Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 2
MIKIL umferð var um verslunar- mannahelgina og gekk hún víðast hvar vel samkvæmt upplýsingum frá lögregluyfirvöldum. Lögregla þurfti að hafa nokkur afskipti af ökumönnum, bæði vegna ölvunar- og hraðaksturs. Lögreglan á Norðurlandi tók marga ökumenn fyrir hraðakstur og talsvert var um að ökumenn á heimleið frá Akureyri væru ekki búnir að sofa úr sér í gærmorgun að sögn lögreglu á staðnum. Nokkur umferðarslys urðu, bíl- velta varð á Öxarfjarðarheiði á föstudagskvöldið en ökumaðurinn, sem var einn á ferð, slapp ómeidd- ur. Bíll valt á Þorskafjarðarheiði á laugardagskvöld og slasaðist öku- maður á hálsi og baki og var flutt- ur á heilsugæslustöð. Á Reykja- nesbrautinni fór bifreið út af í gær og er ökumaður grunaður um ölv- un en minniháttar meiðsl urðu á tveimur farþegum sem voru í bíln- um. Við Grænás á Reykjanes- brautinni sofnaði ökumaður undir stýri í gær og nuddaðist bifreið hans utan í staur en ökumanninum varð ekki meint af. Fá áföll í helgar- umferðinni Sigurður Helgason hjá Umferð- arstofu segir að umferð um helgina hafi gengið bærilega, að undan- skildu rútuslysinu á Geldinga- draga. Sigurður segir að sú aðferð lögreglu víða um land að bjóða ökumönnum að taka öndunarsýni áður en lagt er af stað hafi reynst vel og mikið um að ökumenn sem ella hefðu ekið af stað hafi fengist til að leggja sig í nokkra klukku- tíma. Hann segir að auglýsingar og áróður fyrir helgina ásamt virku eftirliti lögreglunnar hafi einnig haft góð áhrif. FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ TELUR LÖG BROTIN Samkeppnisstofnun telur að Sam- band íslenskra tryggingafélaga og aðildarfélög hafi gripið til sam- stilltra aðgerða til að hindra inn- komu keppinautar á markað fyrir fiskiskipatryggingar. Með því hafi þau brotið samkeppnislög. Hvert fé- lag fyrir sig andmælir þessari nið- urstöðu og segir viðbrögð sín eðlileg og ekki fela í sér brot á samkeppn- islögum. Flestir á Akureyri Mestur fjöldi gesta um versl- unarmannahelgina var á Akureyri og er talið að um 12 þúsund manns hafi sótt bæinn heim. Lögreglan segir að mikið hafi verið um eftir- litslausa unglinga og mikil ölvun í bænum. Skemmtanir fóru annars vel fram um allt land og er áætlað að á milli átta og níu þúsund manns hafi verið í Vestmannaeyjum, átta þús- und á Ísafirði og sjö þúsund í Galta- læk. Velti rútunni viljandi Bílstjóri rútubifreiðarinnar sem valt á Geldingadraga í Borgarfirði á laugardag segist hafa þurft að velta langferðarbílnum viljandi til að forð- ast dauðaslys þegar hann mætti jeppa. Valið stóð á milli þess að fara fram af brattri stórgrýtisbrekku eða reyna að komast aftur upp á veginn þar sem allar líkur voru á því að velta rútunni. Atkvæðagreiðslu frestað Í gær stóð til að biskupadeild bandarísku biskupakirkjunnar greiddi atkvæði um hvort hinn sam- kynhneigði Gene Robinson yrði gerður að biskup í New Hampshire. Hinni sögulegu atkvæðagreiðslu var hins vegar frestað og sú skýring gef- in að Robinson hefði gerst sekur um ósæmilega hegðun. Íhaldsmenn hafa mótmælt tilnefningunni harkalega og hótað að segja sig úr kirkjunni verði hann biskup. Friðargæsluliðar komnir Fyrstu friðargæsluliðarnir komu til Monróvíu, höfuðborgar Líberíu, í gær. Vonast er til að vera þeirra í landinu auki líkurnar á friði en blóð- ug borgarastyrjöld hefur geisað þar í 14 ár. Friðargæsluliðunum var ákaft fagnað af almenningi en hundruð manna komu á flugvöllinn að taka á móti þeim og hylla þá. Stjórn landsins og uppreisnarhópar fögnuðu einnig komu þeirra. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 26 Erlent 14 Bréf 28 Viðskipti 15 Dagbók 30/31 Listir 16 Sport 32/33 Umræðan 16/17 Fólk 34/37 Hestar 18/19 Bíó 34/37 Forystugrein 20 Ljósvakar 38 Minningar 22/26 Veður 39 * * * Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu þriðjudagur 5. ágúst 2003 mbl.is Of stór biti? Við fyrstu sýn virðast sumir hlutir of kostnaðarsamir til að hægt sé að ráða við þá. Þá er gott að geta notið hagstæðra lána sem henta þörfum hvers og eins. Viðskiptavinum okkar standa til boða húsnæðislán, hvort sem er til kaupa á nýju húsnæði eða framkvæmda á eldra húsnæði. Kynntu þér málið í næsta útibúi Búnaðarbankans eða á www.bi.is www.bi.is Stjórnstöðvar fyrir hitakerfi Fasteignablaðið // Café Amor Café Amor við Ráðhústorgið á Akur- eyri skartar listaverkum í lofti og ljóðlínum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi á gluggum  2 // Hörðuvellir Í haust er gert ráð fyrir að úthlutun hefjist á lóðum á Hörðuvöllum í Kópa- vogi. Þar verður blönduð byggð sérbýla og fjölbýlishúsa  22 // Stétt sótara/ Stétt sótara hefur aldrei verið til á Ís- landi svo fólk þekkir lítið verksvið þeirra. Í Lagnafréttum er fjallað um sótara og iðn þeirra.  25 // Másstaðir II Másstaðir II er 5,5 hektara nýbýli út úr jörð- inni Másstöðum. Um er að ræða land sem nær frá vegi niður að sjó. Allstórt íbúðarhús og nokkur útihús eru á landinu.  34 NIÐURSTÖÐUR könnunar sem Hafnarfjarðarbær gerði fyrir skömmu um viðhorf aldraðra bæj- arbúa til búsetu og þjónustu liggja nú fyrir. „Niðurstöðurnar eru þær að langflestir töldu að framboð fyrir eldri íbúa Hafnarfjarðar væri tak- markað og það sem í boði væri yfir- leitt væri alltof dýrt,“ sagði Stein- unn Þorsteinsdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Hafnarfjarðar- bæjar. „Flestir hinna eldri íbúa sem tóku þátt í könnuninni höfðu hug á, þegar ellin tæki að sækja fastar að, að flytja í sérhannað húsnæði fyrir eldri borgara og töldu sig þurfa íbúðir sem væru um og yfir 70 fer- metrar eða stærri. Íbúðirnar áttu að vera í meðalháum húsum sem við skilgreindum sem þriggja til sex hæða hús, með læstum bíla- kjallara og beinu aðgengi þaðan inn í húsið. Við spurðum fólk hvaða staðir kæmu helst til álita fyrir eldri borgara, þ.e. miðbæjarsvæði, Rafhareiturinn, Langeyrarmalir, Reykjavíkurvegur og nýbyggingar- svæðið á Völlum og svo Norður- bakka. Flestir settu Rafhareitinn í 1. sæti, fast á eftir fylgdu Langeyrar- malir, Reykjavíkurvegur og mið- bæjarsvæðið. Hvað snertir þjónustu þá kom í ljós að fólk vill þjónustu í formi mötuneyta, heimilisaðstoðar og tómstundaafþreyingar. Einnig kom í ljós að fólk notar í ríkum mæli bókasafnið og sundlaugar bæjarins. Þessi könnun var gerð að undir- lagi skipulags- og byggingarráðs. Tekið var 300 manna úrtak úr tæp- lega 2.000 manna hópi fólks á aldr- inum 60 til 85 ára sem búsett er í Hafnarfirði og var svarhlutfall 42%. Ætlunin er að hafa niðurstöðurnar til hliðsjónar við mat á þörf fyrir húsnæði fyrir eldri borgara, hvað byggt verður og hvar.“ Aldraðir Hafnfirðingar miðsvæðis Miðbær Hafnarfjarðar. Inni á þessari mynd eru öll þau svæði sem best komu út í könnuninni.                                                                                             ! "#$%& '()& *) ! + ), $$&   -./0 01 )-./0 01 & 2  -./0 01 )-./0 01  3  3 34   53 30        3 34       !  -/70 -/70 -/70 3-/70 8 8    444 344 3444 44 444 44  "  "   # $" % # "%  &  '              30533 04 035 30 (     0- 0 (       (   "   05 306 034 EIN nauðgun var kærð til lög- reglu yfir verslunarmannahelg- ina. Meint nauðgun var framin á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum að- faranótt sunnudags, og var mað- ur handtekinn og yfirheyrður vegna málsins. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum, að sögn lögreglu Stígamót voru ekki með fólk á neinum útihátíðum, en síminn var opinn hjá þeim alla helgina. „Það hefur ein kona hringt til okkar vegna nauðgunar á útihá- tíð,“ segir Rúna Jónsdóttir frá Stígamótum. Hún segir það at- vik hafa orðið á einni af stóru útihátíðunum og að sú nauðgun hafi ekki verið kærð til lögreglu. Kærur berast oft seint Rúna segir að ekki sé enn hægt að fullyrða neitt um helgina, ekki séu öll kurl komin til gafar: „Samkvæmt ársskýrslum okk- ar í fyrra leituðu það ár til okk- ar átta konur vegna nauðgana, flestar þær konur komu ekki til okkar fyrr en eftir verslun- armannahelgi, vikum og mán- uðum síðar.“ Hún segir því að líklegt sé að kærum gæti fjölg- að. Ein nauðgun á útihátíð kærð um helgina ÞRÍR tékkneskir ferðamenn liggja enn á gjörgæsludeild Landspítal- ans í Fossvogi eftir alvarlegt hóp- slys Skorradalsmegin efst á Geld- ingadraga í Borgarfirði á laugardagsmorgun. Ferðamenn- irnir voru ásamt 25 löndum sínum í rútu þegar hún mætti jeppa og valt í kjölfar þess að vegkantur gaf sig. Lýst er eftir jeppanum og öku- manni hans. Ekki er ljóst um hvers konar jeppa var að ræða, en misvísandi upplýsingar hafa komið fram um tegund hans og lit að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Segir hún að þeim sem telji sig hafa séð jeppa beri ekki saman. Þó er lýst eftir gráum jeppa sem kom- ið hafi við sögu í slysinu. Rútan rann 17 metra á hliðinni áður en hún stöðvaðist. Tuttugu farþegar voru fluttir á sjúkrahús, þar af tólf á Landspítalann auk bíl- stjóra, og voru átta enn á sjúkra- húsi í gærkvöldi. Þrír eru á gjör- gæsludeild Landspítalans, þar af einn tengdur við öndunarvél. Þá liggja þrír sjúklingar á bæklunar- deild Landspítalans og tveir á heilsugæslustöðinni á Akranesi. Stefnt var að því að útskrifa fimm síðastnefndu sjúklingana í gær. Margir hinna slösuðu hlutu bein- brot og innvortis áverka auk útlimaáverka. Af ummerkjum að dæma virðist sem einn farþegi af 28 hafi verið í bílbelti í slysinu að því er lög- reglan í Borgarnesi segir. Vék út í hægri vegkant fyrir jeppa Slysið varð á malarvegi á Geld- ingadraga klukkan 9.55 á laugar- dagsmorgun. Að sögn lögreglunn- ar voru tildrögin með þeim hætti að rútan mætti jeppa og taldi öku- maður rútunnar sig þurfa að víkja fyrir jeppanum út í hægri vegkant, þar sem jeppinn var talinn of inn- arlega á veginum. Þegar rútan var komin út í kant gaf hann sig með þeim afleiðingum að slinkur kom á rútuna þegar bíl- stjórinn náði henni aftur inn á veg- inn. Rútan fór þá út í vinstri veg- kant sem einnig gaf sig og slinkur kom á rútuna á ný. Skall hún þá á hliðina á veginn og rann 17 metra áður en hún stöðvaðist. Samkvæmt frásögn Milenu Drahczalova, tékknesks farar- stjóra hópsins, var rútan á leið til Akureyrar þegar slysið varð. Með henni var íslenskur leiðsögumaður og bílstjóri, alls 31 í rútunni. Mil- ena sagði við Morgunblaðið að jeppinn hefði skyndilega birst á veginum og virst rekast utan í rút- una, sem valt inn á veginn og rann eftir honum. Glerbrotum hefði rignt yfr farþega og fljótlega varð ljóst að slys hefðu orðið á fólki. Lögreglan segir ekki hafa verið gengið úr skugga um hvort jeppinn hafi í raun rekist utan í rútuna en málið sætir lögreglurannsókn. Mikil leit hefur farið fram að um- ræddum jeppa, sem er grár að lit, og lýsir lögreglan eftir ökumanni hans og biður hann að gefa sig fram. Þrír farþegar rútu enn á gjörgæsludeild eftir hópslys í Skorradal Misvísandi upplýsingar um jeppa sem mætti rútunni Þeim farþegum, sem ekki meiddust, var hjálpað um borð í aðra rútu. Rútan rann um sautján metra á hliðinni áður en hún stöðvaðist á veginum. Glerbrotum rigndi yfir fólkið sem sumt slasaðist alvarlega og eru átta farþeganna enn á sjúkrahúsi. Morgunblaðið/Davíð Pétursson HELGIN var fremur róleg hjá lög- reglunni í Reykjavík. Tilkynnt var um níu innbrot í hús og bíla. Brotist var inn í þrjú íbúðarhús í Fossvog- inum og eitt á Kjalarnesi, og var meðal annars stolið skartgripum og litlum rafmagnstækjum. Þrjú innbrot til viðbótar voru framin í Hafnarfirði um helgina. Brotist var inn í tvö íbúðarhús, ekki er vitað hvort einhverju var stolið í öðru tilvikinu en í hinu var stolið rafmagnstækjum, DVD-spilara, hljómflutningstækjum og fleiru. Einnig var brotist inn í iðnaðarhús- næði sem í eru byggingarverk- takar, en ekki er ljóst hverju var stolið. Lögreglan í Reykjavík þurfti að hafa einhver afskipti af ölvuðum einstaklingum á Austurvelli, en í flestum tilvikum var um að ræða góðkunningja lögreglunnar sem fengu að sofa úr sér í fangaklefum. Eitthvað var um minniháttar pústra í miðbænum en ekkert kært til lög- reglu. Innbrot á höfuðborgarsvæðinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.