Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 17 Í MBL. 27. júlí sl., bls. 34, birtist grein eftir mig, og þar var reyndar dálítill prentvilla í fimmta dálki, þar sem talan „2“ í form- úlunni átti að vera „í öðru veldi“. Rétt er að ítreka, að hreyfi- orka (skriðorka) er margfeldi hálfs massans og hraðans í öðru veldi, og hún vex mjög ört með hraðanum. Hér verður vikið að hættum í umferðinni, og heimildir eru hinar sömu og í fyrri grein. „… á 110, má ekki verða of seinn“ Í vinsælum dægurlögum er stund- um vikið að hraðakstri. Ekki má láta þetta hafa áhrif á sig. Þetta eru ein- ungis skemmtileg lög, sem hægt er að hafa gaman af, en eru ekki til eftir- breytni, fremur en t.a.m. ofsaakstur í kvikmyndum. – Skemmtilegt lag frá því í vor er um miðaldra náunga, sem er á vesturleiðinni, á háheiðinni, „á 110, má ekki verða of seinn,“ en hann var að eltast við konu á svipuðum aldri og hann. Sú var víst á leiðinni inn á þing, og e.t.v. hefur slíkt sér- stakt aðdráttarafl á suma karla! Í öðru vinsælu lagi, sem oft er leik- ið, er ungur maður að eltast við stúlku, svo sem títt er um unga menn. Hann átti gamlan „sjervólett“, sem rann þó furðu létt, „svolítið á seinna hundraðið á góðum degi.“ – Ætli hraðinn hafi ekki verið svipaður og hjá manninum á háheiðinni, þ.e. um 110 km/klst. – Vart þarf að taka fram að þetta er hættulegur og heimsku- legur akstur. Úr 90 í 110 km/klst. Við bestu aðstæður á malbikuðum vegi er hámarkshraði 90 km/klst., en á malarvegum er hámarkshraðinn lægri, sem kunnugt er. En hvað ger- ist, þegar hraða er breytt úr 90 í 110 km/klst? Menn geta auðvitað hlotið sekt, ef lögreglan gómar þá, en hver er áhættan þar fyrir utan? Hraðinn vex um 22,2%, en hreyfiorkan um hvorki meira né minna en 49,4%, þ.e. hún vex nánast um helming. Ef eitt- hvað óvænt gerist, er ekkert ráðrúm fyrir hendi til að bregðast við eða stöðva bílinn, sem þýtur áfram um rúma 30 metra, eða um sjö bíllengdir, á sekúndu. Þeir sem þannig aka í okkar frumstæða vegakerfi eru ann- aðhvort heimskir, fáfróðir um hætt- una, eða þá að þeir hirða lítt um eigið líf og annarra. Útafakstur og árekstrar Í fyrra létust 29 manns í 22 slysum. Helmingur slysanna varð við útaf- akstur og rúmlega 40% þeirra urðu, þegar bílar lentu í árekstri við bíl, sem kom á móti. – Stundum missa ökumenn stjórn á bíl sínum, og þeim finnst þeir vera að missa hann út fyrir veg hægra megin. Þeir beygja þá skyndilega og of snöggt til vinstri og missa bílinn fyrir bragðið út af veg- inum vinstra megin. Sé umhverfi veg- arins þar mjög ábótavant, eins og víða er hér á landi, má búast við bana- slysi eða alvarlegum meiðslum. – Ef menn kanna banaslys áranna 1998 til 2002, kemur í ljós að 85% ökumanna, sem þeim valda, eru karlar. Kannski aka karlar meira en konur, en líklega eru þær yfirleitt gætnari en þeir. Framúrakstur Framúrakstur er eitt af því hættu- legasta í umferðinni. Ökumaður fer yfir á vinstri vegarhelming og stefnir að því að komast fram úr bíl og aftur yfir á hægri helming. Mikilvægt er, að menn reyni ekki framúrakstur, nema allar aðstæður séu fyrir hendi. Rétt er að leggja sérstaka áherslu á, að ekki má taka fram úr bíl á óbrot- inni línu. Margir virðast ekki átta sig á þessu. – Um helgar á sumrin eru oft engin skilyrði til framúraksturs á vegum landsins. Ef bíll kemur úr gagnstæðri átt og þeir skella saman á 90 km/klst. hraða hvor, verða afleið- ingarnar mjög alvarlegar. – Ef 500 metrar eru á milli tveggja bíla á þess- um hraða, mætast þeir eftir 10 sek- úndur. Það er ekki langur tími, og að sögn þeirra sem gerst vita, er hér oft um að ræða vanmat hjá ökumönnum, á hraða og fjarlægð (hraðablinda), og mistúlkun aðstæðna. Mikilvægt er að taka ekki óþarfa áhættu. – Nauðsyn- legt er aka jafnan með óskertri at- hygli og láta ekki ytri aðstæður trufla sig. Farsímar geta reynst hættulegir í akstri og eru þar að auki ólöglegir án handfrjáls búnaðar. Reyndar geta farsímar líka valdið truflunum, þó að slíkur búnaður sé notaður. Best er að hafa þá í hanskahólfi og hafa annað- hvort slökkt á þeim eða slökkva á hringingu, séu menn einir á ferð. Lokaorð Sá sem þetta ritar hefur stundum verið eins konar „góðkunningi“ lækna og hjúkrunarfólks á ýmsum heilbrigðisstofnunum. Reynslan af því ágæta fólki er yfirleitt mjög góð. – Margt hefur komið fyrir augu mér á þessum stofnunum, en hryggilegast er að sjá ungt og efnilegt fólk, sem lent hefur í alvarlegum umferðar- slysum. Reynt er að hjálpa því, ef unnt er, en sumt af því bíður þess aldrei bætur að hafa lent í slíkum slysum. – Það er þung ábyrgð, sem ökumönnum er falin, er þeir fá öku- leyfi. Þeir eru með eigið líf og annarra í höndunum. Ef óvarlega er farið, þótt ekki sé nema örstutta stund, get- ur það gerst „á snöggu augabragði“, að „líf mannlegt endar skjótt,“ eins Hallgrímur Pétursson orti um. Óum- ræðilega dapurlegt er, þegar börn og ungmenni hverfa úr mannheimi með snöggum hætti, eða slasast þannig, að þau bíða þess aldrei bætur. – Ég hvet að lokum ökumenn að íhuga vel ábyrgð sína, og sýna sjálfum sér og öðrum hæfilega virðingu og tillits- semi. Enn um hættur í umferðinni Eftir Ólaf Oddsson Höfundur er kennari. ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára.  Steypusögun  Vegg- og gólfsögun  Múrbrot  Vikursögun  Malbikssögun  Kjarnaborun  Loftræsi- og lagnagöt  Hreinlæti og snyrtimennska í umgengni BT-sögun Sími 567 7544 Gsm 892 7544 Laugavegi 63 • sími 5512040 Bergfléttuhringur Vönduðu silkiblómin fást í Útsala Útsala Útsala COS Undirfataverslun • Glæsibæ • S: 588 5575 Ríkharður M. Jósafatsson Austurlensk læknisfræði Nálastungur og nudd 553-0070 GSM: 863-0180

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.