILBERT
mbl.is